Morgunblaðið - 17.03.1959, Síða 3
Þriðjudagur 17. marz 1959
MORGVNBLAÐ1Ð
3
Endurkjörið í miðstjórn
Sjálfstœðisflokksins á
landsfundinum
Á LANDSFUNDI Sjálfstæðis-
flokksins á sunnudaginn voru
kjörnir fímm menn í miðstjórn
flokksins. Úr miðstjórninni áttu
að ganga þeir Ólafur Thors,
Bjarna Benediktsson, Gunnar
Thoroddsen, Pétur Ottesen og
Jóhann í>. Jósefsson, en þeir voru
allir endurkjörnir.
Miðstjórn Sjálfstæðisflokksins
er þannig skipuð, að landsfund-
urinn kýs fimm menn, flokksráð
þrjá, en auk þess eru sjálfkjörn-
ir í miðstjórnina, formaður
flokksins, formaður SUS, for-
maður Landsambands Sjálfstæð-
iskvenna og formaður verkalýðs-
málaráðs flokksins.
Þannig eiga nú sæti í miðstjórn
flokksins tólf menn.
Uppkast að friðarsamn-
ingi við Þýzkaland
SAMKVÆMT frétt frá frönsku
fréttastofunni AFP, var tilkynnt
í París í gærkvöldi, að Bandaríkja
stjórn hafi sent stjórnum Bret-
lands, Frakklands og Vestur-
Þýzkalands uppkast að friðarsamn
ingum við Þýzkaland. Það er nú
til athugunar hjá þessum þremur
ríkisstjórnum og fulltrúum fjór-
veldanna, sem haf-á setið á fund-
um í Panis undanfarnar vikur.
Ekki er enn ákveðið, hvort upp-
kastið verður lagt fram á vænt-
anlegum fundi austurs og vesturs.
Samkvæmt fréttum frá Wash-
ington er gert ráð fyrir því í upp-
k-astinu, að Austur- og Vestur-
Þýzkaland stofni með sér sam-
bandsríki og herir Sovétríikjanna
og Vesturveldanna verði smám
samaji fluttir burt úr Þýzkalandi.
Auk þess er gert ráð fyrir því,
að fækkað verði í her Austur-
og Vestur-Þýzkalands og löndin
Samnmgsuppkast
BRÚSSEL, 16. marz. — Benelux-
löndin hafa gert uppkast að samn
ingi um fríverzlun 17 ríkja í Ev-
rópu. Þetta var tilkynnt hér í
borg í dag. Samningsuppkastið
mun nú vera í athugun hjá við-
komandi ríkisstjórnum.
Grivas til
Grikklands
gangi úr Varsjár- og Atlantshafs
bandalaginu eftir ákveðinn tíma
frá því friðarsamningur hefur
verið gerður.
-«>
Gcir Hallgrímsson, formaður Sambands ungra Sjálfstæðis-
manna, óskar formanni Sjálfstæðisflokksins til hamingju með
£5 ára flokksformennsku. (Ljósm.: V. Sigurgeirsson)
Nokkrir Skagfirðingar á landsfundi Sjálfstæðisflokksins. Frá vinstri: Jón Sigurðsson, alþingis-
maður, Reynistað, Guðjón Sigurðsson, Sauðárkróki, Jón Björnsson, Hellulandi, Gísli Jónsson,
Víðivöllum, Páll Þórðarson, Kári Jónsson og Árni Þorbjörnsson, allir frá Sauðárkróki.
Fullur fjandskapur miili brezkra
togaraeigenda og fiskkaupm.
Nicosíu, 16. marz.
FLUGVÉL frá gríska flug-
hernum kemur til Kýpur á
morgun, þriðjudag, og sækir
Grivas, foringja EOKA-leyni-
félagsins og nokkra af helztu
samstarfsmönnum hans. Verð
ur flogið með menn þessa til
Grikklands, þar sem þeir
munu dveljast, þangað til
lýðveldi hefur verið stofnað
á Kýpur.
Kaupmenn stofna félag til að auka sem
mest innflutning á fiski ur erlendum
togurum
STORMUR er nú í aðsigi í fiski-
höfnunum við Humber-fljót seg-
ir brezka blaðið Daily Telegraph.
