Morgunblaðið - 24.03.1959, Síða 23
Þriðjudagur 24. marz 1959
MORCUMILAÐIÐ
23
Hörð keppni í fyrstu um
ferðum Skákþingsins
Fjórða umferð tefld í kvöld
SKÁKÞING íslands 1959 hófst sl.
laugardag. — Röð keppenda 1
landsliðsflokki er þannig:
1. Haukur Sveinsson, 2. Jón
Kristjánsson, 3. Ingimar Jónsson,
4. Ingvar Ásmundsson, 5. Ólafur
Magnússon, 6. Þórir Sæmundsson,
7. Jón Guðmundsson, 8. Ingi R.
Jóhannsson, 9. Halldór Jónsson,
10. Reimar Sigurðsson, 11. Kári
Sólmundarson, 12. Benóný Bene-
diktsson.
f fyrstu umferð, sem tefld var
Engitin tók á móti
H. C. Hansen
þegar hann kom
hér við •
KEFLAVÍKUDFLUGVELLI, 23.
marz. — Síðdegis á sunnudaginn
kom hér við Cloudmasterflugvél
frá norrænu flusamsteypunni
SAS. Hafði flugvélin tafizt mjög
mikið á leið sinni vestur um haf,
en meðal farþega var H. C. Han-
sen, forsætisráðherra Dana, og
kona hans.
Þegar flugvélin kom hingað
var hún orðin um það bil 12 klst.
á eftir áætlun. Hún hafði fyrst
tafizt á Kastrupflugvelli vegna
vélbilunar. Flugvélin hafði svo
orðið að koma vjð í Prestvík,
einnig vegna vélabilunar og þar
tafðist flugvélin svo lengi að far-
þegar urðu að gista þar.
Hér á flugvellinum var enginn
af heimamönnum til að taka á
móti forsætisráðherranum og
enginn starfsmaður frá sendiráði
Dana, enda mun viðkoma flug-
vélarinnar hér hafa verið ákveð-
in með skömmum fyrirvara. For-
sætisráðherrann hafði verið í
bezta skapi. í þessari Ameríku-
för sinni er hugmyndin að hann
leggi hornstein að nýrri sendi-
ráðsbyggingu Dana í Washington
og þá mun forsætisráðherrann
og frú hans verða viðstödd brúð-
kaup dóttur Hans Hedtofts, for-
sætisráðherra, sem látinn er fyr-
ir nokkrum árum, en hann var
fyrirennari H. C. Hansens. Flug-
vélin hafði hér klukkustundar-
viðdvöl og var næsti áfangi leið-
arinnar Labrador. — B. Þ.
— Tibef
Frh. af bls. 1.
kommúnista reyndar hina sömu
víðs vegar annars staðar. Komm
únistum hefði ekki tekizt að
kuga Tibetbua ---- og nú vaíri
helzta ráð þeirra fyrrnefndu að
flytja Kínverja í stórum stíl til
Tíbet þar til þeir innfæddu
yrðu sjálfir í minnihluta i eigin
landi.
I.
Kvartaði Nehru m. a. yfir því,
að kínverskir koinniúnistar héldu
áfram að dreifa landabrófum þar
sem stórir sliikar Indlands i fjöll-
unum væru innlimaðir í Kina. —
Indverjar hefðu hvað eftir annað
mótmælt, en árangurslaust. Þá
sagði hann dæmi þcss, að liðssveit-
ir kommúnista hefðu setzt að inn-
an indversku landamæranna á
nokkrum slöðum, þegar Ianda-
mæravörzlulið Indverja hefði hald-
ið tU byggða yfir háveturinn.
★
Var umræðu um málið krafizt
f þinginu, en þingforseti hafnaði,
sagði innanríki&mál annar« ríkis
aldrei rætt á Indiandsþingi.
Aðrar heimildir eru taldar fyrir
því, að hersveitir Kínverja í Lhasa
hafi beitt slór&kotaliði og hríðs-
skotabyssum gegu Tíbctbúum —
og hafi Kínverjar brennt tvö klaust
ur í borginni til kaldra kola.
Samkvæmt heimildum indverska
utanrikisráðuneytisins mun eitt-
hvað lát bafa orðið á skothriðinni
í dag.
á laugardaginn, urðu úrslit þessi:
Ingi R. vann Ólaf — Ingvar vann
Halldór — Jón M. Guðmundsson
vann Þóri — Jón Kristjánsson
vann Kára — Haukur vann
Benóný — Ingimar vann Reimar.
