Morgunblaðið - 22.01.1959, Side 3
Fimmtudagur 22. jan. 1959
MO R GVIV fí L A ÐIÐ
3
Nýfundnalandsmiðin
uðu togaraútgerðinni
björg-
1958
Formaður togaraeigendafélagsins
rædir ýmis vandamál togaraútgerð-
arinnar í Ægi
f síðasta hefti Ægis, riti l\ski-
félags íslands, skrifar Kjartan
Thors, stjórnarformaður í Félagi
ísl. botnvörpuskipaeigenda, grein
um togaraútgerðina á árinu 1958.
Drepur formaðurinn þar á ýmis
vandamál togaraútgerðarinnar.
Hann segir þar m.a. frá því, að
í samningum þeim við stjórnar-
völdin um starfsgrundvöll tog-
aranna á nýbyrjuðu ári, hafi út-
reikningar sýnt að á hverjum
togara landsmanna myndi verða
rúmlega 600,000 króna halli, mið-
að við vísitöluna 185.
Formaður F.Í.B. segir að við þá
útreikninga, sem stuðzt var við,
hafi verið miðað við afkomu ár-
anna 1955—’57.
Síðan segir, að ekki liggi fyrir
tölulegar upplýsingar um afkomu
togaraútgerðarinnar á árinu 1958,
en vonir standi til að afkoma
verði að jafnaði mun hagstæðari
en áðurgreint þriggja ára meðal-
tal sýni.
Kjartan Thors skýrir hvernig
í þessu liggi, því ekki hafi útgerð
arkostnaðurinn lækkað, heldur
þvert á móti, og afurðaverð
erlendis verið óbreytt að heita
má, — og loks hafi veiðin hér
William S. Key
látirni
WILLIAM S. Key, hershöfðingi,
sem á síðustu árum styrjaldar-
innar var yfirmaður herafla
Bandaríkjanna á íslandi, andað-
ist 5. janúar að heimili sínu í
Oklahoma City eftir stutta legu.
Hann var 69 ára að aldri og lætur
eftir sig ekkju og þrjú fulltíða
börn.
(Frá utanríkisráðuneytinu).
við land sjaldan verið rýrari.
Það voru hin nýju karfamið við
Nýfundnaland, sem björguðu í
þetta sinn, segir greinarhöfund-
ur. Hann segir síðan á þessa
leið: „Hefðu þessi karfamið, eða
einhver álíka hagstæð ný veiði-
svæði, ekki fundizt, er mér ó-
mögulegt að sjá, hvernig komizt
hefði verið hjá stöðvun togar-
anna, þar eð heimamið þau, er
þeim eru enn heimil til veiða,
virðast hafa verið afar aflarýr".
Er Kjartan Thors ræðir horf-
ur á þessu ári, gerir hann að um-
talsefni útvíkkun fiskveiðiland-
helginnar. Hann gagnrýnir fram-
kvæmd þeirrar ákvörðunar „að
reka togarana út fyrir hin nýju
takmörk eins og væru þeir útlend
eign“, eins og hann kemst á ein-
um stað að orði um það mál. En
um horfurnar varðandi afkomu
togararútgerðarinnar á þessu ári,
segir Kjartan m.a. á þessa leið:
„Ef taka á af togurunum öll
helztu veiðisvæðin, samtímis því,
sem þeim mun ætlaður stórlega
rýrari starfsgrundvöllúr en minni
veiðiskipum, þá verð ég að játa,
að ég get ekki verið bjartsýnn um
afkomuna á þessu nýbyrjaða ári.
Því hver vill ábyrgjast, að hin
nýfundnu kaífamið haldi áfram
að gefa okkur uppgripaafla og
þannig reynast frábrugðin allri
fyrri reynslu okkar af slíkum
veiðisvæðum, er jafnan hafa geng
ið til þurrðar fljótlega og óvænt.
En fari svo ólíklega, að hliðstæð
karfaveiði fáist aftur á þessu ári,
hver getur þá tryggt að okkur
takist að fá kaupendur að öllum
þeim afla?“
Að lokum bendir Kjartan á
nauðsyn þess, að stöðugri fiski-
leit þurfi að halda áfram.
STAKSIEINAR
Leiðbeiningar
um skattíramtöl
Neytendasamtökin gefa nú
meðlimum sínum kost á bækl-
ingi sem nefnist: Um skattfram-
töl og skattfrádrátt. Efni hans er
eftirfarandi: Almennur frádrátt-
ur einstaklinga. Persónufrádrátt-
ur og félagsfrádráttur. Tekjur
undanþegnar skatti. Skattfrelsi
sparifjár. Frádráttur af tekjum
af atvinnurekstri. Sýnishorn af
framtali einstaklinga og sýnis-
horn af landbúnaðarframtali.
