Morgunblaðið - 06.02.1959, Síða 3
MORCVNBLAÐIÐ
3
Föstudagur 6. febr. 1959
Tillögur um björg unarbjónustu
KAUPMANNAHÖFN, 5. febrúar. — EkstrablaðiS segir, að brátt
verði leitinni við Grænland hætt. Yfirmaður kanadísku flugsveitar-
innar, sem hefur annazt leit undanfarna daga, sagði einnig í dag,
að ef leitin bæri engan árangur á morgun, yrði athugað, hvort ekki
væri bezt að hætta henni.
Þó handvagna- og hestvagnaöldin tilheyri liðnum tíma eru
vatnskarlarnir hér við höfnina enn með annan fótinn í þessu
löngu liðna tímabili. Þennan slönguvagn erfði Reykjavíkurhöfn
frá Slökkviliði Reykjavíkur fyrir mörgum árum, er slökkvi-
liðið lagði hann niður, og hefur höfnin notað hann til þess að
flytja vatnsslöngurnar á, sem lagðar eru frá krönunum á
bryggjunum út í skipin. Það er nærri því leikur einn að draslast
áfram með slönguvagninn á auðum götunum, en þegar við
verðum að berjast með hann áfram á flughálum bryggjun-
um í frosti og roki, þá getur verið óskemmtilegt að fást við
hinn gamla vagn, sagði einn af vatnsmönnunum. — Vagninn
á, miklu fremur heima í Byggðasafni Reykjavíkur en í daglegri
þjónustu hafnarinnar — komið fram yfir miðja 20. öldina. —
(Ljósm. Mbl. Ol. K. M.)
Bretar segjc:
Information ræðir í dag um
björgunarþjónustuna við Græn-
land með styrk frá þeim þjóð-
um, sem halda uppi veiðum við
landið. Blaðið segir, að Danir
einir hafi ekki bolmagn til að
kosta slíka björgunarþjónustu.
Blaðið segir, að grænlenzk björg-
unarskip séu alltof lítil og auk
þess skorti björgunarflugvélar í
Grænlandi. Þá þarf einnig að
bæta fregnir frá Grænlandi um
ísrek o. s. frv. Lindberg, Græn-
landsmálaráðherra, hefur sagt,
að þessi uppástunga sé íhugunar-
verð. Poul Hansen, landvarna-
ráðherra, segir einnig, að málið
sé þess virði, að það verði athug-
að, en bendir jafnframt á, að það
mundi kosta milljónir króna að
koma flugstöðinni í Narssasuak
í sæmilegt horf.
í síðari fréttum í gserkvöldi
segir, að leitinni við Græn-
land verði haldið áfram enn
um nokkurn tíma, því vel
geti verið, að einhverjir af
„Hans Hedtoft“ hafi komizt í
björgunarbáta. Þá var einnig
skýrt frá því, að olíubrák
hefði sézt á einnar fersjómílu
svæði um 10 sjómílur undan
Egedeshöfða á Suður-Græn-
landi. Skip hafa nú verið
send þangað til leitar.
Leitinni við Græn-
land bráðlega hætt
Sigling Valafells til hafnar
sýnir góðvilja togaraeigenda
LONDON, 5. febr. (Reuter) Full-
trúi brezka utanríkisráðuneytis-
ins skýrði frá því í dag, að togar-
inn Valafell myndi sigla í höfn
á íslandi og skipstjóri hans svara
til saka fyrir meint landhelgis-
brot. Fulltrúinn sagði að brezka
stjórnin hefði engan þátt átt í
þessari ákvörðun, það hefðu verið
Skákir frá mótinu
togaraeigendur einir, sem hana
tóku.
