Morgunblaðið - 22.01.1959, Blaðsíða 2
2
MORGUNRIAÐ1Ð
FimmtudaKur 22. jan. 1959
Rafveitulínan til
vœntanlega lögð 1960
Fyrirspurn Jóhanns Þ. Jósefssonar
svarað á Alþingi
f GÆR var tekin til umræðu í
sameinuðu þingi fyrirspurn frá
Jóhanni Þ. Jósefssyni til ríkis-
stjórnarinnar um framkvæmd
þingsályktunar um rafveitulínu
frá Hvolsvelli til Vestmanna-
eyja.
Jóhann Þ. Jósefsson kvað að-
daganda þessarar fyrirspurnar
þingsályktunartillögu, sem hann
hefSi flutt á síðasta þingi ásamt
2. landskjörnum þm. þess efnis,
að framkvæmdum á lagningu raf
veitulínu frá Hvolsvelli til Vest-
mannaeyja yrði hraðað. Hefði
flm. verið ljóst, að áætlun lægi
fyrir um rafveituframkvæmdir
á Suðurlandi og væri þar gert ráð
fyrir að rafveitulínan yrði lögð
til Vestmannaeyja árið 1960.
Hefðu flm. þáltill. talið nauðsyn-
legt að öllum undirbúningi á
landi yrði lokið fyrir þann tíma.
Jákvæð rannsókn hefði þegar
farið fram á botnlaginu þar sem
strengurinn ætti að liggja, en
nauðsynlegt væri einnig að öðr-
um undirbúningi yrði lokið svo
að það tefði ekki fyrir lagningu
línunnar er þar að kæmi.
Kvaðst Jóhann Þ. Jósefsson að
lokum vilja mælast til þess, að
ríkisstjórnin upplýsti, hvernig
málið horfði og hvað gert hefði
verið til að framkvæma þings-
ályktunartillöguna frá 16. apríl
1958.
Emil Jónsson ,f«rsætisráðherra,
varð fyrir svörum af hálfu ríkis-
stjórnarinnar. Skýrði hann svo
frá, að samkvæmt bréfi frá raf-
orkumálastjóra væri í þeirri tíu
ára áætlun, sem gerð hefði verið
um rafvæðingu á Suðurlandi,
gert ráð fyrir því, að sæstreng-
urinn til Vestmannaeyja yrði
pantaður á árinu 1959 og lagður
á árinu 1960. Áætlun þessi væri
miðuð við það, að virkjun Efra-
Þrír bátar gerðir
út frá Stokkseyri
STOKKSEYRI, 20. jan. — Hér
á Stokkseyri eru nú að hefjast
róðrar. Alls munu þrír bátar
verða gerðir hér út á vertíðinni.
Hefur einn þeirra farið 3 róðra,
en afli verið mjög tregur, um 2
smálestir í róðri.
Verið er að setja nýja vél í
einn bátinn í dráttarbraut í
Reykjavík. Mun hann ekki verða
tilbúinn til róðra fyrr en eftir
2—3 vikur.
Nokkra menn vantar ennþá á
þann þát, en vonir standa til að
úr því rakni í tæka tíð.
Kuldaverðátta hefur verið hér
það sem af er þessu ári. Er all-
ur fénaður á gjöf og fénaðarhöld
góð yfirleitt.
Næsta föstudag er í ráði að
halda hér veglegt Þorrablót.
Mun þar verða á boðstólum marg
víslegt góðgæti og margskonar
fagnaður. Hyggja menn gott til
þess að njóta þar góðrar skemmt
unar, enda mun aðsókn að hóf-
inu vera mikil og eru aðgöngu-
miðar að því, þegar allir upp-
seldir. — Ásgeir.
Sogs tefðist ekki, en nú væri allt
útlit á að henni yrði lokið á til-
skildum tíma og ætti því ekkert
að vera því til fyrirstöðu að sæ-
strengurinn til Vestmannaeyja
yrði lagður árið 1960. Ráðherr-
ann skýrði einnig svo frá, að
stofnkostnaður við rafveitulínuna
frá Hvolsvelli til Vestmannaeyja
væri áætlaður 15 milljónir króna.
Jóhann Þ. Jósefsson þakkaði
forsætisráðherra veittar upplýs-
ingar. Kvaðst hann ekki vera ó-
ánægður með svarið að svo
miklu leyti sem það væri tryggt,
að tíu ára áætlunin stæðist, en
það byggðarlag, sem hér um
ræddi, gæti ekki beðið lengur en
til 1960 eftir rafvæðingu. Að
lokum kvaðst Jóhann Þ. Jósefs-
son áskilja sér rétt til að hreyfa
þessu máli enn á þessu þingi, ef
endurskoðun færi fram á tíu ára
áætluninni.
