Morgunblaðið - 15.03.1959, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 15.03.1959, Qupperneq 14
14 M O R C V H ll L A Ð 1 Ð Sunnudagur 15, marz 1959 — Ræða Bjarna Benediktssonar Framh. af bls 13 á því, að peningarnir væru inntir af höndum. >á var það, að Hermann Jón- asson fór ásamt Guðmundi í. Guð mundssyni á fund Atlantshafs- ráðsins suður í París. Hann hélt þar ræðu, sem aldrei hefur verið birt á íslandi. Fréttaritari Reut-' ers sendi hinn 18. desember frétta skeyti hingað til íslands, þar sem segir: „Forustumenn allra hinna fjórt án ríkjanna hafa á ýmsan hátt látið í ljós skoðanir sínar á mál- um, eins og-----dvöl erlends herliðs í löndum þeirra". Fréttaritarar spurðu því Her- mann Jónasson, hvort hann hefði haldið ræðu, og hvort hann vildi segja þeim höfuðefni hennar, eins og allir aðrir ráðherrar höfðu gert. Hermann Jónasson svaraði því þá svo: „Ég fer aftur heim til fslands með NATO-ræðu mína og verður hún þá birt. Ég vil ekkert segja um þær umræður, sem fram fóru um ýmsar tillögur á NATO-fund- inum“. Petta sagði Hermann Jónasscn suður í París, en þrátt. fyrir þá yfirlýsingu hefur NATO-ræðan aldrei verið birt á íslandi. Og mér er nær að halda, að jafnvel sumir ráðherrar Hermanns Jón- assonar hafi aldrei fengið að vita, hvað forsætisráðherrann þá sagði. En það er kunnugt annars staðar frá, að Hermann Jónasson lýsti þar yfir hollustu sinni við At- lantshafsbandalagið, og stuðningi við, að erlendur her yrði að vera áfram í landinu. Eysteinn játar Hitt er ljós, að „brauðið" gleymdist ekki, því að réttum 10 dögum eftir að Hermann Jónas- son flutti ræðuna, sem aldrei hef- Eysteinn ur fengizt birt á íslandi, þá var undirritaður nýr lánssamningur í Eandaríkjunum, sem veitti fs- landi 5 milljón dollara lán. Þá fyrst, eftir að Hermann Jónas- son var búinn að gefa yfirlýsingu sína um hollustu við Atlants- hafsbandalagið og stuðning við dvöl varnarliðsins á íslandi á fundi Atlantshafsráðsins, fengust Bandaríkjamenn til þess að inna af höndum sinn hiuta af samskota iáninu. Stjórnarliðar bafa alltaf öðru hverju reynt að mótmæla, að sam hengi væri á miJli dvalar varn- arliðsins hér og þessara lánveit- inga. En þó glopraðist upp úr Eysteini Jónssyni í útvarpsræðu, scm hann hélt um þessa lánveit- ingu m. a. þetta: „Vitaskuld njóta fslendingar við lántökur-----------góðs af þeim ásetningi þjóðanna í Atlantshafs- bandalaginu að efla samvinnU sína-------- Þarf þvi ekki frekar vitnanna við, þegar jafnvel Eysteinn Jóns- son treystist ekkj lengur eftir það, sem fyrir lá, til að neita st^ð’-^vndum í þessu máli. Ekki fækkað í fastavinnu á Keflavíkurflugvelli Það liggur því fyrir að varnar- liðið er hér ennþá, og við höfum fengið lánveitingar í sambandi við dvöl þess. Kommúnistar hæl- ast aftur á móti um yfir því, að nú vinni mun færri menn í þjón- ustu varnarliðsins en áður og til- færa því til styrktar m. a., að við höfum haft mun minni gjaldeyr- istekjur af Keflavíkurflugvelli á árinu 1957 og 1956. Því til and- svara er nóg að vitna til þess, sem Emil Jónsson, forsætisráð- herra, sagði i áramótagrein í Al- þýðublaðinu: „Loks má geta þess, að gjald- eyristekjur af vinnu fyrir varn- arliðið á Keflavikurflugvelli hafa orðið talsvert meiri en árið áð- ur“. Þ. e.: meiri á árinu 1958 en 1957. Þá verða menn einnig að spyrja: Hvort er eðiilegra, þegar stjórn er í slíkri fjárþröng, eins og V- stjórnin var, hvort er þá eðli- legra, að taka við því fé, sem hún þarf til þess að geta fleytt þjóðarbúinu, í