Önnur umferð var tefld á
sunnudaginn og fóru leikar
þannig: Ingi R. vann Þóri Ingvar
vann Reimar — Ingimar vann
Kára — Halldór vann Ólaf —
Haukur og Jón Kristjánsson bið-
skák.
Efstir í meistaraflokki eru
Jónas Þorvaldsson, Bragi Þor-
bergsson, Stefán Briem, Þórður
Jörundsson og Karl Þorleifsson.
f gærkvöldi var þriðja umferð
tefld á skákþinginu, en úrslit
voru ekki kunn, er blaðið fór í
prentun. — Fjórða umferð verð-
ur tefld í kvöld í Breiðfirðinga-
búð, og heldur mótið síðan áfram
næstu kvöld og fram yfir páska.
Stúdentakór
frá Heidelberg
í heimsókn hér
í FYRRAMÁLIÐ er væntanleg-
ur hingað til lands stúdenakór
frá hinum gamla háskólabæ
Heidelberg í Þýzkalandi og mun
kórinn að öllum líkindum syngja
hér tvívegis á vegum Stúdenta-
ráðs Háskóla fslands.
í kór þessum, sem er blandað-
ur, eru 30 stúdentar. Þeir hafa
ferðazt um Bandaríkin um 2ja
mánaða skeið að undanförnu og
víða efnt til söngskemmtana við
góðar undirtektir.
Heimleiðis heldur kórinn á
föstudagsmorgun.
Eindæma veður-
blíða á Héraði
EGILSSTÖÐUM, 23. marz. —
Hér um slóðir er nú einmunatíð,
og hefur svo verið um alllangt
skeið. Má segja, að veðráttan sé
nánast eins og að sumarlagi, því
að oft hefur verið 8—10 stiga
hiti um nætur.
Hinn erfiði vegur yfir Fjarðar-
heiði, sem venjulega er ófær um
þetta leyti árs, er nú víðast hvar
kominn upp úr gaddinum og hef-
ur jafnvel verið farinn af fólks-
bílum. Mun það vera einsdæmi á
þessum tíma. — Aðrir vegir eru
flestir vel færir og í svipuðu
ástandi eins og oftast gerir í maí.
Snjór er nú því nær horfinn í
byggð víðast hvar. Minnast menn
hér yfirleitt ekki slíkrar veður-
blíðu á þessum árstíma. — A. B.
— Utan úr heimi
Framh. af bls. 12.
leyfa honum að gera neitt upp á
eigin spýtur. Loks tók Brando
sér fyrir hendur að sýna leikar-
anum Larry Duran, hvernig hann
ætti að detta niður af kletti, með
þeim afleiðingum að hann fót-
brotnaði og illkvittnar tungur
sögðu að eftir það hefði hann
setið með fótinn í gipsi og stjórn-
að læknunum.
En þegar Brando heyrir að fólki
finnst erfitt að gera honum til
hæfis, segir hann bara ofur sak-
leysislega: — Hvert orð og hver
einustu blæbrigði eru mikilvægt
atriði. Og svo bætir hann því við
að hann muni ekki síður verða
kröfuharður og smámunasamur
næst, þegar hann kvikmyndar
„Drauminn um Orfeus“. eftir
Tennessee Williams. En það
kemst hann vafalaust ekki upp
með, segja menn í Hollywood.
Þá verða sjálfsagt takmörk fyr-
ir því hvað hann getur leyft sér,
því aðalhlutverkið leikur ítalska
„eldfjallið" Anna Magnani, og
hún er ekki vön að láta vaða of-
an 1 sig.
Innilega þakka ég börnum mínum, tengdabörnum og
öðrum vinum, sem glöddu mig með heillaóskum og gjöf-
um í tilefni af 70 ára afmæli mínu.
Guð blessi.ykkur öll.
Eltn Magnúsdóttir, Súgandafirði.
Vegna iaroarfara
verða skrifstofur vorar og vörugeymslur
lokaðar miðvikudaginn 25. þ.m.
Harpa hf.
Hjartans þakkir til allra sem auðsýndu samúð og að-
stoð við andlát og jarðarför konunnar minnar,
GUÖRÚNAR H. BÆRINGSDÖTTUR,
Kirkjubóli.
Jóhann Sigurðsson og börnín.