FINSKA stjórnin sendi Sovét-
stjórninni í dag orðsendingu, þar
sem hún fagnar tillögum Rússa
um friðarsamninga við Þýzká-
land. Stjórnin segir, að tillaga
Rússa frá 10. jan. um, að kölluð
verði saman ráðstefna í Varsjá
eða Prag til að fjalla um friðar-
samningana, sé spor í rétta átt
og Finnar muni stuðla að því,
að ráðstefna þessi verði haldin.
Karl Guðjónsson, 2. landkjör-
inn þm., kvaddi sér hljóðs..
Kvaðst hann I tilefni af þeim um-
ræðum, sem fram hefðu farið,
vilja benda á það, að Vestmanna-
eyjar væru eini kaupstaðurinn á
landinu, sem ekki væri tengdur
við rafveitur ríkisins. Alþingi
hefði þegar samþykkt ályktuq
þess efnis, að framkvæmd bessa
máls yrði hraðað.
Ching-Ling
Sung.
Frú Chiang
Kai-Cjek
Seint hafizt handa af
fyrrv. forsœtisráðherra
Frá Alþingi
Fundur var settur í sameinuðu
Alþingi kl. 1,30 í gær. Voru á
þeim fundi afgreiddar þrjár fyr-
irspurnir til ríkisstjórnarinnar,
en þáltill. um lán til byggingar-
sjóða af greiðsluafgangi ríkis-
sjóðs 1958 var tekin út af dag-
skrá.
Fyrst kom til umræðu fyrir-
spurn frá Eggerti Þorsteinssyni
til ríkisstjórnarinar um bygging-
ar á vegum hins opinbera. Kvað
fyrirspyrjandi fyrirspurninni
beint til fyrrv. ríkisstjórnar, en
kvaðst þó vænta þess, að núver-
andi ríkisstjórn gæti gefið ein-
hverjar upplýsingar í málinu.
Fyrirspurnin væri gerð af því
tilefni, að 5. marz s.l. hefði verið
samþykkt þáltill. á Alþingi um
ransókn á fjárfestingu til opin-
berra stofnana, og vildi fyrir-
spyrjandi nú heyra hvað gert
hefði í málinu.
Emil Jónsson, forsætisráðherra
varð fyrir svörum. Skýrði hann
frá því, að vegna samþykktar-
innar 5. marz 1958 hefði forsæt-
isráðherra 14. nóv. s.á. falið þeim
Herði Bjarnasyni húsameistara
ríkisins og Baldri Öxdal full-
trúa, að gera ítarlega rannsókn
í málinu. Eggert þakkaði upp-
lýsingarnar, en harmaði áð svo
seint skyldi hafizt handa.
VerSur mágkona Chiang
eftirmaður Maos?
Kai-Sjeks
PEKING. — Þegar Mao Tse-
Tung lýsti því yfir, að hann
mundi hætta að gegna störfum
forseta Kínverska alþýðulýðveld-
isins til þess að geta betur helgað
sig kommúnistaflokknum, fóru
menn að velta því fyrir sér, hver
verða mundi eftirmaður hans í
forsetaembættinu. Ýmsir voru
nefndir, en nú þykir sennilegast
að eftirmaðurinn verði enginn
annar en madame Sung Ching-
Ling, sem er ekkja mannsins,
Kvikmynda- og tnflkiúbbai
Æskulýðsrúis toka til starla
EINS og frá hefur verið sagt hér
í blaðinu, hefjast næstkomandi
mánudag að nýju námskeið í
ýmiss konar tómstundaiðjú á
vegum Æskulýðsráðs Reykjavík-
ur, en hlé hefur verið á þeirri
starfsemi frá því fyrir hátíðar. —
Innritun á námskeið þessi stend-
ur nú yfir daglega frá kl. 2—4 og
6—7, og verður innritun lokið
fyrir helgina. Er nú þegar full-
skipað í marga flokkana.
i:
Starfsemi kvikmynda- og tafl-
klúbbs Æskulýðsráðs er nú einn-
ig um það bil að hefjast, en þeir
hafa náð mikilli hylli hjá ungu
kynslóðinni.
Á sunnudaginn kl. 4 síðdegis
verður fyrsta kvikmyndasýning-
in í sal Austurbæjarskólans. Að-
göngumiðar fást þar við inngang-
inn. — Þá verða einnig sýningar
í Háagerðisskóla, og er sóknar-
nefnd Bústaðasóknar aðili að
starfseminni þar. Sýningar hefj-
ast nk. laugardag og verða kl.
4:30 og 5:45 síðdegis. Verður for-
sala á miðum á sama stað í dag
Dagskrá Alþingls
í DAG eru boðaðir fundir í báð-
um deildum Alþingis á venjuleg-
um tíma. Á dagskrá efri deildar
er eitt mál: Bann gegn botnvörpu
veiðum, frv. — 1. umr.
