Morgunblaðið - 24.03.1959, Blaðsíða 2
2
Þriðjudagur 24. marz 1959
MORCUWRT4FHD
S
„Vissi ekki hvort
dagur var eða nótt"
Lýsing lögreglumanna á ölvuðum bil-
stjóra, sem olli stórskemmdum
á bil á laugardaginn
ÉG hef ekki hreyft bílinn minn í
hálfan mánuS, sagði maðurinn,
er lögregiumenn komu heim til
hans og kváðu sig komna til hans
vegna þess, að hann hafi ekið
brott frá árekstri sem hann olli.
Lögreglumennirnir kröfðust þess
að fá að skoða bílinn. Kom þá
strax í ijós að bíllinn, sem stóð
inni í bílskúr, var nýiega þangað
kominn og vél hans enn vel heit.
Sr. Friðrik J.
Rafnar vígslu-
biskup látiiin
SÉRA FRIÐRIK J. Rafnar, vígslu
biskup, á Akureyri, andaðist í
Fjórðungssjúkrahúsinu þar í bæ
síðastliðinn laugardag eftir lang-
varandi sjúkdómslegu. Séra Frið-
rik J. Rafnar var fæddur á
Hrafnagili í Eyjafirði 14. febrúar
1891 og var því réttra 68 ára að
aldri. Hann lauk stúdentsprófi í
Reykjavík árið 1912 og guðfræði
prófi frá Háskóla íslands 1915.
Hann stundaði verzlunarnám í
Leith 1905—1908 og var sömu ár
jafnframt við verzlunarstörf þar
ytra. Þá stundaði hann skrifstofu
störf í Reykjavík 1915—16, en
1916 var hann settur sóknarprest
ur að Útskálum og var vígður
sama ár. Árið 1927 var honum
veitt Akureyrarprestakall og
þjónaði hann því þar til 1954.
Hann var vígslubiskup í Hóla-
stifti frá því 1937 og síðan.
Séra Friðrik J. Rafnar gegndi
fjölda trúnaðarstárfa innan
kirkju og utan, var í stjóm Presta
félags Hólastiftis frá 1928 og for-
maður þess frá 1937, prófastur í
Eyjafjarðarprófastsdæmi frál941.
Hann var og í fræðsluráði Akur-
eyrarkaupstaðar og ennfremur í
sáttanefnd og barnaverndarnefnd
staðarins.
Þá var séra Friðrik J. Rafnar
mikilvirkur rithöfundur. Skrif-
aði m.a. bók um Mahatma Gandhi
svo og sögu heilags Franz frá
Assisí, auk fjölda hugvekja og
tímarits- og blaðagreina.
Séra Friðrik J. Rafnar var son-
ur hins kunna prófasts og fræði-
manns sér Jónasar Jónassonar á
Hrafnagili og konu hans Þórunn-
ar Stefánsdóttur.
Kvæntur var séra Friðrik Ás-
dísi Charlotte Guðlaugsdóttur
bæjarfógeta á Akureyri og lifir
hún mann sinn. Þau hjón voru
barnlaus en ólu upp fósturbörn.
Þessa mæta kirkjuhöfðingja og
vinsæla sóknarprests mun nánar
getið hér í blaðinu síðar. Útför
hans mun verða gerð frá Akur-
«yri eftir páska.
Forsaga þessa máls er sú, að
um kl. 2 á laugardaginn varð
árekstur á gatnamótum Lauga-
vegar og Nóatúns. Utanbæjarbíl
var ekið af Néatúni og beint inn
á Laugaveginn, sem mikil umferð
bíla var um og er aðalbraut. Þar
ók þessi bíll á annan bíl og olii
á honum stórskemmdum, sneri
frá honum eftir áreksturinn og
ók á brott. Maðurinn sem ekið
hafði bílnu*, er fyrir skemmd-
unum varð, tók númer ökuníð-
ingsins og hringdi á lögreglu-
stöðina. Þar var samstundis sett
í gang leit að bílnum, og með
aðstoð radíósímanna í lögreglu-
bílnum. Lögreglumennirnir komu
heim að húsi manns þess, er ók
brott frá árekstrinum skömmu
síðar. Va hann þá úti við. Fór
þá samtal það fram milli hans
og lögreglumannanna, sem að of-
an greinir.
Er lögrcglumennirnir höfðu at-
hugað bílinn, viðurkenndi mað-
urinn brot sitt. Var hann að dómi
lögreglumannanna áberandi ölv-
aður og færðu þeir hann niður
á lögreglustöð. í skýrslu götulög-
reglunnar til rannsóknarlögregl-
unnar um þetta árekstrarmál, og
manninn, sem árekstrinum olli,
segir, að svo ölvaður hafi mað-
urinn verið, að hann „vissi“ ekki
hvort dagur var eða nótt. Maður-
inn skýrði lögreglunni frá því, að
hann hefði verið á leið úr vinnu
hér í bænum, drukkið 4—5
„sjússa“ af ákavíti áður en hann
hóf heimaksturinn. Þá sagði hann
frá því, að eftir áreksturinn á
Laugaveginum, hefði hann ein-
hvers st-.ðar .„'it vélarhlifinni af
bílnum sínum.
