Morgunblaðið - 27.11.1958, Qupperneq 23
Fimmtudagur 27. nóv. 1958
MORCUNBLAÐIÐ
23
Ótíð á Snæfells-
nesi og gæftir
stirðar
STYKKrSHÓLMI, 26. nóv.—Und
anfarna dága hafa verið miklar
rigningar, og ótíð á Snæfellsnesi.
Gæftir hafa verið mjög stirðar,
t.d. var aflahæsti báturmn í gær
með 3Vz lest, og sumir bátanna
öfluðu sáralítið. Fiskur er mjög
lítill á miðunum, og ekki hægt.
að róa nema stutt.
— Minning
Frh. af bls. 16
Voru honum falin mörg trúnað
arstörf, svo sem seta í hrepps-
nefnd, kirkjunefnd, fiskmat og
margt fleira, og var hann alltaf
jafntraustur að hverju sem hann
snéri sér.
Móðir hans og faðir voru hjá
honum þar til þau dóu, og sá
hann vel og drengilega um þau,
til hinstu stundar.
Um 1938 fara að myndast mik-
il straumhvörf í Sléttuhreppi,
með því að fólk fer að flytjast
burt úr hreppnum og er hreppur-
inn að smátæmast að fólki, — en
1945 flyzt Finnbjörn með elztu
dóttur sinni til ísafjarðar, en hin
börnin voru áður farin í burt. —
Á ísafirði dveljast þau eitt ár,
en flytjast þá til Keflavíkur —
þar sem hann dvaldist til síð-
ustu stundar. Óhætt er mér að
segja að í Keflavik leið honum
vel og undi hann þar vel hag
sínum þrátt fyrir það að æsku-
stöðvarnar vöktu alltaf í huga
hans, þar sem hann hafði lifað
sín bernsku- og manndómsár.
Að endingu kveð ég þig Finn-
björn, með þökk fyrir allar gíeði
stundir, sem við áttum saman og
bið þér blessunar á ókunna land-
inu.
Guðmundur Guðnason.
LEIÐIR okkar Finnbjörns Þor-
bergssonar lágu saman haustið
1946. Þá stundaði hann smíðar
í Keflavík — og meðal annars
vann hann þá öðru hverju við
Fiskiðjuna í Keflavík. Það var
svipað að kynnast Finnbirni við
vinnu, eins og að komast úr þoku
mollu á sólskinsblett — þannig
báru vinnubrögð hans af. Hjá
allflestum er vinnan eitthvað
sem menn verða að gera til þess
að lifa — en hjá Finnbirni var
lífið til þess að vinna. — Því úr
starfinu fékk hann svo ótæmandi
gleði, að starfið eitt gerði lífið
ánægjulegt, — þó var hann vissu-
lega opinn fyrir heilbrigðri gleði,
þótt hún kæmi eftir öðrum far-
vegum lífsins.
Við áttum samleið eftir þetta,
allt tiL þess að hann tók þann
sjúkdóm, sem að lokum sigraði
hann, eftir 2% árs baráttu.
Ég og aðrir samferðamenn
Finnbjörns, eigum margs að
minnast eftir kynninguna við
hann, því í vinahópi var hann
hrókur alls fagnaðar og við vinnu
var hann starfsamastur. Skaþ-
gerð hans var stór og víðfeðm,
kappið óþrjótandi og metnaður
mikill í kærleiksríku og fórn-
fúsu hugarfari, sem vildi bæta
hvers manns böl.
Oft fannst mér sem Finnbjörn
væri tákn og eftirmynd hinna
háu fjalla og umhverfis þess sem
hann ólst upp í — þessi trausta
og sterka skapgerð sem allir lað-
ast að, því betur sem menn kynn-
ast.
Það er ánægjulegt og oft nauð-
synlegt að kynnast mönnum eins
og Finnbirni, því þeir verða
manni stöðug og stækkandi fyr-
irmynd, — oft því meir, sem
tíminn líður.
Við dveljum hér stutta eða
langa stund til að læra af lífinu
— beztu kennararnir eru þá þeir
samferðamenn, sem við getum
lært af — Finnbjörn var slíkur
maður.
Ég, og við *em Finnbjörn þekkt
um, þökkum ánægjulegar stund-
ir og geymum minningu um góð-
an dreng. Huxley Ólafsson.
RœkjuveiS-
arnar ganga
treglega
BÍLDUDAL, 26. nóv. — Hér hef-
ir verið sæmileg tíð að undan-
förnu. Heldur hefir áttin verið
óstöðug, en suðvestanátt þó mest
ríkjandi. Rignt hefir öðru hverju
en aldrei mjög mikið. — Vegir
eru ekki í sem beztu ástandi, en
þó er enn fært á jeppum vestur á
Patreksfjöi’ð. Vart er sú leið nú
íæx öðrum bílum.
