Morgunblaðið - 06.12.1958, Síða 14
14
MORCVNBLAÐlb
Laugardagur 6. des. 1958
Hótel Borg
Hinir vinsælu köldu réttir
( Smörgaasbord )
framreiddir í dag og í kvöld.
Ath..* tJrval af heitum réttum
hvergi fullkomnara en á Borginni.
Gömlu dansarnir
í GT.-húsinu í kvöld klukkan 9.
Carl Biilich og Fjórir jafnfljótir leika fyrir dansinum
Söngvari Haukur Morthens frá kl. 11,30.
Dansstjóri Aðalsteinn Þorgeirsson
Aðgöngumiðar frá kl. 8, sími 13355
Sinfóníuhljómsveit Islands
Tónleikor
í Þjóðleikhúsinu n.k. þriðjudagskvöld kl. 8,30
Stjórnandi: Páll Isólfsson.
Einleikari: Jórunn Viðar
Viðfangsefni eftir Mozart, Beethoven og Gade
Aðgöngumiðasala í Þjóðleikhúsinu
(Bezt úlpan
Bezta jólagjöfin. — Fást nú í
fjölbreyttu úrvali fyrir konur
og bö*rn. —
Brauðborg
hefur opið á hverjum degi frá kl. 9 til
23.30. — Sendum smurt btrauð snittur
og öl með stuttum fyrirvara. —
Gjörið svo vel og reynið viðskiptin.
Frakkastíg 14, sími 18680
— Ræða Davlðs
Olafssonar
Framh. af bls. 13
Hvað sem annars má um þess-
ar yfirlýsingar segja, þá er það
augljóst, að með landgrunnsyfir-
lýsingunni tóku Bandaríkin sér
yfirráð yfir svæði, sem áður
hafði verið talið utan lögsögu
þeirra og voru þær aðgerðir að
sjálfsögðu eingöngu miðaðar við
hagsmuni Bandaríkjanna sjálfra.
Hér var um að ræða hagsmuni,
sem taldir voru lífshagsmunir
Bandaríkjanna og þá er af skilj-
anlegum ástæðum gripið til þess
að tryggja þá með því að gefa
einhliða yfirlýsingu, en ekki með
því að freista þess að ná samn-
ingum við þá aðila, sem kynnu
að eiga hagsmuna að gæta á um-
ræddu svæði:
Með fiskveiðarnar gildir allt
öðru máli, því að þeir hagsmun-
ir Bandaríkjanna, sem þar voru
í veði töldust ekki svo þýðingar-
miklir, að þeir réttlættu svipað-
ar aðgerðir og að því er tók til
auðæfa sjávarbotnsins.
Þessar yfirlýsingar, og þó
einkum hin fyrrtalda um sjávar-
botninn, framkölluðu skriðu af
yfirlýsingum svipaðs eðlis frá
fjölda ríkja á næstu árum. Munu
að minnsta kosti 30 ríki, eða
verndarsvæði hafa gefið út slík-
ar yfirlýsingar næstu 5 árin, en
ýmsar þeirra gengu þó miklu
lengra, en yfirlýsing Bandaríkja-
forseta hafði gert og átti það t.d.
við um yfirlýsingar sumra ríkja
í Suður-Ameríku.
En Bretar koma hér einnig við
sögu. Þeir áttu líka sína hags-
muni og þegar þeir sáu, hvað var
að gerast þótti þeim hentugt að
sigla í kjölfarið. I júní 1950 gaf
brezka ríkisstjórnin fyrir hönd
furstadæmisins Bahrain við
Persaflóa út yfirlýsingu um yfir-
ráðarétt yfir landgrunni þess
svæðis, en Bretar eru hinir raun-
verulegu ráðamenn furstadæmis-
ins, sem nær yfir eitt hið auð-
ugasta oliusvæði í heimi. Með
vfirlýsingu þessari var því slegið
föstu, að með því að réttindi
strandríkis til yfirráða yfir nátt-
úruauðæfum landgrunnsins í
nánd við strendur þess hafa ver-
ið viðurkennd í framkvæmd með
aðgerðum annarra ríkja, þá lýsir
furstinn því yfir, að landgrunn-
ið í Persaflóa undan landhelgi
Bahrain sé undir algerri lögsögu
og yfirráðum furstadæmisins.
Hér er sem sé gripið til ein-
hliða aðgerða í því skyni að ná
yfirráðum yfir landgrunninu ut-
an þriggja mílna landhelginnar,
til þess á þann hátt að tryggja
hagsmuni Breta í sambandi við
hagnýtingu náttúruauðæfanna á
þessu svæði, og það notað sem
afsökun að önnur ríki hafi þeg-
ar gert hið sama, vegna hags-
muna þeirra. Að því er snerti
hafið sjálft yfir þessu land-
runni, eða fiskveiðar þar höfðu
Bretar hins vegar engra hags-
muna að gæta og því eru yfir-
ráðin ekki látin ná til þess.
En ekki var látið nægja að
framkvæma slíkar einhliða að-
gerðir á þessum eina stað. I
sama mánuði voru gefnar sams
konar yfirlýsingar fyrir átta
landsvæði, sem til munu vera
á þessum hjara heims og öllum
sameiginlegt að þau eru mikil
olíuvinnslusvæði og sams kon-
ar yfirlýsingar voru einnig gefn-
ar út fyrir ýmsar nýlendur Breta
í Mið- og Suður-Ameríku.
Þarna byggja Bretar einhliða
aðgerðir sínar á því, að skapað
hafi verið fordæmi, með því að
aðrar þjóðir hafi gert slíkt á
undan.
Sú yfirlýsingin, sem upphafinu
olli hafði verið gefin út 1945, eða
4 árum áður en Bretar birtu sín-
ar yfirlýsingar.
Nú er það vitað að ýmsar þjóð-
ir hafa á undan íslendingum lýst
yfir 12 mílna almennri landhelgi,
og hafa reglur um slíka land-
helgi verið í gildi í sumum lönd-
um allt upp í hálfa öld, en ann-
ars staðar um styttri tíma, og
má því sannlega segja að þar
hafi skapazt fordæmi með meiri
rétti, en Bretar töldu, að því er
varðar landgrunnsyfirlýsingarn-
ar. Ekki er heldur kunnugt um,
að Bretar eða aðrir hafi, þegar
þannig stóð á gripið til annara
mótaðgerða, en venjulegra
diplomatískra mótmæla.
Af þessu er augljóst, að það
er ekki sama, að dómi Breta,
hver það er, sem gerir einhliða
aðgerðir. Einhliða ráðstafanir til
að tryggja hagsmuni Breta, að
því er snertir olíuna eru, að
þeirra dómi, allt annars eðlis,
en einhliða ráðstafanir íslend-
Vélsturtur
Gísli Jónsson & Co.
Ægisgötu 10 — Sími 11745
Jdlagjafadeild
Nýtt í dag:
Leðurvörur
m. a.: D Ö M U V E S K I mjög vönduð. Fallegt
úrval. Þar á meðal nokkur „MODEL VESKI“
úr antilópuskinni. —
SEÐLAVESKI mikið úrval —
er um fóíu
Loma ft
er um joUn,
toma bau óenn
MARKAÐURINN
Laugaveg 89
I
Dregið verður í 12. flokki miðvikudaginn 10. desember.
2457 vinningar samtals 3.3J0.000.oo kr.
Munið að endurnyja Happdrætti Háskóla Islands