Morgunblaðið - 06.02.1959, Síða 10

Morgunblaðið - 06.02.1959, Síða 10
1C M O R C V H U T. 4 Ð 1 Ð Föstudagur 6. febr. 1959 Utg.: H.f. Arvakur. Reykjavík. Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson. Aðalritstjórar: Valtýr Stefánsson (ábm.) Bjarni Benediktsson. Ritstjórar: Sigurður Bjarnason frá Vigur. Einar Ásmundsson. Lesbók: Árni Óla, sími 33045. Auglýsingar: Árni Garðar Kristinsson. Ritstjórn: Aðalstræti 6. Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 22480. Askriftargald kr. 35,00 á mánuði innamands. í lausasölu kr. 2.00 eintakið. ERFIÐLEIKAR BÆNDA r ARE) 1958 var íslenzkum bændum að ýmsu leyti óhagstætt. í einstökum landshlutum olli léleg gras- spretta og erfiðleikar við hey- verkun verulegum vandræðum. Ennfremur komu efnahagsráðstaf anir vinstri stjórnarinnar sérstak lega illa við bændastéttina. Verð- lag á fóðurbæti og útlendum áburði stórhækkaði. Bitnaði það sérstaklega illa á bændum, þar sem þeir þurftu víða á landinu á óvenju miklum fóðurbæti að halda á s.l. hausti. Þá hækkuðu og allar búvélar stórkostlega í verði vegna hins nýja álagna sem vinstri stjórnin lagði á með „bjargráðunum". Loks olli skort- ur á varahlutum til margvíslegra véla og tækja miklu óhagræði. Yfirleitt má segja, að hin vax- andi verðbólga og kákráðstafanir fyrrverandi ríkisstjórnar gegn henni hafi reynzt bændastéttinni einkar þungar í skauti. Sparsamasta stéttin En engri stétt er það áreiðan- lega ljósara en hinum sparsömu og starfsömu íslenzku bændum, að kapphlaupið milli kaupgjalds Og verðlags og verðbólgan, sem af því leiðir, felur í sér stórkost- lega hættu fyrir hagsmuni þeirra og alla afkomu. Þess vegna sætir það engri furðu, að öllum fregnum utan úr sveitum lands- ins ber nú saman um það, að viðleitni núverandi stjórnarvalda til þess að stöðva vöxt verðbólg- unnar sé yfirleitt mjög vel tekið meðal bænda. Hafa þessar ráð- stafanir þó í för með sér að verð- lag hefur verið lækkað á land- búnaðarafurðum í samræmi við þá lækkun tilkostnaðar, sem nið- SLYSIÐ VIÐ r Inær heila viku hefur hálf ur heimurinn staðið á öndinni vegna hins hörmulega sjóslyss, er Grænlands farið Hans Hedtoft fórst með nær 100 manns innanborðs suðaust- ur af Hvarfi. Allan þennan tíma hefur staðið yfir látlaus leit að hinu horfna skipi. Hér var um að ræða nýtt og glæsilegt skip, sem var að fara fyrstu för sína á hinar norðlægu slóðir. Það var búið hinum full- komnustu tækjum og almennt álitið, að það gæti boðið hretviðr- um og ógnum Norðurhafa byrgin. En það gerist sorglega oft að tæknin verður að lúta í lægra haldi fyrir höfuðskepnunum. Því miður eru þess alltof mörg dæmi, að einmitt hin fullkomnu tæki draga úr varúð og slæva ábyrgð- artilfinningu þeirra, sem tækjun um stjórna. Mikil harmsaga Hvarf Hans Hedtofts felur vissulega í sér mikla harmsögu. Hann hafði nær 100 manns innan borðs, konur og börn, unga og gamla. Enginn veit enn, hvernig þetta fólk hefur mætt örlögum, hvernig voðann hefur borið að höndum. En vonirnar um að nokkur þessa fólks sé enn á lífi, eru nú vissulega orðnar veikar ef ekki með öllum kulnaðar, þrátt fyrir fregnir um að heyrzt hafi urfærslulögin hafa í för með sér. Bændastéttin, sem er vissulega