Morgunblaðið - 24.03.1959, Qupperneq 24
VEDRIÐ
Allhvass SA rigning er á daginn
líður.
69. tbl. — Þriðjudagur 24. marz 9
KJÖRDÆMAMÁLIÐ
Kæða Jólianns Hafstein á lauds-
fundinum. — Sjá bls. 12.
Beið bana er spreng
ing varð í olíutunnu
Óhugnanlegt slys á Sandbrekku i
Hjaltastaðaþingá
EGILSSTÖÐUM, 23. marz. —
Það hrmulega slys varð að Sand-
brekku í Hjaltastaðahreppi í gær,
að ungur maður, Hreinn Þor-
steinsson, beið bana af völdum
sprengingar. — Hreinn var 24
ára gamall, sonur Þorsteins Sig-
fússonar, bónda og hreppstjóra
að Sandbrekku, og konu hans,
Ingibjargar Geirmundsdóttur.
Slysasöfnunin
hjáMbl.
Tildrög slyssins eru þessi, eftir
því sem næst verSur komizt: í
byggingu, sem er áföst við íbúð-
arhúsið á Sandbrekku, stóð tóm
steinolíutunna. Fór Hreinn þang-
að inn, einhverra erinda, og með
honum lítill drengur, frændi
hans. — Þykir líklegast, að
Hreinn hafi kveikt sér í pípu eft-
ir að han kom inn 1 viðbygging-
una og þá staðið það nálægt olíu-
tunnunni, að neisti hafi hrotið að
sponsgati hennar með þeim af-
leiðingum, að sprenging varð. —
Sprakk botnin úr tunnunni og
lenti á Hreini. Beið hann þegar
bana af. — Litla drenginn, sem
með honum var, sakaði hins veg-
ar ekki.
FRAMLÖG í sjóslysasöfnunina
berast enn daglega til Morgun-
blaðsins, þótt raunar sé nú nokk-
uð tekið að draga úr gjafastraumn
ma. — Á þeim mánuði, sem söfn-
unin hefur staðið, hefir Mbl. bor •
izt tæp 1.154.000 kr.
Við sprenginguna brotnuðu all
ar rúður í þessari viðbyggingu,
en hvellurinn var svo mikill, að
hann heyrðist greinilega að Þórs-
nesi, sem er næsti bær við Sand-
brekku — í 2—3 kílómetra fjar-
lægð. — A. B.
Húsið fuðraði upp
á örskammri stund
Björgunarbátar tyrir 300 manns á Heklu
t gær voru settir um borð í strandferðaskipið Heklu gúmmíbjörgunarbátar, sem rúma alls 300
manns. Er hér um að ræða 15 slíka báta, sem hver um sig ber 20 manns. Hér sjást bátainir
í fiberhylkjunum á „Sprengisandi“ við hliðina á strandferðaskipinu. Esja er með jafnmargs
gúmmíbjörgunarbáta. Þá eru „breiðarnar“ með einn 20 manna gúmmíbát og tvo 10 manna báta
og loks er olíuskipið Þyrill með tvo 10 manna báta. Þessar stórauknu öryggisráðstafanir á skip-
um Skipaútgerðar ríkisins kosta fyrirtækið hartnær eina miljón kr. Næsta ferð Heklu er vestur
um land til Akureyrar á miðvikudagskvöldið og mun skipið verða fullskipað farþegum og vel
það ef að líkum lætur. Munu flestir farþeganna fara til Isafjarðar. (Ljósm. Mbl. ÓL K. M.)
GRUNDARFIRÐI, 23. marz. —
Um kl. 5 f dag varð þess vart,
að komið hafði upp eldur í íbúð-
arhúsi hér í Grundarfirði, og
brann það til kaldra kola á
skammri stundu. Hér var um að
ræða lítið einnar hæðar timbur-
hús, sem stóð hér ofarlega í kaup
túninu. Þar átti heima einhleyp-
ur maður, Sigvaldi Bjarnason að
nafni, en hann var að heiman, er
eldurinn kom upp.