Bæklingur þessi er ekki gefinn
út af Neytendasamtökunum, held
ur hafa þau fengið vissan ein-
takafjölda, sem meðlimir þeirra
geta fengið fyrir vægt gjald.
Hann er þannig ekki innifalinn í
hinu lága árgjaldi, sem er kr. 25.
Þeir sem óska eftir að fá bækl-
inginn og sækja hann á skrif-
stofu Neytendasamtakanna, Aðal
stræti 8, fá hann fyrir 10 krónur,
en þeir sem óska að fá hann
sendan heim í pósti, fá hann fyr-
ir 15 krónur, sem yrðu þá inn-
heimtar með árgjaldinu síðar.
Skrifstofan er opin daglega milli
kl. 5 og 7 nema laugardaga kl.
2—4 e.h. Síminn er 1-97-22.
Um 500 manns hafa gengið í
Neytendasamtökin á síðustu 2
mánuðum.
Höfnina á Akra-
nesi tekið að leggja
AKRANESI, 21. jan. — Nú er svo
komið að allt Krókalónið að heita
má, er orðið ísi lagt. Höfnina er
einnig tekið að leggja í báta-
kvínni. — Oddur.
EINS og skýrt hefur verið frá í
fréttum, vakti það mikla at-
hygli, þegar sænskum sérfræð-
ingum tókst að gera heilaaðgerð
án skurðhnífs, án svæfingar og
án alls sársauka og blóðs. Þessi
„skurðaðgerð“ var gerð í Upp-
sölum nú nýlega og þykir marka
tímamót í sögu læknisfræðinn-
ar: fyrsta heilaaðgerðin með
„atómhníf” (eða geislahníf) er
staðreynd. — Mennirnir, sem
aðallega stóðu að þessari að-
gerð, voru Börje Larsson og
Lars Leksell prófessor. Hinn
fyrrnefndi er aðeins 28 ára gam
all, en hefur samt unnið að rann
sóknum á þessu sviði í meira
en 4 ár.
Sjúklingurinn var hálfsext-
ugur Svíi, sem þjáðist af organ-
ískum taugasjúkdómi. Var
sjúkdómurinn oft og tíðum
mjög kvalafullur og orsakaði
þunglyndisköst. Sérfræðingarn
ir gerðu tilraun sína á sjúklingn
um hálfum mánuði fyrir jól, en
ekki var skýrt frá árangrinum
fyrr en um helgina síðustu. Á
heila sjúklingsins var sporöskju
löguð skífa 3x6x10 mm. og var
hún brennd burt með proton-
geislum. Sjúklingurinn fann
ekki fyrir aðgerðinni og má
segja með sanni, að hann hafi
tekið sæng sína og gengið. Kval
irnar eru horfnar. Hann er al-
gjörlega læknaður af meinsemd
sinni.
I fréttum skandinavískra
blaða af þessari aðgerð má sjá,
að læknarnir hafi tekið ákvörð-
un um að gera þessa tilraun á
sjúklingnum, þegar lokuð voru
öll önnur sund en gera á hon-
um lífshættulegan beilaskurð.
Þó má segja, að hér hafi ekki
verið um fyrstu tilraun að
ræða, því að undanfarinn ára-
tug hafa sænskir sérfræðingar
með Leksell prófessor í Lundi
og Larsson kjarnorkufræðing í
broddi fylkingar gert margvís-
legar tilraunir á dýrum. Tilraun
irnar á dýrunum hafa sýnt, að
heilaaðgerðin er algerlega sárs
aukalaus og mjög árangursrík.
Protonsgeislanum er beint að
hinum sjúka bletti, sem eyða á,
og er hægt að stjórna honum al-
gerlega. Hann kemst í 22 sm.
dýpt, og engin hætta er á því,
að hann eyðileggi annað en hina
sjúku vefi, svo nákvæmlega er
honum stjórnað. Enginn er í
„skurðstofunni“ annar en
sjúklingurinn, en læknar og
kjarnorkufræðingar fylgjast
með í sjónvarpi í næsta her
bergi og grípa í taumana, ef
þörf krefur. „Aðgerðin“ tók
klukkustundir, en búizt er við
að hún muni taka mun styttri
tíma í framtíðinni.
Hinn frægi heilasérfræðingur
prófessor Olivecrona, kveðst
ekki gera ráð fyrir, að hin nýja
aðferð muni hafa mikla þýð-
ingu fyrir „hinar klassísku
heilaskurðlækningar“, eins og
hann komst að orði, en vafa-
laust verði geislahnífurinn þó
mikilvæg viðbót við þessar
hefðbundnu lækningaaðferðir
og einkum muni hann koma að
notum, þegar meinSemdirnar
liggja djúpt í heilanum.
