Morgunblaðið - 01.02.1959, Blaðsíða 8
8
MORCTJN RT. AÐIÐ
Sunnudaeur 1. febrúar 1959
Keflavík
Kona óskast til starfa í þvottahúsi.
SJÚKKAH líSIÐ 1 KEFLAVlK
Bílleyfi óskast
Bílleyfi á Ameríku eða V-Evrópu óskast.
Tilboð sendist blaðinu merkt: „Leyfi—5738“.
Ungur bifvélavirki
sem hefur meistararéttindi, óskast.
Tilboð sendist afgr. blaðsins fyrir 6. febrúar. merkt:
„Bifvélavirki—5736“.
5 herbergja íbúð
á fyrstu hæð til sölu í Sólheimum. Sér hiti, sér inn-
gangur. Bílskúrsréttindi.
Nánari upplýsingar hjá
EINARI SIGURÐSSVNI
Ingólfsstræti 4 — Sími 16767
(Heimasími 16768)
Húsgögn ■ miklu úrvali
Stofusett, margar gerðir, — Skrifborð, margar gerðir
Hansahillur — Hansaskápar —
Hvíldarstólar, með skammeli — Innskotsborð
Svefnsófar — Svefnstólar.
Skeifan Laugaveg 66
Sími 16975
Tilboð
Félag blómaverzlana vill hérmeð leyta tilboða við
mann með sendiferðabíl, sem vill taka að sér út-
keyrslu, fyrir allar búðir félagsins, gegn sanngjörnu
gjaldi.
Upplýsingar gefur Hendrik Berndsen,
Blóm & Ávextir
Félag Blómaverzlana, Reykjavík
Þýsk stórisefni
með blúndu, hvít og kremuð.
Breiddir 0,90 — 0,95 — 1,15 — 1,20 — 1,30 — 1,65
Verð frá kr. 36,20
Donvu og herrabuðin
Laugaveg 55 — Sími 18890
Nýkomið
Ljósasamlokur í bíla, 6 og 12 volta, kr. 89.90 stk.
Bíla & raftækjavezlun
Haldórs Ólafssonar
Rauðarárstíg 20
Kosningar framundan — FiskveiðideH-
an við ísland—40 leikhús á fermílu
— Nýjar kirkjur risa
Eftir Hilmar Foss
LONDON í janúar. Allt útlit
virðist nú fyrir að þingkosningar
verði í Bretlandi á hinu nýbyrjaða
ári.
Sumarið 1957 fékk ég tækifæri
til að víkja þeirri spurningu að
Herbert Morrison, hvenær Verka-
mannaflokkurinn gæti vonazt til
áð ná völdum. Hann svaraði hik-
laust að ekki yrði kosið fyrr en
1959 og flokkur hans mundi sigra.
Þessi skoðun kann að eiga sér
stoð í veruleikanum þrátt fyrir
það, að forysta stjórnarandstöð-
unnar virðist duglítii og nokkuð
skorti á viljann til að vinna sigur.
Aðrir benda á, að jafnaðarmönn-
um sé um og ó að taka við af
íhaldsmönnum vegna ástandsins í
efnahagsmálunum og hættunnar á
að til hruns kynni að koma vegna
þess hversu Ihaldsstjórnin hefur
verðhækkunum lausan t/auminn og
opnað lánamarkaðinn þótt án
beinna aðgerða hafi verið.
Hækkandi verðlag
Greinilegt er að í verðlagsmál-
um hallast á ógæfuhliðina og er
verðlag að fara upp úr öllu valdi,
líkt og gerðist í Bandaríkjunum á
stjórnai-árum Republikana, en það
býður kauphækkunum heim eða
ógerningur verður fyrir fólk að
komast af. Vöruframboð er greini-
lega úr hófi fram og samkeppnin
ofsafengin. Jólaföstunni var eins
og oft áður fyrr og víðar spillt
með yfirdrifnum íburði og sölu-
mennsku, en ekki bólaði á vöru-
skorti eða að einstakar tegundir
vamings gengju til þurrðar. Um
leið og verzlanir lokuðu á aðfanga-
dag var tekið til óspillra málanna
að undirbúa útsölur og haugað
fiam vörum við lækkuðu verði.
Lánsverzlun hefur orðið allt of
mikil svo hætt er við að til vand-
ræða komi bæði fyrir verzlanir
og viðskiptavini. Vextir hafa hins
vegar verið lækkaðir og lánastarf-
semi bankanna aukin á árinu.
Veik forysta
Þrátt fyrir veika forystu Verka
lýðsflokksins eiga íhaldsmenn ekki
úr háum söðli að detta með því
að nú eru stórninni horfnir xeir
sem almenningshylili náðu, stór-
menni sem Sir Winston Churchill
og göfugmenni eins og Sir Ant-
hony Eden. 1 stað hinna frjálslynd
ari íhaldsmanna hafa komið gam-
aldags menn og þröngsýnir, sem
leitast við að endurvekja nýlendu
stefnu umliðinna alda og skapa
landi og þjóð óvinsældir um allan
heim. Mönnum finnst stefna
stjórnarinnar í utanríkismálum
að sjálfsögðu reikul og ósjálfstæð,
apað sé eftir Bandaríkjastjórn
hversu óheppilega sem hún fari að
og stefnan gagnvart vandamálun-
um á Kýpur og við ísland sé sízt
til að auka á vinsældir Breta út á
við.
