Morgunblaðið - 12.02.1959, Blaðsíða 13
Fimmtudagur 12. febr. 1959
MORGVNBLÁÐIÐ
13
Þorvaldur Kolbeins
prentari — minningarorð
F. 24. maí 1906 D. 5. febr. 1959.
Kveðja til afa frá Þorvaldi
Hilmar
Hjúfruð í sorg við huga beygjum
hjartans faðir og afi segjum
þökk fyrir velvild, vernd og
góðleik,
vakandi umhyggju, lífs þíns
kærleik.
Oft munum hugsa um orðin
björtu
yl þann, sem ljós gaf í barna
hjörtu
gæfunnar sý» er þú gafst oss
hljóta
göfginnar dæmi er þú lést oss
njóta.
í DAG fer fram frá Fríkirkjunni
í Reykjavík útför Þorvalds Kol-
beins prentara, Meðalholti 19 hér
í bænum, e* hann lézt í Lands-
spítalanum þann 5 þ.m. eftir
stutta en stranga legu aðeins 52
ára að aldri.
Þorvaldur var fæddur að Stað-
arbakka í Miðfirði 24. maí 1906.
Foreldrar hans voru þau Eyjólfur
Kolbeins Eyjólfsson (f. 20.2. 1866
d. 1.3. 1912), síðast prestur að
Melstað í Miðfirði og kona hans
Þórey Bjarnadóttir frá Reykhól-
um (f. 27.11. 1869 d. 21. 9. 1933).
Áttu þau hjón 10 börn og er þau
þessi talin eftir aldursröð:
Halldór, sóknarprestur í Vest-
mannaeyjum; Eyjólfur, bóndi í
Bygggarði á Seltjarnarnesi, lát-
inn; Þórey, hefir starfað mjög
lengi í verzl. Manchester hér í
bæ; Bjarni, byggingameistari í
Vancover í Canada; Júlíus, bak-
ari í Björnsbakaríi, látinn; Ást-
hildur, starfaði mjög lengi við
Hressingarskálann hér í bæ, lát-
in; Þórunn gift Sr. Sigurjóni Þ.
Árnasyni; Marinó, byggingameist
ari í Vancover í Canada, Þorvald
ur og Páll, aðalbókari hjá Eim-
skip.
Þessi stóri systkinahópur missti
föður sinn árið 1912 og er þá elzta
barnið 18 ára en það yngsta 3 ára.
Stór verkefni hafa þá verið fram
undan að koma þessum stóra
barnahóp til þroska ,en börnin
hafa öll reynst röskleika- og
myndarfólk, sem hefir farnast
vel í lífinu ,enda hefi ég aldrei
kynnst samstilltari systkinahóp
en þessum, og fannst mér stund-
um, að ef eitt syskinanna átti
vin, þá átti sá hinn sami vísa
vináttu hinna systkinanna líka.
Ekki þekkti ég móður þessara
systkina, því að hún var látin,
er ég kynntist Þorvaldi, en börn-
in hafa áreiðanlega verið alin
upp við félagslyndi, greiðasemi
við aðra, skylda og vandalausa.
Þorvaldur var vel gefinn, fé-
lagslyndur og naut sín vel í sam
kvæmum og á dansleikjum,
neytti þó hvorki víns né tóbaks,
en var umburðarlyndur við aðra,
er það gerðu. Hann hafði mikinn
áhuga á ættfræði ,enda kom hið
trausta minni hans þar í góðar
þarfir. Hygg ég, að hann hefði
kosið að geta sinnt þeim fræðum
enn betur en hann gat gert, ef
hann hefði haft aðstöðu til. Hann
var góðtemplari frá unglingsaldri
og einnig var hann félagi í Odd-
fellowreglunni.
Þorvaldur hóf prentnám í ísa-
foldarprentsmiðju 17. janúar
1925 og lauk þar námi 17. júlí
1929 sem setjari. Eftir það vann
hann að iðn sinni í ýmsum prent-
smiðjum, stundum sem prentari,
en síðast vann hann í ríkisprent-
smiðjunni Gutenberg.
Ég kynntist Þorvaldi fyrst í
Vestmannaeyjum árið 1935. Hann
vann þá í Eyjaprentsmiðjunni
þar. Man ég það, að hann bað
mig blessaðan um ’að koma heim
með sér. Ekki vissi ég þá, að
kona Þorvalds var gömul bekkj-
arsystir mín úr barnaskólanum
hér í Reykjavík. Áður en ég vissi
af var ég orðinn heimagangur á
heimili Þorvalds í Eyjum. En
ekki var þetta nóg. Þyrfti Þor-
valdur að heimsækja prestfrúna
á Ofanleiti, Þórunni systur sfna,
þá var ég gjarnan með í þeirri
för, og á ég jafnan ljúfar end-
urminningar frá dvöl minni á
þessum ágætu heimilum í Eyj-
um.
Ekki mun Þervaldur hafa búið
lengur en á annað ár í Vest-
mannaeyjum, því að á árinu 1936
flytur hann þaðan til Reykjavík-
ur. Hófst þá sama sagan á ný,
enda var Þorvaldur allra manna
trygglyndastur. Ég varð aftur tíð-
ur gestur á heimili hans og áður
en varði var ég einnig orðinn
gestur á heimili syskina þorvalds,
þeirra, er hér bjuggu, jafnan við
hinar hjartanlegustu móttökur.
Þorvaldur kvæntist 27. nóv.
