Morgunblaðið - 06.12.1958, Side 23
Laugardagur 6. des. 1958
MORGVNBLAÐIÐ
23
Veitingastarfsemin á við
margvísislega erfiðleika
að etja
STJÓRN Sambands veitinga- og
gistihúseigenda ræddi í gær við
fréttamenn um gistihúsavandræð
in í höfuðstaðnum, áfengislöggjöf
ina og ýmislegt fleira, sem veld-
ur erfiðleikum í veitingastarf-
semi á Islandi, þannig að ókleift
hefur reynzt að skapa þá veitinga
húsamenningu, sem sjálfsögð þyk
ir erlendis í menningarþjóðfélög-
um.
Áfengislöggjöfin
Lúðvík Hjálmtýsson, formaður
sambandsins, vakti athygli á
áfengislöggjöfinni, en skv. henni
er einungis heimilt að selja
áfenga drykki á veitingahúsum,
sem eru 1. flokks og mjög ríkar
kröfur gerðar í því efni, þ.á.m.
um fullkomna matsölu á þeim
tíma, sem vín er veitt, og eru
veitingar af eðlilegum ástæðum
tiltölulega dýrar á þessum stöð-
um. Veitingahúsin, sem vinveit-
ingaleyfi hafa, munu aðeins vera
fjögur í Reykjavík. Þeir sem
minni fjárráð hafa eða hirða ekki
um mikið stáss í klæðaburði,
leita því til annarra staða til
skemmtunar, en það er á allra vit
orði að menn eru bæði undir
áhrifum þegar þeir koma á þessa
svokölluðu þurru staði, og að
þeir neyta í pukri á ólöglegan
hátt. Venjulega er þetta vín
keypt á svörtum markaði af leyni
vínsölum. Sama er uppi á ten-
ingnum, þegar vínveitingahúsum
er fyrirskipað að loka kl. 11.30.
Þeir sem þar eru og vilja
skemmta sér lengur leita þá
gjarnan í heimahús, og afla sér
vínfanga hjá leynivínsölum. Á
þennan hátt er beinlínis hvatt til
lögbrota, sem hin mesta ómenn-
ing fylgir.
Eru veitinga- og gistihúsaeig-
endur óánægðir með þennan lok-
unartíma og telja einnig að þar
sem vín er veitt á annað borð,
ætti opnunartími vínsins á kvöld
in að hefjast kl. 6 í stað 7, svo
að samkvæmi geti byrjað fyrr.
Telja þeir, að enginn veitinga-
maður né löggæzlán geti haft
stjórn á því atferli sem að ofan
er lýst, að óbreyttum lögum og
í rauninni sé mesta fásinna að
saka þessa aðila vegna þeirrar
ómenningar, sem það hefur í för
með sér. Veitingamenn telja af
reynzlu sinni einsýnt, að ekki
verði ráðin bót á annan veg en
þann, að heimila áfengisveiting-
ar á dansskemmtunum í öllum
þeim húsum, sem uppfylla sann-
gjörn skilyrði að því er aðbúnað
og þjónustu varðar, og einnig að
húsin megi vera opin þann tíma,
sem menn vilja venjulega
skemmta sér, þegar þeir á annað
borð lyfta sér upp. Segja þeir
ástandið ómótmælanlega al-
mennt óaðfinnanlegt í þessum
efnum, í húsum sem veita vín,
þó opið sé til kl. 1 og 2, eins og
tíðkast í undantekningartilfell-
um.
Hótelskorturinn
Þá kom til umræðu hótelskort-
urinn í Reykjavík, og kváðu
veitingamenn ekki vanzalaust
hve mjög hefði dregizt að byggð
væru ný hótel, svo að hægt væri
að vinna ötullega að því að gera
ísland að ferðamannalandi.
Einnig var rætt um hin mörgu
mötuneyti, sem risið hafa upp í
bænum og þurfa ekki að hlíta
sömu reglum um hreinlæti og
aðbúnað og veitingahúsin og
sleppa að mestu við hinar háu
skattgreiðslur, sem veitingahús-
in greiða. Telja veitingamenn
það vísasta veginn til að fyrir-
byggja eðlilegan viðgang veit-
ingastarfseminnar, ef löggjafinn
ýtir þannig undir fólk að forðast
veitingahúsin í matartímanum
með því að ívilna þeim, sem taka
sig saman um ómenningu í mats-
eldum og framreiðslu.
