Morgunblaðið - 24.03.1959, Síða 6

Morgunblaðið - 24.03.1959, Síða 6
6 MORCUMtLAÐIÐ Þriðjudagur 24. marz 1959 Af sjónarhóli sveitamanns Þórbergur Þórðarson Nokkur fútækSeg þokkurorð EINU sinni átti ferðamaður leið um afskekkta sveit. — Var það annars ekki Þorvaldur Thorodd- sen? Hann varð samferða bónda einum, og tóku þeir tal saman og ræddu stjórnmál. Þá voru ekki liðnir margir áratugir frá endur- reisn Alþingis. Bóndinn viðist hafa haft takmarkaða trú á gagnsemi þeirrar samkundu, því að þar kom ræða hans, að hann sagði: „Mundi nú ekki kóngur- inn, ef við bæðum hann vel, losa okkur við þetta Alþing“? Líklega hefur þessi bóndi aldrei komið sinni góðu bón á framfæri við hans hátign. A. m. k. hef ég aldrei heyrt að bænaskrá þess efnis hafi verið send til kon- ungs. — O — En þessi saga rifjaðist upp fyr ir mér einhvern tíma í vetur. Þá var Alþingi, það sem enn situr, búið að vera allmargar vikur að störfum, ef „störf“ skyldi kalla. Inni í stofu hjá mér situr bóndi, mikill dugmaður til allra verka og afkastamaður eftir því. — Það er komið kvöld, og það er verið að segja þingfréttir í Útvarpinu. Það tekur ekki nema örfáar mín- útur, og þær bera það með sér, að þingfundir þennan daga hafa staðið litlu lengur, heldur en þann tíma, sem það tók þulinn að segja hinar fáskrúðugu þing- fréttir. Bóndinn varð hugsi um stund. Svo sagði hann, eiginlega fremur við sjálfan sig heldur en við mig: „Til hvers í ósköpunum er verið að kalla saman þetta Al- þingi“. — O — Mér er þessi setning bóndans minnisstæð. Og þegar farið er að kryfja hana til mergjar, er meira í henni heldur en orðin gefa til kynna í fljótu bragði. Það, sem hún sýnir okkur fyrst og fremst, er sú megna vantrú, sem bónd- inn hafði á þessari elztu og virðu legustu stofnun þjóðarinnar. Hann mun að vísu ekki hafa gert sér grein fyrir því, hvað mundi taka við, ef Alþingi væri ekki kallað saman. En honum mun hafa verið það ljóst, að aðgerðar leysi og fullkomið úrræðaleysi þessarar samkundu á s.l. hausti var á góðri leið með að leiða þing ræðið í landinu í glötun. Þess vegna var það satt að segja engin furða, þótt bóndinn tæki svona til orða. Það var vissulega hörmulegt, að horfa upp á það 1 með þjóðinni. Þegar þetta tvennt hvernig Alþingi — eða meirihluti þess hagaði sér í haust. — Stjórn in hafði gildan meirihluta á þingi, rétt kjörinn í almennum kosningum til löggjafarsamkomu þjóðarinnar. Þessi meirihluti hafði kjörið stjórnina til forustu — treyst henni til starfa, eins og lög og reglur í þingræðisþjóðfé- lagi gera ráð fyrir. Þessi meiri- hluti lýsti aldrei yfir neinu van- trausti á þessa stjórn, sem hann hafði myndað — og enn var þessi meirihluti viss í 1% ár. — Samt féll stjórnin. En hún féll ekki á Alþingi, eins og lög gera ráð fyr- ir um allar ríkisstjórnir í þing- ræðislandi. Hún féll á stéttar- þingi. Að vísu var það all fjöl- mennt, en samt voru þar aðeins saman komnir fulltrúar fyrir brot af þjóðinni. Þegar þessir full trúar vildu ekki veita stjórninni mánaðarfrest — umhugsunar- frest í efnahagsmálunum — gaf hún upp andann. Aumt var líf vinstri stjórnarinnar. Aumari varð þó hennar dauðadagi. En aumastar af öllu verða þó afleið- ingarnar af verkum hennar, ef Alþingi tekur ekki sterklega í taumana. — O — Með falli vinstri stjórnarinnar á Alþýðusambandsþinginu gekk stjórnin inn á þá hættulegu braut, að viðurkenna það, að raunverulegt úrslitavald í mál- efnum þjóðarinnar var komið í hendur annars aðila heldur en Alþingis sjálfs. Þegar svo er kom ið þá er