Morgunblaðið - 15.03.1959, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 15.03.1959, Blaðsíða 13
Sunnudagur 15. marz 1959 MORGUNBLAÐIÐ 13 Ræða Bjarna Benediktssonar á Landsfundi: Varnir íslands hafa náð tilgangi með því að stuðla að því, að friður hefir haldizt Kœra ber athœfi Breta fyrir Atlantshafsráði MÉR hefur verið falið að gera hér grein fyrir tillögu utanríkis- og landhelgismálanefndar varð- andi utanríkismálin og nokkrum hluta tillögu í landhelgismálinu. Að öðru leyti mun Davíð Ólafs- son, fiskimálastjóri, gera grein fyrir landhelgismálatillögunum. Skoðanamunurinn 1956 Það leikur ekki á tveim tung- um, að ein megin ástæðan til hinnar miklu atkvæðaaukningar Sjálfstæðisfl. við Alþingiskosn- ingarnar 1956, var hin raunsæa og þjóðholla afstaða, sem Sjálf- stæðisflokkurinn tók þá, gagn- stætt hinum flokkunum, í utan- ríkismálum. Þess vegna er rétt að rifja aðeins upp í hverju skoðanamunurinn þá var fólg- inn. Hin margumtalaða ályktun frá 28. marz 1956, sem Framsóknar- flokkurinn, Alþýðuflokkurinn og kommúnistar samþykktu, hljóð- aði að því, sem hér varðar, á þennan veg: „Með hliðsjón af breyttum við- horfum síðan varnarsamningur- inn frá 1951 var gerður og með tilliti til yfirlýsinga um, að eigi skuli vera erlendur her á Xs- landi á friðartímum, verði þegar hafin endurskoðun á þeirri skip- an, sem þá var tekin upp, með það fyrir augum, að íslendingar annist sjálfir gæzlu og viðhald varnarmannvirkja, — þó ekki hernaðarstörf — og að herinn hverfi úr landi. Fáist ekki sam- komulag um þessa breytingu, verði málinu fylgt eftir með upp sögn, samkvæmt 7. gr. samnings- ins“. Þetta mál var tekið til umræðu á landsfundi Sjálfstæðisflokksins, sem haldinn var í apríl 1956, og sagði í samþykkt landsfundar þá m. a. svo: „Landsfundurinn lýsir sam- þykki sínu á afstöðu Sjálfstæðis- manna á Alþingi í varnarmálun- um og harmar þá ógæfu, að tveir lýðræðisflokkanna skuli nú hafa rofið eininguna í utanríkismálum og leitað á náðir kommúnista um lausn þeirra. Það var fyrir for- göngu Sjálfstæðismanna, að Is- lendingar geta einhliða sagt varn arsamningnum upp með IV2 árs fresti, og þeim rétti verður ekki afsalað meðan Sjálfstæðismenn hafa áhrif á stjórn landsins. Með þessu ákvæði var lögð sú skylda á utanríkisráðherra að fylgjast svo með raunverulegu ástandi heimsmála að hann gæti gert rík- isstjórn og Alþingi grein fyrir, hvenær hann telur rétt að end- urskoða, hvort hér sé þörf á vörnum. I stað þess að fara þann- ig að ,er málið tekið upp sem kosningamál og á Alþingi gerð ályktun, sem í senn er hæpin samkvæmt 7. gr. varnarsamn- ingsins, og óhyggileg, þar sem ákvörðunin er gerð fyrst og at- hugun málsins á að fara fram síðar. Slíkar aðfarir eru óhæfi- legar í öllum málum og þó hvergi hættulegri en í utanríkismál- um“. Um þennan skoðanaágreining snerust kosningarnar 1956 að verulegu leyti. Þeim lyktaði svo, eins og kunnugt er, að Sjálf- stæðismenn unnu stórkostlega á, en hinir flokkarnir fengu þó, eins og fyrirsjáanlegt var, eftir aðstæðum öllum, meirihluta á Alþingi. „Bettra að vanta brauð“ Af ummælum þeim, sem and- stæðingar okkar mæltu 1956, mun þjóðinni verða eftirminni- legust yfirlýsing Hermanns Jón- assonar, er hann gaf rétt fyrir kosningarnar í júní 1956, er hann sagði „betra er að vanta brauð ,en hafa her í landi“. í framhaldi þessarar yfirlýs- ingar var það eitt af aðalatrið- um málefnasamnings ríkisstjórn- arinnar, sem mynduð var í júlí 1956, að ályktuninni frá því í marz 1956 skyldi verða fylgt eftir, og segir svo í málefna- samningnum: „Ríkisstjórnin mun í utanrík- ismálum fylgja fram ályktun Al- þingis frá 28. marz sl. „um stefnu íslands í utanríkismálum og meðferð varnarsamningsins við Bandaríkin.