Morgunblaðið - 24.12.1958, Síða 1
66 síður og Lesbok barnanna
f
ins tekin við völdum
Sjálfstæðismenn verja
hana vantrausti
Kosningar tryggðar í vor
í GÆR lét ríkisstjórn Her-
manns Jónassonar af völdum.
Hafði hún þá setið frá 24. júlí
1956, eða í 2 ár og 5 mánuði.
Við tók ríkisstjórn Emils Jóns
sonar. Hún er skipuð 4 þing-
mönnum Alþýðuflokksins og
nýtur fulls stuðnins hans.
Sjálfstæðisflokkurinn hefur
heitið að verja hana van-
trausti, enda beiti hún sér svo
sem nánar er um samið fyrir
lausn efnahagsöngþveitisins
og nýrri kjördæmaskipun, og
efni til nýrra alþingiskosn-
inga á næsta vori.
Sjálfstæðismenn samþykktu
cinróma á flokksráðsfundi sín
um kl. 2 e. h. í gær tillögu
þingflokksins um að stuðla að
stjórnarmyndun Emils Jóns-
sonar með framangreindum
hætti. Þegar formaður flokks-
ins gerði á dögunum, eftir
tillögu forseta Islands, tilraun
til stjórnarmyndunar, setti
Ólafur Thors með samþykki
flokksmanna, þau lágmarks-
skilyrði, að tryggð væri stöðv
un verðbólgunnar, samþykkt
nýrrar kjördæmaskipunar og
kosningar næsta vor.
Hvorki þá né síðan fékkst
trygging fyrir samfelldum
meirihluta á Alþingi,
★
« I
Efni blaðsins er m.a. :
Morgunblaðið er í dag 66 síður auk
Lesbókar barnanna. Efni blaðsins er
m.a:
Bls. 3: Samtal við Þorstein Þorsteins-
son (S. Bj.).
— 6: Útvarpið um jólin.
— 8: Fornnorræn jó! (J. H. A.).
— 10: Kötlugosið 1918 (Sv. Þ.).
— 12: Forystugreinin: Hátíð rísandi
dags og kristinnar trúar.
— 13: Æska og þroskaferill Pastern •
aks (Þ. Th.).
— 15: Jólakvikmyndirnar.
— 16: ísl. flugmaður í Afrfku (h.j.h.)
— 17: „Hvenær kemur Axel“
(íþróttir).
22: Verðlauna-krossgáta
(Sjá ennfr. bls. 23).
—• 27: Lúkas guðspjallamaður skrlfar.
•*- 29: Hugann eggja bröttu spor-
in (M).
—• 30: Vetur á Þingvöllur (Sr. Jóhann
Hannesson).
—■» 34: Ræða við doktorsvörn (Jón
heitinn Jóhannesson próf).
— 36: Heimsókn í barnaspítalann
(E.Pá.).
— 39: Böðvar á Laugarvatni segir frá
(Sv. Þ.).
43: í heimsókn hjá sr. Bjarna
(M. Jóh.).
— 46: Minjastcinn Þykkvabæjar-
klausturs (Kristján Eldjárn).
52: Þcgar Ólöf á Hlöðum gifti sig
(Finnur Sigmundsson).
— 54: Fréttagetraun 1958.
— 56: Jónas — smásaga eftir BJÖrn
J. Blöndal.
— 57: Dægradvalir á jólum.
— 58: Bridgeþáttur og skákþáttur.
—- 61: Flugfreyjan verður að gleyma
sjálfri sér (H.E.).
— 64: Jólaspilið.
— 65: Tvenn jól (h.j.h.)
ábyrgðist fullnæging skilyrða
Sjálfstæðisflokksins. En eftir
að allir mögulcikar hafa ver-
ið gaumgæfilega athugaðir, er
sýnt, að myndun þvílíkrar
minnihlutastjórnar Alþýðu-
flokksins, sem Sjálfstæðis-
menn verja vantrausti skap-
ar mestu líkurnar fyrir fram-
gangi þessara þriggja þjóð-
nytja-skilyrða Sjálfstæðis-
flokksins. Þess vegna ákvað
flokkurinn að stuðla að stjórn
armyndun Emils Jónssonar.
— Miðstjórn Alþýðuflokksins
samþykkti og einhuga á fundi
sínum kl. 2 e. h. í gær stuðn-
ing við stjórn Emils.
Um flokkaskipun á Alþingi
og aðstöðu þeirra til hinnar
nýju ríkisstjórnar er þess að
gæta, að Sjálfstæðisflokkur og
Alþýðuflokkur hafa sameigin-
lcgan mcirihluta í Sameinuðu
Alþingi, þar sem skorið er úr
um traust eða vantraust og
fjárlög afgreidd, og í neðri
deild. í efri deild eru Fram-
sókn og kommúnistar aftur í
meirihluta og hafa þess vegna
þar stöðvunarvald á venju-
legri löggjöf.