Fimm mál eru á dagskrá neðri
deildar.
1. Skipulagning samgangna,
frv. Framhald 2. umr. (Atkvæða
greiðsla). 2. Niðurfærsla verðlags
og launa, frv. — 1. umr. 3. Dýra-
læknar, frv. — Ein umr. 4. Veit-
ingasala o.fl., frv. — 2. umr. 5.
Búnaðarmálasjóður, frv. — 3.
umr.
Strandferðaskipið
Hekla aftur ferða-
fært
STRANDFERÐASKIPIÐ Hekla
er nú aftur ferðafært, eftir hálfs-
mánaðar töf, vegna viðgerðar á
stýrinu, en það laskaðist þegar
skipinu hlekktist á í hinni svo-
kölluðu rennu í Patreksfjarðar-
höfn, um miðjan desembermánuð,
eins og kunnugt er af fréttum.
Skipið lagði af stað í hringferð
austur um land síðastliðinn mánu
dag. ,
Vegna áramótanna, flutnings á
sjómönnum o. fl. fékk skipið leyfi
til að fara í skyndiferð vestur um
til Akureyrar fyrir jólin, eftir að
bráðabirgðaviðgerð hafði farið
fram, m. a. var þá strax skipt
um aðra gangskrúfvna. Að þeirri
ferð lokinni þótti óhjákvæmilegt
að taka skipið til frekari viðgerð-
ar. Var þá stýrið tekið af og gert
við það. Er þeirri vi^gerð nú lok
ið, eins og áður er sagt.
og á morgun kl. 5:30—7 síðdegis.
— Auk þess sem aðgöngumiðar
eru seldir að einstökum sýning-
um á vegum kvikmyndaklúbb-
anna, er hægt að fá aðgangskort,
sem gilda fyrir sex sýningar;
kosta þau kr. 15.
★
Taflklúbbarnir taka aftur til
starfa þriðjudaginn 27. þ. m., og
verða í Ungmennafélagshúsinu
við Holtaveg, í Golfskálanum og
að Lindargötu 50, á þriðjudögum
kl. 8 e. h., einnig á Fríkirkjuvegi
11 kl. 7 e. h. á miðvikudögum.
Þá mun einnig starfa tafl-
klúbbur fyrir drengi, 11 ára og
yngri; verður sá klúbbur á
þriðjudögum kl. 5 e. h. að Lind-
argötu 50. Leiðbeinendur eru frá
Taflfélagi Reykjavíkur, flestir
þekktir skákmenn.
Gæltir góðar
í Breiðdalsvík
BREIÐDAL, S-Múl., 21. jan. —
Frá áramótum hefur tíð verið
köld og nokkur snjókoma. Að
mestu hefur verið innstaða á,
fénaði.
Gæftir voru góðar til 17. þ. m.
Hafnarey fékk 78 lestir í 9 róðr-
um. Mestur afli í róðri var nær
16 lestir. Skipstjóri á Hafnarey
er Þórhallur Hálfdánarson,
Hafnarfirði. Útgerð þessa nýja
skips byrjar því með ágætum og
veitir mikla vinnu í byggðarlag-
inu, enda munu engir fara héðan
í atvinnuleit. — Páll.
sem grundvallaði kínverska lýð-
veldið, dr. Sun Yat-Sen. Sumir
heimildamenn fullyrða meira að
segja, að á leynifundi hafi komm-
únistaforsprakkarnir nú þegar
valið frúna til starfans. En endan
leg kosning fer fram í marz. Frú-
in er einn af 13 varaformönnum
í fastanefnd þjóðþingsins. Hún er
ákaflega vihsæl, ekki sízt vegna
þess orðs, sem fór af manni henn-
ar og vilja kommúnistar nú nota
sér vinsældir hans sér til fram-
dráttar.
Þess má loks geta, sem er auð-
vitað merkilegast við frétt þessa,
að frúin er mágkona Chiang Kai-
Sjeks, forseta þjóðernissinna á
Formósu, þar eð þær frú Chiang
eru systur. Dr. Sun Yat-Sen hef-
ur alltaf verið í miklum metum
hjá þjóðernissinnum á Formósu.
Sjálfstæðisfélag
Stokkseyrar-
hrepps
STOKKSEYRI, 20. jan. — Sjálf-
stæðisfélag Stokkseyrarhrepps
hélt aðalfund sinn sl. laugardag,
17. þ. m.
Var fundarsókn allgóð, eftir
atvikum, og f undurinn í alla
staði hinn ánægjulegasti.
