Morgunblaðið - 01.02.1959, Qupperneq 1
14 síður
4«. árg'angiir
Vonlítið að nokkur hafi komizt
lifs af við Grænland
Leitað árangurslaust r
s/ó og úr lofti
VONIRNAR um að ein-
hverjir hafi komizt af, er
danska Grænlandsfarið
Hans Hedtoft sökk í
fyrrakvöld skammt und-
an Hvarfi á Grænlandi,
hafa nú að mestu kulnað.
Með skipinu vo»ru 95
manns, 40 manna áhöfn
og 55 farþegar, Danir og
Grænlendingar — þar af
5 börn og 19 konur.
Þrátt fyriir mjög óhag-
stæð skilyrði var í gær
reynt að halda uppi leit
á svæðinu, sem Hans
Hedtoft var staddur á,
þegar síðasta kallið barst
6rá skipinu kl. 20,50 á
föstudagskvöldið, þar
sem það var í nauðum
statt 20 sjómílur SA af
Hvarfi efti'r að hafa rek-
izt á ísjaka. Loftskeyta-
menn í Julianehaab
heyrðu þá til loftskeyta-
stöðvar skipsins, var sagt
að sjór væri tekinn að
renna inn í vélarrúmið,
skipið væri að sökkva og
skjótirar hjálpar væri
þörf. Síðan heyrðist ekk-
ert frá skipinu.
• ♦ •
Fregnin um hvarf Grænlands-
farsins, sem var í jómfrúrferð
sinni flaug þegar eins og eldur í
sinu beggja vegna Atlantshafs-
ins. Ráðstafanir voru strax gerð-
ar til leitar og björgunar — og i
suðurbyggðum Grænlands flykkt
ust íbúarnir til nálægra loft-
skeytastöðva og biðu í eftirvænt-
ingu eftir að öldur ljósvakans
bæru þeim fregnir um að enn
væri von um björgun.
Tveir þýzkir togarar voru ná-
lægir. Annar þeirra Johannes
Kreuss kom fyrst skipa á slys-
staðinn, en þá var skollið á ofsa-
veður og hríð — og urðu togara-
menn ekki varir við Hans Hed-
toft. í gær bárust fregnir til
Bremerhafen, heimahafnar tog-
arans, um að togarinn hefði í
gær fundið planka, sem verið
gæti úr skipi. En vegna ofviðris-
ins var ekki hægt að innbyrða
plankann. Fljótlega varð togar-
inn að hætta eftirgrennslaninni
vegna ofsaveðurs og ísreks, en
síðari hluta dags í gær var hann
aftur kominn á leitarsvæðið. í
skeyti frá togaranum sagði, að
lítil von virtist um að einhverjir
hefðu komizt í báta í veðurhamn-
um, en leitinni yrði samt haldið
áfram.
• ♦ •
Bandaríska strandgæzluskipið
Campbell var statt nokkru sunn-
ar, þegar slysið var og hélt það
þegar áleiðis til hjálpar.
I ljósaskiptunum í gær-
kvöldi var Campbell komið í
jaðar leitarsvæðisins og þar
ofsaveðri á
komið í rckís. Þar var þá
hvasst, gekk á með snjókomu
og slyddu og búizt við að
enn mundi hvessa, þegar á
nóttina liði.
• ♦ •
Veðurathugunarskipin Alfa og
Beta voru einnig mjög skammt
undan — og fjórar flugvélar frá
bandariska og kanadíska flug-
hernum sveimuðu yfir. Skyggni
var mjög slæmt, flugmennirnir
sáu örsjaldan niður á sjávarflöt-
inn — og lítil von um árangur.
• ♦ •
Engin flugvél fór frá Keflavík-
urflugvelli til leitarinnar í gær,
en dönsk Katalínaflugvél lagði
upp frá Kaupmannahöfn í gær og
mun halda til Grænlands með við
komu á íslandi — og taka þátt
í leitinni. Flugvöllurinn á Narsa
suak hefur verið ruddur til nota
við leitarflugið.
Sem fyrr segir eru litlar líkur
taldar til þess að einhverjir
hafi komizt af. Fyrst og fremst
var veðurofsinn svo mikill að
vart er hugsanlegt, að menn hafi
komizt í bátana. Hins vegar
höfðu skipsmenn gúmmíbáta,
sem búnir voru vistum
og neyðarsendi. Eru þessir bátar
þannig útbúnir, að þeir blása sig
upp sjálfir — og hafði skipsmönn
KAIRO, 31. jan. — Eitt helzta
blaðið í Kairo skýrir svo frá, að
Aref uppreisnarforingi í írak
hafi verið dæmdur til dauða m. a.
fyrir það að hafa reynt að ráða
um verið kennt að stökkva fyrir
borð með bátana og komast í þá
í sjógangi.
En fullvíst má telja, að eng-
in þessara neyðarsenditækja
hafi verið notuð. Ekkert hefur
heyrzt til áhafnar og farþega
á Hans Hedtoft.
★
Meðal farþeganna með Hans
Hedtoft í jómfrúarferðinni voru
tveir af helztu forystumönnum
Grænlendinga Þ'ngmaður þeirra
Linge og landsráðsmaðurinn
Framh. á bls. 23.
Kassem herforingja, sem nú fer
með æðstu völd i írak, af dögum,
er þeir voru einir saman í her-
bergi skömmu eftir byltinguna.
Aref mun hafa neitað ákærunni
fyrir réttinum, en Kassem stað-
hæft að hún væri rétt. — Þá
segir í Kairofregnum, að Nasser
vilji nú hitta Kassem að máli —
og er jafnvel haldið að fundurinn
sé þegar í undirbúningi.
Krupp fær frest
PARÍS, 3. jan. — Stjórnir Bret-
lands, Bandaríkjanna og Frakk-
lands hafa fallizt á beiðni iðju-
höldsins Krupp í V-Þýzkalandi
um að fá að fresta um eitt ár að
selja kola og stáliðnaðarfyrirtæki
sín.
★------------------★
Sunnudagur 1. febrúar
Efni blaðsins m.a.:
BIs. 3: Bók bókanna (þáttur kirkjunn
ar). — Úr verinu.
— 6: Lauritzen vildi smíða Græn-
landsfarið.
— 8: Bréf frá London.
— 10: Fólk í fréttunum. — Sitt af
hverju tagi.
— 12: Forystugreinin: „Örlagarík tii-
raun“.
Utan úr heimi: Ríkasti rithöf-
undur heims.
— 13: Reykjavíkurbréf.
— 15—16: Barnalesbókin.
★--------------------------★
Örin bendir á hvítan depil. Þar varð slysið.
Æflaði Aref að myrða
Kassem ?