Tveir bátar stunda rækjuveið-
ar héðan, sem kunnugt er, en afli
hefir verið fremur tregur hjá
þeim að undanförnu. — Einn bát-
uF reri nýlega tvisvar sinnum
með línu. Fékk hann sæmilegan
afla í fyrri róðrinum, en mjög
lítið í þeim seinni. Er ekki útlit
fyrir, að hann rói oftar að sinni,
því að svo virðist sem lítill fisk-
ur sé á miðunum.
Félagslíf er fremUr fáskrúð-
ugt hér um þessar mundir. Er þar
helzt að nefna keppni í félags-
vist, sem slysavarnadeild kvenna
hér á staðnum gengst fyrir. Verð
ur keppt þrjár helgar í röð, og
var fyrst spilað sl. laugardag. Á
eftir var sýnd kvikmynd og síðan
dansað. Keppninni verður hald-
ið áfram um tvær næstu helgar,
eins og fyrr segir. Það par, sem
nær beztum heildarárangri í
keppninni hlýtur að verðlaun-
um 500 krónur. — Hannes.
Leiðrétting
í FRÉTT frá Akranesi í blaðinu
í gær segir: Ferjan (þ. e. hafnar-
ferjan) tekur í einni ferð 80—100
lestir og þar yfir. Átti hér að
standa 80—100 bílhlöss og þar
yfir.
Leiðrétting
SÚ missögn hefur orðið á frá
sögn af aðalfundi Akranesssafn-
aðar þann 9. þ. m. að þá hafi
verið ákveðin kaup í pípuorgeli
og líkvagni. Fyrir tveimur árum
var ákveðið að kaupa pipuorgel
í kirkjuna, svo fljótt sem ástæður
leyfðu og nokkru síðar var einnig
ákveðið að kaupa líkvagn. Á
sl. vetri var ákveðið að hefja
almenna fjársöfnun innan safn
aðarins á Akranesi til orgelkaup
anna. Áður hafði Árni P. Sigurðs
son og fjölskylda hans stofnað
orgelkaupasjóðs með 10,000 kr.
minningargjöf. Síðan hafa bætzt
fleiri minningargjafir. Frú Eme-
lía Þorsteinsdóttir og fjölskylda
hennar g:>u 10.000 kr. Ólafur
Finsen 10.000 og frú Ingunn og
Haraldur Böðvarsfon 10.000.
Kirkjukór Akraness styður -þetta
einnig með fjárframlagi og var
safnað hjá honum upphæð, sem
hann hafði dregið saman af tekj-
um sínum, til að kaupa hljóðfæri
í kirkjuna. Söngmálasjóður kirkj
unnar mun einnig leggja fram
nokkra fjárhæð. Hin almenna
söfnun gekk vel og má telja undir
tektir almennings mjög góðar. Er
nú orgelkaupasjóðurinn orðinn
80.000 kr. Sóknarnefndin færir
öllum þeim sem hlut eiga að máli
innilegustu þakkir sínar.
Leitað hefur verið tilboða hjá
þekktum orgelverksmiðjum og er
ákveðið að hraða svo frámkvæmd
um að hægt verði að fá orgelið
á næsta vori, ef unnt verður að
fá • innflutningsleyfi í tæka tíð
Um verð á umræddu orgeli er
enn ekki vitað.
LONDON, 25. nóv. — Filip prins
leggur upp í hnattferð í janúar
n. k. Mun hann ferðast bæði á
láði, legi og í lofti ,aðallega með
Comet IV. og drottningarsnekkj-
unni Britanníu. Heim kemur
hann í aprílmánuði.
Isboro landaði
á ísafirði í gær
ÍSAFIRÐI, 26. nóv. — ísborg
landaði hér í dag 270 lestum af
karfa, er aflaðist á miðunum við
Nýfundnaland. Mikill hörgull var
á mönnum til að vinna að lönd-
uninni, og hefðu nýju löndunar-
tækin, færiböndin, sem þegar hef
ur verið greint frá í fréttum, ekki
verið komin, hefði reynzt ill-
mögulegt að landa aflanum úr
togaranum. Aoeins 12 menn unnu
við löndunina, en venjulega þarf
um 30 menn. — G.
JÓN N. SIGURÐSSON
hæstarcttarlögmaðuj'.
Málflutningsskrifstofa
Laugavegi 10. — Sími; 14934.