Stjórn félagsins var öll endur-
kosin, en hana skipa þessir
menn:
Bjarnþór G. Bjarnason formað-
ur, Viktoría Ketilsdóttir ritari og
Guðjón Jónsson gjaldkeri. Með-
stjórnendur: Steingrímur Jónsson
og Ásgeir Eiríksson.
Á fundinum ríkti hinn mesti
einhugur og baráttuvilji fyrir
málefnum sjálfstæðisstefnunnar
og að vinna ötullega að sigri
flokksins við kosningarnar á
næsta vori.
Voru fjörugar umræður og
tóku margir til máls. Meðal ann-
ars var rætt um kjördæmamálið.
Var eindregið fylgi á fundinum
fyrir breytingartillögum Sjálf-
stæðismanna í kjördæmamálinu.
Að loknum fundinum skemmtu
fundarmenn sér langt fram eftir
nóttu við kaffidrykkju, kvik-
myndasýningu, spil o. fl.
Mikojan talar
í Höfn
KAUPMANNAHÖFN — Seint í
gærkvöldi var tilkynnt að ræða
sú, sem Mikojan átti að halda hér
í félagi Sovétvina í kvöld, yrði
frestað til fimmtudagskvölds
vegna tafa þeirrar, sem hann varð
fyrir, þegar SAS-flugvélin, er
flutti hann frá Bandaríkjunum,
varð að nauðlenda á Nýfundna-
landi.
í dag hafði hins vegar verið
reiknað með því að ekkert yrði
af ræðu hans, vegna seinkunar
flugvélarinnar.
Búnaðarmálasjóðsgjaldið tekið með
landbúnaðarvara
við verðlagningu
í GÆR var útbýtt á Alþingi
svohljóðandi breytingartillögum,
við frumvarp til laga um breyt-
ingu á lögum nr. 38 15. febr.
1945, um stofnun búnaðarmála-
sjóðs. Frá Ingólfi Jónssyni.
1. Aftan við ákvæði til bráða-
birgða bætist nýr málsl., svo hljöð
andi: GjÖld þessi teljast með
framleiðslukostnaði l'andbúnaðar-
vara, og skal tekið tillit til þess
við verðlagninu þeirra.
2. 2. gr. orðist svo:
Þegar lög þessi hafa hlotið
staðfestingu, skal Búnaðarfélag
íslands hlutast til um, að fram
fari um þau almenn atkvæða-
greiðsla í öllum hreppabúnaðar-
félögum landsins. Þau taka gildi,
ef meiri hluti þeirra bænda, sem
þátt taka í atkvæðagreiðslurmi,
er þeim samþykkur.
— Mikojan
Framhald af bls. 1.
fylgdarlið hans svo til Kaup-
mannahafnar.
Óhræddur
Fréttamenn spurðu Mikojan,
hvort hann hefði orðið hræddur.
Hann svaraði því neitandi. — Ég
óttast ekki örlög mín, svaraði
hann rólega. En ég hugsaði um
hina farþegana og sérstaklega
börnin, ef eitthvað kæmi fyrir.
Að lokum má geta þess, að bil-
uðu hreyflarnir voru innsiglaðir
og verða sendir til rannsóknar í
Stokkhólmi.
Sænski kapteinninn Arne
Schultzberg, sem nauðlenti vél-
inni, sem kviknaði í (DC-7),
stjórnaði Yngva víking til Kaup-
mannahafnar.
— Argentina
Framhald af bls. 1.
Peronistar hafa verið hand-
teknir í átökunum í Argen-
tínu.
Fréttamenn segja í kvöld, að
um 1 milljón iðnverkamanna
standi vörð við samgönguleiðir
til höfuðborgarinnar, reiðubúnir
að láta til skarar skríða gegn
stjórninni, ef þróunin verður í þá
átt. Kommúnistar eru ekki eins
ákveðnir í andstöðu sinni, en
leggja alla áherzlu á það að ná
völdum í verkalýðsfélögunum.
í seinustu fréttum í kvöld seg-
ir, að stjórnin hafi fengið liðs-
auka til höfuðborgarinnar frá
héruðunum Corrientes og Entre-
rios og hafi náð undirtökunum.
í kvöld ætluðu 2000 verkamenn
að marséra inn í höfuðborgina,
en þeir voru hraktir til baka með
táragasi.
Verzlanir og bankar í höfuð-
borginni verða opnaðir í dag og
blöð komu út í fyrsta skipti síðan
á sunnudag. En allar útvarps-
fréttir eru ritskoðaðar. Höfuð-
stöðvum Peronista og kommún-
ista hefur verið lokað og aðal-
málgagn kommúnista, La hora,
hefur verið bannað.
Þrátt fyrir friðsamlegra útlit
í dag, er andrúmsloftið lævi
blandið í Argentínu.