NYJU
RÁÐHERRARNIR
Ríkisráðsfundur var hald-
inn kl. 17 e. h. í gær. Hefur
skrifstofa forseta Islands gef-
ið út svohtljóðandi tilkynn-
ingu um hann:
Á FUNDI ríkisráðs í Reykjavík
í dag lagði Emil Jónsson, forseti
Sameinaðs Alþingis, sem forseti
íslands hafði falið myndun nýs
ráðuneytis, fyrir forseta tillögu
um skipun alþingismannanna
Friðjóns Skarphéðinssonar, Guð-
mundar í. Guðmundssonar og dr.
Gylfa Þ. Gíslasonar með sér í
ráðuneytið. Voru skipunarbréf
réðherranna undirrituð og jafn-
framt gefinn út forsetaúrskurður
uf skipun og skipting starfa ráð-
herranna.
Forseti íslands bauð hið nýja
ráðuneyti velkomið til starfa, en
forsætisráðherra, Emil Jónsson,
þakkaði ummæli forseta.
Rikisráðsritari, 23. des. 1958.
Birgir Thorlacius (sign).
Eftir tillögu forsætisráðherra
og samkvæmt 15. gr. stjórnar-
skrárinnar hefur forseti íslands
í dag sett eftirfarandi ákvæði um
skipun og skipting starfa ráð-
herra o. fl.:
Forsætisráðherra Emil Jónsson.
Undir hann heyra eftirgreind
mál: Stjórnarskráin, mál, er
varða forsetaembættið, Alþingi,
nema að því leyti sem öðruvísi
er ákveðið, almenn ákvæði um
framkvæmdastjórn ríkisins, skip-
un ráðherra og lausn, forsæti
ráðuneytisins, skipting starfa ráð
herranna, mál, er varða stjórnar-
ráðið í heild, hin íslenzka fálka-
orða og önnur heiðursmerki. Þing
vallanefnd og mál varðandi með
ferð Þingvalla. Ríkisbúið á Bessa
stöðum. Samgöngumál, þ.á.m.
vega-, brúar-, vita- og hafnar-
mál, strandferðir, flugmál, þ.á.
m. flugvallarekstur. Póst-, síma-
og loftskeytamál. Sjávarútvegs-
mál, þar undir Fiskifélagið, Fiski
málasjóður og Fiskveiðisjóður
íslands, sildarútvegsmál (síldar-
verksmiðjur og síldarútvegs-
nefnd), sjávárvöruiðnaður og út-
flutningur sjávarafurða. Almenn
siglingamál, þar undir atvinna
við siglingar. Skipaskoðun ríkis-
ins, Eimskipafélag íslands hf.
Önnur atvinnumál, sm ekki eru
sérstaklega í úrskurði þessum
falin öðrum ráðherrum. Ennfrem
ur rafmagnsmál þ.á.m. rafmagns
veitur ríkisins og rafmagnseftir-
lit, vatnamál, þar undir sérleyfi
til vatnsorku-notkunar, jarðbor-
anir eftir heitu vatni og gufu.
Námurekstur.
Ráðherra Friðjón Skarphéðins-
son. Undir hann heyrir dómaskip
an, dómsmál, þar undir fram-
kvæmd refsidóma, hegninga- og
fangahús, tillögur um náðun,
veiting réttarfarslegra leyfis-
bréfa, málflutningsmenn, lög-
reglumálefni, þ.á.m. gæzla land-
helginnar, áfengismál, strand-
mál, sifjaréttarmál, erfðaréttar-
mál, persónuréttarmál, eignar-
réttarmál, yfirfjárráðamál, lög
um kosningar til Alþingis og kjör
dæmaskipting, umsjón með fram
kvæmd Alþingiskosninga, ríkis-
borgararéttur, útgáfa Stjórnar-
tíðinda og Lögbirtingablaðs, húsa
meistari ríkisins. KirkjumáL
Landbúnaðarmál þ.á.m. útflutn-
ingur landbúnaðarafurða, rækt-
unarmál þ.á.m. skógræktarmál
og sandgræðslumál, búnaðarfé-
lög, dýralækningamál, þjóðjarða
mál. Félagsmál, almannatrygg-
ingar, atvinnubótamál, atvinnu-
leysistryggingar, Brunabótafélag
íslands, vinnudeilur, sveitar-
stjórnar. og framfærslumáL
Barnaheimili. Félagsdómur. Al-
menn styrktarstarfsemi, þar und-
ir styrkveitingar til berklasjúkl-
inga og annarra sjúklinga, sem
haldnir eru langvinnum sjúk-
dómum, sjúkrasjóðir, ellistyrkt-
arsjóði, öryrkjasjóðir, slysatrygg
ingasjóðir, lífsábyrgðarsjóðir og
aðrir tryggingasjóðir, nema sér-
staklega séu undanteknir. Hús-
næðismál, þar undir byggingar-
félög. Mælitæki- og vogaráhalda-
mál. Heilbrigðismál þar undir
sjúkrahús og heilsuhæli. ;
Frumh. á bls. 2.
Morgunblabið óskar landsmönnum gleðilegra jóla!
Minnihlutastjórn Alþýðuflokks-