Morgunblaðið - 14.02.1959, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 14.02.1959, Blaðsíða 3
Laugardagur 14. febr. 1959 MORCVTSBLAÐIÐ 3 Geir Sigurðsson skipstjóri — minningarorb GEIR Sigurðsson, skipstjóri and- aðist að heimili sínu hér í bæn- um hinn 4. þ.m. 85 ára að aldri. Geir Sigurðsson var einn þeirra manna, sem um langt skeið settu svip á bæinn og er minnisstæður flestum miðaldra Reykvíkingum og eldri. Geir varð fullþroska maður á síðasta tug nítjándu aldarinnar og var meðal hinna fremstu sinna samtíðarmanna í því að brúa bilið milli gamla og nýja tím- ans í atvinnuháttum á sjó og landi. Geir hafði útskrifast úr Stýri mannaskólanum 21 árs árið 1895. Fór snemma orð af gáfum hans og dugnaði. Því var það, að Tryggvi Gunnarsson réð Geir sem skipstjóra á fyrsta skip Rekneta- félagsins við Faxaflóa 1900. Var það seglskipið Kristján. Skyldi skipið veiða síld til beitu og frystingar fyrir hið nýja frysti- hús, sem Tryggvi hafði gengist fyrir að byggt var í Reykjavík og almennt var nefnt Nordalsíshús eftir framkvæmdastjóranum, Jóhannesi Nordal. Þessi tilraun tókst vel. f byrjun aldarinnar var Geir skipstjóri á kútter Haraldi i þrjú ár með Akurnesingum. Voru þar með honum Bjarni Ólafsson, hinn frægi aflamaður og brautryðj- andi og Þórður Ásmundsson, síð-) ar útgerðarmaður. Lét Geir svo ummælt, að gaman hafi verið að vera með mönnum eins og þeim. Árið 1905 stofnuðu Geir, Thor Jensen, Þorsteinn í Bakkabúð, Kristinn Magnússon hjá Duus og Matthías Þórðarson, ritstjóri hlutafélagið Draupni til þess að gera út skip til síldveiða. Eign- aðist félagið kútter Ágúst, sem veiddi síld til söltunar og í íshús- ið ísbjörninn, sem stóð við tjörn- ina í Reykjavík. Geir var skipstj. á skipinu. Síðar varð Geir skip- stjóri á gufubátnum Nóru, sem stundaði síldveiðar frá Reykja- vik í mörg ár. Minnast margir gamlir Reykvíkingar þess þegar græni og fallegi báturinn kom á fullri ferð inn Engeyjarsund og lagðist út á höfninni fyrir fram- an Zimsensbryggju áður en byrj- að var á hafnargerðinni, og fyrstu árin þar á eftir. Var þess þá skammt að bíða að sjá mætti hina silfurgljáandi síld, sem Geir kunni fyrstur íslend- inga að afla á rúmsjó, svo að verulegu næmi. Geir gerði fyrstu tilraun til síldarsöltunar um borð í skipi á djúpmiðum sunnanlands. Hann var með í því að setja mótor í fyrsta þilskip á Suðurlandi. Geir keypti íshúsið fsbjörninn árið 1915 með Ólafi Benjamíns- syni og ráku þeir það um það bil aldarfjórðung. Geir hætti sjómennsku árið 1919. Geir tók þátt í stofnun margra félaga, þar á meðal var hann með í kaupunum á Reykjaborg- inni með Guðmundi Jónssyni, skipstjóra á Reykjum. Var það fyrsta íslenzka skipið, sem út- búið var mjölvinnslutækjum. Geir var meðal stofnenda Fiski félags fslands og í stjórn þess í nærri þrjátíu ár. Hann átti sæti í sjódómi Reykjavíkur frá upp- hafi þar til hann lét af störfum fyrir aldurssakir. Hann var meðal stofnenda Slysavarnafélags fs- lands og ; stjórn þess í 10 ár. Hann var skoðunarmaður skipa fyrir Samábyrgð