Morgunblaðið - 22.03.1959, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ
Sunnudagur 22. marz Í959
Þing Æskulýðsráðs
Islands haldið um helgina
I. ÞING Æskulýðsráðs íslands
er haldið um þessa helgi í skrif-
stofu ráðsins að Grundarstíg 2.
Til þingsétu hafa þrir kosnir full-
trúar frá hverju sambandi inn-
an ÆRÍ rétt en þau eru: Banda-
lag íslenzkra farfugla, íslenzkir
Ungtemplarar, íþróttasamband Is
lands, Samband bindindisfélaga í
skólum, Samband ungra Fram-
sóknarmanna, Samband ungra
Sjálfstæðismanna, Stúdentaráð
Háskóla íslands, Ungmennafélag
íslands, Æskulýðsfylkingin —
Samband ungra sósíalista.
Æskulýðsráð íslands var stofn-
að hinn 18. júní 1958 af 9 sam-
böndum en íþróttasamband ís-
lands hefur gengið í ráðið síðan.
Fyrsta stjórn ráðsins var kosin
8. júlí 1958 og skipa hana: Júlíus
J. Daníelsson, formaður, Bjarni
Beinteinsson, ritari, Magnús Ósk-
arsson, gjaldkeri, séra Árelíus
Níelsson og Hörður Gunnarsson,
meðstjórnendur.
I Æskulýðsráði Islands eru nú
öll æskulýðssamtök í landinu, að
undanskildum tveim, og kemur
það fram innanlands og utan
sem sameinaður aðili íslenzks
æskulýðs. Þátttaka í ÆRÍ hefur
engin áhrif á innanfélagsstarf-
semi hlutaðeigandi sambands.
Leiðréfting
ÞAU mistök urðu í gær er ritað
var undir mynd af landbúnaðar-
nefnd landsfundar Sjálfstæðis-
flokksins að skiptist um nöfn á
tveimur fulltrúum í nefndinni.
Stóð undir myndinni, að maður-
inn lengst til hægri í aftari röð
væri Sveinn Guðmundsson, Mið-
húsum, Barðastrandasýslu, en
það er Jón Sigurðsson, Skolla-
gróf, Hrunamannahreppi, Árnes-
sýslu, Svein Guðmundsson vant-
aði á myndina ásamt fleiri full-
trúum nefndarinnar.
Mbl. biður hlutaðeigandi vel-
virðingar á þessum leiðu mistök
um.
Bæjarstjórn
kýs fuiltrúa á }>ing
Sambands sveitar-
félaga
Á BÆJARSTJÓRNARFUNDI ?!.
fimmtudag voru kosnir fulltrúar
á landsþing Sambands ísl. sveit-
arfélaga. Kosnir voru 9 aðalfull-
trúar og .'afnmargir til vara. Aðai
menn voru kosnir:
Gunnar Thoroddsen, Auður
Auðuns, Geir Hallgrimsson, Guð-
mundur Vigfússon, Guðmunúur
H. Guðmundsson, Magnús Ást-
marsson, Tómas Jónsson, Guð-
mundur J. Guðmundsson og
Gunnlaugur Pétursson.
Varamenn voru kjörnir: Gróa
Pétursdóttir, Einar Thoroddsen,
Björgvin Fredriksen, Alfreð
Gíslason, Magnús Jóhannesson,
Þorvaldur Garðar Kristjánsson,
Óskar Hallgrímsson, Ingi R.
Helgason og Páll Líndal.
Um þessar mundir er ráðið að
opna upplýsinga- og fyrirgreiðslu
skrifstofu að Grundarstíg 2 í
Reykjavík og mun sérstakur
starfsmaður annast umsjá henn-
ar. Skrifstofan mun hafa milli-
göngu fyrir innlenda og erlenda
aðila við meðlimi ÆRÍ og eins
gagnvart erlendum félögum eða
félagasamtökum fyrir hönd ein-
staklinga, félaga og annarra sam-
taka hér á landi, er þess óska.