Sir Farndale Phillips hershöfð-
ingi forseti sambands brezkra
togaraeigenda sagði í kvöld. „Ég
fagna því að eigendur Valafells
hafa tekið frumkvæðið í því að
reyna að leysa á friðsamlegan
hátt, það mál sem togari þeirra
hefur lent í við islenzk yfirvöld.“
í dag gekk dr. Kristinn Guð-
mundsson sendiherra íslands í
Lundúnum á fundi Thomas
Brimelow í Norðurlandadeild
brezka utanríkisráðuneytisins.
Ræddu þeir um síðustu atburði
við ísland.
Talsmaður brezka utanríkis-
ráðuneytisins lagði í dag áherzlu
á það að ákvörðunin um að láta
Valafell sigla til hafnar á Seyðis-
firði væri tákn góðvilja brezkra
togaraeigenda og sýndi, að þeir
væru reiðubúnir að leita vinsam-
legrar lausnar á núverandi vanda
málum.
„Þrettándakvöld“
sýnt enn
HERRANÓTT Menntaskólans
í Reykjavík sýndi í byrjun jan-
úar gamanleikinn Þrettándakvöld
eftir W- Shakespeare í þýðingu
Helga Hálfdánarsonar í 6 skipti
ávallt fyrir fullu húsi og við á-
gætar undirtektir áhorfenda.
Sýningum varð þá að hætta
vegna prófa í skólanum. Þar sem
prófum er nú lokið og vegna mjög
mikillar eftirspurnar hefur verið
ákveðið að sýna leikinn næstkom-
andi mánudag, en aðeing í þetta
eina sinn. Einnig verða tvær sýn-
ingar austan fjalls um næstu helgi
í Bewerwijk
SKÁKMÓTIÐ í Bewerwijk í Hol-
landi vakti mikla athygli hér,
ekki sízt hin glæsilega frammi-
staða Friðriks Ólafssonar. Tefldi
hann á mótinu margar fallegar
skákir, enda vann hann hina
beztu menn m. a. tvo með stór-
meistaranafnbót.
Hingað til lands hafa borizt
örfá eintök af skákum tefldum
á mótinu. í heftinu eru allar skák-
ir þar tefldar og þetta skákmönn-
um hinn bezti fengur. Skákir
þessar eru seldar í bókaverzlun
Lárusar Blöndals Vesturveri.
Fréttir i stuttu máli
LUNDÚNUM, 5. febr. — Forsæt-
is- og utanríkisráðherrar Grikk-
lands og Tyrklands komu í dag til
Zúrich, Sviss, til að ræða um
Kýpurmálið. Viðræðurnar hefj-
ast á morgun, föstudag, en verð-
ur ekki lokið fyrr en á mánudag.
Utanríkisráðherra Tyrklands
sagði það von stjórnar sinnar, að
viðræðurnar beri árangur og und
irritaður verði samningur milli
ríkjanna um deilumálið, og ut-
anríkisráðherra Grikklands sagði,
að Balkansamningur Grikkja,
Tyrkja og Júgóslavía yrði aftur
meira virði en pappírinn, sem
hann er ritaður á, ef samkomu-
lag næst um Kýpurmálið. Nokk-
ur bjartsýni ríkir í sambandi við
viðræður þessar.
Mikil þoka hefur verið i Dan-
mörku í dag og tafið samgöngur
bæði á sjó og landi. Kastrup-flug-
völlur var lokaður fyrir flugvél-
ar, sem ætluðu til Kaupmanna-
hafnar og urðu þær að lenda í
Hamborg.
Fanfani skýrði forseta ftalíu
frá því í dag, að hann mundi ekki
taka lausnarbeiðni sína aftur.