eðlilegt að spurt sé eins og bóndinn gerSi: Til hvers er verið að kalla Alþingi saman? Þess verður að vænta, að það séu nógu margir menn á Alþingi, sem hafi nógu mikið raunsæi til að sjá hvert stefnir. Ef til vill er hér komið út á svo hálan ís að erfitt er að fóta sig. En hvað sem um þetta má segja almennt, þá er það áreiðanlega rétt, sem nú- verandi rikisstjórn og stuðnings- flokkar hennar hafa komið sér saman um — að freista þess að koma kjördæmaskipun landsins í það horf að Alþingi verði sem réttust mynd af þjóðarviljanum eins og hann birtist hverju sinni í almennum kosningum. Og með sem réttastri mynd, hlýtur að vera átt við það, að kosningarétt ur fólksins í landinu verði sem jafnastur og í öðru lagi að flokk- arnir fái þingmannatölu í sem nánustu samræmi við fylgi sitt er tryggt, eftir því sem hægt er með tilliti til byggðarinnar í land inu, þá mun engri stétt, engum hagsmunahópi, geta liðist það, að hrifsa til sín þau völd, sem Alþingi einu ber. Að vísu mun ofríki hagsmunasamtakanna óvíða eins mikið og hér í þessu litla þjóðféllagi. Og frelsisandi og frelsisást fólksins hefur alltaf komið í veg fyrir að hér myndað ist sterkt ríkisvald. En hvað um það. Við verðum í lengstu lög að vona það og treysta því, að ef löggjafarsamkoma þjóðarinnar er valin af réttsýni og sanngirni gagnvart öllum séttum og öllum landshlutum, og ef ekki skortir skynsama og úrræðagóða forustu, þá verði gifta Alþingis næg til þess að ráða fram úr þeim efna- hagslega og stjórnarfarslega vanda, sem „vinstri" pólitikin er búin að leiða yfir þjóðina. ÉG undirritaður, lítilmótlegur af- mælisþegn, þakka hér með öllum þeim mörgu fjær og nær, sem á einn eða annan hátt áttu hlut- deild í hinu góðlátlega gríni með mig á sjötugsafmæli mínu 12. þ.m. Ég þakka þeim, sem litu hingað inn til mín þennan dag og árnuðu mér margra heilla og glöddu mig með upplífgandi viðræðum, sem í engum punkti minntu mig á það, hvað ég ætti stutt eftir. Ég þakka þeim fjölmörgu hér- lendum og erlendum, sem sendu mér rituð skeyti í lausu máli og bundnu, að einum undanskildum, dauða limnum í sérfræðingahópi mínum, sem var að reyna að stramma sig upp með hótun um forgöngu í verkfalli af hálfu þeirra mætu manna. Ég þakka mínum gamla félags- bróður, Magnúsi Kjaran, fyrir Þessir stóru lúðrar á myndinni heita soussafónar og eru litið þekktir hér á landi. Lúðrasveitin Svanur og Lúðrasveit Kefla- víkur hafa nýlega fcngið sinn hvorn soussafóninn, og munu þeir areiðanlega vekja athygli á sumri komanda. Á myndinni sést stærðarmunur á túbu og soussafóni. (Ljósm.: G. E.) Lúðrasveif á ferðalagi skemmtun Þjóðdansa- félagsins ÞJÓÐDANSAFÉLAGIÐ hélt í síðustu viku tvær danssýningar fyrir styrktarfélaga, og síðdegis sama dag eina opinbera skemmt- un fyrir almenning. Þjóðdansafélagið hefur nú starfað í átta ár, við sívaxandi vinsæidir. Á sýningunni á sunnu- dag sýndu félagsmenn 32 dansa frá 14 löndum. Voru bæði dans- amir og búningarnir sem þeim tilheyrðu ákaflega fjölbreytileg- ir. Auk fullorðinna félaga í Þjóð- dansafélaginu, dansaði þarna unglingaflokkur og flokkur 7—8 ára barna, en í vetur hafa um 100 börn æft á vegum félagsins. — Mínerva Jónsdóttir, kennari hjá Þjóðdansafélaginu, og Jón Val- geir Stefánsson sýndu nokkra suðræna dansa við mjög góðar undirtektir. Sigríður Valgeirsdóttir, for- maður félagsins, setti skemmt- unina. MÁNUDAGINN 16. marz sl. fór Lúðrasveitin Svanur, Rvík, til Keflavíkur í boði lúðrasveitar- innar þar á staðnum. Lúðrasveit irnar komu saman í U.M.F.