Morgunblaðið - 12.02.1959, Blaðsíða 2
MORCVNfíL 4Ð1Ð
Fimmtudagur 12. i febr. 1959
V- og a-þýzkir sérfræðingar
sitji utanríkisráðherrafundinn
WASHINGTON, 11. febrúar. —
Samkvæmt áreiðanlegum heim-
ildum munu Vesturveldin leggja
það til við Ráðstjórnina í svar-
orðsendingum sinum um Þýzka-
landsmálið, sem afhentar verða í
næstu viku, að efnt verði til
utanríkisráðherrafundar stórveld
anna, Bretlands, Bandaríkjanna,
Frakklands og Ráðstjórnarinnar,
um Þýzkalandsmálin og öryggi
Evrópu. Jafnframt mun það
Úlfaþytur um heimhoð
til Krúsjeffs
KAUPMANNAHÖFN, 11. febrú-
ar. — Einkaskeyti til Mbl. —
Talið er, að yfirlýsing Gerhard-
sens forsætisráðherra : Norð-
manna í gær þess efnis, að Krú-
sjeff væri velkominn til Noregs
hafi komið illa við H.C.Hansen
forsætisráðherra Dana. Að vísu
er talið, að þeir Hansen séu á
einu máli, en Hansen hefur enn
ekki lagt málið fyrir utanríkis-
málanefnd þingsins — og ekkert
mun opinberlega birt um af-
stöðu dönsku stjórnarinnar til
heimboðs Krúsjeff til handa fyrr
en álit nefndarinnar liggur fyrir.
Kvöldberlingur segir í dag, að
sífellt verði ljósara að Rússar
ætli sér að reyna að þvinga
Noreg og Danmörku til þess að
segja sig úr Atlantshafsbanda-
laginu — og krefjast friðunar
Eystrasalts — og tryggja sér þar
með óskoruð yfirráð á þessari
siglingaleið út til Atlantshafsins,
ef til styrjaldar kæmi.
Segir blaðið ennfremur, að
enginn vafi sé á því hvaða tilfinn-
ingar danska þjóðin beri til hins
rússneska leiðtoga. Óttinn við
það, sem að baki honum stendur,
mun setja svip sinn á yfirbragð
móttakanna Stjórnir Norðurland
anna hefðu átt að bíða þróunar
Berlínarmálanna. Við styðjum
þá, sem vísa ógnunum Rússa á
bug í Berlinardeilunni — og sá
dagur getur runnið, að við verð-
um enn á ný að tilkynna Krú-
sjeff, að nærvera hans í Dan-
mörku sé óæskileg. Að lokum
segir blaðið, að heimsóknin geti
ekki haft nein áharf á utanríkis-
málastefnu Dana, sem hafi sett
traust sitt á Atlantshafsbandalag
ið.
Léttibótur ionnst
HALIFAX, 11. febrúar. — Skip
frá faandarísku strandgæzlunni
fann í dag léttibát á reki suður
af Nýfundnalandi. Báturinn
maraði í kafi á hliðinni — og
þegar strandgæzlumenn höfðu
náð honum upp kom í ljós, að
hann var af togaranum „Blue
Wave“ frá Nýfundnalandi, en
togarinn fórst á þessum slóðum
á mánudagskvöldið. Vonlítið er
nú talið ,að nokkrir hafi komizt
lífs af, er togaranum hvolfdi. —
Leit er samt haldið áfram á skip-
um og flugvélum.
Dr. Euwe hrósar Friðrik
Olafssyni á hvert reipi
Skrifar um hann í fjölmörg skákrit
TÍMARITIÐ SKÁK, 2. tölublað
9. árgangs, er um þessar mundir
að koma í bókaverzlanir. Þetta
hefti er fjölbreytt að efni og
flytur meðal annars allar skákir
Friðriks Ólafssonar stórmeistara
frá mótinu í Beverwijk þar sem
hann sigraði með svo miklum
glæsibrag að víðfrægt er.
Að vanda er í heftinu þáttur-
inn „Skák mánaðarins" en þann
þátt ritar hinn gamalkunni heims
meistari dr. M. Euwe. Þessi þátt-
ur birtist mánaðarlega í öllum
stærstu skáktímaritum heims og
á hvarvetna miklum vinsældum
að fagna, því dr. Euwe velur
hverju sinni þá skák, sem hann
telur eina þess virði að bera heit-
ið „skák mánaðarins". í formála
Dagskrá Alfaingis
t DAG eru boðaðir fundir í báð-
um deildum Alþingis kl. 1.30. —
Þrjú mál eru á dagskrá efri
deildar:
1. Samkomudagur reglulegs Al-
þingis 1959, frv. — 3. umr.
2. Veitingasala o. fl., frv. —
1. umr.
3. Lífeyrissjóður starfsmanna,
frv. — 1. umr.
Á dagskrá neðri deildar eru
sex mál.
1. Áætlunarráð ríkisins, frv. —
Frh. 1. umr. (Atkvgr.)
2. Sameign fjölbýlishúsa, frv. —
1. umr.
3. Skipun prestakalla, frv. —
2. umr.