formi lánveitinga gegn skuldbindingu um að rjúfa heit sitt um að reka liðið á braut, eða með því að vinna með eðli- legum hætti fyrir því fé, sem verið er á hnotskóg eftir? Varðandi vinnuafl hjá varnar- liðinu, þá er það að vísu rétt, að það mun hafa verið mest á ár- inu 1953. En ég minnist þess mjög vel, að þegar ég var utanrikis- ráðherra veturinn 1952—53 þá sætti ég stöðugri ásókn af hálfu tveggja Framsóknarráðherra og þó aðallega eins, Hermanns Jón- assonar, um að koma sem allra flestum kjósendum hans í vinnu á Keflavikurflugvelli, vegna þess að það voru einu ráðin, sem hann kunni kjósendum sínum til bjarg ar. Þeim mönnum, sem slika ásókn höfðu í frammi, ferst sann- arlega ekki að ásaka aðra fyrir, að þann tíma hafi verið meira vinnuafl á Keflavíkúrflugvelli en nú. En sérstaklega er eftirtektar- vert línurit, sem Lúðvík Jósefs- son birti í Þjóðviljanum 1. marz, og hann tók upp úr Fjármálatíð- indum. Af því er ljóst, að það hafa að vísu verið miklar sveifl- ur á þeim fjölda, sem vinna við framkvæmdir hjá varnarliðinu, en tala hinna, sem vinna þar statt og stöðugt í fastri þjónustu, hef- ur verið mjög svipuð, svo að ekki er munur á gerandi öll þessi ár. V-stjórnin synjaði engum framkvæmdum varnairliðsins Það er því einungis minnkun- in á verklegum framkvæmdu.n, sem hér kemur til álita. En þá er að spyrja um hitt: Hvernig stendur á því, að verklegar fram- kvæmdir varnarliðsins eru nú minni en þær voru? Hvernig stendur t. d. á því, að hætt var við byggingu landshafnar í Njarðvík og önnur slík mannvirki? Er bað vegna þess, að V-stjórnin neitaði Bandaríkjamönnum um þesscr framkvæmdir, eða er það vegna hins, að Bandaríkjamenn sjálfir hafi hætt við framkvæmdirnar? Ég spurðí utanríkisráðherra í fyrradag: Hefur Bandaríkjamönn um verið neitað um eina einus’u verklega íramkvæmd frá því að V-stjórnin tók við völdum? Hann svaraði: Nei. Þeim hefur ekki verið neitað um eina ein- ustu verklega framkvæmd sem þeir hafa farið fram á. Lúðvík segir hræðslu V-stjórnarinnar hafa ráðið Þá kem ég að hinum sérstaka þætti kommúnista í þessum mál- um. Hér um bil mánuði eftir að þeir hurfu úr ríkisstjórn, fluttu þeir tillögu til þingsályktunar um endurskoðun og uppsögn varnar- samningsins frá 1951. Enga slíka þingsályktun fluttu þeir allan þann tíma, sem þeir sjálfir voru í ríkisstjórn og voru því liklegri en nú til þess að ráða einhverju um meðferð þessara mála. Lúðvík ■ Lúðvik Jósefsson skrifaði 1. marz í Þjóðviljann grein til þess að skýra afskipti kommúnista af þessu máli og heitir greinin: „Hverjir hafa svikið í hersetu- málunum?" Ég hygg, að bezt sé, að rekja hlut kommúnista með tilvitnunum í þá grein. Hann segir: „Ástæðan til frestunarinnar var sú, að með hernaðarárás Breta og Frakka á Súez og óeirðunum, sem brutust út í Ungverjalandi í nóvember-mánuði, tókst hern- aðarsinnum og ýmsum aftur- haldsöflum í Reykjavík að þyrla upp slíku moldviðri blekkinga og æsa svo upp ýmsa sakleysingja, að óhugsandi var á meðan sú æs- ingaalda stóð yfir að koma tram endurskoðun á hernámssamning- unum við Bandaríkin, í þeim anda, sem Alþingi hafði ákveðið“. Hér segir Lúðvík Jósefsson, að það hafi alls ekki verið at- burðirnir í Súez eða í Ungverja- landi, sem réðu frestuninni, held- ur „æsingaaldan“ í Reykjavík, sem hafi gert „óhugsandi" að efna gefin loforð. Og hann útskýrir þetta nánar: „Þeir aðilar úr Framsóknar- og Alþýðuflokknum, sem lofað höfðu að vinna að því, að herinn færi úr landi, gáfust upp fyrir þessum