íslands á fiski- skipum í 20 ár. Geir var lengi í stjórn skip- stjórafélagsins „Aldan“. Geir átti sæti í bæjarstjórn Reykjavíkur frá árinu 1914 til 1920. Hann var mjög lengi í hafn arnefnd Reykjavíkur og lét mik- ið að sér kveða í þeim málum á því timabili, sem höfninni var breytt úr óvarinni höfn í full- komnustu höfn á landinu. Geir var fæddur að Skiphyl í Hraunhreppi i Mýrasýslu 8. sept. 1873. Foreldrar hans voru Sig- urður Jónsson, Sigurðssonar í Hjörsey og kona hans Hólmfríð- ur Sigurðardóttir bónda í Tjalda- brekku Jónssonar. Geir kvæntist 14; nóvember 1906 Jónínu Jódísi Ámundadótt- ur útvegsbónda í Hlíðarhúsum í Reykjavík Ámundasonar. Hún lézt 20. nóv. 1918 í spönsku veik- inni. Synir þeirra Geirs eru: Ámundi, verzlunarmaður, Sig- urður, sjómaður og Magnús, starfsmaður hjá Eimskipafélagi íslands. Geir var snillingur í því að halda uppi skemmtilegum og fróðlegum umræðum. Hann hafði fylgst vel með því sem gerðist um hans daga. Auk þess kunni hann fjölda af kvæðum og vís um enda sjálfur vel hagmæltur. Hann var vel að sér í íslenzk- um bókmenntum og ættfræði. Hefur hann meðal annars skrifað merkilegar endurminningar eftir móður sinni. Hann var mjög vinsæll eins og gleggst kom fram í hinu fjöl- menna samsæti, sem hon-um var haldið sextugum að Hótel fsland. Hann var sæmdur Fálkaorð- unni. Geir var eindreginn sjálfstæðis- maður og hinn þjóðlegasti í hví- , vetna. rzzst- Geir Sigurðsson Valtýr Stefánsson ritstjóri rit- I aði einkar fróðlega grein um Geir í tilefni af sjötugs afmæli hans og er sú grein endurprentuð í „Myndum úr þjóðlífinu". Benedikt Sveinsson, alþingis- maður sagði m.a. í afmælisgrein um Geir sextugan: „Hann er hár vexti, gildlegur og vel á sig kominn, ramm nor- rænn í ásýnd hógvær og kurteis í framkomu, en þéttur fyrir, ráð- hollur og tillögugóður. Nýtur hann því trausts og vinsælda að maklegleikum". Útför Geirs fer fram í dag frá Dómkirkjunni og verður þar kvaddur merkur Reykvíkingur, sem makaði mörg og greinileg spor í framfarasögu þjóðarinnar um sína daga. Sveinn Benediktsson Geta íslendinganna kom Dön- um mjög á óvart Frásagnir blaðanna bera Jbcrð glögg- lega með sér Einkaskeyti til Mbl. KAUPMANNAHÖFN, 13. febrú- ar: — Dönsku blöðin ræða í dag um landsleik íslands og Dan- merkur i handknatteik, sem fram fór í Slagelse í gær. Kom frammi- staða íslendinganna mjög á óvart og er óhætt að fullyrða, að þeir hafi unnið þarna stóran sigur og vaxið mjög í áliti. Komu áhorfendum á óvart. Poitiken segir meðal annars: Geta og frammistaða íslenzku leikmannanna kom dönsku leik- mönnunum, svo og áhorfendum mjög á óvart, einkum og sér í lagi í fyrri hálfleik. íslendingarnir hófu leikinn af miklum hraða og virtust enga virðingu bera fyr- ir hinum sterku andstæðingum sínum. Tókst þeim að nýta slæm- ar eyður í dönsku vörninni með heilsteyptum leik og óvæntri tækni.f leikhléi gerðu Danirbreyt ingar á vörninni með þeim af- leiðingum að íslendingum tókst aðeins að skora fimm sinnum í síðari hálfleik". Veikir hlekkir í liðinu. Berlingske