Morgunblaðið - 22.01.1959, Blaðsíða 13
Fimmtudagur 22. jan. 195t
MÖRCUNBLAÐIÐ
13
Meistarasamband hygg
ingarmanna stofnað
REYKJAVÍK hefur vaxið mjög
ört á síðustu árum. Samtímis
hefur aldrei verið eins mikið um
byggingarframkvæmdir í bænum.
Til fróðleiks má benda á þá
staðreynd, að á árinu 1947 voru
fullgerðar í Reykjavík 468 íbúð-
ir, en 935 íbúðir á árinu 1957.
Á nýliðnu ári er líklegt að full-
gerðar hafi verið hér í borg yfir
1000 íbúðir.
Auðvelt er að gera sér grein
fyrir því, að gífurlegar fjárhæðir
fara í gegnum hendur þeirra að-
ila, sem hafa með framkvæmdir
þessar að gera. Ábyrgð þeirra
er mikil, bæði gagnvart hús-
byggjendum og opinberum aðil-
um. Það hlýtur því að vera mjög
áríðandi og raunar nauðsynlegt,
að byggingarframkvæmdir séu á
hverjum tíma í höndum færustu
manna, sem hafa staðgóða þekk-
ingu á verki sínu.
Umsjón með framkvæmdum
í Reykjavík og ábyrgð á þeim
hafa meistarar í byggingariðn-
greinum.
Um langt árabil hafa meistarar
í byggingariðnaði haft með sér
starfsgreinafélög, m. a. til þess
að sinna sameiginlegum hags-
muna- og réttindamálum, til að
koma fram gagnvart stjórnvöld-
um, þegar um er að ræða sam-
eiginleg málefni og til þess að
vera samningsaðili við iðnsveina-
félög í viðkomandi starfsgreinum
um kaup og kjör.
Málefni þau er starfsgreinafé-
lög meistara í byggingariðnaði
láta sig sérstaklega varða eru í
flestum tilfellum sama eðlis.
Jafnhliða auknum byggingarfram
kvæmdum og fjölgun iðnaðar-
manna við byggingarstörf í
Reykjavík varð því meisturum
Ijós þörfin á að stofnað yrði sam-
band meistarafélaga í byggingar
iðnaði. Talið var að slíkt sam-
band, er ynni að sameiginlegum
og sérstökum málefnum starfs-
greinafélaganna, gæti orðið til
heilla bæði fyrir meistarana og
viðsemjendur þeirra.
í maímánuði sl. var Meistara-
samband býggingarmanna í
Reykjavík formlega stofnað.
Að stofnun þess stóðu eftir-
talin félög: Meistarafélag húsa-
smiða, Múrarameistarafélag
Reykjavíkur, Málarameistarafé-
lag Reykjavíkur, Félag löggiltra
rafvirkjameistara í Reykjavík,
Félag pípulagningameistara
Reykjavíkur og Félag veggfóðr-
arameistara í Reykjavík.
Meðlimir þessara félaga eru
rétt innan við 500, en félagsmenn
samsvarandi iðnsveinafélaga eru
um 1220. Iðnnemar samsvarandi
iðngreina eru um 380. í þjónustu
meðlima Meistarasambands bygg
ingamanna eru því nálægt 1600
iðnaðarmenn, auk fjölmargra
verkamanna, er alla jafna starfa
við byggingarframkvæmdir í
Reykjavík.
Höfuðtilgangur Meistarasam-
bands byggingamanna er þessi:
1) Að efla samstarf meðal meist-
arafélaga í byggingariðnaði.
2) Að gæta hagsmuna sambands-
félaganna almennt.
3) Að koma fram fyrir hönd
sambandsfélaganna út á við
og standa íyrir samnmgagerð-
um þegar þörf þykir á slíku.
4) Að leiðbeina sambandsfélög-
unum og vera þeim til að-
stoðar í öllu því, er þeim má
að gagni koma og við kemur
iðngreinunum og atvinnu-
rekstri þeirra.
5) Að vinna að aukningu mennt-
unar, verkkunnáttu og verk-
vöndun iðnaðarmanna.
6) Að vinna að bættri réttar-
stöðu meistara í byggingar-
iðnaði.
Meistarasambandið hefur skrif
stofur í Þórshamri, Templara-
sundi 5. Skrifstofusími er 16694.
Þar eru einnig til húsa skrifstof-
ur allra þeirra félaga er mynda
sambandið. Þangað er að sjálf-
sögðu heimilt að leita varðandi
upplýsingar um allt það, er lýt-
ur að réttindum og skyldum sam-
bandsmeðlimanna.
Stjórn Meistarasambands bygg
ingamanna skipa: Tómas Vigfús-
son, húsasmm., formaður, Árni
Brynjólfsson, rafvm., og Þorkell
Ingibergsson, byggingam.