4. Olíuverzlun ríkisins, frv. —
1. umr. — Ef deildin leyfir.
5. Hefting sandfoks og græðsla
lands, frv. — 1. umr. — Ef
deildin leyfir.
8. Vöruhappdrætti Sambands
ísl. berklasjúklinga, frv. —
1. umr. — Ef deildin leyfir.
að þessum þætti sínum nú fer
dr. Euwe miklum viðurkenning-
arorðum um Friðrik Ólafsson.
Hann segir m.a.
„Gæði skákanna tala jafnvel
enn skýrara máli en vinninga-
fjöldinn. Svo að segja hver ein-
asta skák Friðriks frá mótinu
ber aðalsmerki stórmeistarans,
svo að engan veginn er auðvelt
að velja eina þeirra úr“.
Og sem skák mánaðarins velur
dr. Euwe skák Friðriks og Elis-
kases, úrslitaskák mótsins. Fylgja
skýringar dr. Euwe á skákinni.
Auk þessa er í heftinu greinar
um „Skyssur í endatöflum“, þætt
ir „Lærið að „kombinera“,“ og
„Skákbyrjanir" auk erlendra og
innlendra frétta.
Birgir Sigurðsson er ritstjóri
tímaritsins Skák. Hann tók við
blaðinu úr hendi Skáksambands-
ins í ársbyrjun 1954 og hefur
annast um útgáfu ritsins reglu-
lega síðan og er það mál skák-
manna, sem annarra skákunn-
enda að Birgi hafi tekizt það starf
með miklum ágætum. Birgir er
prentari að atvinnu og lætur hann
sig ekki mu»a um það auk þess
sem hann velur efni ritsins að
annast um setningu þess í prent-
smiðjunni. Þegar prentun er lok-
ið annast hann sjálfur afgreiðslu
ritsins. Þetta er því eina blaðið
á landinu sem einn maður skrifar
eða velur efni i, setur og af-
greiðir.
Dulles hættir ekki
WASHINGTON, 11. febrúar. —
Blaðafulltrúi Eisenhowers for-
seta sagði í dag, að getgátur um
að Dulles mundi láta af utan
ríkisráðherraembætti vegna van-
heilsu væru ekki á rökum reist-
ar. —
verða lagt til, að boðið verði til
ráðstefnunnar v-þýzkum og a-
þýzkum sérfræðingum.
Þetta mun þó ekki jafngilda
því, að Vesturveldin hyggist
viðurkenna a-þýzku stjórnina,
því að í tillögunni er gert
ráð fyrir því, að sérfræðingar
þessir sitji ráðstefnuna sem
einstaklingar, en ekki fulltrú
ar rikisstjórna sinna. Nær-
vera þeirra mundi hins vegar
geta haft töluverð áhrif á um-
ræðurnar á utanríkisráð-
herrafundinum — og úrsUt
fundarins.
□ © □
Ráðstjórnin hefur að undan-
föi’nu haldið því fram, að stjórnir
beggja hluta Þýzkalands ættu að
semja um sameiningu landsins,
en Vesturveldin telja, að stór-
veldin séu öll ábyrg fyrir sam-
einingu landsins. Stjórnmála-
fregnritarar í Washington telja
þessa tillögu Vesturveldanna
merkilega og bera glöggan vott
um viðleitni þeirra til að sam-
eina sjónarmið austur og vesturs.
Fastaráð Atlantshafsbandalags
ins kom saman í dag til þess að
ræða svörin við orðendingu Ráð-
stjórnrinnar frá 10. jan. — og
liafa uppköst svaranna verið
send ríkisstjórnum aðildarríkja
NATO til athugunar.
I gær, á öskudaginn, var hinn árlegi merkjasöludagur Rauða
krossiixs. — Ljósmyndari Mbl. hitti þessa ungu liðsmenn Rauða
krossins á götu síðdegis í gær, og hafði þeim orðið vel ágengt
í sölunni.
Boeing-þota fór 9 km. steypiflug
með 124 farþega
ÞEGAR ein af farþegaþotum Pan
American af gerðinni Boeing 707
var á leið frá New York til París-
ar kom fyrir óvænt atvik og
uggvænlegt, sem vakið hefur at-
hygli og umræður beggja vegna
hafsins.
Þotan var í 10.500 metra hæð,
er hún steyptist skyndilega — og
tókst flugstjóranum ekki að
stöðva „fallið“ fyrr en í 2.000
Bretar gerðu
Dr. Otto John
afturreka
DOVER, 11. febr. — Dr. Otto
John, fyrrum yfirmaður v-þýzku
leyniþjónustunnar, kom í gær
með ferju frá Ostende í Belgíu til
stuttrar dvalar í Englandi, en
þar hugðist hann hitta eiginkonu
sína. Brezk stjórnarvöld neituðu
Dr. John hins vegar um land-
göngu og varð hann að snúa
aftur með ferjunni. Sögðu Bretar
hopum, að hann væri talinn ó-
æskilegur gestur í Bretlandi.