Fyrsta stormskýið, sem sést á
lofti, er þó lítið. Það er samn-
ingur, sem togaraeigendur við
Humber-fljót, og tvær fiskverk-
unarstöðvar hafa undiritað um
fastaverð á fiski.
í þessum samningi er kveðið
á um það, að togaraeigendur
selji þessum fiskverkunarstöðv-
um 126 þúsund kitt á tímabilinu
apríl-júní, á föstu verði. 40% af
þessum fiski á að koma frá Grims
by og 60% frá Hull.
Daily Telegraph segir, að þessi
einfaldi samningur boði hrun nú-
vera'ndi fisksöluskipulags, hins
opna markaðar og séu fiskikaup-
„ViÖ hengjum Kassem
og kommúnista í ítak'
LUNDÚNUM, 16. marz. — í dag voru farnar geysifjölmenn-
ar kröfugöngur í Kaíró til að mótmæla gerðum Kassem-
stjórnarinnar í írak og minnast þeirra, sem féllu í uppreisn-
inni í Mosul á dögunum. Mikill hiti var í mönnum og kröfu-
spjöld, sem borin voru í göngunni, voru máluð vígorðum
eins og „Við munum hengja Kossem og kommúnista í írak“.
Grafa undan Nasser
Abdel Hakim hershöfðingi,
yfirmaður hers Arabíska sam-
bandslýðveldisins, sagði í ræðu,
sem hann þrumaði yfir lýðnum,
að kommúnistar í írak mundu
hljóta sömu örlög og heimsvelda-
sinnar. Hann sagði einnig, að
kommúnistar reyndu að grafa
undan lýðveldinu í Sýrlandi og
Egyptalandi með aðstoð Kass-
ems, sem hefði horn í síðu Arab-
íska sambandslýðveldisins.
Krúsjeff, forsætisráðherra Sov-
étríkjanna, hélt ræðu í dag, þegar
undirritaðir voru samningar í
Moskvu milli íraks og Sovétríkj-
anna um 140 millj. rúblna lán til
íraks og sagði, að Nasser gerði nú
tilraun til að innlima írak í ríki
I sitt. Þá sagði Krúsjeff einnig, að
' Nasser talaði um kommúnista
eins og heimsveldasinnar gerðu.
— En það kom okkur ekki á
óvart, bætti hann við, við vissum
um andstöðu hans gegn kommún-
ismanum.
Ræða Krúsjeffs var í mildari
tón en margir bjuggust við eftir
árásir Nassers á kommúnista að
undanförnu og hann lauk henni
með því að skora á stjórnir íraks
og Arabíska sambandslýðveldis-
ins, að slíðra sverðin, svo að
heimsveldasinnar græddu ekki á
deilunni.
menn í Hull og Grimsby æfir út
í togaramenn fyrir það að ætla
að taka upp nýja verzlunarhætti
þar sem fiskurinn gengur á föstu
verði í stað þess að fara á uppboð
þar sem markaðsverðið ákvarð-
ast hverju sinni af framboði og
eftirspurn.
Segir blaðið að fiskikaupmenn
í Grimsby, 430 að tölu, séu nú að
undirbúa gagnráðstafanir. Eru
þeir að stofna félag með sér, sem
á að hafa það hlutverk að stór-
auka innflutning fisks frá öðrum
löndum. Segir Daily Telegráph,
að fiskikaupmenn í Grimsby æski
þess nú, að íslendingar landi sem
allra mestum fiski þar í höfninni,
til að bæta hinum frjálsa mark-
aði upp það fiskmagn, sem tog-
araeigendur hafa tekið af hon-
um.
Fiskikaupmenn bæði í Hull og
Grimsby hafa lýst því yfir, að
þeir muni verja frjálsa markað-
inn með öllum tiltækum ráðum.
Komið hefur til orða að neita
yfirhöfuð að kaupa fisk af brezk
um togurum, en frá því horfið
vegna þess, að það myndi valda
brezkum sjómönnum vandræð-
um, sem ekki eiga sök á aðgerð-
um togaraeigenda.