Reynt mun verða að veita ís-
lenzkum æskulýðssamtökum að
öðru leyti alla þá þjónustu, sem
tök eru á.
Á vegum Æskulýðsráðs Islands
eru stjórnmáladeilur, trúmála-
deilur, svo og samþykktir og á-
skoranir um þau mál ekki leyfð-
ar. Samtökin eiga að starfa í anda
mannréttindaskrár Sameinuðu
þjóðanna og vilja hafa vinsam-
leg samskipti við æskulýðssam-
tök, hvar sem er í heiminum.
ÆRÍ gekkst fyrir námskeiði
um menningar- og félagsmál á
síðastliðnu hausti fyrir forystu-
menn æskulýðsfélaga og mun
kappkosta áð halda slíkri starf-
semi áfram.
Á liðnu sumri æskti Æskulýðs-
ráð íslands inntöku í WAY,
World Assembly of Youth, ann-
ars tveggja alþjóða æskulýðssam-
taka er starfa í heiminum, og
var tekið í samtökin á þingi þess
í New Dehli á Indlandi, er ÆRÍ
átti fulltrúa á.
Samstarf innan Æskulýðsráðs
Islands með fulltrúum hinna
ýmsu sambanda er berjast undir
margvíslegustu merkjum hefur
verið með ágætum.
r
Anægjuleg
kvöldvaka
Á FÖSTUDAGSKVÖLDIÐ fór
fram kvöldvaka Skógræktarfé-
lags Reykjavíkur í Tjarnarkaffi,
og var hún mjög vel sótt.
Skemmtu menn sér hið
bezta, en meðal þess er til
skemmtunar var, var erindi í
máli og myndum, sem Hákon
Bjarnason skógræktarstjóri
flutti. Voru það myndir frá ýms-
um skóglendum og til frekari
skýringar sagði Hákon kvöld-
vökugestum á mjög skemmtileg-
an hátt frá því sem fyrir augun
ba á tjaldinu. Þá skemmti Ómar
Ragnarsson nemandi í Mennta-
skólanum með gamanvísnasöng.
Síðan var dans stiginn fram á
nótt.
<& Sigfús Halldórsson, listmálari.
Sigfós Halldórsson opnar mól-
verknsýningn í Eyjnm um pósknnn
SIGFÚS Halldórsson, listmálari,
opnar málverkasýningu í Vest-
mannaeyjum nú í byrjun páska-
vikunnar og verður hún opin um
páskana. Á sýningu þessari verða
42 myndir. Eru það vatnslita-
myndir, pastel- og rauðkrítar-
myndir, allar málaðar í Vest-
mannaeyjum á síðastliðnu árL
Sýningin verður til húsa í Akoges
húsinu í Vestmannaeyjum.
Þetta er þriðja sjálfstæða sýn-
ing Sigfúsar Halldórssonar, en áð-
ur hefur hann haldið sýningar í
Reykjavík og Keflavík. Þá hef-
ur hann tekið þátt í fjórum sam-
sýningum, í Reykjavík, Hafnar-
firði og á AkranesL
Smíðar nú 140 farþega-
fsotur — byrjaði með 600 $
Konur geta sér gott orð í DougSas-
verksmiðjunni
LOS ANGELES. — Um það bil
sjötti hlutinn af þeim 6000 iðn
verkamönnum í Douglasverk-
smiðjunum, sem smíða nýju þot-
urnar (DC-8) eru konur. I sam-
anburði við það, sem annars stað
ar gerist í Bandaríkjunum, er
þetta mjög há hlutfallstala.
Konunar eru fleiri í sumum
starfsgreinum í verksmiðjunni,
en öðrum. Á þetta einkum við, þar
sem hávaði er mjög mikill, og
virðist svo sem konur þoli háv-
aða betur en karlmenn. Ekki er
vitað um ástæðuna ( en sumir
tala um að saumaklúbbarnir
veiti þar ágæta æfingu). —
Verksmiðjustjórnin segir, að kon
urnar séu andlega sterkari í vinn
unni og þolbetri en karlmennirn
ir.
