Morgunblaðið - 15.03.1959, Blaðsíða 24
V EÐRID
Suðvestan kaldi eða stinnings-
kaldi. Éljagangur.
62. tbl. — Sunnudagur 15. niarz 1959
Ræða Bjarna
Benediktssonar
______Sjá bls. 13_
Allvel horfir um út-
flutning á sementi
Sementsverksmiðja ríkisins sendi lægsta til-
boð um sementssölu til Sogsvirkjunarinnar
Sinfóníuhljómsveifin leik-
ur þrjú verk sem aldrei
hafa verið flutt hér áður
NÆSTKOMANDI þriðjudags-
kvöld kl. 8,30 heldur Sinfóníu-
hljómsveit Islands þriðju tón-
leika sína undir stjórn dr. Thors
Johnsons, og verða á þessum tón-
leikum eingöngu flutt verk, sem
aldrei hafa verið flutt hér áður.
Einleikari með hljómsveitinni
verður Gísli Magnússon píanó-
leikari.
Á efnisskránni verður fyrst
sinfónía í A-dúr, K 201 eftir Moz
art. Þá verður Concertino fyrir
píanó og hljómsveit eftir svissn-
esk-franska tónskáldið Arthur
Honegger. Eftir þetta frægasta
tónskáld Frakka á þessari öld
hefur aldrei verið flutt neitt hér
Sjúkrasanilags-
gjöld greidd niður
Ríkisstjórnin hefur ákveðið að
greiða niður sjúkrasamlagsið-
gjöld frá og með 1. marz sl. Nem.
ur niðurgreiðslan 13 kr. á mánuði
á hvern meðlim.
(Frétt frá ríkisstjórninni).
á landi, utan kórverkið Davíð
konungur, sem flutt var fyrir
nokkrum árum. Síðast á efnis-
skránni er svo svíta úr tónleikum
eftir Richard Strauss við sjónleik
Molieres Borgari gerist aðalsmað-
ur. Er þetta hið fyrsta af stærri
verkum Strauss, sem flutt er hér
á landi. Annars staðar eru verk
hans mikið flutt á hljómleikum.
Bílastöður bann-
aðar og nýjar
aðalbrautir
BÆJARRÁÐ samþykkti á fundi
sínu á föstudaginn, að fengnum
tillögum umferðarnefndar, tvenn
ar ráðstafanir til aukins umferð-
aröryggis. 1 fyrsta lagi er um að
ræða bann við bílastöðum í Suð-
urgötunni, beggja vegna götunn-
ar, frá Vonarstræti að Kirkju-
garðsstíg.
1 öðru lagi er samþykkt um að
Sundlaugavegur og Brúnavegur
verði gerðir að aðalbrautum.
fiustur við Sog
— og ú leiðinni
þunguð
f STÖÐVARHÚSI Efra Sogsvirkj
unarinnar er byrjað að setja nið-
ur vélar. Þýzkur vélvirki er kom-
inn vel á veg með fyrri vatns-
túrbinuna, af tveim, fyrir véla-
samstæður orkuversins. Mennirn-
Ir á efri myndinni vinna með hin
um þýzka vélvirkja og eru að
setja saman túrbínur. Áður en
mjög langt um líður verður byrj
að að setja seinni vatnstúrbínuna
niður, því allir vélahlutar til
þeirra eru komnir austur. Túr-
bínurnar eru smíðaðar í V-Þýzka
landi í verksmiðjum Mayers.
Ljósmyndari Mbl. mætti bíla-
lest frá Rafmagnsveitu Reykja-
víkur í Hveradölum s.l. fimmtu-
dag. Var hún á leið austur að
Efra Sogi með ýmislegt til virkj-
unarinnar, stórt og smátt. Þessi
stóri flutningabíll sem rak lest
ina var með háfermi og á köss-
unum stóð ASEA. í þeim eru
hlutar til háspennuvirkis hins
nýja orkuvers.
Stœkkun hifaveitukerfis-
ins samþykkf í bœjarráði
Á FUNDI bæjarráðs á föstudag-
inn, var lagt fram bréf borgar-
stjóra, þar sem m. a. er óskað til-
lagna um það í hvaða bæjar-
hverfum hefja skuli hitaveitu-
framkvæmdir og 1 hvaða röð. Á
fundinum voru lagðar fram til-
lögur hitaveitunefndar um þetta.
Er þar lagt til að kerfi Hlíða-
veitu verði stækkað til norðurs
og austurs, og gerð verði áætlun
um hitaveitukerfi í hluta Laugar
nesshverfis næst dælustöð við
Fúlutjörn.