Geislahnífurinn hefur vakið
svo mikla athygli í sænskum
blöðum, að þau hhfa skrifað for-
ystugreinar um aðgerðina. —
Blöðin hafa einnig skýrt frá
því, að sænskur vísindamaður,
Næslund að nafni, vinni nú að
rannsóknum á því, hvort geisla
hnífurinn getur unnið bug á
krabbameini, sem liggur mjög
djúpt. — Á myndinni hér að of-
an sést sjúklingurinn og Lars
Leksell (t.v.).
„Hafa leiðtogac Fram-
sóV""" afhent kommum
Dagsbrúnar
fylgi sitt?“
Svo spyr Alþýð'ublaðið 1 fær
stórri fyrirsögn og segir síðan:
„Það hefur vakið undrun með-
al verkamanna í Reykjavík, að
framsóknarmenn skuli ekki hafa
sagt eitt orð í blaði sínu um fram
boðslistann í Dagsbrún, sem þeir
lögðu fram sl. föstudagskvöld, en
kommúnistar dæmdu ógildan.
Þeir virðast ekki hafa gert neina
tilraun til að fá frest til að kippa
lag félagsréttindum nokkurra
manna. Ekki munu þeir heldur
hafa reynt að útvega ný nöfn í
stað þeirra, sem ekki voru lögleg.
Þessi óvenjulega framkoma
hefur gefið tilefni til spurninga
þess efnis, hvort leiðtogar Fram-
sóknarflokksins hafi ákveðið að
afhenda kommúnistum allt fram-
sóknarfylgið í Dagsbrún. Önnnr
skýring á þessu furðulega fram-
ferði þeirra er varla hugsanleg.
Er þá eftir að sjá, hvernig verka-
menn una slíkri meðferð og
hvort þeir láta skrifstofuna I
Edduhúsinu selja sig slíku man-
sali í hendur kommúnistum“.
Von er, að menn velti fyrir sér
hinni furðulegu þögn Tímans og
því, sem á bak við hana dylst.
Skýring Alþýðublaðsins er eng-
anveginn ómöguleg. En af henni
leiðir, að verkamenn Framsókn-
ar hafa boðið fram þvert ofan i
vilja flokksforystu sinnar og hún
hefir siðan gert samsæri við
kommúnista um að eyðileggja
það. Vegna fyrri samskipta má
Alþýðublaðið vel vita, hvernig til
gengur á Framsóknarheimilinu.
„Framsóknarréttlætið“
Islendingur á Akureyri ræðir
16. jan. um kjördæmamálið und-
ir þessari fyrirsögn og segir:
,Framsóknarflokkurinn vill
ekki láta hrófla við kjördæma-
skipun landsins. Honum finnst
öllu réttlæti fullnægt, þótt at-
kvæði 10 kjósenda í einu kjör-
dæmi sé metið til jafns við einn
í öðru. Hann vill því, að:
4640 kjósendur á Akureyri fái
1 þingmann
7515 kjósendur í Gullbringu- og
Kjósars. fái 1 þingmann
3386 kjósendur í Hafnarfirði fái
1 þingmann
803 kjósendur í Vestnr-Húna-
vatnssýslu fái 1 þingmann
759 kjósendur í Austur-Skafta-
fellssýslu fái 1 þingmann
426 kjósendur á Seyffisfirði fái
1 þingmann
1475 kjósendur í Norður-Múla-
sýslu fái 2 þingmenn
37603 kjósendur í Reykjavík fái
8 þingmenn".
„Reiknimeistarar“
Þá drepur fslendingur á skrif
Herjólfs nokkurs í Degi á Akur-
eyri og kemst svo að orði:
„Þá minnist Herjólfiur á „reikni
meistara“ í sambandi við tillög-
urnar um skiptingu kjördæm-
anna. Þetta reiknimeistaraspjall
hans rifjar upp fyrir mönnum
atburðina vorið 1956, þegar
„reiknimeistarar" Hræðslubanda-
lagsins voru að reikna út, hvern-
ig bandalaginu mætti takast að
ná meirihlutavaldi á Alþingi með
l/jhluta kjósenda að baki' sér í
skjóli úreltrar kjördæmaskipun-
ar og kosningalaga. Þau fáheyrðu
bellibrögð hafa eðlilega orðið
til að flýta fyrir því að safna
þjóðinni saman um nýja kjör-
dæmaskipun og kosningalöggjöf.
Og hvort mundu reiknimeistar-
arnir, sem reikna út „svindlið‘%
eða hinir, sem reikna út réttlæt-
lið, vinna hollara starf?“.