Það var Dr. John, sem flýði
austur fyrir járntjald fyrir nokkr
um árum eins og kunnugt er, en
snéri aftur árið 1954 — og var
þá dæmdur til fjögurra ára fang-
elsisvistár í V-Þýzkalandi fyrir
landráð.
Hvað segir
Krúsjeff ?
LONDON, 11. febrúar. — Mikið
er nú rætt um væntanlega
Moskvuför Macmillans, en þang
að heldur hann 21. þ.m. Líklegt
er talið, að Krúsjeff leggi til við
brezka forsætisráðherrann, að
gerður verði gagnkvæmur griðar
samningur milli landanna í Atl-
antshafsbandalaginu og landanna
í Varsjárbandalaginu, sem Vest-
urveldin hafa jafnan hafnað. Hins
vegar er ekki búizt við því, að
neinar meiriháttar ákvarðanir
verði teknar á þessum fundi.
metra hæð. Með þotunni voru 124
farþegar og má geta nærri, að
að felmtri hefur slegið á þá. Eng-
in stórslys urðu á mönnum, en
margir skrámuðust og hlutu
slæma byltu — og skemmdist þot-
an innanstokks svo og einangr-
un hennar.
Flugsjóranum tókst að lenda
heilu og höldnu á Gander á Ný-
fundnalandi. En margir farþeg-
anna höfðu enn ekki jafnað sig
af þessu tæplega 9 km falli og
hræðslunni, sem alla greip.
Forráðamenn flugfélagsins gefa
þá skýringu á atburðinum, að
bilun hafi orðið á sjálfstjórnar-
tækjum (autopilot) þotunnar.
Sérfræðingar annarra flugfé-
laga hafa ekki viljað fallast á
þessa skýringu forráðamanna Pan
American. Telja þeir hiris vegar
sennilegra, að flugmennirnir hafi
orðið varir við bilun á loftþrýsti-
tækjum í stjórnklefanum, þ,e.
þeim tækjum, sem halda stöð-
ugum loftþrýstingi inni í þotunni.
Ef tæki þessi biluðu í 10,000
m hæð og loftþrýstingurinn inni
í þotunni yrði skyndilega hinn
sami og úti mundu farþegar og
áhöfn aðeins halda rænu í 60
sekúndur eftir breytinguna.
Telja sérfræðingar þessa skýr-
ingu á steypiflugi þotunnar senni
legasta. Þeir hafi séð hvert
stefndi — og ekki hafi verið um
annað að ræða en iteypa þotunni
á svipstundu til þess að forðast
stórslys.
Slœmt ástand í St. Louis
ST. LOUIS, 11. febrúar. — Mið-
hluti borgarinnar St. Louis er í
rúst, ef svo mætti segja. Eyðilegg
ingarnar, sem hvirfilbylurinn
olli á tveimur stöðum í gær, eru
sagðar nema 84 milljónum doll-
ara.
Björgunarsveitir voru enn að
verki í dag — og bexndist starfið
aðallega að leit sjö manna, sem
vitað var, að ekki hefðu komið
fram eftir að ósköpin dundu yfir
í gær. Með vissu er vitað um 21
mann, sem fórst, en a.m.k. 71 var
Heimta neitunar-
vald
GENF, 11. febrúa.-----Enn er
komin fram ný tillaga á ráð-
stefnu stórveldanna um stöðvun
tilrauna með kjarnorku og vetn-
isvopn. Rússar eru nú á ferðinni
og flytja tillögu þess efnis, að
þeir fjórir meðlimir hinnar fyrir-
hugðu eftirlitsnefndar, sem ekki
eiga að hljóta fastasæti í nefnd-
inni, eigi a.m.k. tveir að vera
bandamenn Rússa. Einn ætti að
vera bandamaður Vesturveld-
anna og einn frá hlutlausu landi.
Þá vilja Rússar, að fastafulltrú-
arnir í nefndinni, þeir brezku,
bandarísku og rússnesku njóti
réttar til neitunarvalds.
fluttur I sjúkrahús. Samtals hafa
230 manns hlotið læknishjálp
vegna sára, sem þeir hlutu í byln-
um.
Þá er talið að 1.725 hús hafi ger
eyðilagzt. Um 16.000 manns í Fre-
mont í Ohio munu nú í hættu
vegna flóða. Þar er nú ríkjandi
algert neyðarástand og 1.000
menn hafa þegar verið fluttir
í brott.
Berlín gefst
oldrei upp
NEW YORK, 11. febrúar. Willy
Brandt, borgarstjóri Berlínar,
sagði í ræðu hér í dag, að Berlínar
búar mundu berjast með öllum
tiltækum ráðum gegn yfirgangi
Rússa. Berlínarbúar myndu
aldrei þola þeirra yfirgang, þeir
myndu veita mótspyrnu. Rússar
héldu, að Berlín væri veikur dep
ill, en svo væri ekki — þeir
munu komast að raun um það.
Hins vegar má segja aðra sögu
um A-Þýzkaland, hinn stöðugi
flóttamannastraumur sannar
bezt ástandið þar og fylgi fólks-
ins við stjórnarvöldin. Kvað hann
viðræður sínar við bandaríska
ráðamenn hafa verið mjög upp-
örvandi.