Bæjarráð féllst á þessar tillög-
ur. —
Aðalfundur Blaða-
mannafélags ís-
lands I dag
AÐALFUNDUR Blaðamannafé-
lags fslands verðUir haldinn í dag
og hefst kl. 3 eftir hádegi í Naust
inu uppi.
Venjuleg aða'fundarstörf.
-------------------® Gunnar Helgason.
Gunnor Helgason, erindrekí, taiar
um verkuiýðsmól unnuð kvöld
ANNAÐ kvöld flytur Gunnar
Helgason, erindreki, 11. erindi
Stjórnmálaskóla Varðar. I erindi
sínu mun Gunnar ræða verka-
lýðsmálin, rekja sögu þeirra og
skýra starfshætti og skipulag
verkalýðssamtakanna og þýðingu
þeirra fyrir launþega og þjóðar-
heildina. Hann mun skýra það
hvernig heilbrigð verkalýðsbar-
átta miðast við að tryggja laun-
þegum réttan hlut þjóðartekna og
stuðla að aukningu þeirra með
uppbyggingu atvinnuvega og
bættri tækni til framleiðslu.
S. 1. föstudag flutti Svavar
Pálsson viðskipafræðingur, yfir
gripsmikið og fróðlegt erindi um
skattamál. Ræddi hann skatt-
teknisk atriði í upphafi máls síns,
en síðan aðallega um stefnuna í
skattamálum undanfarin ár og
gerði að lokum grein fyrir þeim
breytingum á skattalögum, sem
nauðsynlegt er að gera á næstu
árum. Að erindinu loknu svaraði
Svavar fyrirspurnum, er fram
komu.
Erindi Gunnars Helgasonar,
erindreka, er 2. erindi V. málefna
flokks, sem fjallar um ýmsa
þætti þjóðmála. Tvö erindi eru
eftir af þeim 13, sem flutt verða
á Stjórnmálaskólanum. N.k. mið-
vikudag mun Jón Júlíusson, hag-
fræðingur, flytja erindi um við-
skiptamál, en Þorvaldur Garðar
Kristjánsson, lögfræðingur og
form. Varðar, mun n.k. föstu-
dag flytja síðasta erindi skólans
og ræða félagsmál. ,k. sunnudag
verður svo kaffikvöld fyrir alla
þátttakendur Stjórnmálaskólans.
Erindi Gunnars Helgasonar
annað kvöld hefst kl. 8,30 í Val-
höll við Suðurgötu.
FYRIR nokkru var óskað eftir
tilboðum í sölu á 4000 tonnum af
sementi til framkvæmda við
hina nýju Sogsvirkjun, við Efra-
Sog. — Mörg tilboð bárust frá
erlendum sementsverksmiðjum,
svo og frá Sementsverksmiðju
ríkisins hér. — Hinn 23. febrúar
s.l. voru tilboðin opnuð, og reynd
ist þá tilboð Sementsverksmiðju
ríkisins lægst. — Mun hún því
selja Sogsvirkjuninni umrædd
4000 tonn af sementi.
★
í tilefni af þessu sneri Mbl. sér
í gær til dr. Jóns E. Vestdal,
framkvæmdastjóra sementsverk-
smiðjunnar, og spurði hann m.a.
um horfur á útflutningi á ís-
lenzku sementi. — Sagði dr. Jón,
að fulltrúi frá sementsverksmiðj
unni væri nú staddur í Bandaríkj
unum til að athuga þau mál. —
Kvað hann ekkert ákveðið enn
í þessu efni, en hins vegar kvað
hann horfa allvel um það að tak-
ast mætti að selja eitthvað af
frmleiðslu verksmiðjunnr til út-
flutnings. Einnig væru líkur til,
að varnarliðið á Keflavíkurflug-
velli keypti eitthvað af íslenzku
sementi, en ekkert mun þó full-
ráðið í því efni heldur.
Dr. Jón Vestdal kvað sements-
verksmiðjuna geta framleitt um
110 þús. tonn af sementi á ári,
og er það allmiklu meira en búizt
var við í upphafi, en gert var
ráð fyrir 75 þús. tonna fram-
leiðslu á ári. Notkunin innan-
lands var 90 þús. tonn á s.l. ári,
en gert mun ráð fyrir minni se-
mentsnotkun i ár, og ættu því að
vera til ráðstöfunar fyrir erlend-
an markað milli 20 og 30 þúsund
tonn.
Áframhaidandi
framkvæmdir við
verkamannahásið
Innflutningsskrifstofan hefur
með bréfi til bæjarráðs á föstu-
daginn tilkynnt bæjaryfirvöldun-
um, að veitt hafi verið leyfi til
áframhaldandi framkvæmda við
verkamannahúsið nýja við höfn-
ina. Er hér um að ræða 400.000
króna fjárfestingaleyfi fyrir ann-
arri hæð hússins.