Douglasverksmiðjurnar eru
einhverjar nýtízkulegustu verk-
smiðjur í Bandaríkjunum. I verk
smiðjunum er mjög bjart og vina
legt og útbúnaður allur hinn
bezti. Þar á sér ekki stað neint
misrétti milli karlmannaogkvenn
anna, hvítra eða svartra og allt
renyt til að láta verksmiðjufólk-
ið taka eins mikinn þátt í stjórn
verksmiðjanna og hægt er. Það
getur sent stjórninni tillögur sín-
ar um bætta starfsháttu og unnið
til 5000 dollara verðlauna, ef til
lögur þeirra þykja sérlega at-
hyglisverðar.
Douglasverksmiðjan greiðir
meira en 1 millj. dollara í vinnu-
laun á dag. Þessi uphæð er ekki
sízt athyglisverð vegna þess að
viðskiptavinirnir eru aðeins 52,
þó að umsetningin fari yfir 1
milljarð á ári. Þá er þessi háa
upphæð einnig athyglisverð
vegna þess, að verksmiðjan er að
eins 38 ára gömul og þegar Don-
ald W. Douglas sem nú er 67
ára gamall, stofnaði fyrirtækið
átti hann aðeins um 600 dollara.
Fyrst vöktu Douglasverksmiðj-
urnar athygli, þegar þeim tókst
að smíða fyrstu amerísku sport-
vélina, sem gat borið meira en
þyngd sína. — Nú vinna alls í
verksmiðjunum um 50 þús.
manns og á þetta fólk nú m.a.
fyrir höndum að smíða 140 far-
þegaþotur fyrir ýmis flugfélög.
Merkjasala
Skálatúns
í DAG er merkjasöludagur til
ágóða fyrir Skálatúnsheimilið í
Mosfellssveit, heimilið sem und-
anfarin fimm ár hefur veitt all-
mörgum börnum, sem fávitar eru,
heimilisvist. Aðkallandi er að
stækka heimilið og telur læknir
þess að 50 barna heimili, sé það
sem nú þarf að koma upp sem
fyrst. Málefni hinna fjölmörgu
fávita og örvita er að verða mikið
vandamál, en með því að styrkja
merkjasöluna til ágóða fyrir
Skálatún, leggur fólk hönd á
plóginn.
Mislingar
á ísaf irði
ÍSAFIRÐI, 20. marz. — Allmikil
brögð eru nú að mislingum hér
í bæ. Ekki hefur þó til þess kom-
ið, að þurft hafi að fella niður
kennslu í skólum af þeim sökum,
þótt nokkuð sé um fjarvistir
nemenda. Allt frá áramótum hafa
mislingar verið að stinga sér nið -
ur hér, en það er ekki íyrr en
nú síðustu vikuna, að þeir hafa
breiðzt verulega út. —G.
Aðalfundar
„F ramtíðarinnar44
í Hafnarfirði
VERKAKVENNAFÉLAGIÐ
Framtíðin, Hafnarfirði hélt aðal
fund sinn 9. marz sl. í Verka-
mannaskýlinu.
Formaður gerði grein fyrir dýr
tíðarmálunum og kaupbreyting-
unum á síðastliðinu ári. Gjald-
keri las upp reilcninga félagsins
og voru þeir samþykktir. Næst
skyldi fara fram stjórnarkjör, en
stjórnin var öll endurkjörin.
Hana skipa þessar konur:
Sigurrós ’Sveinsdóttir, form.
Málfríður Stefánsdóttir, ritari,
Svanlaug Pétursd, fjármálaritari,
Guðríður Elíasdóttir, gjaldkeri,
Guðbjörg Guðjónsd., varaform.