sparsamasta stétt hins íslenzka þjóðfélags hefur alltaf varað við afleiðingum kapphlaupsins milli kaupgjalds og verðlags. Hún hef- jxr einnig verið fús til þess að taka á sig stundaróþægindi til þess að sporna við frekari voða, af völdum vaxandi dýrtíðar og verðbólgu. Þróttmikill landbúnaðutr er þjóðarnauðsyn Þróttmikill landbúnaður er fs- lendingum þjóðarnauðsyn. Úr sveitunum fær almenningur við sjávarsíðuna ein beztu og holl- ustu matvælin, sem völ er á. Og í íslenzkum sveitum hefur um ald- ir verið kjölfesta íslenzkrar menn ingar. Landbúnaðurinn á íslandi hef- ur tekið geysilegum framförum á undanförnum árum. Bændurnir skildu kall hins nýja tíma, þegar Sjálfstæðisflokkurinn hafði í lok seinustu heimsstyrjaldar for- ystu um hagnýtingu tækninnar í þágu ræktunar og bústarfa. Það starf, sem Pétur heitinn Magnús- son og margir ágætir bændur um allt land unnið þá til uppbygging ar landbúnaðinum, hefur borið mikinn og gæfuríkan ávöxt. En mestu máli skiptir nú, að tekið verði á erfiðleikum bændastéttarinnar af sann- girni og framsýni. íslenzkir bændur mega treysta því, að þess meiri sem áhrif Sjáif- stæðisflokksins verða á stjórn landsins, þess raunhæfari skilningi munu hagsmunamál þeirra eiga að mæta. GRÆNLAND hljóðmerki eða neyðarblys sést, sem gætu verið frá hinu ógæfu- sama fólki. Verður vetrarsiglingum hætt ? Raddir hafa verið uppi um í Danmörku, að nauðsynlegt muni verða að hætta vetrarsiglingum til Grænlands vegna þeirra hætta, sem sífellt vofir yfir skip- um á siglingaleið þangað. Ekkert skal um það fullyrt hér, hvað ofan á verður í þessum efnum. En þrátt fyrir mjög aukið öryggi flugsamgangna er hætt við því að það verði nokkrum erfiðleikum bundið að halda uppi nægilegum flutningum til Grænlands flug- leiðina. Reyndir íslenzkir skip- stjórar hafa hins vegar bent á það að skynsamlegra myndi fyrir Grænlandsför að halda sig í miklu meiri fjarlægð frá Hvarfi á þessum tíma árs en Hans Hedtoft gerði. íslenzka þjóðin samhryggist dönsku þjóðinni og Grænlend- ingum við hið mikla slys. ís- lendingar láta ennfremur í ljós djúpa hyggð yfir því að mikill fjöldi sögulegra heim- ilda um líf og starf í Græn- landi, sökk með Hans Hetdoft. Glötun þessara skjala hefur í för með sér óbætanlegt tjón. IITAN IJR HEIMIJ Cefa tvíburar átt sinn föðurinn hver? Eineggja tviburar virðast oft lúta sömu örlögum, jbótt Jbeir lifi við ólik skilyrði EINS og sagt var frá hér í blaðinu sl. þriðjudag, er nú allsérstætt mál fyrir rétti í Viborg í Dan- mörku. Þannig er mál með vexti, að maður nokkur fráskilinn hef- ur krafizt þess fyrir landsrétt- inum í Viborg, að staðfestur verði úrskurður undirréttar þess efnis, að hann sé ekki faðir nema ann- ars af tvíburum þeim, sem fyrr- verandi kona hans ól fyrir nær tveimur og hálfu ári. Mál þetta hefur vakið mikla athygli, þótt það sé raunar ekki algert eins- dæmi — t. d. féll svipaður dómur í slíku máli í Danmörku ekki alls fyrir löngu. ★ ★ ★ Umræddir tvíburar, drengur og stúlka, fæddust í september 1955, og var það upplýst í mála- rekstrinum, sem hófst skömmu síðar, að móðirin hafði haft lík- amleg mök við eiginmann sinn og annan mann á sama sólarhring — með 19 klst. millibili — í byrj- un janúar