æsingum afturhaldsins, sem skipulagði upphlaup hér og þar í bænum, braut rúður í hús- um, réðist á fólk og hótaði lim- lestingum". Þá höfum við skýringuna á því, af hverju varnarsamningn- um var eLlii sagt upp, eins og kempurnar höfðu lofað. Það var vegna þess að lýður hér í Reykja vík „skipulagði upphlaup hér og þar í bænum, braut rúður í hús- um, réðist á fólk og hótaði lim- lestingum"! Lúðvík Jósefsson segir að vísu: „Við Alþýðubandalagsmenn vorum reiðubúnir að samþykkja endurskoðun, sem tryggði það, að herinn færi, en það eitt nægði ekki, þegar samstarfsflokkar okkar vildu hið þveröfuga". Það voru sem sagt einungis samstarfsmennirnir, sem urðu svona hræddir, en alls ekki hinir hugprúðu, Lúðvík og Hannibal. Þögðu þangað til þeir fóru til Moskvu Og Lúðvík heldur áfram: „Þá tókum við Alþýðubanda- lagsmenn þann kostinn, sem við töldum skástan, að fresta um nokkra mánuði þeirri endurskoð un, sem Alþingi hafði ákveð- Hetjurnar ákváðu að biða þangað til hræðslan rynni af hinni göfugu fylkingu! „Við á- kváðum svo að freista fyrsta tækifæris, sem byðist, til þess að taka málið upp af nýju“. Hvað ætli biðin hafi nú orðið löng, þangað til þeir höfðu aftur sótt í sig kjark og fyrsta tækifærið kæmi, að dómi Lúðvíks?: „Alþýðubandalagið tók málið upp að nýju strax og tiltækilegt var. Þann 1. nóv. 1957 staðfesti Alþýðubandalagið þessa kröfu sína með bréfi til samstarfs- flokkanna“. Það var sem sagt í heilt ár, sem kempurnar biðu, þangað til þeir þorðu að hreyfa málinu á ný. En af hverju var það einmitt 1. nóvember, sem þeir fengu kjarkinn? Það var sömu daga •og tveir tignarmenn lögðu í austurveg, þeir Einar Olgeirsson og Hannibal Valdimarsson, til þess að sitja byltingarafmæli kommúnista austur í Kreml. Þeim hefur þá þótt það vissara að hafa með sér upp á vasann, að málið væri ekki alveg dautt, svo að þeir gætu sýnt sjálfum Krús- jeff „bevís“ upp á það, þegar þeir hittu hann í veizluglaumn- um, að þeir hefðu fengið kjark- inn á ný. „Árangutrinn lítíll“ Enn segir Lúðvík: „Þann 27. nóvember 1957 sendi Alþýðubandalagið samstarfs- flokkum sínum annað bréf um málið, þar sem ekkert svar hafði borizt við fyrra bréfinu. Þar tilkynnti Alþýðubandalag- ið, að það myndi birta almenn- ingi þessi bréfaskipti, svo allir gætu fylgzt með gangi málsins og krafðist enn framkvæmdar í málinu". Minna mátti ekki gagn gera. Þá höfðu þeir þó mannað sig upp í það að láta sér ekki nægja að skrifa eitt sendibréf heldur bæta þeir öðru við og áskilja sér rétt til að birta bæði til að sanna hetjuskap sinn. Síðan segir, að hinir hafi al- gerlega neitað að verða við þessu, og Alþýðuflokkurinn meira að segja verið „hortugur" í svari sínu. En þrátt fyrir hortugheit- in haggaðist ekki ró kommún- ista. Þeir létu málið liggja niðri, þangað til vorið 1958. Um samn- ingana um bjargráðin segir Lúð- vík svo: „I þessum samningum krafð- ist Alþýðubandalagið enn, að herstöðvamálið yrði tekið upp, til enn frekari undirstrikunar kaus Alþýðubandalagið mig og Finnboga Rút Valdimarsson til þess að ræða sérstaklega við forsætisráðherra um framkvæmd ir í þessu máli. Við ræddum ítarlega við for- sætisráðherra og settum fram kröfur okkar. Hann ræddi síðan við Framsókn og Alþýðuflokkinn. Árangur af þessum viðræðum varð litiH eins og jafnan áður“. Þögðu á stjórnarfundum í tvo ar Og við það létu kommúnistarn- ir sitja, þangað til, eins og Lúð- vík segir: „Þegar ríkisstjórnarfundir hóf- ust að nýju eftir sumarfrí, tók ég málið upp á ríkisstjórnar- fundi