Tidende segir einnig mjög á óvart og leikið mun betur að íslendingarnir hafi komið en við var búizt. Blaðið telur, að þeir Gunnlaugur Hjálmarsson og Ragnar Jónsson, skoruðu 12 af 16 mörkum liðsins, myndu styrkja hvaða danskt lið sem væri. Höfuðgalli liðsins var, hve mik ill munur var á styrkleika hinna einstöku leikmanna. Þrír eða fjór ir leikmenn hafi ekki sýnt góðan leik. Harðskeyttir á köflum. Socialdemokraten segir, að Danir hafi gleymt því, að íslend- ingar eru altaf íslendingar, og að þrátt fyrir enga sigurvon, hafi þeir komið til leiks einbeittir og ákveðnir. — Danski landsliðsmað urinn Mogens Kramer sagði eft- ir leikinn, að íslendingarnir hefðu leikið vel, en þó sérstaklega vörnin: Þjálfari danska lands- iðsins, Axel Petersen lét svo um mælt, að sér hafi einna helzt kom ið á óvart, hve vöm íslending- anna var góð. Hann taldi íslend- inganna of harðskeytta á köflum, en sagði einnig, að þeir væru erf iðir andstæðingar, því þeir héldu knettinum lengi og nýttu völlinn vel. STAKSTEINAR Ummæli þessi eru vissulega mjög ánægjuleg fyrir íslenzka handknatteiksunnendur, einkum þegar þess er gætt. að Danir eru menn vandlátir í þessum efnum og oft harðir í dómum sínum. Von andi verður þessi góða frammi- staða þess valdandi, að áfram- haldandi samskipti takizt milli þjóðanna í þessari skemmtilegu íþrótt. Ekkert er verra en vinstri stjcirn Vesturland, blað SjálfstæðiS- manna á Isafirði, gerir fyrir skömmu viðskilnað vinstri stjórn arinnar að umtalsefni í forystu- grein sinni. Kemst blaðið þar m. a. að orði á þessa leið: „Öll þýðingarmestu atriðl stjórnarsáttmálans hafði gleymzt að framkvæma, og er nú svo komið að þessi fyrsta vinstri stjórn á Islandi er talin af öllum sú lélegasta, sem að völdum hef- ur setið. Engin grafskrift hæfir henni betur en þessi: Ekkert er verra en vinstri stjórn. Við þessl áramót blasir sú staðreynd við, að dýrtíðaraldan skelli nú yfir með meiri þunga en nokkru sinnl fyrr, ef varnarráðstafanir eru ekki gerðar. Útflutningsatvinnu- vegirnir eru sligaðir undir þunga dýrtíðarinnar og erlendar skuld- ir jukust í tíð vinstri stjórnar- innar um 550—600 milljónir króna“. ,,Án þess að skerða lífs- kjör almennings“ Vesturland heldur síðan áfram á þessa leið: „Ríkisstjórn Hermanns Jónas- sonar var uppbyggð á ósannind- um og lftlu öðru. Hræðslubanda- lagið byggði kosningabaráttu sína á kosningasvikum og skrökv aði því að þjóðinni að efnahags- málin mætti leysa, án þess að skerða hið minnsta lífskjör al- mennings. Kommúnistar áttu fyr ir kosningar ráð undir hverju rifi og fullyrtu, að það mætti taka það sem vantaði af þeim ríku. En þegar til kastanna kom stóð ekki á þeim að leggja hundruð milljóna króna á þjóð- ina í nýjum sköttum. Þjóðin á rétt á að láta i ljós álit sitt í nýjum kosningum, sem ákveðnar eru snemma á komandi sumri. Hitt er ekkert tilhlökkunarefni að taka við stjórn á þessu þjóðfélagi, eins og ástandið er, en allir sannir Is- lendingar vona að þetta nýbyrj- aða ár verði okkur gjöfult og heillaríkt, því sjaldan hefur