Svo mœla börn sem vilia
EFTIRFARANDI grein, sem birt-
ist í rússneska blaðinu Izvestía
24. janúar 1959, sýnir hinn mikla
áhuga rússneskra stjórnvalda á
því, sem gerist á íslandi. Því er
sleppt í frásögn Izvestía, að
Þjóðviljinn skýrði sjálfur frá því
í des. 1956, að endurnýjun varn-
arsamningsins hefði verið tengd
lánveitingum Bandaríkjamanna
til V-stjórnarinnar. — Greinin í
Izvestía hljóðar svo:
Amerísku hersveitirnar eru á
íslandi til að hafa áhrif
á stjórnmál landsins
uppi eðlilegri og hagstæðri
verzlun við Sovétríkin; til þess
að ísland fái ekki að lifa í friði
og vináttu við aðrar þjóðir í
stað þess að vera atómstöð. —
Ameríski herinn er á íslandi til
þess, — ef nauðsyn krefur, — að
hjálpa íhaldsmönnum í barátt-
unni gegn andstæðingum þeirra“.
Staðreyndirnar sýna, að ís-
lendingar gera sér æ ljósari
grein fyrir þeirri hættu, sem í
því felst, að erlent herlið er í
landi þeirra. Þeir eru eindregið
andvígir hvers konar þátttöku
landsins í hernaðarundirbúningi
Vesturlanda. Verkalýðsstéttin
gerir æ háværari kröfur um
brottför ameríska herliðsins og
afnám herstöðvarinnar í Kefla-
vík. Dagblaðið „Þjóðviljinn“ hef-
ur birt ályktun, er samþykkt var
á almennum verkalýðsfundi á
Akureyri (á Norður-íslandi),
þar sem segir: „Almennur verka-
lýðsfundur á Akureyri krefst
þess á nýjan leik, að sagt verði
upp herstöðvarsamningnum við
Bandaríkin”. Fjölmörg önnur
verkalýðsfélög og önnur samtök
á íslandi hafa krafizt þess í
ályktunum, að ameríska herliðið
verði flutt burt úr landinu.
(Einkafrétt).
Hið borgaralega og hægrisinn-
aða „Morgunblað“ í Reykjavík
skrifar, að Bandaríki Ameríku
hafi veitt íslandi lán gegn beinni
eða óbeinni tryggingu fyrir því,
að ameríska herliðið gæti verið
áfram á íslandi.
Með þessu viðurkennir blaðið,
að Ameríkumenn eru alls ekki
að hugsa um „vernd“ íslenzku
þjóðarinnar gegn ímyndaðri árás-
arhættu, heldur um að styrkja
sína eigin aðstöðu og ráða niður-
lögum verkalýðs- og kommún-
istahreyfingar íslands.
í ummælum sínum um grein
„Morgunblaðsins“ segir „Þjóð-
viljinn": „Bjarni Benediktsson
(ritstjóri Morgunblaðsins og vara
formaður Sjálfstæðisflokksins)
þorir ekki lengur að skrifa um
„vernd“ og „öryggi“, þegar um
er að ræða dvöl bandariska her-
liðsins á íslandi. Hann á bara
eina röksemd eftir: ameríski her-
inn er á íslandi eingöngu til þess
að hafa áhrif á stjórnmál lands-
ins, til að koma í veg fyrir —
með öllum þeim ráðum, er hann
telur hentug — að íslandi fari
úr NATO og taki upp aftur fyrri
hlutleysisstefnu sína; til að
hindra íslendinga í því að halda
Hér á myndinni sjást lögreglumenn bera Robert litla SuIIivan
upp úr björgunarbáti, sem bjargaði honum eftir flugslysið í
Austurá í fyrrinótt. Robert er 8 ára. Faðir hans og tvær systur
fórust í slysínu og móðir hans lézt i sjúkrahúsi skömmu eftir
að henni hafði verið bjargað úr ánni.