En fyrir það, hve skjótráð götu-
lögreglan var, tókst á svipstundu
að ljúka þ^ssu máli, sem ella hefði
getað órðið þungt fyrir fæti. Sem
fyrr greinir, skemmdist bíllinn
mikið, sem hinn ölvaði maður ók
á og má heita að hægri hlið bíls-
ins sé svo til ónýt. Mun kosta
allmikið fé að bæta tjónið, en
það verður hinn ölvaði ökumað-
ur að gera. En til viðbótar fær
hann svo ökuleyfissviptingu og
fjársektir, ef að líkum lætur og
miðað við önnur mál af sama toga
spunnin.
Góðir gestir heim-
sækja Hveragerði
HVERAGERÐI, 23. marz. — í
gær, sunnudag, efndi kór Hlíð-
ardalsskóla í Ölfusi til tónleika
í Hótel Hveragerði. — Á efnis-
skránni voru bæði andleg og ver-
aldleg lög, eftir íslenzk og er-
Iend tónskáld. Fyrst söng bland-
aður kór, síðan karlakór, og loks
blandaði kórinn aftur.
Flest af kórfólkinu eru ungling
ar, sem hafa aðeins æft frá síð-
astliðnu hausti, og má segja, að
undravert sé, hve söngstjórinn,
Jón Hj. Jónsson, hefir getað
þjálfað kórinn vel á skömmum
tíma. Einkum vakti athygli mýkt
raddanna og skýr framburður
texta.
Einsöngvarar voru þfeir Ingi-
bjartur Bjarnason og Garðar
Corten, auk söngstjórans Jóns
Hj. Jónssonar. Undirleik á píanó
annaðist Sólveig Jónsson.
Húsið var þétt setið áheyrend-
um, og var það samdóma álit
þeirra, að tóaleikar þessir hefðu
tekizt með ágætum. — Vil ég hér
með, fyrir hönd Hvergerðinga,
þakka kennurum og nemendum
Hlíðardalsskóla fyrir þessa kær-
komnu heimsókn. — Georg.
Austfjarðatogararnir
,,fara heim
ÞESSI mynd var tekin í gærdag
um borð í togaranum Vetti. Hann
er sameign kauptúnanna á Aust-
urlandi, Eskifjarðar, Fáskrúðs-
fjarðar og Reyðarfjarðar. Hann
fer nú á veiðar og mun leggja
aflann upp á „heimahöfnum" sín-
um, þar sem atvinnusleysi hefur
gert mjög vart við sig í vetur.
Langt er nú liðið síðan Vöttur
landaði þar. Togarinn hefur þó
ekki legið bundinn, heldur hefur
hann lagt upp aflann að staðaldri
hér í Reykjavík, til vinnslu hjá
Júpiter og Marz, en það kunna
útgerðarfyrirtæki, sem Tryggvi
Ófeigsson veitir forstöðu, hljóp
undir bagga með Austfirðing-
unum, til þess að fleyta þeim yfir
algera stöðvun togarans. Nú skýr
ir stjórnarblaðið Alþýðublaðið
frá því að tryggt sé „að togararn-
ir Vöttur og Austfirðingur munu
landa á Austfjörðum á næstunni,
en undanfarið hafa þeir lagt upp
í Reykjavík“.
Síðar segir stjórnarblaðið: „En
nú hefur tekizt að útvega togur-
unum nokkurt atvinnuaukningar
fé, er mun gera þeim kleift að
leggja upp á Austfjörðum á næst-
unni“. Ekki getur blaðið þess hve
mikið fé hér er um að ræða, en
Fékk 133 lestir í fimm
róðrum
Aldrei jafnmikill
afli á jafn skömm-
um tíma
GRUNDARFIItÐI, 23. marz. —
Aldrei hefir borizt jafnmikið
aflamagn á land hér í Grundar-
firði á jafnskömmum tíma eins
og fimm síðustu dagana nú fyrir
helgina. — f gær var aflinn aft-
ur miklu miani, hæst 10 lestir á
bát, en allir voru á sjó. Allir
bátar eru einnig á sjó í dag, en
ókunnugt um afla.
Alls róa nú 8 bátar héðan, og
stunda nú allir veiðar með þorska
net. — Á föstudaginn komu þeir
allir að landi með eftirfarandi
afla: Farsæll 19,7 lestir, Páll Þor-
leifsson 11,2, Sigurfari 17,3, Ingj-
aldur 22,6, Hringur 21,8, Blíðfari
25,2, Sæfari 27,9 og Grundfirð-
ingur II með 34,6 lestir. Var afla
magnið á föstudaginn þannig rösk
lega 170 lestir samtals, og er það
alveg óvenjulega mikið. — Grund
firðingur II, se» er aflahæsti
báturinn hér, landaði hvorki
meira né minna en 133 lestum
úr fimm róðruna í sl. viku.