““ Þegar Hermann Jónasson til- kynnti stjórnarmyndun sína í út- varpi, þá las hann til frekari áherzlu upp sjálfa ályktunina frá 28. marz, svo að ekki væri um að villast, hver stefna stjórn- arinnar í þessu mikla máli væri. Og hann bætti við um starfs- hætti stjórnar sinnar: „Hún mun vinna verk sin fyrir opnum tjöldum og í samvinnu við þjóðina". Nokkru eftir að stjórnin tók við völdum, var leitað álitsgerðar Atlantshafsráðsins um ályktunina frá 28. marz, álitsgerðar, sem hefði vitanlega átt að vera búið að fá áður en ákvörðunin var tekin. Sú álitsgerð sagði það, sem allir skynbærir menn vissu, að mundi fram koma, að hættur í heimsmálum væru enn svo mikl- ar, að ekki væri þerandi að hafa ísland varnarlaust. Ríkisstjóm íslands ákvað að hafa þessa álitsgerð að engu, og viðræður milli íslands og Bandaríkjanna til að fylgja fram ályktuninni frá 28. marz hófust í nóvember 1956. En þrátt fyrir loforð Hermanns Jónassonar um, að stjórnin mundi vinna fyrir opnum tjöldum, þá var þessum samningum svo háttað, að nokk- ur hluti ríkisstjórnarinnar — svo að ekki sé nú minnst á alla þjóð- ina — var útilokaður frá því að vita, hvað átti sér stað, meðan á samningunum stóð. Þeir voru gerðir fyrir rækilega dregnum tjöldum. Og þetta var gert, þrátt fyrir það, þó að kommúnistar fullyrtu lengi vel, að samnings- gerðin væri ekki síður í höndum þeirra en annarra ráðherra. En samvinnan, sem lofað var og átti að ná til þjóðarinnar allrar, náði þá ekki einu sinni til allrar ríkisstjórnarinnar um eitt af helztu stefnumálum hennar. Samkomulagið í desember 1956 í desember var svo það sam- komulag, sem þarna náðist, stað- fest af ríkisstjórnum íslands og Bandaríkjanna og í þeirri yfir- lýsingu, sem gefin var sagt með- al annars: „Viðræðurnar hafa leitt til samkomulags um, að vegna á- stands þess, er skapazt hefur í alþjóðamálum undanfarið og- áframhaldandi hættu, sem steðj- ar að öryggi íslands og Norður- Atlantshafsríkjanna, sé þörf varnarliðs á íslandi samkvæmt ákvæðum varnarsamningsins.“ Með tilvísun til þessa var við- ræðunum um endurskoðun samn- ingsins því frestað óákveðinn tíma. Síðar í þessu samkomulagi segir: „Að fastanefnd kynni sér varn- arþarfir með hliðsjón af ástandi í alþjóðamálum og geri tillögur til rikisstjórnanna um hverj- ar ráðstafanir gera skuli í þess- um efnum“. Nánari grein er gerð fyrir þess- ari fastanefnd svo: „Komið verði á fót fastanefnd í varnarmálum Islands, sem skiþuð sé ekki fleirum en þrem- ur ábyrgum fulltrúum frá hvorri ríkisstjórn um sig, og sé hlut- verk nefndarinnar: 1. Að ráðgast við og við um varnarþarfir íslands og Norður- Atlantshafssvæðisins, að athuga hverjar ráðstafanir gera þurfi vegna þeirra, og að gera tillögur til ríkisstjórnanna beggja í þeim efnum, með hliðsjón af hernað- arlegu og stjórnmálalegu við- horfi á hverjum tíma. 2. Að undirbúa að svo miklu leyti sem hernaðarlegur viðbún- aður leyfir, að íslendingar taki í rikara mæli en áður að áér störf, er varða varnir landsins á meðan völ er á hæfum mönn- um til slíkra starfa, svo og að tryggja að menn séu æfðir í þessu skyni. 3. Að vinna að lausn mála, er varða stefnuna í almennum meg- inatriðum í samskiptum íslend- inga og varnarliðsins.“ Svo mörg eru þau orð. Hinir „ábyrgu“ mgan fund haldið Af íslands hálfu munu þessir „ábyrgu menn“ vera utanríkis- ráðherrann sjálfur, núverandi for sætisráðherra Emil Jórisson, og Þórarinn Þórarinsson Tímarit- stjóri. Um starf þessarar nefndar sagði utanríkisráðherra mér í fyrradag, að enn hefði ekki verið haldinn einn einasti sameiginlegur fundur ihenni allri á því rúmlega tveggja ára tímabili, sem liðið er frá því, að samið var um, að hún skyldi stofnuð. Enda er mér nær að halda, að það muni hafa tekið hér um bil ár að skipa í nefnd- ina, og þá er e. t. v. ekki óeðii- legt, að annað árið taki fyrir þessa „ábyrgu“ herra að hittast. Störf r.efndarinnar hafa farið eftir þessu. Utanríkisráðherra sagði mér einnig í fyrradag, að enn hefði ekkert umfram það, sem áður var gert, verið aðhafzt í því að þjálfa íslendinga til þess að taka að sér í ríkara mæli störf, er varða varnir lands- ins. Það hefur að vísu eitthvað smávegis verið unnið að því að senda menn til Bandaríkjanna með sama hætti eins og ætíð hef- ur verið gert, frá því að