Unga stúlkan á myndinni hér að ofan virðist horfa með áhuga á kettlinginn litla, enda er
hann óneitanlega ljómandi fallegur. — Myndin er frá ljósmyndasýningunni „Foto expo“, sem
verið hefir opin undanfarið í hinum nýja vinnusal Asmundar Sveinssonar við Sigtún, og margir
hafa skoðað sér til ánægju. Myndirnar á sýningunni, sem er haldin á vegum Félags áhugaljós-
myndara, eru frá Reykjavík og sex öðrum höf uðborgum í Evrópu. — Sýningunni mun ljúka
um næstu mánaðamót.
----------------------------9__________________________________________________________
STEFAN PÉTURSSON, hdl.,
Málflutningsskrifstofa.
Laugavegi 7. — Sími 14416.
Heima 13533.
ORN CLAUSEN
heraðsdómslögmaður
Málf'utmngsskrifstofa.
Bankastræti 12 — Sím: 13499
Gólfslípunin
Barmahlíð 33. — Sími 13657
Málflutningsskrifstofa
SVEINBJÖRN DAGFINNSSON
EINAR VIÐAR
Búnaðarbankahúsi, 4. hæð
sími 19568
Hjartans þakkir til ykkar allra sem minntust mín
í tilefni af áttræðisafmælinu mínu.
Guð blessi ykkur öll.
Elínborg Ólafsdóttir, Hellishólum.
Ég þakka hjartanlega heimsóknir, gjafir og skeyti, er
mér bárust á sextugsafmælinu 19. nóv. s.I.
Sveinn Guðmundsson.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda vináttu á áttræðisaf-
mæli mínu þ. 19. nóvember 1958.
Þórunn Magnúsdóttir.
Málflutningsskrifstofa
Einar B. Guðmundsson
Guðluugur Þorláksson
Guðmundur Pétí rsson
Aðalstræti 6, III. hæð.
Símar 12002 — 13202 — 13602.
RAGNAR JONSSON
hæstaréttarlögmaður.
Laugavegi 8. — Sími 17752.
Lögfræðistörf. — Eignaumsýsla
Gís/i Einarsson
hcraðsdómslögma iur.
Málfiutningsskrifslofa.
1 augavegi 20B. — Sími 19631
Sigurgeir Sigurjónsson
hœstaréttarlögmaður.
Aðalstræti 8. — Sími 11043.
Jarðarför konunnar minnar
KRISTJÖNU SIGURÐARDÓTTUR
frá Kirkjubóli,
fer fram frá Fossvogskapellu föstudaginn 28. nóvember
kl. 2 e.h. Húskveðja hefst á heimili mínu Reykjavíkur-
vegi 31 kl. 1 e.h. Athöfninni í kirkjunni verður útvarpað.
Tryggvi A. Pálsson.
SKIPAUTGCRB RIKISINS
HEKLA
vestur um land í hringferð 1.
des. — Tekið á móti flutningi til
Patreksfjarðar, Bíldudals, Þing-
eyrar, Flateyrar, Súgandaf jarðar
ísafjarðar, Siglufjarðar og Ak-
ureyrar, síðdegis í dag og á
morgun. — FarseðLar seldir ár-
degis á laugardag.
Jarðarför mannsins míns
BJARNA JÓNSSONAR
Meiri-Tungu,
sem tmdaðist 17. þ.m. fer fram að Árbæ laugard. 29. þ.m.
Athöfnin hefst með húskveðju að heimili hans kl. 11 f.h.
Bílferð frá Bifreiðastöð íslands kl. 8 f.h.
Þórdís Þórðardóttir.
Hjartkær eiginmaður minn og faðir okkar
OKTÓ ÞORGRÍMSSON
verður jarðsunginn frá Neskirkju föstudaginn 28. nóv-
ember. Athöfnin hefst með bæn frá heimili hans að Víði-
mel 19 kl. 12,45. Blóm vinsamlegast afþökkuð, en þeim
er vildu minnast hans er bent á Hjálparsjóð skáta.
Guðrún Guðbrandsdóttir og börn.
Jarðarför eiginkonu minnar
JÓNlNU SESSELJU JÓNSDÓTTUR
fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju n.k. föstudag 28. þ.m.
og hefst með húskveðju að heimili okkar Norðurbraut
22 Hafnarfirði kl. 1,30 s.d.
Fyrir hönd barna okkar og tengdabarna.
Jón Þórarinsson.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug
við andlát og jarðarför sonar okkar
ÞORSTEINS Þ. GUÐMUNDSSONAR
frá Grund.
Fyrir hönd fjölskyldunnar.
Ásdís Þórðardóttir, Guðmundur Benjamínsson.