meira legið við en einmitt nú“. Þetta voru ummæli Vestur- lands á tsafirði og munu margir geta tekið undir þau. Caumgœfileg endurskoð- un á frœðslulögunum Tólf manna nefnd hefur setið á rök- stólum i vetur HÉR í Reykjavík situr nú á rök- stólum nefnd manna, sem gera skal tillögur um breytingu á fræðslulögunum, en þau sem nú eru í gildi voru sett 1946. Nefn þessi er skipuð 12 mönn- um. Nefndin á að endurskoða alla lagabálkana og reglugerðar- ákvæði um námsefni í öllum þeim skólum, sem tilheyra hinu samfellda skólakerfi. Undir þennan lið falla barna- og ungl- ingaskólarnir, gagnfræðaskólarn ir og menntaskólarnir. Einnig nær þessi endurskoðun til þeirra skóla sem stofnaðir eru með sér- stökum lögum svo sem kennara- skólinn, húsmæðraskólarnir og iðnnámið. Nefndin var skipuð á síðast- liðnu sumri, en hún tók til starfa í haust er leið, og hefur sem fyrr greinir haldið vikulega fundi. Hún á ekki að leggja fram tillögur sínar í frumvarpsformi, heldur skulu þær lagðar fyrir menntamálaráðuneytið. Nefndin hfeur sent gögn til ýmissa aðila um land allt t.d. skólanefnda, einnig til bæjar- stjórn og oddvita um það er snert ir fjárhagshlið þessa máls. Láta mun nærri að landsmenn leggi nú af mörkum milli 100—200 milljónir króna til fræðslumál- anna. Formaður þessarar nefndar er próf. Halldór Halldórsson, ritari fræðslumálastjóri Helgi Elíasson, en aðrir nefndarménn eru Krist- ján Gunnarsson yfirkennari sem er fulltrúi Samb. ísl. barnakenn- ara, Helgi Þorláksson kennari, sem er fulltrúi Samb. framhalds- skólakennara, ráðuneytisstjórarn- ir Birgir Thorlacius og Sigtrygg- ut Klemenzson, Jónas Guðmunds son fulltrúi Samb. ísl. sveitarfé- laga. Þá eru í nefndinni sérstakir fulltrúar stjórnmálaflokkanna. Ragnhildur Helgadóttir alþings- maður fyrir Sjálfstæðisflokkinn, Sigurður Ingimundarson frá Al- þýðuflokknum, Haraldur Stein- þórsson frá kommúnistum og Páll Þorsteinsson alþm. frá Fram sóknarflokknum. Hlutfallskosningar í stórum kjördæmum til Búnaðarþings Árið 1937 var tekið upp nýtt fyrirkomulag á kosningum til Búnaðarþings. Ekki er annaS vitað, en að gott samkomulag hafi verið um það meðal fulltrúa bændastéttarinnar að gera þessa breytingu á kosningafyrirkomu- laginu. Ákveðið var, að allir fulltrúar til Búnaðarþings, 25 aS tölu, skyldu kjörnir með hlut- fallskosningum í stórum kjör- dæmum. Þannig var t. d. allt Suðurland gert að einu kjör- dæmi, sem kjósa skyldi 5 full- trúa á Búnaðarþing. Ennfremur voru allir Vestfirðir gerðir aS einu kjördæmi, sem kjósa skyldt 3 fulltrúa. Og allt Austurland skyldi á sama hátt kjósa 3 full- trúa til Búnaðarþings. Engar raddir heyrðust um þaS á Búnaðarþingi eða annars staS- ar, þegar þetta skipulag var upp- tekið, að það kynni að vera hættulegt hagsmunum bænda- stéttarinnar eða strjálbýlisins yfirleitt. Þvert á móti var taliS að hér væri um að ræða merki- legt spor í réttlætisátt, sem verða mundi samtökum bænda- stéttarinnar til eflingar og upp- byggingar á komandi árum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.