Morgunblaðið - 06.12.1958, Side 24

Morgunblaðið - 06.12.1958, Side 24
V EÐRIÐ Sunnan og suðvcstan kaldi. Skúrir. ior$imí)íaíiííi 281. tbl. — Laugardagur 6. desember 1958 dagar til jóla Sjómannaskorfurinn og landhelgismálið aðalumrœðuefni á aðalfundi L.Í.Ú. i gœr Hið nýja togskip Bolvíkinga á siglingu. Bolvíkingar fagna to gskipi sínu Glæsilegt og vel búið skip BOLUNGARVÍK, 5. dea — f gærdag klukkan 5,30 síðdegis flautaði hið nýja togskip Bol- víkinga, Guðmundur Péturs, hér úti á víkinni. Litlu síðar fóru tveir tollverðir ásamt lögreglu- stjóranum í Bolungarvík og fram kvæmdastjóra útgerðarinnar út í skipið. Klukkan 9,30 um kvöld- ið renndi hið glæsilega skip upp að Brimbrjótnum. Var þar sam- ankominn múgur og margmenni til að fagna komu þess hingað, en Lúður Sements- verksmiðjunnar gall í 40 mínútur AKRANESI, 5. des. — Kvöld nokkurt fyrir skömmu um ellefu- leytið kvað við lúðurþytur mik- ill, og héldu Akurnesingar, að það væri brunalúðurinn, sem gall við. Lúðurinn gall í sífellu, og brunaliðsmenn tygjuðu sig og héldu rakleiðis á brunastöðina, en Akurnesingar veltu því fyrir sér, hvar hefði kviknað í. Loks fréttist, að hér væri um lúður- inn í Sementsverksmiðjunni að ræða. Vegna mikils úrfellis hafði vatn komizt inn í lúðurinn með þeim afleiðingum, að það leiddi milli raftauga í lúðrinum. — Fjörutíu mínútur liðu, þar til tókst að kippa þessu í lag með því að fara upp á þak Sements- verksmiðjunnar og slíta sundur leiðslurnar. — Oddur. Þjóðþingskona væntanleg til fyr- irlestrahalds VÆNTANLEG er hingað til lands danska þjóðþingskonan Marie Antoinette von Lowsow. Hún er nú á þingi S.þ., en á leiðinni að vestan og heim til Danmerkur mun hún koma hér við í boði félaganna Dansk-ís- lenzka félagsins, Dansk Kvinde- klub, Dannebrog og Det danske selskab. Mun hún halda fyrirlest ur á vegum félaganna í Tjarnar- kaffi á miðvikudagskvöldið kem ur og segja frá starfsemi S.þ. og sýna skuggamyndir. Varðarkaffi í Valhöll í dag kl. 3-5 s.d. hún markar alger tímamót í at- vinnusögu okkar. Ferðin gekk vel Leifur Jónsson skipstjóri, kvað ferðina yfir hafið hafa gengið vel og skipið hefði reynzt í hví- vetna hið bezta, þrátt fyrir ofsa- veður er skipið hreppti á leið- inni. Er skipið allt hið glæsileg- asta, 249 tonn að stærð og allt er það búið hinum fullkomnustu tækjum, en radar verður settur í skipið síðar. Um kvöldið og eins í dag, hafa mjög margir Bolvíkingar farið um borð og skoðað skipið. Skipið er smíðað í Stralsund í A-Þýzkalandi og heitir eftir dugmiklum sjómanni hér í Bol- ungarvik, er fórst fyrir nokkrum árum með vélbátnum Baldri. Eru foreldrar hans búsettir hér og systkini. Eign hlutafélags Togskipið er eign hlutafélags- ins Baldurs. Eru aðilar þess ýms- ir einstaklingar og fyrirtæki, ásamt hreppsfélaginu. Fram- kvæmdastjóri Baldurs er Guð- finnur Einarsson og er faðir hans, hinn kunni athafnamaður, Einar Guðfinnsson, formaður félagsins. Ákveðið er að togskipið fari héðan á nokkrar hafnir í nokk- urs konar sýningaferð og mun það m.a. koma til Reykjavíkur á næstunni. Togskipið mun stunda togveið- T ónlistark vnning j O í Háskólanum Á MORGUN, sunnudaginn 7. des. kl. 5 síðdegis, verður