Framkvæmdastjóri Meistara-
sambandsins er Guðmundur
Benediktsson, lögfræðingur.
Meistarasamband byggingar-
manna væntir góðs skilnings á
hlutverki sínu og málefnum sam-
bandsfélaganna hjá stjórnarvöld-
um og öðrum þeim aðilum, er það
á undir að sækja, jafnframt því
sem það óskar eftir góðri sam-
vinnu við alla þá er á einn eða
annan hátt hafa með málefni
byggingariðnaðarins að gera eða
meðlimir sambandsins eiga skipti
við. (Fréttatilkynning frá Meist-
arasamband byggingarmanna).
♦ A
BBJDCE
♦ *
♦v
í SJÖTTU umferð í sveitakeppni
1. flokks hjá Bridgefélagi kvenna
fóru leikar þannig:
Þorgerður vann Ástu B. .. 50:22
Ásta G. v. Margréti......45:40
Elín v. Lovísu........... 35:28
Guðrún G. v. Ólafíu...... 64:24
Dóra v. Sigríði ........ 48:38
Guðrún B. v. Minnu....... 67:38
Þorbjörg jafnt Ingibjörg .. 41:38
Sjöunda og síðasta umferð
verður spiluð annað kvöld í Sjó-
mannaskólanum. — Sveitakeppni
meistaraflokks hefst nk. mánu-
dag og verður spilað í Skáta-
heimilinu við Snorrabraut.
A V ♦ *
Bridgekeppni starfsmanna rík-
isstofnana hefst að nýju annað
kvöld. Tveim umferðum er ólok-
ið í keppni þessari.
A V ♦ *
Sveitakeppni meistaraflokks
hjá Tafl- og. bridgeklúbbnum er
hafin og taka 10 sveitir þátt í
keppninni.
Tveim umferðum er lokið.
Úrslit í 1. umferð urðu:
Svavar Jóhannsson vann
Björn Benediktsson ..... 54:43
Hákon Þorkelsson vann
Ingólf Böðvarsson....... 64:49
Hjalti Elíasson vann
Björgvin Ólafsson....... 65:58
Ragnar Þorsteinsson vann
Sigurleif Guðjónsson .... 43:35
Jón Magnússon vann
Sophus Guðmundsson .... 78:51
og Bridgeklúbbnum einmennings
keppni og er röð tveggja efstu
keppendanna eftir 1. umf. þessi:
Haraldur Briem ...... 112 stig
Georg Guðmundsson . . 109 stig
♦ V ♦ *
í eftirfarandi spili yfirsést sagn
hafa strax í byrjun, eini mögu-
leikinn til að vinna spilið.
♦ 4 3 2
V Á 9 7 4
♦ 9 4 3
♦ K 7 6
Á K
K D G 10
K G 7
9 8 4 2
N
V A
S
♦ —
V 8 6 5 3 2
♦ 10 8 5
♦ D G 10 5
3
Úrslit í 2. umferð:
Hákon vann Björgvin
Ingólfur vann Björn ..
Jón vann Svavar ....
Hjalti vann Ragnar ..
Sophus vann Sigurleif
84:40
73:42
59:48
48:39
64:44
Einnig stendur. yfir hjá Tafl-
♦ DG 10 98765
V —
♦ A D 6 2
♦ A
Suður spilar 4 spaða, sem V
doblaði. Útspil er hjarta-kóngur.
Suður drap með ás í borði og
kastaði tigli. Þvínæst var lágu
laufi spilað og drepið með ás og
spilað út spaða. V tók nú ás og
kóng í spaða og spilaði síðan
hjarta. — Nú spilaði S öllum
trompunum nema einu, en and-
stæðingarnir voru varir um sig
og héldu eftir tigli, þannig að S
varð að gefa tvo slagi á tigul,
og tapaði þar með spilinu.
En S getur auðveldlega unnið
spilið. Hann á ekki að drepa
hjarta-kóng í byrjun með ásnum,
heldur á hann að trompa hann
heima. Síðan tekur hann laufa-ás
og læt'. . .vO út tromp. V lendir
inni og nú er sama hvað hann
lætur út, S þarf ekki að gefa
nema einn slag á tigul.
Búnaðarmálasjóösgjald-
endurvakinn draugur
GENGINN er aftur á Alþingi
draugur sá, er Bún&ðarþing magn
aði á hendur bændum landsins.
Á ég hér við hækkun búnaðar-
málasjóðsgjaldsins um helming
til þess að standa undir hall-
arbyggingu í Reykjavík, er hýsi
Búnaðarfélag íslands og Stéttar-
samband bænda. Þó er viður-
kennt af forgöngumönnum þessa
máls að þær stofnanir saman,
þurfi ekkj meira húsnæði en einn
fjórða hluta fyrirhugaðrar bygg-
ingar. Er því gert ráð fyrir
að % hl. verði hafðir til að
braska með.
