Morgunblaðið - 17.03.1959, Side 2

Morgunblaðið - 17.03.1959, Side 2
2 MORGVlSm iTilfí Þriðjudagur 17. marz 1959 — Sœkjum fram Framh. af bls. 1. STÉTT MEÐ STÉTT Enn á ný vill Sjálfstæðisflokkurinn benda landsmcinnum ötinm á nauðsyn þess að bera sáttarorð milli stéttanna inn- byrðis og milli fólksins í sveit og við sjó. Þó að hver stétt og hver sveit vilji sín mál fram, verður sérhver íslendingur að liaida augunum opnum fyrir alþjóðarheill, sem ávallt verður að sitja í fyrirrúmi. Skilningur og samúð milli stétta og hér- aða er lífakkeri íslenzkri þjóð. Um leið og taka ber tillit til samtaka stéttanna og hafa við þau gott samstarf, verður úrslitavald um meðferð allra þjóðmála að vera í höndum handhafa ríkisvaldsins: Alþingis, stjórnar og dómstóla. SAMSTAÐA VESTRÆNNA ÞJÓÐA Sjálfstæðismenn leggja nú sem fyrr ríka áherzlu á sam- stöðu íslands og annarra vestrænna lýðræðisþjóða. Það er sjálfsagt, að íslendingar eigi vinsamleg skipti við allar þjóð- ir, en nánast verður samstarfið að vera við þær þjóðir, sem búa við lýðræðislega stjórnarhætti og standa trúan vörð um hugsjónir lýðfrelsis og mannréttinda. NÝ KJÖRDÆMASKIPUN fsland er að fornu og nýju lýðræðisland. En lýðræðið krefst þess, að löggjafarþingin sýni rétta mynd af vilja fólks- ins. Þar sem mjög skortir á, að svo sé hér, er það nú höfuð- nauðsyn að jafna kosningaréttinn. Ný kjördæmaskipun þarf að komast á, sem gerir það allt í senn, AÐ ganga til móts við þarfir þéttbýlisins, AÐ tryggja strjálbýlinu í heild fleiri fulltrúa en áður, AÐ tryggja rétt- læti og jöfnuð milli stjórnmálaflokka í landinu, AÐ veita meirihlutanum hans óumdeilda rétt, til að ráða, og AÐ tryggja um leið viss réttindi minnihlutans, en það er einn meginkostur hlutfallskosninga. Til enn frekari tryggingar þessum umbótum í lýðræðis- átt þarf við fyrsta tækifæri að ákveða í stjórnarskránni, að dómstólar landsins, en ekki þingið sjálft, skuli dæma um lögmæti alþingiskosninga. SÆKJUM FRAM TIL VAXANDI MENNINGAR fslendingar! Stöndum saman um þau stefnumál, sem hér hefur verið lýst, og þau framfara- og menningarmál önnur, sem lands- fundurinn hefur gert ályktanir um. En fyrst og fremst setja Sjálfstæðismenn traust sitt á æsku þessa lands, sem með góðum gáfum, djörfung og dug mun sækja fram til vaxandi velmegunar og menningar með frelsi og framtak að Ieiðar- stjörnum. Frú Ragnhildur Helgadóttir, alþingismaður, flytur ræðu á landsfundi Sjálfstæðisflokksins. — Vinstra megin á myndinni eru Ólafur Thors, formaður Sjálfstæðisflokksins, og fröken María Maack, sem var fundarstjóri á þessum fundi. Til hægri á myndinni eru ritarar fundarins, frú Auður Auðuns, forseti bæjarstjórnar Reykjavíkur, og frú Jakobína Mathiesen, formaður Sjálf- stæðiskvennafélagsins Vorboðinn í Hafnarfirði. Framsóknarmenn hættu v/ð frekara málbóf á búnaðarþingi Þinginu var slitið FUNDUR búnaðarþings í gær var styttri en búizt hafði verið við, því kjördæmamálið var eina mál- ið á dagskrá auk kosninga og Frá landsfundi Sjálfstæðisflokksins. Héru eru nokkrir Austfirðinganna, sem sátu landsfundinn. Sitjandi frá vinstri: Helgi Gíslason, Helgafelli, Sveinn Jónsson, Egilsstöðum, Sveinn Guðmunds- son, Seyðisfirði, og Júlíus Jónsson frá Vífilsstöðum. Að baki þeim