-hús- inu í Keflavík. Léku lúðrasveit- irnar sameiginlega tvö lög undir stjórn Karls O. Runólfssonar og síðan tvö lög undir stjórn Guð- mundar Norðdal. Þá var sezt að kaffidrykkju og blásara-kvartett úr Lúðrasveit Keflavíkur lék með ágætum. Næst lék Lúðrasveit Keflavíkur undir stjórn Guðm. Norðdals, af mestu prýði. Þarnæst lék svo Lúðrasveitin Svanur undir stjórn Karls O. Runólfssonar, að því loknu þakkaði Karl móttökurnar fyrir hönd Svansmanna. Enn á ný léku lúðrasveitirnar sameigin lega. Er hér var komið var snúið að dansmúsíkinni. Keflavíkur- menn höfðu myndað stóra dans- hljómsveit og léku með mikilli prýði, en Svans-menn léku þess í milli. — Lúðrasveitin Svanur þakkar Lúðrasveit Keflavíkur þetta ánægjulega kynningar- kvöld og væntir þess að mega sjá Lúðrasveit Keflavíkur í Reykjavík sem allra fyrst. [ "■ . . ! skrifar úr daglega lifinu . H' Málflutningsskrifstofa Einar B. Cuðmundsson Guðlaugur Þorláksson Guðmundur Pétv rsson Aðalstra-ti 6, III. hœð. Síniar 12002 — 13202 —■ 13Ú02. Aðvaranir um slysahættu RÓLFUR skrifar: Ég brá mér í Gamla Bíó eitt kvöldið, sem ekki er frásagnar- vert, enda var myndin ekkert af- bragð. En ástæðan til þess að ég rita þér þessar línur, eru auglýs- ingar, sem birtust manni á tjald- inu fyrir sýníngu. Það voru eink- um 4 auglýsingar, sem vöktu at- hygli mína og komu mér til að íhuga mál, alvarlegs eðlis. Þessar auglýsingar eru frá Slysavarna- félaginu og brýna fyrir mönnum varúð á vinnustað, gætni við akstur dráttarvéla o. fl. Ekki veit ég hversu lengi 'Slysa- varnafélagið hefur haft þennan hátt á, en ekki hef ég orðið þess var fyrr, og hef ég saknað þess. Ég hef satt að segja furðað mig á því, hversu lítið hefur verið gert af því að halda uppi áróðri og fræðslu til að auka öryggi á heim. ilum og á vinnustað. Það er óum- flýjanleg staðreynd, að mörg slys er henda fólk á heimilum og vinnustöðum, stafa eingöngu af vankunnáttu í meðferð tækja. Með stóraukinni fræðslu um þessi mál væri hægt að stemma stigu okkur. Vona ég að Slysavarna félagið láti nú ekki staðar num- ið, því að betur má ef duga skal. Þetta félag nýtur trausts og virð- ingar allrar þjóðarinnar og eng- inn aðili er vsenlegri til áhrifa á þessu sviði en einmitt það. Skora ég því á forráðamenn þessa félags að taka þessi mál til alvarlegrar íhugunar og snúa kröftum sinum að úrlausn þeirra. Varúð í meðferð heimilistækja Velvakandi er því sammála, að aldrei er of mikið gert að því að vara við hættunum og hvetja fólk til að fara varlega. En hvaða aðvörun er sterkari en hin sí- felldu slys, sem stöðugt er verið að segja frá í blöðunum? T. d. var fyrir fáum dögum frá því skýrt að á sjúkrahúsum hér í bænum lægju tvö börn, illa sködduð, af því að þau höfðu fengið straum úr rafmagnstækj- um, sem daglega eru notuð á hverju heimili. Annað hafði feng- ið straum úr ryksugu og hitt úr snúru á rafsuðukatli. Ryksugan hafði verið eitthvað biluð, án þess að vitað væri um það, og getur slíkt alltaf komið fyrir. Eina ráðið er að venja ung börn á að láta slík tæki í friði, eða hafa þau ekki í sambandi nema rétt á meðan þau eru í notkun. Hitt slysið vildi þannig til, að snúrunni hafði verið kippt úr við hraðsuðuketilinn sjálfan, en ekki úr stungunni í veggnum. Snúru- endinn lafði síðan niður af borð- inu, í sambandi hinum megin. Barnið stakk honum upp í sig, hefur sjálfsagt slefað í tengilinn, og fékk straum, með þeim af- leiðingum að það brenndist illa í munni, á tungunni og vörinni. Ég hefi veitt því athygli að fjöl- margar konur hafa vanið