Stjórn Dagheimilisins var
einnig endurkjörin og hana
skipa:
Sigríður Erlendsdóttir, formaður,
Guðrún Nikulásdóttir,
Margrét Jónsdóttir,
Sigríður Magnúsdóttir,
Vilborg Jóhannesdóttir.
Samþykkt var einróma á fund-
inum að gefa kr. 5000.00 í Júli/
Hermóðs-söfnunina.
Fiskifrœðingur leggur til að hafnar
verði módelrannsóknir á veiðafœrum
Hœtt var tilraunum með fiotvörpu
áður en niðurstaða fékkst
í NÝJASTA „Ægi“, Fiskifélags
íslands, er ítarleg grein eftir
Jakob Jakobsson fiskifræðing,
þar sem hann skrifar um síldveiði
tilraunir á togaranum Neptúnusi,
er þær voru gerðar í nóvember
1958. Voru tilraunir gerðar með
flotvörpu og botnvörpu suður í
Miðnessjó.
f niðurlagsorðum um tilraun-
ir þessar, segir Jakob Jakobsson
að botnvörputilraunir hafi ein-
dregið bent til þess að síldin í
Miðnessjó hafi þá er tilraunirnar
voru gerðar, yfirleitt ekki veiið
nægilega nærri botni til síldveiða
í þessa vörpu.
Um flotvörputilraunirnar, segir
fiskifræðingurinn, að tilraunirn-
ar í fyrsta áfanga hafi gefið ó-
tvírætt til kynna að nokkru síld-
armagni megi ná, þegar síldin
heldur sig nærri botni, með sams
konar eða líkum útbúnaði. Á
fiskifræðingurinn þar við gerð
vörpunnar og hleraútbúnað henn
ar, sem lýst er nánar í greininni.
En síðan bætir Jakob Jakobsson
því við, að viðurkenna verði þó
að enn einu sinni hafi flotvörpu-
tilraunum verið lokið án þess að
ákveðið svar, jákvætt eða nei-
kvætt fengist.
Síðar í lokaorðum sínum segir
fiskifræðingurinn m. a. á þessa
leið:
„Enginn vafi leikur þó á því,
að flotvörpuveiðar á einu skipi er
mjög vandsöm veiðiaðferð. Ná-
kvæmar rannsóknir á gerð og
„hegðun" vörpu og hlera í sjón-
um eru áreiðanlega nauðsynlegur
þáttur í þessum tilraunum. Þá
þyrfti einnig að vera hægt að
framkvæma „model“ rannsóknir
í landi á mismunandi vörpugerð-
um og hleraútbúnaði áður en lagt
er upp í veiðitilraunir.
Á meðan öruggur jákvæður ár-
angur hefur ekki enn fengizt með
flotvörpuveiðar á einu skipi við
I þær aðstæður, tel ég sjálfsagt að
frekari tilraunir verði gerðar með
tveggja báta vörpu. Sú veiðiað-
ferð hefur reynzt mjög vel í Norð
ursjó, þar sem sjórinn en enn
hlýrri en hér — og árangur Vest-
mannaeyinga 1955 var mjög at-
hyglisverður".
Nýtt frímerki
PÓST- og símamálastjórnin til-
kynnti í gærdag um útgáfu á nýju
frímerki á þessa leið:
„5. maí mun póst- og símamála-
stjórnin gefa út 2 ný frímerki til
minningar um 200 ára dánaraf-
mæli Jóns Þorkelssonar, Skál-
holtsrekt„rs.
Verðgildi merkjanna verða
2 kr. grænt í 500.000 eintökum
og 3 kr. rauðblátt í 400.000 ein-
tökum“.
LUNDÚNUM, 21. marz. — I frétt
um frá Leningrad segir, að nú
sé rússneski kjarnorkuísbrjótur-
inn Lenin kominn úr öllum sín-
um reynstoferðum og muni inn-
an skamms leggja upp í langa
1 sjóferð.