Kaupmennirnir saka togara-
eigendur um það, að eftir samn-
inginn við fiskverkunarstöðvarn
ar geti þeir ekki fullnægt eftir-
spurninni á markaðnum. Benda
þeir á það, að jafnvel áður en
samningur ’þessi var gerður hafi
40% af fiski á markaðnum í
Grimsby verið innfluttur af er-
lendum togurum. Nú muni á-
standið verða enn uggvænlegra.
STAKSTEIMAR
Lúðvík hreyfði ekki
grunnlínurnar
Lúðvík Jósefsson ritar langa
grein í Þjóðviljann sl. laugardag
til að svara upplýsingum Sig-
urðar Bjarnasonar um tilraunir
Sjálfstæðismanna til þess að fá
grunnlínum fiskveiðitakmark-
anna breytt á sl. vori. Ekkert
nýtt kemur fram í þessari grein
Lúðvíks annað en það, að hann
viðurkennir nú að Sjálfstæðis-
flokkurinn hafi viljað breyta
grunnlínunum. Hann sjálfur,
sjávarútvegsmálaráðherrann,
Lúðvík Jósefsson, hafi hins veg-
ar ekki talið sér fært að taka
tillit til vilja Sjálfstæðismanna í
þessum efnum.
Um þetta kemst Lúðvík m. a.
að orði á þessa leið:
„Sjálfstæðisflokkurinn flutti
aldrei neina tillögu um breyt-
ingar. Hann masaði um þörf á
grunnlínubreytingum almennt án
þess að vilja taka afstöðu til fyr-
irliggjandi tillögu“.
Undanfarið hefur Þjóðviljinn
haldið því fram af miklu offorsi,
að fulltrúi Sjálfstæðisflokksins
hafi verið hreinlega andvígur öll-
um grunnlínubreytingum. Nú
viðurkennir sjálfur Lúðvík þó að
Sjálfstæðisflokkurinn hafi „mas-
að um þörf á grunnlínubreyt-
ingum“!I
Hann hafði valdið
Sannleikurinn er auðvitað sá,
að fulltrúi Sjálfstæðisflokksins í
landhelgisnefndinni flutti tillögu
um breytingu á grunnlínum
löngu áður en sjávarútvegsmála-
ráðherra vinstri stjórnarinnar
minntist á slíkar breytingar. En
vinstri stjórnin og sjávarútvegs-
málaráðherra hennar höfðu þá
enga afstöðu tekið til þess máls.
Niðurstaðan varð líka sú, að
Lúðvík Jósefsson gaf hina nýju
friðunarreglugerð út án þess að
nokkur breyíing væri þar gerð á
grunnlínum. Hann hafði valdið
til þess að framkvæma slíkar
breytingar. En hann notaði það
ekki. Það talar gleggstu máli um
það, hverjir bera ábyrgð á því
að grunnlínur voru ekki réttar
á sl. vori, eins og Sjálfstæðis-
menn lögðu til. En þeir voru í
minnihluta og stjórnarandstöðu
og höfðu þess vegna enga að-
stöðu til þess að knýja tillögur
sínar fram. Þetta skilur allur al-
menningur. Langhundar Þjóð-
viljans og Lúðvíks um áhuga
kommúnista fyrir grunnlínu-
breytingum eru þess vegna blað-
ur eitt og gersamlega út í hött.
Uppgjör við Framsókn
Alþýðublaðið birtir sl. laugar-
dag athyglisvert uppgjör við
Framsóknarflokkinn. Verður það
I ekki rakið hér að sinni. En nið-
urstöður þess eru m. a. þess-
ar:
„Formaður Framsóknarflokks-
i ins, Hermann Jónasson, baðst
lausnar fyrir vinstri stjórnina án
þess að ráðgast um það við AI-
þýðuflokkinn.
Framsóknarflokkurinn reyndi
að koma kommúnistum aftur i
stjórn en neitaði samvinnu við
Alþýðuflokkinn um tvö höfuð-
atriði, sem viastri stjórnin skildi
eftir óleyst: Nýjar leiðir í efna-
hagsmálum og lausn kjördæma-
málsins".
„Framsóknarflokkurinn fórn-
aði samstöðunni við Alþýðu-
flokkinn til að daðra við komm-
únista með þeim árangri að hann
er nú einangraður og býr við
minnkandi áhrif.“
Þetta sagði Alþýðublaðið sL
laugardag.