sama árs. Hinn mað- urinn, sem hér um ræðir, er nú látinn fyrir nokkru. Fræðilegur möguleiki. Blóðflokkagreining, sem talin er 99,9% örugg við ákvörðun fað- ernis í slíkum tilfellum, hefur sýnt, að eiginmaðurinn getur ver ið faðir stúlkunnar, en hins vegar ekki drengsins. Læknum ber um. — Þegar um tvíbura er að ræða, getur frjóvgunin hafa gerzt með tvennum hætti: Annað hvort hafa tvö egg frjóvgazt nær sam- tímis — þó hefur sannazt, að þar getur jafnvel munað nokkrum dögum — eða þá að tvö fóstur myndast af einu eggi. f fyrra til- fellinu er þá um að ræða tvíeggja tvíbura, en í því síðara eineggja, sem er miklu sjaldgæfari. Þeir eru yfirleitt samkynja og svo iík- ir, að einungis nákunnugir þekkja þá sundur. Og það er ekki einungis að ytra útliti, sem eineggja tvíburar reyn ast líkir. Margar sagnir eru til um það, að slíkir tvíburar hafi lotið sams konar örlögum. — Þess eru dæmi, að eineggja tvíburar, sem þekktust ekki og vissu raun- ar alls ekki hvor um annan, hafa látizt nær því á sömu stundu. Einnig þekkja menn dæmi þess, að þótt slíkir tvíburar hafi alizt upp og lifað við gjörólík skilyrði hafa þeir þjáðst af sömu sjúk? dómum og andleg þróun þeirra beinzt á sömu brautir. ★ ★ ★ Það hefur orðið mörgum erfða- fræðingum mikið umhugsunar- efni, hve tiltölulega algengt það er, að eineggja tvíburar gerist báðir afbrotamenn — jafnvel þótt þeir alizt ekki upp saman. — Nokkrir vísindamenn hafa viljað halda því fram, að gerist annar af eineggja tvíburum glæpamaður, séu allar líkur til, að hinn leiðist Einkennandi fyrir eineggja tvíbura er það, að reikin (hárskipt- ingin í hnakkanum) er til vinstri á öðrum, en til hægri á hin- um. Einnig er algengt, að annar eineggja tvíbura sé örvhentur. Ekki er það þó nein regla, eins og sést á tvíburabræðrunum á þessari mynd. saman um, að ekki sé unnt að úti- loka þann möguleika, að tvíbur- arnir eigi sinn föðurinn hvor — enda þótt líkur til þess að slíkt geti gerzt, séu mjög litlar, og að sjálfsögðu alls engar nema um sé að ræða tvíeggja tvíbura, svo sem hér er. Árið 1956 kom svipað „tvíbura- mál“ fyrir danska dómstóla, og féll dómur á þá leið, að tveim- ur mönnum væri gert að greiða meðlag með börnunum, eftir að réttarlæknaráðið hafði lýst því yfir, að ekki væri unnt að vísa á bug þeim möguleika, að börnin væru getin af tveim mönnum .jafnvel með 4—5 daga millibili. í Svíþjóð hafa einnig nokkur slík mál komið til dómsúrskurðar. ★ ★ ★ Það er ekki úr vegi að geta um það í þessu sambandi, að tvíbura- fæðingar virðast mjög mistíðar með hinum ýmsu þjóðum. — I Danmörku er gert ráð fyrir, að 71. hver fæðing sé tvíburafæð- ing, en Svíar búast við_ tvíbur- um 66. hverja fæðingu. í Noregi er talan 82 og í Englandi 100. — Um það bil fjórði hluti allra tví- bura sem fæðast eru eineggja. Arfgengi. Varla leikur nokkur vafi á því, að tvíburafæðingar stjórnast að nokkru af erfðalögmálum — þær eru greinilega mistíðar eftir ætt- einnig út á glæpabrautina. — Ekki er þó þessi skoðun víðtekin meðal vísindamanna, og margir hakia því fram, að hún hafi ekki við rök að styðjast. Staðreynd er það aftur á móti, að nokkur dæmi eru fyrir hendi um slílca „tvíburaglæpartnena". Fleirburar. Þótt mörgum