tónlistar- kynning í hátíðarsal háskólans. Flutt verður af hljómplötutækj- um skólans 8. sinfónía Beethov- ens, í f-dúr. Hún er í sjaldnara lagi flutt af síðari sinfóníu Beet- hovens, og taldi hann þó sjálfur, að hún tæki 7. sinfóníunni fram. Hljómsveitin Fílharmónía leik- ur, Herbert von Karajan stjórnar Á undan verður flutt svonefnd „Orustusinfónía" Beethovens, sér stætt tækifærisverk, sem er frá svipuðum tíma og 7. sinfónían, ekki talin með hinum níu eig- inlegu sinfóníum tónskáldsins og örsjaldan flutt. Eins og að undanförnu mun dr. Páll ísólfsson skýra verkin. Að- gangur er ókeypis og öllum heim- ill. Þessari samfelldu kynningu há- skólans á sinfómum Beethovens mun svo ljúka með flutningi 9. hljómkviðunnar eftir áramót. STYKKISHÓLMI, 5. des. — í sl. viku var hér danskt skip og lest- aði 107 lestir af karfamjöli frá Síldar- og fiskimjölsverksmiðj- unni Hamri, sem er sameign- arfélag Sigurðar Ágústssonar o. fl. hér. ar fyrir frystihúsið hér í Bol- ungarvík og mun áhöfn þess verða innan við 20 manns. Síðdegis í dag hafði útgerðar- félagsstjórnin boð um borð í skipinu fyrir helztu forystumenn kauptúnsins. Voru þar ræður fluttar og bornar fram veitingar. Ræðumenn óskuðu skipinu allra heilla og farsældar. - Fréttaritari. Ovæntur gestur KIRKJUBÆJARKLAUSTRI. — Svo vildi til um miðjan s.l. mán- uð, að fólkið á Fljótum í Meðal- landi fann leðurblöku í útihúsi einu rétt hjá bænum. Lá hún niðri í bala og varð ekki betur séð en hún væri dauð. Var farið með leðurblökuna inn í bæ, og hún höfð um nóttina í kjallara- herbergi, þar sem gluggi var op- inn. Morguninn eftir var hún horfin og hefir ekki orðið vart við hana síðan. G. Br. NÆSTKOMANDI sunnudag kl. 1.30 e.h. verður frumsýnd í Aust- urbæjarbíói kvikmynd, sem nefn ist „í jöklanna skjóli, Svipmynd- ir úr Skaftafellsþingi“, en það eru 12—25 mín. langir þættir, er' sýna einkum ýmsa atvinnuhætti, sem eru um það bil að hverfa í Skaftafellssýslum. Á sunnudag- inn verða sýndir 4 þættir af 7, sem tilbúnir eru, og nefnast þeir: Kvöldvaka, Fýlatekja, Kolagerð og Meltekja. Ekki verða fleiri sýningar á þessari mynd fyrir jól. Sérstakur kvikmyndasjóður, sem stofnaður var 16. marz 1952, með frjálsum framlögum Skaft- fellinga í Reykjavík og annars staðar, hefur látið gera þessa kvikmynd. Hefur Vigfús Sigur- geirsson gert kvikmyndaþættina og einnig landslagsmynd úr Skaftafellssýslum, sem einnig verður sýnd í Austurbæjarbíó á sunnudaginn. Er búið að kvik- mynda allmikið efni af landslagi í Skaftafellssýslum, fólkinu, er sýslurnar byggir, atvinnu þess og menningu og mun átekin filmu- lengd nema 10—13.000 fetum, en óunnið er þó mikið af því efni. Auk þáttanna, sem áður eru nefndir, eru tilbúnir þættir um veiði í sjó og vötnum, sam- göngur og þróun í samgöngum á sjó og í lofti. Myndin er öll tekin í litum á mjófilmu með segul- bandsrönd, og eru eftirmyndirn- ar gerðar í London á vegum Radíó og raftækjastofunnar á Óðinsg. 