Morgunblaðið - 06.12.1958, Page 17

Morgunblaðið - 06.12.1958, Page 17
Laugardagur 6. des. 1958 MORGUNBLAÐIÐ 17 Hólmfríður Minningarorð „Dæm svo mildan dauða, drottinn, þínu barni, eins og léttu laufi lyfti blær frá hjarni, eins og lítill lækur ljúki sínu hjali, þar sem lygn í leyni liggur marinn svali“. ÞAÐ mun mála sannast, að fátt eitt fegurra hefir verið ort á ís- lenzlta tungu, og jafnvel þótt víðar væri leitað, en þetta er- indi eftir Matthías Jochumsson. Fyrir nokkrum árum las ég það yfir í áheyrn tengdamóður minn- ar, Hólmfríðar Jónsdóttur, og hef ég það, sem upphaf nokkurra kveðjuorða, að henni látinni. En hún lézt 27. okt, sl. Um líf mannsins hefir verið sagt, að mest afrek hafi andi hans unnið, er honum gafst feg- urðarskyn og kærleiksþrá. Þess- um eiginleikum var Hólmfríður gædd í ríkum mæli. Gleði henn- ar yfir fegurð og góðleik var barnslega einlæg og sterk. Hún bar næmt skyn á slíkt, hvort heldur það var til orðið í Ijóði eða sögu eða ort af mannlífinu sjálfu. Henni var tamt að líta miklu fremur á hið fagra og góða í hverjum manni^ lét ekki smáyfirsjónir skyggja á heil- brigt mat sitt á mönnum og mál- efnum. Og í samhljóðan við þetta mat voru dómar hennar og framkoma. Um hana hefði mátt yrkja þetta: „Trú hinu bezta. Gerðu gott við alla. Sú gleði er bezt, að hjálpa þeim, sem kalla, og reisa þá, sem þjást og flatir falla“. Hólmfríður Jónsdóttir þekkti vel annir jarðlífs og amstur. Það var hennar hlutskipti í lífinu. En hugur hennar þráði að finna birtu, er sigrað gæti myrkur vðn- brigða, lýst upp hugarfylgsnin í dimmu daganna. Því gafst henni kærleiki og fegurð, þótt harmar hennar hefðu una garð hennar gengið. o—O—O—o Hólmfríður Jónsdóttir fæddist á ísafirði 8. nóvember 1888. For- eldrar hennar voru Jón Þorkels- son, póstur, Eyjólfssonar, pró- fasts, að Borg á Mýrum, og Kristín Kristjánsdóttir, ljósmóð- ir, af Snæfellsnesi. Má rekja báðar ættir hennar til dugnaðar- og gáfumanna, sem ekki mun farið nánar út í hér. Aðeins skal þess getið, að föðurbróðir hennar var Jón Þorkelsson (Forni), þótt báðir hétu sama nafni. Mun það hafa komið til af því, að sá síðar- nefndi var tekinn í fóstur. Hólmfríður giftist um tvítugs- aldur fyrra manni sínum, Guð- mundi Þorkelssyni frá ísafirði. Hann deyr 3. nóv. 1921. 1 annað sinn giftist hún 10. apríl 1926, Sigurgísla Jónssyni frá Skagnesi í Mýrdal. Áttu þau heimili í Reykjavík. Annan skugga bar yfir, er henni barst sú fregn 1. des 1930, að togarinn Apríl hefði farizt með allri áhöfn. Þar átti hún á bak að sjá eiginmanni sín- um og bróður. Fyrr þetta sama ár missti hú* og móður sína og yngsta son. Jónsdóftir En það var ekki Hólmfríði að skapi, að mikla sér mótlæti. Þvert á móti. Hún var gædd sterkri lífstrú, og lífinu skyldi kraftana helga. Börnin tólf bættu henni vonbrigðin. Eru nú ellefu þeirra á lífi. Vafalaust var það henni mikill styrkur, að hún varð fyrir áhrifum af sálarrann- sóknum og urðu þau áhrif varan- leg í lífi hennar. Og tilveran handan fortjaldsins mikla varð henni því meira hugðarefni, sem árin runnu fleiri. Sá, er þetta ritar, kynntist Hólmfríði náið um árabil. Til hennar var gott að koma. Hlý- hugur einkenndi móttökur, hvernig sem á stóð. Alltaf varð að gefast tími til að sinna gest- um, gera þeim gott og gleðja. Það mun margur án efa hafa reynt, að oft var fórnað af smáu. En ekkert var svo fast í hennar höndum, að hún finndi ekki hjá sér hvöt til þess að miðla af því, þrátt fyrir erfiðleika. Þannig var yndi hins aðkomna oft keypt dýru verði. En það sannaðist hér að „Guð launar glaðan gjafara“. Er heilsa hennar var þrotin átti hún öruggt athvarf hjá dætrum sínum til skiptis og naut umhyggju barna sinna allra. Yndi hennar var, síð- ustu árin, að tala um og fylgjast með þroska barnabarnanna og leit hún bjarta framtíð í barns- augum skærum. Vonbrigði urðu hjá fjórum litlum ömmudrengj- um norður á Langanesi, sem hlökkuðu til að fá að hafa þig hjá sér yfir jólin næstu. Þeir minnast þín oft í bænum sínum og hugga sig nú við það, að þú sért í góðum höndum. Biðja þeir Guð að blessa þig og þakka þér allt hið góða í þeirra garð og pabba og mömmu. o——□—□—o Hólmfríður var vinföst og trygglynd. Vináttan tengir menn ina traustari