sig á að taka hraðsuðukatlana þannig úr sambandi, í þeirri trú að það sé alveg hættulaust. En að sjálf- sögðu á slíkt aldrei að koma fyrir. Aðvaranir um slíkt eru aldrei of oft gefnar. við hinum ægilega slysaflaumi, sem ágerist með hverju ári hjá hans symbólska og lærdómsríka bréf til min um „hrein“ og „ó- hrein“ skrifborð, sem ég lét Mar- gréti lesa sérstaklega. Ég þakka Gunnari frænda mín- um Benediktssyni fyrir hans vel- viljaða og hlýlega bréf. (Mun biðja aðra persónu Guðdómsins að leiða hann til glöggvari skiln- ings á draugum.) Þá ber mér að þakka Jóhann- esi mínum úr Kötlum fyrir hans rismikla og postullega pistil um mig í Þjóðviljanum (og lýsa yfir hrifningu minni út af því, hvað rösklega og listrænt hann hristir mig af sér í lokin með vísunni „Upp upp upp.! Fram fram fram! Út út út!“) Sömuleiðis þakka ég Helga J. Halldórssyni fyrir hans einlæga og skilnir.gsríka skrif um Sálm- inn um blómið í sama blaði. Einnig þakka ég Málfríði Ein- ursdóttur fyrir hennar lífsvizku- þrungnu grein um mig og fleira í Þjóðviljanum. Þá læt ég ekki undir höfuð leggjast að tjá Ragnari mínum Jónssyni þakklæti mitt fyrir al- úðlega og vel meinta grein um mig í Morgunblaðinu. Ennfremur þakka ég Sigurði A. Magnússyni fyrir hans ágæt- lega skrifaða og skilningsdjúpa og skilningsrétta ritdóm um Rökkuróperuna (þó að hann rugl- aðist svolítið í messunni í útlist- unum sínum á symbóli þjóðfélags ins í þeirri bók, þegar nær dró greinarlokum). Líka þakka ég Helga Sæmunds- syni fyrir hans skemmtilegu grein. (Vildi þó mega mælast til að hann rifjaði upp fyrir sér 401. og 402. bls. í sjötta bindi í ævi- sögu Árna prófasts um náttúru trúgirni minnar, og ígrundaði svolitið betur meiningar sínar um Austrið.) Loks þakka ég Tímanum fyrir hans góðu orð og smekkvísi í að flytja róttækan þátt úr Bréfi til Láru. Aftur er mér sagt, að Vísir, blað Björns míns Ólafssonar, að mælt er, hafi verið dálítið púkó þennan dag, og lét ég það þó sitja fyrir fyrsta kvæði mínu, sem birtist á prenti í þessum heimi. Þá þakka ég stórlega nefndinni, sem gekkst fyrir fjölmennu og fögru og afburða skemmtilegu- samsæti, er mér var haldið í Lídó. Einnig þakka ég hinum snjöllu og vel meinandi ræðumönnum, sem þar töluðu mér til upplyftingar og dýrðar. Eigi síður tjái ég þakk- ir mínar hinum mörgu öðrum þátttakendum, sem komu í Lídó til að horfa fallega- á mig. Og ekki má ég gleyma að þakka leik- urunum Lárusi Pálssyni og Þor- steini Btephensen fyrir flutning þeirra á þáttunum, svo skemmti- legan, að allt samsætið hló, og jafnvel ég gat ekki kæft niðri í mér hláturinn. Ennfremur sendi ég útvarpinu kærar þakkir fyrir þess tiliag í gríninu. og ber mér þar að nefna sérstaklega Andrés Björnsson og Lárus Pálsson og Pál minn Jóns son, sem mér sagði draugasöguna. Svo þakka ég af hrærðum huga þeim, sem ritað hafa nöfn sín undir fyrirheitið um gjöfina miklu, sem á að flytja Síríus, feg- ursta draum æsku minnar, nær augum mínum. Og að endingu lyfti ég huga mínum upp til Forsjónarinnar og þakka henni fyrir hið symbólska veður, sem hún gaf mér á afmælis daginn, svo og fyrir styrk þann, sem hún veitti mér til að sleppa gegnum allt þetta ólaskaður á líkama og sál, og eigi sízt fyrir að opinbera velþóknun sína á rétt um skilningi mínum á Austrinu með því teikni á himni að halda Merkúríusi lengst í austri frá sól einmitt þennan dag. , Ritað í unnskiptingastofunni á jafndægri á vor annó 1959. Með alúðarkveðjum. Þórbergur Þórðarson.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.