1929 Hildi Þorsteinsdóttur Finn-
bogasonar í Fossvogi hér í bæn-
um og lifir hún mann sinn ásamt
10 börnum þeirra, en þau eru
þessi talin eftir aldri:
Jóhanna, gift Árna Þór Jóns-
syni, póstvarðstj. hér í bæ og eiga
þau 4 börn; Hannes, bifreiðar-
stjóri, kvæntur Guðríði Jensdótt-
ur, búsett hér I bæ og eiga 2
börn; Þorsteinn, bifreiðarstjóri,
búsettur hér í bænum, kvæntur
Rósu Þorláksdóttur frá Sandhóii
í Ölfusi og eiga þau eift barn;
Júlíus, fulltrúi við póst og síma
á Akranesi, kvæntur Sigríði Ól-
afsdóttur frá Þingeyri og eiga
þau eitt barn; Katrín, skrifstofu-
stúlka; Páll, nemi í rafvirkjaiðn
og eru þau Katrín og Páll tvíbur-
ar, 18 ára að aldri; Þórey, 17 ára,
vinnur í sælgætisgerð; Sigríður,
16 ára, nemandi í gagnfræðaskóla,
Eyjólfur 12 ára og Þuríður 8 ára.
Fjölskyldan var því alltaf stór,
börnin 10, þar af 6 þau yngstu
ennþá í heimahúsum og barna-
börnin orðin 8. Er þetta hinn fríð-
asti hópur, því að bæði börnin
og tengdabörnin eru hið efnileg-
asta fólk og voru nú miklar lík-
ur til að hagur heimilisins hefði
getað farið ört batnandi eftir
því sem börnht komust á legg.
Hafa nú orðið stór þáttaskil, er
heimilisfaðirin* fellur frá á
bezta aldri frá öllum hópnum.
Mér og sjálfsagt mörgum öðr-
um verður nú hugsað til heim-
ilisins að Meðalholti 19 þar sem
þau Hildur og Þorvaldrfr hafa
átt heima í síðastliðin 16 ár, því
að margir utan þessarar stóru
fjölskyldu hafa átt griðastað og
ánægjustundir á þessu heimili.
Ég hefi oft velt því fyrir mér,
hvernig á því gat staðið, að ég
minnist þess tæplega að hafa
komið svo á þetta heimili, að
ekki væru þar fyrir gestir, einn
eða fleiri, skyldir og vandalausir.
Sumir til að rabba og fá sér kaffi
sopa, aðrir í brýnni erindagjörð-
um, þurftu á mat, húsnæði og að-
hlynningu að halda. Ekki var
það vínið ekki sigarettan. Hvor-
ugt var um hönd haft á þessu
heimili. Ekki voru þar mikil og
skrautleg húsgögn, fín teppi á
gólfum eða veggir prýddir dýr-
mætum listaverkum. Ekki voru
húsakynni rýmri en það að ég
gæti trúað, að ekki væri óhugs-
anlegt að geta fundið barnlaus
hjón, sem myndi þykja orðið
fullþröngt unt sig í þessum sömu
húsakynnum. En það var aldrei
svo þröngt á þessu stóra heimili,
að ekki væri góðum gesti fagnað
innilega og h*nn leiddur til sæt-
is og boðinn sá bezti beini, sem
hægt var í té að láta. Allt var
þetta gert með þeim hætti, að
manni fannst gesturinn hafa gert
húsbændunum hinn mesta greiða
með því að kema og að verða að-
njótandi alls þgss bezta, sem heim
ilið hafði upp á að bjóða og áttu
þar bæði hjónin óskilið mál. Ég
held, að það hafi verið þessi frá
bæra rausn og gestrisni húsbænd
anna sjálfra sem gerði það að
verkum, að svo margir hafa kom-
ið og átt ánægjustundir á þessu
heimili, sem okkur gestunum er
ljúft og skylt að þakka fyrir.
Þorvaldi þakka ég órofa tryggð
og vináttu frá því fyrsta er við
hittumst og óska honum góðrar
heimkomu til hinna nýju heim-
kynna og vona að guðs blessun
megi jafnan fylgja hinu stóra
heimili hans nú og um framtíð
alla.
Ólafur A. Pálsson.
2 ja - 3/o herbergja íbúð
óskast til leigu sem fyrst, fyrir fram greiðsla, fyrir
árið eða meir eftir samkomulagi.
Tilboð merkt, „Febrúar,59.—5142“, sendist blaðinu
fyrir laugardag.
M iðstöðvarofnar
væntanlegir í flestum stærðum.
Þeir, sem eiga pantanir, vinsamlegast gerið aðvart.
A. Jóliannsson & Smiih h.f
Brautarholti 4 — Sími 24244
Baðker 5 & SVz fet
Blöndunarhanar og tilheyrandi
Handlaugar og WC samstœður
Byggingavöruverzlun
ÍSLEIFS JÓNSSONAR
Höfðatúni 2 — Sími 14280.
Verzlunarhúsnæði
er til leigu í miðbænum frá 14. maí næstkomandi.
Stærð ca. 3x9 fermetrar. — Umsóknir, er tilgreini
tegund verzlunarvarnings, sendist til afgreiðslu
Morgunblaðsins merktr: „V S — 5135“.
Þvottnhúsið Skyrtan
Höfðatúni 2.
Hefur afgreiðslu á eftirtöldum stöðum: Efnalaugin
Hjálp Bergstaðastræti 28. Sími 11755, Efnal. Hjálp
Grenimel 12. Sími 11755, Efnal. Glæsir Hafnarstræti
5. Sími 13599, Efnal. Glæsir Blönduhlíð 3. Sími 18160,
Efnal. Hafnarfjarðar Gunnarssundi 2. Sími 50389.
Skyrtan, Höfðatúni 2 sími 24866 og Grenimel 12
sími 13639.
Höfum fytrirliggjandi
SKÚFFUR
á amerískar jeppabifreiðar
Bifreiðaverksfœðið MÚLI
Suðurlandsbraut 121 — Sími 32131