Þökkum auðsýnda samúð og hluttekningu við fráfall og
jarðarför eiginmanns míns, föður okkar og tengdaföður,
ÞOIiDAK JÓHANNESSONAR,
járnsmiðs.
Sveinbjörg Halldórsdóttir,
börn og tengdadætur.
Innilegar þakkir til allra, sem auðsýndu okkur samúð
við fráfall
ÞORKEUS ÁRNASONAR,
sem fórst með bv. Júlí.
Sigriður Guðbrandsdóttir, Guðbrandur E. Þorkelssou,
Kristbjörg Sigurðardóttir, Árni Guðnason.
GUÐMUNDUR LOFTSSON
fyrrv. skrifstofustjóri í Landsbankanum,
andaðist á Elliheimilinu í Hveragerði 22. þ.m. Bálför
hans fer fram frá Fossvogskirkju miðvikudaginn
1. apríl n.k. kl. 13,30.
Aðstandendur.
Faðir okkar
HAIXDÓR ÞÖRÐARSON
andaðist að Elliheimilinu Grund 21. þ.m.
Fyrir okkar hönd og annarra skyldmenna.
Guðbjöm S. Halldórsson og Bjarni Þ. Halldórsson.
LÁRA ÖLAFSDÓTTIR
Njálsgötu 8C,
sem andaðist 15. þessa mánaðar verður jarðsungin að
Stóra-Núpi miðvikudaginn 25. þessa mánaðar klukkan 2.
Kveðjuathöfn fer fram frá Dómkirkjunni þriðjudaginn
24. þessa mánaðar klukkan 1,30. Athöfninni í kirkjunni
verður útvarpað.
Vandamenn.
Útför
ÖLAFAR ÁGÚSTSDÓTTUR
fer fram frá Fossvogskirkju miðvikud. 25. marz kl. 2.
Blóm vinsamlegast afbeðin. Athöfninni verður út-
varpað.
Gtinnhildur Eyjólfsdóttir, Ágúst Eyjólfsson,
Þórheiður Jóhannsdóttir, Ölöf Snælaugsdóttir.
Faðir minn
LUDVIG ARNE EINARSSON
málarameistari, Vesturgötu 45,
verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni, miðvikudaginn 25.
þ.m. kl. 10,30 árdegis.
Blóm eru afbeðin, en þeir, sem vilja minnast hins látna,
eru beðnir að láta líknarstofnanir njóta þess.
Athöfninni verður útvarpað.
Guðmundur Ludvigsson og fjölskylda.
Útför konunnar minnar
ÞÓRU PÉTURSDÓTTUR
sem andaðist 17. þ.m. fer fram frá Dómkirkjunni mið-
vikudaginn 25. þ.m. kl. 1,30
Ingjaldur Þórarinsson
Hjartans þakkir til allra er' sýnt hafa okkur samúð
og vinarhug við hið sviplega fráfall eiginmanns míns
föður og sonar okkar
SVEINBJÖRNS FINNSSONAR
sem fórst með vitaskipinu Hermóði. Sérstaklega vilj-
um við færa konum í „Hrönn“ þakkir fyrir vinarhug
þeirra.
Agnes Egilsdóttir, Halla Halldórsdóttir,
Finnur Sveinbjörnsson, Finnur Sveinbjörnsson.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát og
jarðarför
ÖNNU G. ÞORKELSDÓTTUR
prófastsekkju frá Mosfelli.
Svanlaug Einarsdóttír, Anna S. Þorsteinsdóttir.
Hjartkær eiginmaður minn, faðir og sonur
ÓLAFUR HELGI GUÐMUNDSSON
andaðist í sjúkrahúsi Siglufjarðar 21. marz. Jarðarförin
ákveðin síðar.
F. h. systkina og annarra vandamanna.
Jóhanna Þórðardóttir,
Sigurlína og Guðinundur Jónsson.
Þökkum hjartanlega sýnda samúð við andlát og jarðar-
för móður okkar, tengdamóður og systur
GUÐNÝJAR EGILSDÓTTUR
Ástríður Ólafsdóttir, Sigurður Kristmundsson,
Árni Ágústsson, Guðrún Ágústsdóttir,
Guðrún Egilsdóttir.
Við þökkum hjartanlega öllum er veittu okkur aðstoð
og hluttekningu við andlát og útför sonar okkar
MAGÚSAR HJARTAR STEINDÓRSSONAR
frá Teigi.
Oddný Hjartardóttir, Steiiulór Kr. Ingimundarson.