Það voru verkamenn, er voru
að vinnu niðri við höfn, sem
fyrstir sáu, hvar reyk mikinn
lagði upp af húsinu og eldtungur
teygðu sig út um glugga. — Brá
fólk skjótt við og þusti til bjarg-
ar, en það var um seinan. Húsið
var þegar alelda, svo engum vörn
um varð við komið; talsverður
Leiksýning
VALDASTÖÐUM, 22. marz. —
I dag var sýnt í Félagsgarði leik-
ritið „Köld eru kvennaráð“. Var
það leikflokkur úr Mosfellssveit,
sem sýndi þetta leikrit, og má
segja, að það hafi tekizt með
ágætum. Var leikfólki fagnað
með dynjandi og verðugu lófa-
taki. Sýningin var vel sótt.
Hafi leikflokkur þessi beztu
þakkir fyrir komuna. — St. G.
stormur var og af suðri, sem æsti
eldinn mjög, svo að hann vann
á hinu litla timburhúsi á ör-
skammri stund.
Húsið var vátryggt, en innbú
ekki, og hefur því Sigvaldi orðið
fyrir tilfinnanlegu tjóni. — Allar
líkur eru taldar til þess, að kvikn
að hafi í út frá kolakyntri elda-
vél, sem Sigvaldi notaði jöfnum
höndum ti matseldar og upphit-
unar. — E. M.
Verkfallinu
hjá SAS lokið
STOKKHÓLMI, 23. marz. — Verk
falli sænsku flugliðanna 605 hjá
SAS er lokið. Gengið hefur ver-
ið að miðlunartillögu og er þess
vænzt, að flugferðir félagsins
verði komnar í samt lagt innan
tveggja vikna.
Björguðust til lands á gúmbáti
Vb. Fram strandaði við
Grindavík í gœrkvöldi
LAUST eftir kl. 9 í gærkvöldi
strandaði vélbáturinn Fram frá
Hafnarfirði í brimi og stormi,
rétt við innsiglinguna til Grinda-
víkur. — Á honum var 11 manna
áhöfn, og björguðust allir menn-
irnir í land í gúmmíbáti. — Munu
flestir skipbrotsmannanna hafa
komið til Hafnarfjarðar laust eft-
ir miðnætti í gærkvöldi.
★
I gærkvöldi var með öllu óvíst
um örlög Fram, en mikið brim
var þá í Grindavík. — Báturinn
var á leið inn til Grindavíkur,
Nýtt verndarsvœði tog-
aranna út af Aðalvík
EINS og kunnugt er hafa brezku
herskipin hér við land undan-
farið verndað ólöglegar veiðar
Bílhappdrœtti Sjálfstœðisflokksins:
Dregið á morgun
í DAG og á morgun er lokaátakið
til að ljúka sölu þeirra miða, sem
eftir eru, því að dregið verður
annað kvöld. — Vantar aðeins
herzlumuninn að allir miðar
seljist upp. Enn hafa þeir tækifæri til að freista gæfunnar, sem
ekki hafa þegar keypt sér miða. Hver vill ekki eignast svo stór-
glæsilega nýtízku fólksbifreið sem vinningurinn í happdrætt-
inu er?
Tækifærið er aðeins í dag og á morgun! Dregið verður annað
kvöld.
Tryggið yður miða strax!
Þeir eru seldir í skrifstofunni i Sjálfstæðishúsinu, sími 11104,
•g í happdrættisbílnum sjálfum, er stendur í AusturstrætL
brezkra togara á Selvogsgrunni
og við Snæfellsnes. Yfirleitt hafa
þó fáir togarar verið að veiðum
þarna, enda hefur afli þeirra
virzt rýr. íslenzkir fiskibátar
hafa hingað til ekki verið að
veiðum á þessum slóðum.
í fyrradag tilkynntu brezku
herskipin svo nýtt verndarsvæði,
nefnilega út af Aðalvík. í gær-
morgun voru 14 brezkir togarar
þar að ólöglegum veiðum, en á
þessum slóðum voru 2 vestfirzkir
línubátar að veiðum. í gærmorg-
un voru hins vegar engir togarar
né herskip við Snæfellsnes, en 2
togarar komu til ólöglegra veiða
á Selvogsgrunni.