og krafðist þess að því yrði nú ekki lengur slegið á frest". Eftir grein Lúðvíks Jósefsson- ar sjálfs var það í fyrsta skipti í haust, sem kommúnistar hreyfðu þessu meginmáli sínu á fundi sjálfrar ríkisstjórnarinnar. Lúðvik segir: „Utanríkisráðherra Guðm. í. Guðmundsson lýsti því strax yf- ir á fundinum, að Alþýðuflokk- urinn myndi ekki fallast á að taka málið upp. Framsókn skaut sér á bak við þetta svar Guðmundar, en sagði ekkert ákveðið um afstöðu sína. Nokkru síðar, eða 8. nóvember, skrifuðum við ráðherrar Alþýðu bandalagsins samráðherrum okk- ar bréf um málið. f því sögðum við: „að við teldum að úr því yrði nú að fást skorið, hvort sam- starfsflokkar okkar í ríkisstjórn hugsuðu sér að standa við þetta atriði stjórnarsáttmálans eða ekki“. Við þessu bréfi okkar barst aldrei neitt svar“, segir Lúðvík. Frestuðu úrslitakostum fram yfir stjórnarslit Samt sat hann kyrr. Og þó, — því að í desember- byrjun hélt flokksstjórn Sósía- listaflokksins fund hér í Reykja- vík. Samkæmt frásögn Þjóðvilj- ans virðist fundurinn hafa byrjað 1. des. og honum lokið afaranótt 3. des., eða röskum sólarhring áður en V-stjórnin hrökklaðist frá. Þjóðviljinn sagði hinn 16. desember frá einni af þeim sam- þykktum, sem hefði verið gerð á þessum flokksstjórnarfundL Hún hljóðar svo: „Samþykkt Alþingis um upp- sögn herverndarsamningsins verði þegar í stað látin koma til framkvæmda. Flokksstjórn felur miðstjórn flokksins að ákveða, hvenær gera beri brottför hers- ins að úrslitaskilyrði um stjóra- arsamstarf". Þannig er þá þessi saga. Degi áður en V-stjórnin klofnar, að þvi, er Þjóðviljinn og kommún- istar blákalt halda fram, fyrir tilverknað Framsóknarflokksins, en ekki kommúnista, þá eru kommúnistar ekki komnir lengra í að fylgja eftir þessu máli, sem þeir segja, að hamingja og meira að segja líf íslenzku þjóð- arinnar sé undir komið, en svo að þeir fela flokksstjórn sinni að ákveða, hvenær gera beri brottför hersins að úrslitaskilyrði um stjórnarsamstarf! Engu mátti hætta til, í stjórninni varð að lafa á meðan nokkur kostur var. Aðvörun landsfundar reyndist rétt Af því, sem ég nú hefi rakið, er ljóst, að andstæðingar okkar í þessu máli hafa haldið þannig á því, að þeir eru sízt trausts verðir. Alþýðuflokkur og Fram- sóknarflokkur hafa að vísu ráðið því, að ekki var staðið við álykt- unina frá 28. marz 1956. En með því hafa þeir gengið á gefin heit. Kommúnistar eru þeim um þetta fyllilega samábyrgir. Það er Ijóst af þvi yfirliti, sem ég hefi gefið, að kommúnistar hafa alls ekki fylgt málinu eftir af neinni alvöru, heldur, þvert á móti, aldrei látið málið varða stjórn- arslitum, allan þann tíma, sem V-stjórnin stóð. Þeir hafa ætíð hugsað um það eitt, að nota mál- ið sem áróðursmál, en aldrei hirt um að firra sig ábyrgð á ríkj- andi ástandi með því einu, sem ráðherrar geta gert til þess, sem sé að segja: Ef ég fæ ekki minum vilja framgengt, þá læt ég af völdum. Nú er það okkur að visu ekki nóg, þó að andstæðingar okkar hafi staðíð sig illa í þessu máli. Því fer fjarri. Við hljótum að spyrja okkur sjálfa: Hefur stefna okkar reynzt vera rétt? Enginn vafi er á því, að sú að- vörun, sem siðasti landsfundur gaf í þessu efni og ég las upp áðan, hefur orði til orðs reynzt sönn. Atburðirnir hafa staðfest hana, svo sem frekast er hægt. Varnirnar náðu tilgangi sínum Aðalatriðið er það, þegar við lítum á gildi varnanna, að höfuð tilgangur þeirra hefur náðst Framh. á bls. 15.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.