Morgunblaðið - 22.03.1959, Blaðsíða 23
23
Sunnudagur 22. marz Í959
MORGUNRLAÐIÐ
Heimsækir
Bretland
PARÍS, 21. marz. — Forsætisráð-
herra Frakklands, Michel Debré,
kemur í 'heimsókn til Lundúna
upp úr miðjum apríl n.k. — Þetta
var opinberlega tilkynnt í París
í dag.
Atvimudeysi
BONN, 21. marz. — Atvinnuleys-
ingjar í Vestur-Þýzkalandi eru nú
um 1 millj. Hefur þeim fækkað
um 200 þús. manns í febrúarmán-
uði, að því er fregnir herma.
„Ike“ ræðir við
Maemillan
WASHINGTON, 21. marz: —
Eisenhowcr og Macmillan munu
halda áfram viðræðum sínum í
dag, og verða þá til kvaddir
brezkir og bandarískir sérfræð-
ingar um landvarnir, afvopnun
og kjarnorkumál. Er því talið að
rætt verði um bann við kjarn-
orkuvopnum auk Þýzkalandsmál-
anna.
Á fundum sínum hafa þeir Ei-
senhower og Macmillan rætt um
undirbúning utanríkisráðherra-
fundar stórveldanna. Telja þeir
æskilegt að fundur utánríkisráð-
herra fjalli ítarlega um deilumál-
in, áður en fundur æðstu manna
verður haldinn, og leggja áherzlu
á, að sá fundur standi í 2—3 vik-
ur, en ekki tvo til þrjá mánuði,
eins og Sovétstjórnin hefur lagt
til. Hefur Macmillan komið með
þá tillögu að herliði austurs og
vesturs í Evrópu verði ekki fjölg-
að frá því, sem nú er og vopna-
búnaður ekki aukinn.
— Landhelgi Dana
Frh. af bls. 1.
ing Breta og Dana um Jandhelgi
Færeyja og fullgildingu þessa
samnings.
Þá segir blaðið, að ummæii
utanríkisráðherrans hafi verið
misskilin í Noregi og m. a. af
þeim sökum hafi þingmaðurinn
Einar Hareide fyrir kristilega
þjóðflokkinn gagnrýnt dönsku
stjórnina harðlega fyrir áform
hennar í landhelgismálum Græn
lands. Þingmaðurinn, sem sjálfur
hefur mikilla hagsmuna að gæta
í þessu máli að sögn Berlingatíð-
inda, sagði eitthvað á þá leið í
samtali við Dagblaðið í Ósló að
ef ráðagerðir dönsku stjórnarinn-
ar kæmust til framkvæmda
mundu Norðmenn neyðast til að
fiska ekki á Grænlandsmiðum í
vor. Um 100 norsk fiskiskip áttu
að sigla á þessi mið í apríl „og
við veiðum á miðunum fyrir inn-
an 12 mílna rnörkin", sagði þing-
maðurinn. Þá hélt hann því fram,
að litlar þjóðir ættu ekki að fá
leyfi til að breyta landhelgi sinni
a§ eigin geðþótta. Danmörk ætti
að láta landhelgismál Grænlands
liggja í láginni þangað til niður-
stöður alþjóðaráðstefnunnar
lægju fyrir.
Þá segir Berlingur ennfremur,
að auðsýnt sé, að norska utan-
ríkisráðuneytið hafi líka misskilið
ummæli Krags. Talsmaður þess
sagði, að það mundi baka Norð-
mönnum mikil óþægindi og fjár-
hagstjón, ef Danir stækkuðu land
helgina við Grænland. Kvaðst
talsmaðurinn vona, að danska
stjórnin mundi ekkert gera í mál-
inu á þessi stigi og ummæli
Krags þýddu ekki það, að hún
mundi hefja aðgerðir fyrir al-
þ j óðaráðs tef nuna.
Þá miskildi Lys0, fiskimálaráð-
herra Norðmanna, einnig um-
mæli Krags. Hann sagði, að Norð
menn væru neyddir til að athuga
málið nánar, ef Danir víkkuðu út
landhelgina við Grænland eins
og við Færeyjar.
Ræða við
Adenauer
BONN, 21. marz. — Segni for-
sætisráðherra ftalíu er í Bonn og
byrjaði í dag viðræður við Aden-
auer kanslara um alþjóðavanda-
mál. Meðal þeirra, sem þátt taka
í viðræðunum eru Pella, utan-
ríkisráðherra Ítalíu, og þýzkir
sérfræðingar í alþjóðapólitík.
ítalirnir komu í gær til Bonn
frá París, þar sem þeir ræddu
við de Gaulle. Fréttamenn segja,
að de Gaulle hafi lofað að styðja
að því, að ítalir fái að taka þátt
í viðræðunum um öryggismál
Evrópu, þegar þar að kemur.
ftalirnir fara heim á morgun.
VEGNA skrifa í Tímanum 17.
febrúar vil ég taka eftirfarandi
fram: Hreppsnefnd Barðastrand-
arhrepps hafði ekkert umboð
kjósenda sinna til að lýsa yfir
andstöðu sinni við breytingu á
kjördæmaskipan landsins, sem
hreppsnefnd Barðastrandar-
hrepps.