Þá þykir stjórnin og hafa sýnt
Frökkum, hinum gömlu og ágætu
bandamönnum Breta, fullan
fjandskap á sviði efnahagsam-
vinnu og fjármála, m.a. með því
að leitast við að grafa undan
g ngi frankans. Á sama tíma hef-
ir hún viðrað sig upp við forna
fjandmenn í Þýzkalandi og er von
að mönnum sárni það bæði hér á
landi og í Frakklandi. Allt þykir
þetta hafa áhrif á samstarf vest-
rænna þjóða innan vébanda At-
lantshafsbandalagsins og Evrópu-
ráðsins og finnst mönnum fram-
lag brezku stjórnarinnar því orð-
ið harla vafasamt, enda nýtur
Sovétstjórnin ein góðs af afstöð-
unni. Því miður vekur fiskveiði-
deilan við íslendinga ekki nóga at-
hygli til að geta hai't bein áhrif
á almenningsálitið, enda haldið
niðri sem mest má verða af stjórn-
arliðinu og útvegsmönnum.
40 leikhús á ferniílu
í stórborginni stytta menn sér
stundir um hátíðir og endranær.
Enn eru rekin fjörutíu leikhús á
einni fermílu eða nær helmingi
fieiri en í New York allri. Tón-
listarlíf eykst stöðugt og rétt fyrir
jólin stjórnaði „gamli maðurinn'*
Sir Thomas Beechman tónleikum
í Festival Hall við geysimikl*
hrifningu. Sá óvenjulegi atburður
gerðist að Sir Thomas lét leika tvS
aukaverk oj ræddi við áheyrendur
þótt hann vilji helzt ekki þurfa að
horfa fram í þennan nýstárlega
sal. í honum var einnig fluttur
ballet ársins, Hnetubrjóturinn all-
ur, glæsileg sýning, enda búin und
ir sýningu af Alexandre Benoia,
hinum gamla meistara. Gagnrýni
blaðanna var samt misjöfn, end»
hættir bi’ezkum blaðagagnrýnend-
um oft við að hugsa til hinna
nvimleiðu „pantomime" sýninga,
sem hér eru landlægar, þegar þeir
skrifa um aðra og betri iiluti. Sýn-
ingin var raunverulega ævintýri
líkust, smekkleg og skemmtileg. —
Fjöldi leikrita hefur gengið hér ár
um saman og hefur verið sagt frá
ýmsum þeirra í Mbl.
Mikið kirl julif
Annað atriði, sem borið hefur
hátt gegn „nátíð kaupmannanna“
og stjórnmálaþrasinu, er trúarlíf-
ið og þróttmikil starfsemi kirkj-
unnar um jól og áramót. Föstu-
messur eru hér með öðru sniði en
heima, hátíðlegri og fjölbreyttari
og undirbúningur jólanna allur
mikilfenglegri. Svo kemur að
jólamessunum og sálmasöngnum.
Eru sungnir fjölmargir og oft
ævafornir jólasálmar og gjarnan
við kertaljós, með skrúðgöngum og
þátttöku fjölda preláta og leik-
manna. í dómkirkjunum heyrast
hinar undurfögru drengjaraddir
og alls staðar er þátttaka safnað-
arins í messunni, eins og raunar
endranær, mikilsvert atriði. Hefur
það mikil og bætandi áhrif á
kirkjulífið og ætti að gefa þessu
atriði meiri gaum. Einkar áhrifa-
miklar eru miðnæturmessur á að-
fangadagskvöld og gamlárskvöld,
sem hér fara fram í öllum helztu
kirkjum og eru mjög vel sóttar.
Mikið hefur verið endurreist af
þeim fjölmörgu kirkjum, sem Þjóð
verjum tókst að eyðileggja í loft-
árásum styrjaldarinnar. Hefur
jafnvel komið til tals að selja ka-
þólsikum einhver Guðshús, en þeir
stunda be.ur kirkju sína og þeim
fer fjölgandi svo þeir munu nú
geta tali ð sér um tíunda hvern
mann í landinu. Mundi það leysa
vel vanda þeirra, enda erfitt
að fá góðar lóðir og byggingar-
kostnaður mjög hár. Hér í London
hafa verið endurbyggðar. hinar
fornfrægu kirkjur St. Glements
Danes, St. Brides, City Temple og
Bow- klukkuturninn, en hinar
stóru dómkirkjur St. Pauls og
Westminster Abbey endurbættar
og auknar mjög. Eina kirkjan,
sem lítils viðhalds hefur notið
(enda fær hún enga opinbera
styrki) er St. Bartholomew-the-
Great, en elztu hlutar hennar eru
síðan 1123. Hefur hún staðizt all-
ar raunir tímanna, þar á meðal
eldsvoðann mikla 1666 og loft-
árásaveturinn 1940—41. Ætla má
að sízt dragi úr trúarlífi og kirkju
starfi þótt annað úthald fari veg
allrar veraldar.
Yj-'/rr
Gólflampar
veri aðeins kr. 69S
Borð- og vegglampar í úrvali.
Verð frá kr. 175,00.
skrifborðslampar
Vel þegin og vönduð tækifærisgjöf
Verð kr. 295,00
Tfekla
Austurstræti 14,
sími 11687
Hilmar Foss.