Þátttaka í norrænum
og alþjóðlegum fundum
Samband veitinga- og gistihús
eigenda er aðili , „International
Hotel Association“ og sótti Pétur
Daníelsson fund þeirra samtaka í
Briissel á þessu ári og Þorvaldur
Guðmundsson annan í Vínarborg
í haust af hálfu ísl. veitinga-
manna. Sambandið er einnig aðili
í Sambandi norrænna veitinga-
og gistihúsaeigenda, og hefur sú
þátttaka orðið stéttinni til marg-
víslegs ávinnings. Á fundi norr-
æna sambandsins í Kaupmanna-
höfn í sumar mætti Lúðvík
Hjálmtýsson og Þorvaldur Guð-
mundsson. Skýrðu þeir fundinum
m.a. frá högum ísl. veitinga- og
gistihúsastarfsemi og löggjöf
þeirri sem hún á við að búa. Urðu
upplýsingar þeirra tilefni þess,
að tveir erlendu fulltrúanna
fluttu tillögu á fundinum, sem
sérstaklega sneri málefni íslands.
Var tillaga þessi send íslenku
ríkisstjórninni og samgöngumála
nefnd Norðurlandaráðsins. Er
þar lögð rík áherzla á það, að
betur og skynsamlegar verði að
búa að veitingastarfseminni, svo
að hún verði fær um að gegna
því mikilvæga hlutverki að vera
landsmönnum sjálfum til ánægju
og þroska og útlendingum, sem
landið sækja heim beinn vottur
þeirrar menningar, sem hér ríkir.
„FjaIIamjólk“ eftir KjarvaL
Nýjar eftirprentanir frá Helgafelli
í DAG koma á markaðinn fjórar
nýjar eftirprentanir frá Helga-
felli, tvær eftir Kjarval, Fjalla-
mjólk (Flosagjá á Þingvöllum)
Landhelgisspil komið út
BREZKT herskip tefst langa
stund meðan skipherrann flettir
upp í Biblíunni. Varðskipið fær
tvö köst í röð. — Þannig hljóðar
ein æskileg fyrirskipun í land-
helgisspilinu, sem nú fer eins og
logi yfir akur í stað húla-hopp-
gj arðarinnar.
Landhelgisspilið er ein merk
dægradvöl, sem nú er nýkomin
á markaðinn. Kemur leikni þátt-
takenda fram í því, hver snarast-
ur er að ná brekum landhelgis-
brjóti og færa hann slysalaust
til íslenzkrar hafnar. Fer barátt-
an fram á landhelgislínunni og
er þar margt hindrana ekki síður
en í hinni raunverulegu land-
helgi.
Tíðindamanni Mbl. barst eitt
landhelgisspil í hendur og hafði
hann hugsað sér að kynnast
gangi þess og segja lesendum
blaðsins frá því. Pakkinn hafði
þó ekki fyrr verið opnaður, en
sendlarnir á ritstjórninnihrepptu
Minningargjöf um
Friðrik Á. Brekkan
MINNINGARGJÖF um Friðrik
Ásmundsson Brekkan, rithöfund,
hefur verið afhent form. Blindra-
vinafélags íslands 1. desember
s.l.
Gjöf þessi, sem er kr. 10.000,00
er stofn að minningarsjóði um
Friðrik Ásmundsson Brekkan,
sem varið skal til hjálpar blind-
um. Sjóðurinn skal vera í vörsl-
um félagsins sem tekur á móti
gjöfum í hann og ávaxtar hann
á sem hagfeldastan hátt.
Stjórn félagsins flytur gefend-
um sínar innilegustu þakkir fyr-
ir þessa höfðinglegu gjöf og þann
hlýhug sem þeir sýna starfsemi
félagsins.
innihaldið og tóku að leika. Næst
sást hvar starfsstúlkur blaðsins
voru önnum kafnar við að taka
brezka togara og síðan ekki sög-
una meir. — Verður því miður
eki hægt að segja nánar frá gangi
landhelgisspilsins að sinni, en af
ofanrituðu geta menn farið nokk
uð nærri um vinsældir þess.
Styrkja slysavarn-
ir í Firðinum
HAFNARFIRÐI — Fyrir all-
mörgum árum var stofnuð hér
unglingadeild Slysavarnafélags-
ins, og nefnist hún Hjálparhönd-
in. Hafði starfsemi hennar legið
niðri þar til fyrir nokkrum árum
að hún var endurvakin, en til-
gangur hennar er að sjálfsögðu
að vinna að bættum slysavörnum.