böndum en allt ann- að. Hún gefur þá lífssýni, að til- gangur vor æðstur hér á jörðu, sé að létta öðrum byrðar og draga úr erfiðleikum. — Konan, sem horfin er bak við fortjaldið mikla, lifði ekki sjálfri sér, heldur fórnaði tíma og kröftum fyrir þá, sem henni þótti vænt um. Hafi Guð snortið hug henn- ar sorgarsprota, þá varð það til að gefa henni næmari skilning og þroskaðri trú. Blessuð sé minning hennar. Ingimar Ingimarsson. Dr. Bruno Minning 11. NÓVEMBER sl. varð dr. phil Bruno Schweizer, sem mörgum Islendingum er að góðu kunnur, bráðkvaddur að heimiii sínu í Diessen við Ammersee í Suður- Bayern, 61 árs að aldri. Dr. Bruno Schweizer var mál- fræðingur og fékkst einkum við Dr. Bruno Schweitzer rannsókn á mállýzkum í Suður- Þýzkalandi og Tyrol. Ennfremur hafði hann með höndum rann- sóknir á átthagaminjum og ör- nefnum heimahéraðs síns og kom upp byggðasafni í Diessen fyrir héraðið. Hefur hann skrifað nokkrar bækur og rit um þessi efni, þótt miklu meiri muni þau handrit vera, sem enn nafa ekki verið prentuð, einkum mállýzku- rannsóknir hans og orðasafn. Dr. Bruno Schweizer var mikill íslandsvinur og íslendinga. Hann ferðaðist nokkuð liér á landi fyrir og eftir síðustu heims- styrjöld og hefur haldið óteljandi erindi með myndasýningum um land og þjóð í heimalandi sínu. Munu fáir hafa fórnað eins miklu óeigingjörnu starfi og áhuga til Schweitzer þess að kynna ísland og íslenzka menning öðrum þjóðum. Hann var kvæntur Þorbjörgu Jónsdóttur, hjúkrunarkonu, frá Heiðarseli á Síðu í Skaftafells- sýslu, mikilli ágætiskonu. Þau eignuðust tvo syni, Helga og Gunnar, sem nú eru í mennta- skóla. Einstök gestrisni og höfðmgs- skapur ríkti á heimili þeirra hjóna í Diessen. Stóð það opið öllum íslendingum, og nutu þess einkum margir námsmenn við há skólana í Miinchen, sem ekki er allfjarri Diessen. Minnist ég á- vallt hjálpsemi og gæða þeirra hjóna sem vinjar í ömurleika stríðsáranna, þó að ^eta megi nærri, að ekki var auðvelt að taka á móti gestum á þeim tímum. Dr. Bruno Schweizer vann að hugðarefnum sínum af einstökum áhuga og starfsgleði, enda tóku þau hug hans allan. Þekking hans á staðháttum í Bayern, tungu þess, sögu og þjóðsögum virtist óþrjótandi. Fyrir rúmum tuttugu árum bauð hann mér eitt sinn í ferðalag á hes*um um suðurhluta bayersku hásléttunn- ar og norðurhlíðar Alpanna, en hann átti jafnan nokkra íslenzka hesta. Fórum við þá ekki alfara- leiðir. Ég undraðist það, að hann þekkti ekki aðeins nöfn á svo að segja hverri þúfu, heldur kunni hann skemmtilegar sögur að segja af hverjum stað, þar sem við áðum, Athyglisvert er, að maður með jafnríka átthagaást skyldi jafn- framt taka ástfóstri við ísland og allt íslenzkt sem hann, en hann bar framfarir og gæfu íslands fyrir brjósti og unni mjög ís- lenzkri sögu og mennin^. Islendingar hafa með dr. Bruno Schweizer misst einn af sínum beztu vinum meðal erlendra þjóða. Þorbjörgu kona hans og sonum þeirra votta ég innilega samúð við missi ágætis heimilisföður. Jóhannes Zoéga. U nglinga vantar til blaðhurðar í eftirtalin hverfi Digranesveg Sjafnargötu og Fjólugötu Aðalstræti 6 — Sími 22480. Aðalfundur TÝS F.U.S. f KÓPAVOGI verður haldinn að Melgerði 1, sunnudagitri 7. des. n.k. kl. 2 e.h. Dagskrá samkvæmt félagslögum. — Stjórnin. PÍCEEtÓ Ný og notuð þýzk og dönsk píanó ný komin. — Helgi Hallgrimsson Ránargötu 8, sími 11671 FORTUNA Þessi téícknesku postulíns stell eru smekkleg og vönduð. Hvert stykki er vandlega skreytt. FORTUNA stellin auka ánægjuna viö kaffiborðið. FORTUNA er einnig til í matarstellum. Umboðsmenn: JÓN JÓIIANNESSON & CO. Sími 15821. — Reykjavík. Útflytjendur: Czechoslovak Ceramics, Prag, Tékkóslóvakíu. Antikristurinn mikli Hvað hefur valdið hörm- ungasögu Gyðinganna? Var mögulegt að misskilja spádómana um fyrri komu Krists? Er mögulegt að misskilja spádómana um endur- komu Krists? Er samansöfnun Gyðing- anna í Palestínu tákn þessara tíma? Um ofanritað talar O. J. Olsen í Aðventkirkjunni annað kvöld (sunnudaginn 7. 12. 1958) kl. 20:30. Kórsöngur og einsöngur. Allir velkomnir. óskast nú þegar. — Upplýsingar á verkstæðinu, Grettisgötu 6 milli kl. 5—6 ídag Grettisgötu 6 Vön snnmnkona

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.