Til að byrja með á að taka
minnst 8 milljónir króna af
rekstrarfé bænda og flytja til
Reykjavíkur ofan á þær blóð-
tökur sem dreifbýlið hefur orðið
fyrir í sambandi við fólksflutn-
inga undanfarinna ára og slík er
lítilsvirðing þessara manna fyrir
bændum landsins, að þeir telja
óþarft að bera málið undir þá
aðila sem byrðarnar eiga að bera.
Svona einræðisbrölt er alveg ó-
þolandi. Búnaðarþing hefur
enga heimild til þess að leggja
þungar fjárhagsb.yrðar á herðar
bænda án þess að vita um vilja
þeirra fyrst.
Þegar félagsskapur bænda í
sveitum landsins hefur tjáð sig
fylgjandi málinu ,er fyrst tíma-
bært að flytja málið á Alþingi.
Vænta bændur þess, að alþing-
ismenn séu þeir fulltrúar lýðræð-
isins að þeir vísi málinu frá eins
og þegar hefur komið fram í
rökstuddri dagskrá Jóns Pálma-
sonar.
Einræðisbrölt Búnaðarþings á
sér engin fordæmi og skattlagn-
ing bænda í þessu formi er hreint
eignarán ósamrýmanlegt ákvæð-
um stjórnarskrárinnar um frið-
helgi eignarréttarins, því hér er
ekki almenningsheill til að dreifa
þar sem meginhluti fjánns er æti
aður í brask, óviðkomandi land-
búnaðarmálum.
Það fé, sem þegar er tekið aí
bændum ætti að nægja til þess
að byggja yfir Búnaðarfélag ís-
lands og stéttarsamtökin, ef vel
væri á haldið.
Svo að lokum þetta: Er nokk-
ur þörf á að byggja yfir þessar
stofnanir í Reykjavík? Væri ekki
meiri og betri árangurs að
vænta ef byggt væri yfir þær í
sveit, þar sem hentug og góð skil-
yrði væru til þess að koma upp
menningarmiðstöð fyrir landbún-
aðinn. Á ég þar við búnaðarhá-
skóla, rannsóknarstöðvar í þágu
landbúnaðarinsáfjölmörgum svið
um m. m. og svo ætti að flytja
þangað alla ráðunautana, sem nú
búa í Reykjavík og skapa þeim
þar skilyrði til að vinna að sín-
um áhugamálum í verki svo
sem helzt verður við komið. Þá
mundi aftur styrkjast sú taug,
sem binda á þá við sveitir lands-
ins. Jóh. Laxdal.
íbúö óskast
Ung barnlaus hjón óska eftir 2ja herb. íbúð. Vinna
bæði úti. Algjör reglusemi. Uppl. í síma 36139.
Nýr bíll
Vauxhall Victor ’59 ókeyrður til sýnis og sölu í dag.
BlLASALAN.
Klapparstíg 37 — Sími 19032.
AfgreiÖslumaÖur
Afgreiðslumann vantar hjá umfangsmikilli bygg-
ingavöruverzlun í Reykjavík. Eiginhandarumsókn-
um, er greini fyrri störf, sé skilað í afgreið,slu blaðs-
ins, merkt: „Byggingavörur — 4165“ fyrir 26. þ.m.
Sendiferðabíll
(Garrant) til sölu. Til sýnis næstu daga hjá Afurða-
sölu S.I.S. við Laugarnesveg. Tilboð sendist fyrir
n.k. mánaðamót til
SAMBANDS ISL. SAMVINNUFÉLAGA
Deild 1.
Reglusöm stúlka
ekki yngri en 18 ára óskast til afgreiðslu við miðasðlu
í kvikmyndahúsi. Þarf jafnframt að veita húshjálp
barnlausu heimili fyrri hluta dags. Gott kaup. Sér
herbergi, fullt fæði. Upplýsingar að Fjólugötu 19
kl. 4—7.
Skrifstofustúlka óskast
Stórt fyrirtæki óskar eftir að ráða góða skrifstofu-
stúlku sem fyrst. Bjartar og rúmgóðar skrifstofur
í miðbænum. Góð laun. Tilboð sendist í pósthólf
597.
BeitLngamenrL
vantar strax á bát sem rær frá Grinda'
vík. Uppl. í síma 50565.
Stúlka
óskast til afgreiðslustarfa nú þegar.
Svar merkt: „4178“ sendist afgr. Mbl.
fyrir 25. þ.m.
Húseigendut*
Þíðuin frost úr vatnspíppum.
Raftækjavinnustofa Jóns Guðjónssonar
Borgarholtsbr. 21 — Sími 19871.