Þessir menn gátu látið álit
sitt persónulega í ljós og
hefði farið betur á því.
Annars held ég að það hefði verið
sæmra hjá þessum mönnum
(hreppsnefndinni) að skora á hátt
virt Alþingi að auka nú á þess-
um fjárlögum framlag úr "íkis-
sjóði til vega og brúargerðar í
Barðastrandarhreppi, svo að
hluti sveitarinnar, það er fyrir
utan Haukabergsvaðal, einangr-
ist ekki í fyrstu frostum og sjón-
um.
Fyrst þiagmaður fejördæmisins
virðist hafa gleymt þessum hluta
sveitarinnar þessi tvó og hálft ár
sem hann er búinn að vera á
þingi, mundi það hafa verið betur
tek'ð upp fyrir hreppsnefndinni
heldur en að fara að skipta sér
SL. föstudag opnaði ísafold yf-
irlits- og sölusýningu á bókum,
sem gefnar hafa verið út hjá fyr-
irtækinuu. Á sýningunni eru yfir
500 bókatitlar, og eru þar á meðal
rit, sem komu út fyrir 50—60 ár-
um. Margt af bókunum, sem
þarna eru, hafa fyrir löngu verið
innkallaðar og hafa því ekki sézt
í bókabúðum í mörg ár. Sýningin
verður opin fram yfir mánaða-
mót.
Ljósmyndari blaðsins tók mynd
ina hér fyrir ofan á sýningunní.
Sandgerði, 21. marz. — í gær
voru níu netabátar á sjó héðan,
en engir línubátar. Fengu neta-
bátarnir samtals 82 lestir. Dux
fékk 21 lest, Rafnkell 17,4 lestir
og Særún 9,7 lestir. Allt miðað
við óslægðan fisk. Var fiskurinn
tveggja nátta. í dag er suðaustan
stormur og engir bátar á sjó.
af málum, sem ekki voru í hennar
verkahring.
Éf ég á að segja mitt álit á kjör-
dæmamálinu, þá get ég ekki
komið auga á að það sé gerræði
við sjálfstæði héraðanna að fá 5
—6 þingmenn kosna í hvert kjör-
dæmi í staðinn fyrir 1 þingmann
áður.
Hitt er eðlilegt, að flokkur eins
og Framsóknarflokkurinh vilji
ekki breyta kjördæmaskipaninni
vegna þess að hann hefur svo
lítið fylgi með þjóðinni, og lifir
þess vegna árangrikjördæmaskip
an. Okkur í dreifbýlinu finnst j
Framsóknarflokkurinn ekki hafa'
verið flokkur dreifbýlisins í
hinni svo kölluðu vinstri stjórn,
því aldrei hafa vörur verið eins
skattlagðar og annað, er bændur
hafa þurft að kaupa eins og ein-
mitt þá. Tel ég því rétta ráð-
stöfun að þeim milljónum, sem
of-lagðar voru á þjóðina og komu
harðast niður á smábændum,
verði varið til að greiða niður
aftur vöruverð í landinu.
Sveinn Jóh. Þórðarson,
Innri-Múla,
Barðaströnd.
Innilega þakka ég öllum þeim sem á einn eða annan
hátt hafa hjálpað okkur í veikindum JÓFRÍÐAR dóttur
minnar. Alla þá fórnfýsi, hlýhug og hjálpsemi bið ég
Guð að launa ykkur.
Glaumbæ í Staðarsveit 15. marz 1959.
Vilborg Kjartansdóttir.
Bréí af Barðaströnd:
Um kjördæmamálið
STÁLBÁTAR
Stórt sænskt fyrirtæki óskar eftir sölumanni á
íslandi fyrir fiskibáta úr stáli. —
Leitið nánari upplýsinga hjá:
Aströms varv och verkstadsindustri ab
Kalix Stockholm
Bitkikrossviður
3 — 4 — 5 — 6 — 12 mm þykkir, fyrirliggjandi.
H.f. Akur
Hamarshúsinu. Sími 13122 og 11299.
Vegna jarðarfarar
GlSLA JÖNSSONAR verkstjóra
verður verkstaeði vort lokað frá hádegi
þriðjudaginn 24. þ.m.
Kristinn Jónsson
Vagna- & Bílasmiðja.
Faðir minn
LUDVIG ARNE EINARSSON
málarameistari
lézt að heimili sínu 20. þ.m.
Guðmundur Ludvigsson og fjölskylda.
Elskulegi litli sonur okkar
JÓN OTTÖ RÖGNVALDSSON
andaðist á Landsspítalanum 19. þ.m. Jarðarförin fer fram
frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 24. marz kl. 1,30 e.h.
Ingibjörg Árnadóttir, Rögnvaldur Jónsson.
Eiginmaður minn elskulegur
GlSLI JÓNSSON
Frakkastíg 12, verður jarðsunginn frá Fríkirkjunni 24.
marz kl. 2 e.h.
Guðrún Magnúsdóttir.
Fðari okkar
VILHJÁLMUR ketilsson
frá Kirkjuvogi.
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju mánudaginn 23.
marz kl. 13,30.
^ Vilborg Vilhjálmsdóttir, Margrét Vilhjálmsdóttir.