Morgunblaðið - 12.02.1959, Blaðsíða 1
20 slður
Öttast er um togarann Júlí frá Hafnarfirði
Var á Nýfundnalands-
Á þessu korti er sýndur staður sá, er togarinn Júlí var talinn vera á sl. sunnudag. —
Grikkir og Tyrkir sammála um
lausn Kýpurrhálsins
Ef Bretar verða einnig samþykkir
verður fribvænlegt á eyjunni
ZURICH, LONDON og AÞENU,
11. febrúar. — Vonir standa nú
til þess, að deilu Tyrkja og
Grikkja um Kýpur sé brátt lokið.
Eftir sex daga þrotlaus fundar-
höld forsætis- og utanrikisráð-
herra landanna hefur dregið til
samkomulags og héldu utanrikis-
ráðherramir, Averoff hinn griski
og Zorin hinn tyrkneski, í dag til
Lundúna til þess að greina
brezku stjórninni frá niðurstöð-
um viðræðnanna. Forsætisráð-
herrarnir héldu heimleiðis í
kvöld.
□
□
Enda þótt enn hafi ekki verið
opinberlega greint frá samkomu-
lagi Grikkja og Tyrkja í smáatr-
iðum hefur það vitnazt, að þeir
séu sammála um það, að Kýpur
ov.ounlilaí>ií)
Fimmtudagur 12. febrúar
Efni blaðsins er m.a.:
Bls. 3: Verðlækkanirnar. Greinargerð
Jónasar Haralz.
— 6: Kvikmyndir.
— 8: Kvennasíða.
— 10: Forystugreinin: „Kosningarétt
má jafna“.
Utan úr heimi: Minoff fær á-
heyrendur sína til að hlusta
með óskipta athygli.
— 11: Verður stóriðnaður íslendinga
rekinn með hlutdeildarskipu-
lagi. Úr ræðu Sigurðar Bjarna-
sonar á Alþingi í gær.
Kristmann skrifar um bók-
menntir.
— 18: Ilappdrættisheimild S.f.B.S.
verði framlengd og fleiri frétt-
ir frá Alþingi.
beri sjálfstæði — og eyjan eigi
aldrei að verða yfirráðasvæði
Grikklands eða Tyrklands.
Önnur meginatriði eru þau, að
forseti eyjarinnar skuli vera af
grísku bergi brotinn, en varafor-
setinn tyrkneskrar ættar. Þing
eyjarinnar skuli grískættaðir
Kýpurbúar sitja að tveimur
þriðju, en tyrkneskir að einum
þriðja. Varnarlið eyjarinnar skuli
bæði skipað grískum og tyrknesk
um eyjaskeggjum, en því megi
ekki beita menn samþykki bæði
forseta og varaforseta liggi fyrir.
□ • □
Þá fallast ráðherrar Grikklands
og Tyrklands á það að Bretar
skuli áfram fá að hafa herstöðv-
ar á eyjunni.
í yfirlýsingu, sem gefin var út
að fundinum í Zurich loknum
sagði, að stjórnir Tyrklands og
Grikklands væntu þess, að niður-
stöður viðræðnanna mættu leiða
til samkomulags um framtíð Kýp
ur.
Ef brezka stjórnin fellst á meg-
inatriði samkomulagsins — svo
og Kýpurbúar allir — má
búast við að ógnaröldinni á Kýp-
ur verði brátt aflétt og friður
muni loksins komast á.
□ • □
Makarios vildi að svo stöddu
ekkert láta uppi um álit sitt á
samkomulaginu, sem gert var í
Zurich. Kvaðst hann ekki hafa
kynnt sér smáatriðin, en hann
var allt annað en vondaufur.
Hins vegar var fregnunum vel
fagnað á Kýpur. Fólk bauð þar
til veizluhalda og stiginn var
dans á götum úti. Staðgengill
Makariosar á Kýpur lét einnig í
ljósi hinar beztu framtíðarvonir.
Veðrið við
Nýfimdnaland
VEÐURSTOFAN hér í Reykja
vík skýrði svo frá í gærkvöldi,
að norðan og norðvestlæg átt
væri á Nýfundnalandsmiðum.
Þaðan hafði klukkan 6 í gær-
kvöldi borizt veðurlýsing frá
skipi. Þá voru 6 vindstig og
frostið 7 vindstig þar vestra.
Var búizt við vaxandi veðri
er kæmi fram á nóttina. Horf-
ur vonu þó á því, að veðrið
mynda lægja í dag. Snjókoma
var á þessum slóðum í gær-
kvöldi, en einnig von um að
draga myndi úr henni í dag.
miðum í fárviðrinu þar
Ekki heyrzt til skipsins siðan á sunnud.
ÓTTAST er um afdrif togarans Júlí frá Hafnarfirði, en hann var
á Nýfundnalandsmiðum, er stórviðrið brast þar á sl. laugardag.