standa, talið frá vinstri: Grétar Brynjólfsson, Skipalæk, Ólafur Hallgrímsson, Droplaugarstöðum, Jónas Péturss., Skriðuklaustri, og Hreinn Kristinsson, Bakkagerði. Dagskrá A/þingis 1 DAG eru boðaðir fundir i báðum deildum Aiþingis. Á dagskrá efri deildar er eitt mál: Vöruhapp- drætti Sambands íslenzkra berkla- sjúklinga, frv. — 2. umr. Eitt mál er á dagskrá neðri deildar: Hafnargerðir og lending arbætur, frv. — 1. umr. Ef deild- in leyfir. Orðsending til meðlima tulltrúa- ráðs Sjálfstæðisfélaganna i Reykjavik ENN eiga allmargir fulltrúar eftir að gera skil á fjáröflunar- gögnunum, sem þeim hafa verið send. Herðið nú sóknina og gerið skil sem allra fyrst í skrifstofuna í Sjálfstæðishús- inu eða Valhöll. Fjáröflunarnefnd. gær á mælendaskrá frá fjórir menn fyrra fundi. Svo fór þó fyrir tilstuðlan for- seta þingsins að ræðumcnnirnir, sem á mælendaskrá vqru, og allir eru Framsóknarmenn, féllu frá orðinu og urðu umræður því engar. Tillagan um kjördæmamálið var síðan samþykkt með 16 at- kvæðum gegn 6, en tveir Sjálf- stæðismenn voru fjarverandi. Þá fóru fram kosningar. Var kjörin stjórn Búnaðarfélags ís- lands til 4 ára. Skipa hana þeir Þorsteinn Sigurðsson, Pétur Otte- sen, Gunnar Þórðarson. Vara- menn: Kristján Karlsson, Hólum, Jón Guðmundsson, Hvítárbakka Rúml. /0,000 kr. i peningum stolið AÐFARANÓTT laugardagsins var meiriháttar peningaþjófnað- ur hér í bænum, er inn- brot var framið í húsgagnavinnu stofu Birgis Ágústssonar, Braut- arholti 6. Var þar stolið peninga- kassa, sem í voru rúmlega 10.600 krónur í peningum, sparimerki fyrir 3000 krónur og bankaávís- un sem hljóðaði á 3000 kr. Peningakassinn var geymdur í skrifborðskúffu, en þjófurinn komst inn í húsið á auðveldan hátt, því fyrir útidyrum var bráðabirgðahurð, sem þjófurinn sprengdi upp. og Ásgeir Bjarnason, Ásgarði. Þá voru kjörnir endurskoðend- ur reikninga B. í. til 4 ára þeir Gunnar Guðbjartsson, Hjarðar- felli. Varamaður Ingimundur Ás- geirsson, Hóli. Kjörinn var einn maður í hús- byggingarnefnd B. I. Ólafur Bjarnason, Brautarhdlti. Kjörinn var einn maður í Vélanefnd ríkis- ins: Björn Bjarnason jarðræktar- ráðunautur. Þá var kosin útvarps fræðslunefnd B. í. þeir Agnar Guðnason og Bjarni Arason ráðu- nautar. Að síðustu voru kosnir tveir menn í nefnd til að endurskoða lög B. í. (ásamt Steingrími Stein- þórssyni, búnaðarmálastjóra) þeir Garðar Halldórsson, Rifkeisstöð- um og Pétur Ottesen. Síðan fóru fram þingslit og er þar með lokið allsérstæðu búnað- arþingi. íSBS! Sigurður Bjarnason Kynningtukvöld SUS í Vnlhöll I KVÖLD efnir SUS tii kynningarkvölds með ungum Sjálfstæðis- mönnum utan af landi, sem staddir eru í Reykjavík annað hvort um stundar sakir eða um lengri tíma. — Dagskrá kvöldsins verð- ur sem hér segir: 1. Setning: Geir Hallgrimsson, formaður SUS 2. Ávarp: Sigurður Bjarnason, alþingismaður. 3. Upplestur: Ævar R. Kvaran, leikari. 4. Kvikmyndasýning. 5. Kaffidrykkja. A sl. vetri efndi SUS til hliðstæðs kynningarkvölds, og tókst það mjög vel. SUS biður unga Sjálfstæðismenn utan af landi, sem staddir eni í bænum, að gera sér þá ánægju að sækja kynningarkvöld þetta, sem haldið verður í Valhöll við Suðurgötu, og hefst kl. 20,30.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.