Morgunblaðið - 01.02.1959, Side 14
14
M O R C ins H l 4 ÐIÐ
Sunnudagur 1. febrðar 1959
Útsala
á barnafatnaði hefst í fyrramálið.
KULDAÚLPUR
á drengi 6—12 ára
SPORTJAKKAR
drengja 2—12 ára. Verð frá kr. 98.-
FLAUELSBUXUR
1~12 áo*a. Verð frá kr. 40.-
DRENGJANÆRBUXUR
6—12 ára. Verð frá kr. 10 -
FILT-PILS
1—6 ára. Verð frá kr. 30.-
\f
Austurstræti 12
Útsala — Útsala
Unglinga úlpur, áður kr. 525 nú kr. 280
Samfestingar á drengi. áður k<r. 80,
nú kr. 48.
Vinnuskyrtur, áður kr. 145, nú kr. 100.
Kven vinnubxur, áður kr. 145, nú kr. 100
Barnagallar, áður kr. 390, nú kr. 225.
Mikið úrval af allskonar nærfatnaði
útsalan
á horni Snorrabrautar og Njálsgötu
Útsala — Útsala
Karlmannaföt. Verð krá kr. 500.—
Kaarlmannafrakkar. Ver, frá kr. 400.—
Karlmannabuxur. Verð frá kr. 200.—
Bindi. Verð frá kr. 15.— Skyrtur kr. 50.—
o. m. fl
Klæðaverzlun
Braga Brynjólfssonar
Laugavegi 46
Útsala
Mánudaginn 2. febrúar hefst útsala á
allskonar prjónafatnaði, lopa og smávegis
af ullairgarni.
Aðeins í fáa daga
Stórkostleg verðlækkun
Gjörið svo vel að líta inn.
Prjónastofan Hltn hf.
Skólavörðustíg 18
— Reykjavlkurbréf
Framh. af bls. 13.
skilja, hvað á bak við býr, þegar
skyndilega vaknar áhugi hjá
Framsókn eftir að hún er oltin
úr stjórn, á umbótum, sem hún
aldrei hreyfði meðan hún hafði
tök á að koma þeim fram.
Velur lakasta
kostinn
Þegar mikilvægar ákvarðanir
skal taka, er það ætíð lakasti
kosturinn að sitja hjá, og reyna
þar með að skjóta sér undan
ábyrgð. Armað hvort er það sem
gert er rétt eða rangt. Þar er
enginn millivegur. Svo er og um
stöðvunarfrumvarp ríkisstjórnar
innar nú. Annað hvort horfir sú
ráðstöfun til heilla, eða ófar-
sældar. Annað hvort er hún rétt-
lát eða hallar réttu máli. Ef það
síðara er rétt, eiga þeir, sem því
halda fram, að hafa kjark til að
greiða atkvæði á móti málinu. En
ef málið er gott, þá ber að styðja
það, hvort sem menn eru í stjórn
eða utan stjórnar. Framsóknar-
flokkurinn vill hafa frjálsar
hendur. Hann þorir ekki að taka
ábyrgð, hvorki að vera með þess-
ari miklvægu ákvörðun, né á
móti henni. Framsókn velur lak-
asta kostinn, þann að sitja hjá.
Af liverju þögðu
kommar ?
Menn furða sig nokkuð á, í
hvaða skyni kommúnistar hafi
flutt tillögu sina til þingsálykt-
unar um endurskoðun og upp-
sögn varnarsamningsins frá 1951.
Minnt hefur verið á það, að um
tveggja ára bil hreyfðu ráðherr-
ar kommúnista þessu máli
aldrei í ríkisstjórninni. Sú þögn
er því athyglisverðari sem í
greinargerð tillögunnar nú segir:
„Um leið og Alþingi var gerð
grein fyrir þessum málalokum í
desember 1956, gáfu ráðherrar
Alþýðubandal. út yfirlýsingu
þess efnis, að þeir væru andvígir
forsendum þessarar frestunar,
eins og þær væru tilgreindar, en
þar eð þeir teldu ekki aðstæður
heppilegar til að tryggja samn-
inga um brottför hersins, hefðu
þeir fallizt á frestun um nokkra
mánuði".
Samkvæmt þessari yfirlýsingu
hefði mátt ætla, að kommúnistar
mundu innan skamms taka mál-
ið upp í ríkisstjórninni, en
greinargerðin ber það með sér,
að ráðherrar þeirra hafa aldrei
talað þar um málið. Þeir
létu sitja við það, að þingflokkur
Alþýðubandalagsins skrifaði bréf
til þingflokka Alþýðuflokks og
Framsóknarmanna 1. nóvember
1957. Segir um það í greinar-
gerðinni:
„Svör Framsóknarflokks og A1
þýðuflokks voru neikvæð og því
borið við, að horfur í alþjóða-
málum hefðu ekki breytzt til
batnaðar.
í bréfi, dagsettu 8. nóv. 1958,
til forsætisráðherra, vekja ráð-
herrar Alþýðubandalagsins at-
hygli á, að enn eigi ríkisstjórnin
eftir að efna loforð sitt um end-
urskoðun varnarsamningsins í
því skyni, að herinn hverfi úr
landi. Telja þeir þennan drátt
með öllu óviðunandi og leggja
til, að ríkisstjórnin tilkynni
Bandaríkjastjórn nú þegar ósk
um endurskoðun, svo að tilskild-
ir frestir geti strax hafizt (fylgi-
skjal II.). Ekkert svar barst
við þessu bréfi“.
Eftirtektarvert er, að ráðherr-
ar kommúnista hafa ekki kjark
til að hreyfa málinu munnlega á
ríkisstjórnarfundi, heldur senda
samráðherrum sínum aðeins
bréf og una því í nær fullan
mánuð, þangað til V-stjórnin
gafst upp, að ekkert svar berist.
Linlegri sókn er vart hægt að
hugsa sér.
En hver er skýringin á því, að
kommúnistar skyldu 1956 segj-
ast vera andvígir forsendum þess
arar frestunar, eins og þær væru
tilgreindar. en fallast þó á frest-
unina?
Auðvitað sú, að þeir vissu, að
loforð um lán voru tengd endur-
nýjun varnarsamningsins. Án
þessara lána gat V-stjórnin ekki
lafað áfram. Nú, eftir að komm-
únistar eru farnir úr ríkisstjórn,
telja þeir sig ekki lengur bundna
og bera þá fram tillögu sína.
Verzlunin er
flutt á Vestur-
götu 16
Úrval af alls konar fatnaði. —-
Tækifærisverð.
ISOTAÐ OG NÝTT
Vesturgötu 12. — Sími 15859
Nýkomið
Skyrtuflónel í 5 litum. —
Verð kr. 16.00.
Kaklii í mörgum litum. —
Verð kr. 15.00.
Lakaléreft með vaðmálsvend.
Verð kr. 24.00.
Síðar drengja nærbuxur. —
Verð kr. 23.50.
Höfum fengið aftur köflóttu
kjóla- og pilsefnin. —
Verð aðeins kr. 40.00.
Krepnælonsokkabuxur.
C/Vy/f fhagd
Útsala
Kvenskór og barnaskór
Karlmanna flóka
inniskór Barna bomsur
IV9ik.il verðlækkun
Skóverzlun Þórðar Péturssonar
Aðalstræti 18
Afgreiðslustúlkur
í lyfjabúðum
Áríðandi fundur í V.R. annað völd
kl. 8,30
Vetrzlunarmannafélag Reykjavíkur
MARKABURIMM
Laugaveg 89