Þrjátíu manna áhöfn er á skipinu, en skipstjóri er Þórður Péturs-
son. — Siðast spurðist til togarans Júlí sl. sunnudag, er togarinn
Austfirðingur telur sig hafa heyrt til skipsins og virtist þá ekkeit
að um borð. Skömmu eftir að fárviðrið skall á sást til skipsins
af togaranum Júm og er það hið síðasta, sem tii togarans hefur sézt.
Skipulögð leit var hafin að togaranum á sjó og úr loftl
en sú leit hefur enn engan árangur borið. I gær fóru m. a.
tvær flugvélar frá Keflavíkurflugvelli vestur yfir hafið og vorn
þær búnar fullkomnum ratsjártækjum til leitarinnar. Annars hefur
leitinni verið stjórnað frá stöðvum á Nýfundnalandi.
Óveðrinu slotaði ekki fyrr en á mánudagskvöld. Veðurhæð hafði
verið mfkii, frost 10—11 stig, og hlóðst því mikill ís á togarana,
s«m staddir voru á þessum slóðum.
★ ★
Bæjarútgerð Hafnarfjarðar gaf út svohljóðandi tilkynningu í gær:
Togararnir Júní og Júlí eign
Bæjarútgerðar Hafnarfjarðar
fóru á veiðar á laugardagskvöld
31. jan. Skeyti barst frá togaran-
um Júlí, að hann hefði byrjað
veiðar á svokölluðum Ritubanka
á Nýfundnalandsmiðum kl. 13.00
föstudaginn 6. þessa mánaðar og
frá togaranum Júní um að hann
hefði byrjað veiðar kl. 4.00 að-
faranótt laugardags 7. þessa mán-
aðar. Á sunnudag bárust þær
fréttir af veiðum togaranna að
þeir hefðu hvor um sig verið
búnir að fá um eða yfir 100 tonn
er veiðar hefðu hætt þegar
hvessti á miðunum kl. 17.00 á
laugardag. Kl. 17.00 sl. mánu-
dag barst Bæjarútgerðinni skeyti
frá togaranum Júní þess efnis að
hann væri á heimleið vegna veð-
urs og frosts. Kl. rúmlega 22,00
á mánudagskvöld barst ennþá
skeyti frá Júní, þar sem skýrt
var frá því að ekki væri vitað
með vissu að heyrst hefði frá tog-
aranum Júlí síðan kl. 23,30 á
laugardagskvöld. Jafnframt
skýrði Júní frá því að eitt skip
teldi sig hafa heyrt í Júlí kl.
19,30 á sunnudagskvöld. Eftir
miðnætti aðfaranótt mánudags
þegar útgerðin hafði staðið í
frekari skeytasambandi við togar
ann Júní, og komið hafði fram
að leit á sjó að togaranum Júlí
að óbreyttu veðri, væri illfram-
kvæmanleg. Snéri Bæjarútgerðin
sér til Slysavarnarfélags íslands
og óskaði eftir að ráðstafanir
yrðu gerðar til að leit yrði hafin
að skipinu með flugvélum strax
og veður leyfði. Slysavarnarfé-
lagið gerði þá strax um nóttina
allar ráðstafanir til þess að leit
yrði hafin. f gær fékkst staðfest
að heyrst hefði til b.v. Júlí kk
7,50 á sunnudagsmorgun og kl.
19,30 á sunnudagskvöld, og var
þá ekki að heyra að neitt væri
að. Það upplýstist einnig að Júli
hafði farið suður frá Ritubanka
og var á laugardag staðsettur á
50 gr. 27. mín N-breiddar og 50
gr. 47 mín V-lengdar, en einmitt
þar voru aðrir íslenzkir togarar
staddir á laugardag.
Leitin í gær
f erlendum fréttastofufregnum
síðdegis í gær sagði, að banda-
rískt strandgæzluskip væri á leið
til svæðis þess norð-austur af
Nýfundnalandi, sem togarinn
Júlí hefði verið staddur á, þegar
síðast heyrðist til hans.
í gærkvöldi bárust svo fregnir
þess efnis, að í flugvél, sem var
á leið frá fslandi til Nýfundna-
lands, hefði heyrzt neyðarmerki
á svipuðum slóðum og Júlí var á
síðast þegar til hans fréttist. Flug-
vélin lækkaði flugið til nánari
eftirgrennslunar, en árangurs-
laust. Bandarísk strandgæzlu-
flugvél var send af stað frá Ný-
fundnalandi, og bandarísku
strandgæzluskipi, sem skammt
var undan, var einnig stefnt á
staðinn. Skömmu síðar bárust
fregnir um að þarna hefðu mis-
tök átt sér stað. Hér hefði ekki
verið um neyðarmerki að ræða.
Hafnarf jarffartogarinn Júlí — mynd eftir málverki af togaranum.