varn- é.rsamningurinn var gerður, en sú víðtæka þjálfun, sem hér var um samið, er ekki hafin ennþá. Er ljóst, að þar er um mjög alvarlega vanrækslu að ræða, hvað sem um varnirnar verður að öðru leyti, því að hvort sem við viljum hafa ísland varið eða óvarið, þá er ljóst, að mörgum af þeim störfum, eins og í rad- arstöðvunum og ýmsri annarri þjónustu, sem nú er hér haldið uppi, verður að halda áfram. Og þó að við teljum nauðsynlegt að hafa landið varið af erlendu varn arliði, þá er sjálfsagt fyrir fs- lendinga að verða einnig í þeim efnum, sem allra óháðastir og þurfa ekki að sækja fleiri störf undir hið erlenda lið en brýn nauðsyn er til. Þess vegna er hér um mjög vítaverða vanrækslu að ræða, að þessi þjálfun skuli ekki enn vera hafin, vanrækslu, er sem allra fyrst verður úr að bæta. Af því, sem ég hefi nú sagt, er ljóst, að samningurinn, sem stað- festur var í desember 1956, er marklaust pappírsplagg, að öllu öðru leyti en því, sem ákveðið var að viðræðum um endurskoð- un varnarsamningsins frá 1951 skyldi frestað um óákveðinn tíma. Það ákvæði eitt hefur verið fram- kvæmt og stendur enn í fullu gildi. „Gegn gjaldi“ En eins og ég sagði áðan, þá var mjög tjöldum hulið það, sem raunverulega gerðist í sambandi við þær umræður, er áttu sér stað í síðari hluta nóvember 1956. Strax og þeim var lokið, birti bandarískur fregnritari frá einu öruggasta stórblaði heims, NewYork-Times, maður að nafni Felix Belair, sem þá var frétta- ritari þess á Norðurlöndum, en ég hygg að nú sé kominn í eina mestu trúnaðarstöðu blaðs síns sem fréttaritari þess í Hvíta hús- inu, — þessi maður birti skeyti í NewYork-Times 26. nóvember. Þar segir: „fsland hefur fallizt á að láta bandarískt herlið hafa áfram yfir stjórn hinnar hernaðarlega þýð- ingarmiklu Keflavíkurflugstöðv- ar, — en gegn gjaldi". Síðan segir í fregninni: „Bandaríkin fallast ennfremur á að veita fslandi efnahagslega og fjármálalega aðstoð-------“. í framhaldi af því, er sagt, að sú aðstoð muni á næstu mánuðum | nema 30 millj. dollara. Sú upp- hæð hefur að vísu reynzt vera miklu hærri heldur en veitt hefur verið. En þegar Þjóðviljinn birti þessa fregn undir þeirri fyrir- sögn, sem nú skal greina: „Mjög alvarlegar fréttir um hernámssamningana í NewYork- Times“, þá sagði Þjóðviljinn: „Alltaf eru silfurpeningarnir 30!“ Þarna birtist mat kommúnista ó því, hvers eðlis samningarnir hefðu verið, sem gerðir voru hér um mánaðamótin nóvember-des- ember, 1956. Strax í desemberlok var til- kynnt, að ísland væri búið að fá 4 millj. dollara lán hjá Banda ríkjunum. Og í bandarísku til- l kynningunni segir: „Fé til dollaralánsins er fengið úr sérstökum sjóði, sem forseti Bandaríkjanna ræður yfir, sam- kvæmt heimild Bandaríkjaþings og aðeins má nbta til ráðstafana, sem forsetinn telur mikilvægar fyrir öryggi Bandaríkjanna". Þetta segir orðrétt í tilkynn. ingu Bandaríkjastjórnar um mál- ið. En sama dag gaf íslenzka ríkisstjórnin út tilkynningu um þessa lántöku og þar er þessari málsgrein sleppt. Sú þögn sagðí sína sögu og sýndi að verulega skorti á, að „unnið væri fyrir opnum tjöldum“, eins og Her- mann Jónasson hafði heitið. Leyniræða Hermanns En haldið var áfram á sömu braut. Um hið svokallaða sam- skotalán fréttist á árinu 1957, þegar ísland fyrst allra ríkja, leit aði til Atlantshafsbandalagsins um að það lánaði íslenzka ríkinu fé. Þess voru engin fordæmi þá, að nokkurt ríki hefði gert slíkt, og mér er ókunugt um að nokkur hafi fylgt í þau fótspor. Þessari lánveitingu átti að haga þannig, að Atlantshafsríkin skytu saman í nokkra fjárhæð handa íslend- ingum, svo að þeir fengi það fé, sem V-stjórnin taldi sig þurfa til þess að geta fleytt þjóðarbúinu Hennann áfram. í fyrstu munu nokkur ríki hafa tekið liðlega í þetta, en fleiri og fleiri gengu úr skaft- inu, svo að lokum voru það að eins tvö, sem inntu nokkuð af höndum, Bandaríkin og Þýzka- land. Reyndist þó töluverð tregða Framh. á bls. 14

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.