SIAKSTEIMAR
„Kjördæmi
Jóns Sigurðssonar“
Vesturland birti nýlega grein
um kjördæmamálið, er nefndist
„Harmakvein Framsóknar-
mánna“. — Upphaf hennar er: *
„Nú ætlar ílialdið og kratar að
leggja niður kjördæmi Jóns Sig-
urðssonar segja Framsóknar-
menn og setja upp mikinn rauna-
svip. Þetta er sagt vegna þeirra
fyrirætlana að breyta hinni úr-
eltu og ranglátu kjördæmaskip-
un, sem nú er. Það er ætlunin
að gera Vestfirði að einu kjör-
dæmi, sem kjósa á fimm þing-
menn hlutfallskosningu, en það
eru jafnmargir þingmenn og nú
sitja á þingi fyrir Vestfirðinga.
Kjördæmi Jóns Sigurðssonar
verður því ekki lagt niður, held-
ur stækkað frá því sem nú er
og er ætlunin að bæta við það
ekki ómerkari sýslum en Barða-
strandarsýslu og Strandasýslu,
kjördæmi sjálfs Framsóknarpáf-
ans Hermanns Jónassonar“.
Það er venjuleg Framsóknar-
smekkvísi að draga nafn Jóns
Sigurðssonar með þessum hætti
inn í deilur nú, en sannleikurinn
er sá, að „kjördæmi Jóns Sigí
urðssonar" er nú þríklofið. Ætl-
unin er að sameina það á ný
með eðlilegum viðbótum.
Ótti Framsóknar
Það, sem Framsókn raunveru-
lega óttast er hið aukna réttlæti,
sem leiðir af hlutfallskosningum.
Um það segir Vesturland:
„f síðustu kosningum fengu
Framsóknarmenn 1480 atkv. á
Vestfjörðum og þrjá menn
kjörna, þar af voru a. m. k. nokk-
uð á 5. hundrað lánsatkvæði frá
Alþýðuflokkntum. Sjálfstæðis-
flokkurinn fékk 2255 atkvæði og
tvo menn kjörna. Alþýðubanda-
Iagið fékk 668 atkvæði og engan
mann kjörinn og Alþýðuflokkur-
inn 749 atkv. og engan kjörinn.
Ef þetta hefði verið hlutfallskosn-
ingar þá hefðu Sjálfstæðismeijn
fengið þr já þingmenn, Framsókn-
arflokkurinn einn og Alþýðu-
flokkurinn einn.
Harmakvein Framsóknar eru
ekki til orðin vegna þess að það
eigi að leggja niður kjördæmi
Jóns Sigurðssonar heldur af því
að með hlutfallskosninguim er
tryggð réttlátari skipting þing-
sæta eftir atkvæðamagni. Hvaða
heilbrigður maður getur mælt því
bót að flokkur, sem fær 1480 at-
kvæði eigi að fá 3 þingmenn en
flokkur sem fær 2255 atkvæði
eigi að fá tvo þingmenn?“
Forré ttind f1 *>kknr
Síðan segir í grein Vesturlands:
„Framsóknarflokkurinn er for-
réttindaflokkur, sem ekki skilur
breytta tíma og amkið lýðræði.
Foringjar þessa flokks eru á sama
stigi og lénsherrar fyrir meira en
300 árum, sem höfðu forréttindi
fram yfir aðra og lifðu í vellyst-
ingum á kostnað annarra. Fram-
sóknarforingiarnir á íslandi berj-
ast nú gegn breyttri kiördæma-
skioun, vegna þess að hún er
réttlætismál. Þeir vilja haT'a í
bau forréttindi sem þeir hafa
haft, að fá mörgum sinnum fleiri
bingmenn en þeim ber eftir þvf
fylgi sem beir eiga. Sömu söguna
er að segia í peningamálunum,
bar hafa þeir einnig náð forrétt-
indum. — — — forystatn' in
Framsókna*-fiokksins virðast ekk-
ert læra eða skiiia. Þeir vilja
hafa forréttindi fram yfir aðra
bióKfélagsþegna---------.
Framsókn er afhjúpaðnr for-
réttindaflokkur, en vonandi er
skammt undan að þeir verði að
láta sér nægja að búa við sama
réft og aðrir þegnar þessa þjóð- I
félags“.