Morgunblaðið - 17.03.1959, Síða 20
Einróma samþykkt Landsfundar Sjálfstæðisflokksiris um kjórdæmamálið:
Landinu verði skipt ■ stór kjör-
dæmi með hlutfallskosningu
Eryt gi * fnvægi í byggð landsins og*
ræðislegt jafnrétti
Eiosningarétlurinn verði
sem jafnaslur miðað við
sérkenni hins íslenzka
þjéðféSags
HÉR FER á eftir ályktun landsfundar Sjálfstæðis/lokksins
uni kjördæmamálið. Var hún samþykkt með samhljóða
atkvæðum hins mikla fjölda fundarmanna á sunnudaginn.
Landsfundur Sjálfstæ ðisf lokksins lýsir eindregnum
stuðningi sínum við þá ákvörðun þingflokks og flokksráðs
Sjálfstæðismanna, að reynt sé til hins ýtrasta að fá lögfest
á Alþingi, er nú situr, breytingu á kjördæmaskipun lands-
ins, er tryggi, að Alþingi verði skipað í slíku samræmi við
þjóðarviljann, að festa í þjóðmálum geti náðst.
JAFNVÆGI í BYGGÐ LANDSINS
Landsfundurinn telur, að stjórnskipun ríkisins beri að
míða við, að tryggja jafnvægi í byggð landsins og þess vegna
sé m.a. rétt, að nauðsynlegar leiðréttingar á kjördæmaskipun-
inni fækki ekki þingmönnum strjálbýlisins í heild frá því,
sem verið hefur. Telur landsfundurinn að velja beri þá leið,
er í senn tryggi hagsmuni strjálbýlisins og lýðræðislega
skipan Alþingis, m. ö. o., að kosningarétturinn skuli vera
sem jafnastur miðað við sérkenni hins íslenzka þjóðfélags.
STÓR KJÖRDÆMI OG HLUTFALLSKOSNINGAR
Til þess að ná framangreindu marki telur landsfundur-
inn heillavænlegast, að landinu sé skipt í nokkur stór kjör-
dæmi, eins og þingflokkurinn hefur ráðgert, með 5—7 þing-
mönnum í hverju og minnst 12 í Reykjavík og alls staðar
kosið hlutfallskosningu og uppbótarþingsæti til jöfnunar
milli flokka.
Landsfundurinn varar alvarlega við þeirri geigvænlegu
hættu fyrir lýðræði og festu í íslenzkum stjórnmálum, sem
af því gæti leitt, ef ekki fengist leiðrétt hið herfilega mis-
xétti, sem ríkt hefur í kjördæmaskipun og kosningalöggjöf.
HEITIR Á ALLA ÍSLENDINGA
Fyrir því- skorar landsfundurinn á Alþingi að samþykkja
(afarlaust breytingar á kjördæmaskipuninni, eins og að
framan greinir, og heitir á alla þegna þjóðfélagsins að varð-
veita og efla lýðræði og þingræði í landinu með því að veita
málinu eindreginn stuðning.
Sjálfstæðiskonur fjölmenntu á landsfund Sjálfstæðisflokksins. Þessi mynd er tekin á aðalfundt
Landssambands Sjálfstæðiskvenna, sem haldinn var í gærdag.
Stjórn I.andssambands Sjálfstæðiskvenna. Fremri röð frá vinstri: María Maack, Ilelga Marteins-
dóttir, Auður Auðuns, Kristín Sigurðardóttir, Jakobína Mathiesen, Ásta Guðjónsdóttir. ______ Aftari
röð: Ólöf Benediktsdóttir, Guðrún Kristjánsdóttir, Soffía Ólafsdóttir, Soffía Sigurðardóttir og
Lára Sigurbjörnsdóttir. Á myndina vantar Vigdísi Jakobsdóttur, Keflavík.
Nokkrar konur a landsfundinum. Sitjandi fra vinstri: Guðrún Flosadóttir, ísafirði, Þórunn Sig-
urðardóttir, Patreksfirði, Ingibjörg Jónsdóttir, Akureyri, og Kristbjörg Olsen, Patreksfirði. ___
Standandi frá vinstri: Ragnhildur Helgadóttir, Reykjavík, Nanna Guðmundsdóttir, Patreksfirði,
Guðrún Benediktsdóttir, Reykjavík, Sigríður Salvarsdóttir, N-lsafjarðarsýsIu og Iðunn Kiríks-
dóttir, ísafirði.
Aðolfundur Landsombands Sjúlf-
stæðiskvennn vnr hnldinn í gær
í GÆR var haldinn í Sjálfstæðis-
húsinu aðalfundur Landssam-
bands Sjálfstæðiskvenna. Var
rætt um starfsemi sambandsins á
íundinum og kom fram mikill
áhugi að styrkja sambandið sem
bezt. Félög innan sambandsins
eru nú níu og var rætt um stofnun
fleiri félaga. Formenn félaganna
úti á landi skýrðu frá starfsemi
félaga sinna og kom fram að
starfsemin er víða mjög þrótt-
mikil.
Stjórn Landssambands Sjálf-
stæðiskvenna var endurkjörin, en
hana skipa þessar konur: Kristín
Sigurðardóttir, formaður. María
Maack, varaformaður, Ólöf Bene-
diktsdóttir, ritari, Ásta Guðjóns-
dóttir, gjaldkeri, Auður Auðuns,
Helga Marteinsdóttir, Vigdis
Jakobsdóttir, Keflavík, Jakobína
Mathiesen, Hafnarfirði, og Guð-
rún Kristjánsdóttir, Kópavogi.
Varastjórn skipa Soffía Ólafs-
dóttir, Soffía Sigurðardóitir,
Hafnarfirði, og Lára Sigurbjörns-
dóttir. Endurskoðendur eru Ingi-
björg Ögmundsdóttir, Erla Axels-
dóttir og Elín Þorkelsdóttir.
Frestað
að draga
SKRIFSTOFA Sjálfstæðisflokks-
ins hefur beðið Mbl. að geta þess,
að þar sem fullnaðarskil frá um-
boðsmönnum happdrættisins eru
enn ókomin, hefur verið ákveðið
að drætti skuli frestað í happ-
drættinu þar til miðvikudaginn
25. þ.m.