5
sinnum meira
SIDNEY, 23. marz. — Fimm ára
geislamælingar sýna, að geisla-
virkt ryk er að magni fimm sinn-
um minna í Ástralíu en á norður-
hveli jarðar.
þegar þetta gerðist. I það
grynnsta var að fara inn ósinn
fyrir svo djúpristan bót sem
Fram, en hann er 65 lestir að
stærð, og brim var mikið, sem
fyrr segir, og braut yfir leiðina
inn. Var hann kominn inn und-
ir ytri bryggjuna í Grindavík,
er hann tók niðri í hælinn, en
við það hrökk stýrið upp af stand
inum. Skipstjóranum, Jóhanni
Frímanni, tókst þó að ná bátn-
um út úr ósnum aftur. Fór nú
vélbáturinn Arnfirðingur, sem lá
í Grindavíkurhöfn, út til þess að
aðstoða Fram og tókst að koma
yfir í hann dráttartaug. En þeg-
ar Arnfirðingur ætlaði að fara
að draga Fram af stað, vildi svo
óheppilega til, að festingin á
tauginni bilaði, einhverra orsaka
vegna.
Skipti það nú engum togum, að
Fram rak upp á flúðir, sem eru
inn af Djúpsundinu, en svo nefn-
ist aðalinnsiglingarleiðin til
Grindavíkur; sat báturinn þar
fastur og braut á honum. — Mbl.
átti í gærkvöldi tal við Sigurð
Þorleifsson, símstöðvarstjóra í
Grindavík, sem er jafnframt for-
maður slysavarnadeildarinnar
þar. Skýrði hann svo frá, að björg
un áhafnarinnar af Fram hefði
gengið ágætlega, en reyndar
komust mennirnir til lands af
eigin rammleik, eins og fyrr er
getið. — Fyrst fóru 8 menn af
áhöfninni í gúmmíbátinn, en þeir
þrír, sem eftir voru, héldu í
kaðal, sem festur var í hann, og
gáfu síðan eftir, unz félagar
þeirra höfðu náð landi. Þá drógu
þeir þremenningarnir bátinn aft-
ur til sín og lögðu síðan í honum
til lands. Gekk það að óskum.
Lágsjávað var í gærkvöldi, er
þessir atburðir gerðust, en mjög
óttuðust Grindvíkingar, að á næt-
urflóðinu mundi brimið berja
mjög á bátnum og ef til vill
brjóta hann.
Skipstjórinn á Fram, er eins
og fyrr segir Jóhann Frímann,
en framkvæmdastjóri útgerðar-
félagsins er Guðmundur Guð-
mundsson.
Þess má geta hér, að um fyrri
helgi var Fram nokkuð hætt kom
inn, er hann fékk net í skrúfuna,
þegar hann var að leggja út al
Hafnarnesi. Var hann kominn
mjög nærri landi, er vélbátur-
inn Viktoría frá Þorlákshöfn kom
honum til hjálpar.
Tungl-
myrkvi
í dag
ÞEGAR tunglið kemur upp við
sjóndeildarhring Reykvíkinga kl.
18:52 í dag, verður það ekki fullt
— eins og það á að vera að réttu
lagi — heldur verður myrkvuð
örlítil sneið af því. Þag er sem
sagt tunglmyrkvi í dag — hinn
eini á árinu.
Myrkvi þessi, sem hefst kl.
18:16, er aðeins deildarmyrkvi, en
hann verður mestur kl. 19,11, og
verður þá rúmlega Vk hluti af
yfirborði tunglsins myrkvaður
Myrkvanum lýkur svo kl. 20.07.
Þetta er sem sagt eini tungl-
myrkvinn á þessu ári. Tveir
myrkvar verða á sólu á árinu.
Sá fyrri, hringmyrkvi, verður 8.
apríl, en sést ekki hér á landi. Sá
síðari verður svo 2. okt. í haust.
Er það almyrkvi, en sést hér á
landi aðeins sem deildarmyrkvi
— rúmlega Vi af yfirborði sólar.