2. Texta við þá þætti sem búnir eru, hefur Jón Aðalsteinn Jónsson samið með aðstoð Bene- dikts Stefánssonar og Jóns Páls- sonar og flytur hann þá einnig. Að sjálfsögðu á stjórn sjóðsins EINS og frá var skýrt í fréttum blaðsins í gær, stóð til að á aðal- fundi LÍÚ í fyrradag hæfust þá síðdegis umræður um nefndar- álit. Nefndir höfðu tilbúin að- eins tvö álit, um sjómannaskort- inn og landhelgismálið. Urðu um þau miklar og fjörugar umræð- ur. Um landhelgismálið lýsti fundurinn yfir fögnuði sínum yfir útfærslu fiskveiðitakmark- annna og taldi jafnframt að rétt hefði verið að beita samþykkt- um Genfarráðstefnunnar til að leiðrétta grunnlínur. Fundurinn hvatti íslenzku þjóðina til sam- stöðu um þetta mikla mál, jafn- framt því sem hann mótmælti harðlega ofbeldi því og yfir- gangi, sem Bretar hafa sýnt í sambandi við það. Þá hvatti fundurinn og eindregið til efl- ingar landhelgisgæzlunnar og gæzlu- og eftirlits með fiski- skipaflotanum. í sambandi við sjómannaskort- inn benti fundurinn á þessi úr- ræði meðal annars: Að felldur verði niður tekjuskattur sjó- manna, að hið opinbera gæti þess að keppa ekki um vinnuafl við sjávarútveginn, að rannsakaðir séu möguleikar á vinnuskyldu æskumanna við sjávarútveg, að ríkisvaldið sjái um útvegun er- lendra sjómanna, m. a. með lækkun á yfirfærslugjaldi á laun þeirra og að fram fari athugun á möguleikum á gjaldeyrisfríð- indum fyrir alla íslenzka sjó- menn. 1 gær bauð sjávarútvegsmála- ráðherra, Lúðvík Jósefsson, til mikinn þátt í kvikmyndatökunni, en hana hafa skipað frá upphafi Haukur Þorleifsson, Björn Magn ússon, Benedikt Stefánsson, Jón Aðalsteinn Jónsson og Ólafur Pálsson, sem ávallt hefur verið formaður sjóðsins. Auk þeirra mun Jón Pálsson eiga mikinn hádegisverðar í Þjóðleikhúskjall- aranum. Vék hann örfáum orðum að stjórnmálaóvissunni, sem nú ríkir og þeim vanda, sem sam- tökum útvegsmanna skapast við það, ef þau geti ekki snúið sér til starfhæfrar ríkisstjórnar nú um áramótin, þar sem venjan hef ur verið sú, að þau hafi þurft að gera slíka samninga á þeim tíma fyrir framtíðina. Þá ræddi ráðherrann um land- helgismálið og framtíðarhorfur í því, svo og um nýtingu fiskimið- anna. Formaður LÍÚ, Sverrir Júlíus- son, þakkaði boðið fyrir hönd fundarmanna. Eins og áður hefir verið frá skýrt, sátu nefndir að störfum í gær, en í dag á að halda fund- inum áfram kl. 10 f. h. Munu þá nefndaálit verða lögð fram, sambandsstjórn og fulltrúaráð kosið, svo og framkvæmaráð Inn kaupadeildar LÍÚ. Kviknar í báti UM fjögurleytið í gær var Slökkviliðið kvatt að verbúðar- bryggjunni við Grandagarð. — Hafði kviknað í mótorbátnum Öldunni, R 327. Töluverður eld- ur var í hásetaklefa. Kviknað hafði í út frá olíukyntri eldavél. Tókst fljótlega að ráða niðurlög- um eldsins. Skemmdir urðu litl- ar af eldi, nokkrar skemmdir urðu af reyk og vatni. þátt í þessu verki. Fréttamönnum gafst i gær kost ur á að sjá kvikmyndaþættina fjóra, sem sýndir verða á sunnu- daginn. Er það skemmst frá að segja, að þeir eru mjög skemmti- lega unnir, í fallegum litum og bæði fróðleg og skemmtileg heimild um störf og aðstæður, sem fáir þekkja nú orðið. Sýnd var kvöldvaka í sveit, eins og þær munu hafa tíðkast um og fyrir síðustu aldamót, fýlaferð í Fagradalshamra, kolagerð að Skaftafelli í Öræfum og nýting melgresis. Kvikmynd um atvinnu- hœtti í Skaftafellsþingi sýnd á sunnudaginn

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.