Eru fundir haldnir fyrsta sunnu-
dag hvers mánaðar og fara þá
fram ýmis skemmtiatriði, sem
unglingar deildarinnar annast
sjálfir að öllu leyti. Að vísu eru
unglingarnir undir eftirliti
kvenna úr slysavarnadeildinni
Hraunprýði, en að öðru leyti sér
stjórn Hjálparhandar um allar
framkvæmdar. Hefur verið ágæt
þáttaka í fundum deildarinnar, en
hún er eingöngu fyrir unglinga
innan fermingaraldurs og allt upp
í 17 til 18 ára aldurs.
Næsti fundur verður haldinn
í Sjálfstæðishúsinu á morgun kl.
5, og munu stúlkur annast
skemmtiatriði, en séra Bragi Frið
h'iksson flytur ávarp. — Og svo
verður dansað undir dillandi
músik og er öllum unglingum
heimill aðgangur meðan húsrúm
leyfir. — Formaður unglinga-
deildarinnar er Svanhvít Magn-
úsdóttir, sem mikið hefur starf-
að í unglingasamtökum hér, svo
sem skátahreyfingunni. —G.E.
og íslands er það lag, fantasía,
Jón Stefánsson, Dagrenning við
Hafbjarg (Ernir), Gunnlaugur
Scheving, Gamla búðin. Hér er
um að ræða fjórar af stórmynd-
um þriggja úr hópi kunnustu mál
ara okkar og úr hópi þeirra beztu
verka. Þingvallamynd Kjarvals
er prntuð í málverkabók hans,
og er einstætt listaverk á íslandi,
fantasía hans íslands er það lag,
er ein þeirra mýnda sem málar-
inn hefir unnið að í meira en
áratug. Mynd Jóns Stefánssonar,
Dagrenning, lauk listamaðurinn
við 1957 og sýndi hana þá á
Grönningen í Danmörku, þar sem
hún fékk þá dóma, að hún væri
eitt af stórvirkjum norræns
anda. Mynd Gunnlaugs Scheving,
Gamla búðin, er einnig mjög sér
stætt listaverk og talin ein £if
beztu myndum málarans. Loks er
vefnaðarmynd Ásgerðar Búadótt
ur, sú hin sama er frúin hlaut
fyrir gullmedalíu á heimssýning-
unni í Munchen 1956, en þar
voru sýndir um 5000 munir frá
60 löndum. Með þessum myndum
er lokið tveim þriðju hlutum
fyrsta áfanga í eftirprentun ís-
lenzkra málara, alls 19 af 30
myndum. Á næsta ári munu aðal-
lega koma út myndir eftir yngri
málara.
Hjartanlegar þakkir til allra vina minna fyrir heim-
sóknir, gjafir og skeyti á fimmtugsafmælinu.
Gamaliel Jónsson
Stað, Grindavík.
Hjartkær sonur minn og bróðir okkar
NIELS JÓNSSON
frá Gjögri andaðist 3. þ.m.
Jón Sveinsson og systkini.
iheilar fjahhir ötíum feim,
óem cjti öddu micj cí óiötufióafmœl-
mu. ^sdrni Óla.
Maðurinn minn
ÁRNI HALLGRlMSSON
sem lézt 27. f.m. verður jarðsunginn frá Neskirkju mánu-
daginn 8. þ.m. kl. 1,30 e.h. Athöfninni verður útvarpað.
Fyrir mína hönd og annarra aðstandenda.
Guðrún Heiðberg.
Okkar innilegasta þakklæti færum við öllum þeim er
auðsýndu okur samúð við andlát og jarðarför eigin-
konu, móður, tengdamóður og ömmu
JÓNlNU S. JÓNSDÓTTUR
Jón Þórarinsson, börn, tengdabörn og barnabörn.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við
andlát og jarðarför
INGIBJARGAR INGVELDAR SIGURÐARDÓTTUR
systur okkar og mágkonu.
Ingibjörg Sigurðardóttir, Egill Guttormsson
Signý M. Eiríksdóttir, Haraidur Sigurðsson,
Helga Jónsdóttir, Einar Sigurðsson,
Guðmundína Guttormsdóttir, Helgi Sigurðsson.
Hjartanlegar þakkir til allra er auðsýndu samúð og
vinarhug við andlát og útför mannsins míns
KRISTJÁNS GUÐMUNDSSONAR
frá Fáskrúðsfirði
Fyir hönd aðstandenda.
Sigfríð Einarsdóttir.