Veðráttan er yfirleitt mjög
stirð til sjósóknar, og hefir þar
af leiðandi verið meira slit á
veiðarfærum en ella og sá fiskur,
sem á land kemur, þar af leið-
andi ekki eins góður. — Mjög
mikið annríki er iiú við fiskverk-
im hér, og verða allir að leggja
hart að sér til þess að koma afl-
anum undan. — E.M.
það mun nema verulegri fjárhæð.
Þetta mun væntanlega hafa í för
með sér að forstjóri útgerðar-
fyrirtækisins, Jóhannes Sigfús-
son, sem verið hefur með skrif-
stofu fyrirtækisins hér í Reykja-
vík um alllangt skeið, flytji hana
aftur austur til Eskifjarðar.
Iiigolfui* Hall-
grímsson, Eskif irði
fimmtugur
FIMMTUGUR er í dag Ingólfur
Hallgrímsson, framkvstj., Eski-
firði. Ingólfur er fæddur og upp-
alinn á Eskifirði og hefur átt þar
heima. Hann hefur um langt
skeið rekið umboðsverzlun þar í
kauptúninu og tekið virkan þátt
í atvinnumálum og félagsmálum
á staðnum.
Ingólfur hefur lengi átt sæti
í hreppsnefnd Eskifjarðar og
gengt fleiri trúnaðarstörfum í
byggðarlagi sínu. Hann er ein-
dreginn Sjálfstæðismaður og hef-
ur verið forystumaður Sjálfstæð-
ismanna á Eskifirði frá unga
aldri. Ingólfur er mikið prúð-
menni og vinsæll og vel látinn
af öllum, sem hafa kynnzt hon-
um.
Tónleikor sinfóníusveitarinnor
SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT íslands hann. Lifa og sum af verkum hans
Brúðuleiksýniug
annan páskadag
ÆSKULÝÐSRÁÐ Reykjavíkur
efnir til brúðuleiksýningar annan
páskadag kl. 1:30 í Skátaheimil-
inu. — Þar munu börn og ungl-
ingar sýna brúðuleikrit undir
stjórn Jóns E. Guðmundssonar,
listmálara. Leikbrúðugerð hefur
verið vinsæl greín í tómstunda-
iðju Æskulýðsráðsins, og árlega
farið fram sýningar, sem hafa
verið mjög fjölsóttar.
hélt 2. tónleika sína undir stjórn
Thor Johnson í Þjóðíeikhúsinu
þriðjudaginn 17. þ. m. Var þar
fyrst flutt sinfónía í A-dúr (K.
201) eftir Mozart. Var flutning-
ur hennar stílhreinn og fágaður.
Þar næst var Consertino fyrir pí-
anó og hljómsveit eftir Arthur
Honegger. Er þetta allnýstárlegt
verk, byggt á jassinum að miklu
leyti, mjög fjörugt og líflegt og
haglega gert, en innihaldssnautt
og víða „banalt“. Mun það tæp-
ast talið meðal merkari verka
þessa snjalla tónskálds. Gisli
Magnússon lék píanóhlutverkið
framúrskarandi vel, og stjórn-
andinn og hljómsveitin létu sitt
ekki eftir liggja að skila verk-
inu á fullkominn hátt. Síðasta
verkið á þessum tónleikum var1
hin fræga svíta Richards Strauss:
„Borgari gerist aðalsmaður“, op.
60.
Það vakti mikla gleði allra
músikalskra manna að heyra
þetta snjalla verk flutt hér í
fyrsta sinn. Strauss var, ásamt
Max Reger, merkasta tónskáld
aldamótanna, og enginn hefur
verið annar eins galdrameistari
á sviði hljómsveitartækninnar og
mjög á hinum glæsilega og „geni-
ala“ hljómsveitarbúningi þeirra.
Þessi svíta er fagurt verk, sam-
ið fyrir smærri hljómsveit, en
flest önnur verk Strauss. Oft
nálgast stíllinn kammermúsik-
stílinn, og reynir mjög á einstaka
hljóðfæraleikara víða í verkinu.
Það var mjög eftirtektarvert
hversu vel hljómsveitin skilaði
“svítunni.,, Hafði Thor Johnson
þaulæft hana svo, að hvergi var
bletttur né hrukka. Sem stjórn-
andi er hann afburða snjall, og er
m. a. slagtækni hans fullkomin,
svo að hvergi skeikar. Einleikarar
í „svítunni“ voru þessir: Björn
Ólafsson (fiðla), Einar Vigfússon
(celló), Björn Guðjónsson (tromp
et), Björn Einarsson (básúna) og
Gísli Magnússon (píanó). Allir
leystu þeir hlutverk sín prýðisvel
af hendi. Fleiri mætti nefna, sem
mikill vandi hvíldi á. Hefði ver-
ið vel viðeigandi að endurtaka
þetta verk sem fyrst.
Áheyrendur, sem höfðu nær fyllt
salinn, fögnuðu listamönnunum
hjartanlega með dynjandi lófa-
taki.
Þriðju tónleikarnir, sem Thor
Johnson stjórnar eru í Þjóðieik-
húsinu í kvöld. p, j.