foreldrunum þyki nóg um, þegar þeim fæðast tví- burar, getur þó „barnalánið“ orð- ið sýnu meira í einstökum tilfell- um. — Þess eru dæmi, að konur hafi gengið með allt upp í 6—7 fóstur samtímis. Hins vegar er ekki vitað til, að fæðzt hafi lif- andi fleiri en fimm börn í einu. Munu menn þar fyrst og fremst mnnast hinna frægu, kanadísku fimmbura. — Fimmburafæðingar teljast til algjörra einsdæma, en þrí- og fjórburar eru nokkru al- gengari, þótt þeir séu aftur á móti sárasjaldgæfir miðað við tvíbura. — Þegar fleirburar fæð- ast, er það fremur óalgengt að þeir lifi allir; þó eru þess nokkur dæmi. Fyrr var getið um kan- adísku fimmburana — raunar munu nú einhverjir þeirra látnir — og í Danmörku eru t. d. fjór- burar um tvítugt, fæddir skömmu fyrir 1940 í Breth við Horsens. Eru þeir allir við beztu heilsu og vel dugandi fólk. ★ ★ ★ Dacha og Macha — greindar og námfúsar þrátt fyrir van- sköpunina. Það getur óneitanlega orðið þungur baggi fátæku fólki að eignast tvíbura — að ekki sé tal- að um fleirbura. — Af þeim sök- um hafa víða verið teknar upp tryggingar gegn slíkum „óhöpp- um“. — Eftir að sannazt hefur, að tvíburafæðingar lúta að nokkru leyti erfðafræðilegum lög málum, er það orðið nokkuð al- gengt víða, að fólk notfæri sér þessar sérstæðu tryggingar. „Síamstvíburar“. Orfá dæmi eru um það, að tvl- burar hafi fæðzt samvaxnir, svo nefndir „síamskir tvíburar“. Nafngiftin á fyrirbærinu er dreg- ing af tvíburum þeim hinum frægu, er fæddust í Síam árið 1811. Þeir urðu rúmlega sextugir, en annars er fátítt, að samvaxn- ir tvíburar lifi nema skamma hríð. Eng og Chang, en svo hétu þeir, komu fram á sýningum víða um heim og vöktu hvarvetna geysiathygli. — Þeir bræður kvæntust systrum, og er sagt, að hjónaböndin hafi blessast hið besta, þrátt fyrir hinar óvenju- legu aðstæður. Munu þeir hafa átt allmörg börn með konum sín- um — rétt sköpuð í alla staði. Árið 1874 veiktist annar bræðr- anna og lézt skömmu síðar — og innan klukkustundar var hinn tví burinn einnig liðið lík, en hann hafði verið fullfrískur alveg þar til bróðir hans gaf upp öndina. Eiga að rannsaka sjálfa sig. I Rússlandi eru nú að alast upp samvaxnir tvíburar, teipurnar Dacha og Macha. — Þær systur eru nú orðnar átta ára gamlar, eru við beztu heilsu og þykja greindar vel og námfúsar. — Sagt er að rússneski líffræðiprófessor- inn Anokhin vilji koma því til leiðar, að telpurnar fái vísinda- lega menntun, þannig að þær verði færar um að rannsaka sjálf- ar sig. Telur hann, að betri ár- angur muni fást af slíkri sjálfs- rannsókn en af „utanaðkomandi'* rannsóknum, ef svo mætti að orði komast. — Mun þegar vera farið að miða uppeldi og kennslu telpn- anna við það, að þær leggi út á vísindabrautina — hvað sem þær svo sjálfar kunna að segja um slíkt síðar. En ef prófessor Anok- hin kemur fram áformum sínum í þessu efni, þá koma þær systur vissulega til með að hafa algjöra sérstöðu meðal vísindamanna fyrr og síðar — samvaxnir tví- burar, sem eyða ævi sinni í að rannsaka, hvers vegna þeir — og aðrir — hafa fæðzt þannig van- skapaðir, og hvernig e. t. v. kann að vera unnt að koma í veg fyrir að slíkt gerist.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.