Morgunblaðið - 19.04.1959, Qupperneq 6
e
MORGUNBLAÐIÐ
Sunnudagur 19. apríl 1959
i I i
5KAK
i 1 i
SKÁKÞINGIÐ í Moskvu er nú
hálfnað, og er keppnin nokkuð
hörð og jöfn, þó eru þeir Smyslov,
Bi'onstein og Spassky ágengastir,
og eru í 3 efstu sætunum eftir 6.
umf. Friðrik virðist hafa farið
með löndum og haft sig lítið í
frammi til þessa enda hafa menn
það fyrir satt að hann beiti jafn-
vel öðrum byrjunum, en hann er
vanur og þá í þeim tilgangi að
leyna andstæðingum sínum í nk.
kandidatakeppni þeim vopnum er
hann vill beita þar. Undanfarið
hafa margir spurt mig um byrj-
unina sem Larsen tefldi gegn
Friðrik en hún nefnist Birds
byrjun. Ég ætla því að draga upp
ófullkomna mynd af henni fyrir
spyrjendur.
r Bird byrjun. (From bragð)
1. f4 Hugmyndin á bakvið leikinn
er að tefla Hollenzka vörn með
skiptum litum, en sú byrjun kem-
ur venjulega fram eftir að svart-
ur svarar 1. — d5. Ég ætla aðeins
að rifja upp skemmtilega peðs-
fórn sem nefnist „From bragð“
1. — e5!?
S ABCDEFGH
.....am =
M Vm. « Wmm
ABCDEFGH
Staðan eftir 4. — g5!? Leikur
Laskers.
1. f4 þíðir vissa veikingu á hvítu
kóngsstöðunni og svartur ræðst
þegar til sóknar gegn veikleikan-
um. 2. fxe5 Aðrir möguleikar eru
2. e4. Kóngsbragð. 2. d3, exf4;
3. Bxf4, d5 og svartur hefur góða
stöðu. 2. — d6; Til þess að koma
Bf8 út og verða þannig á undan
í liðskipan. 3. dxd6 Hvítur þarf
vitaskuld ekki að taka peðið.
3. — Bxd6; Hótar Dh4f 4. Kf3.
Slæmir afleikir eru 4.a e4? og
4. b g3. 4.a — Dh4f en þessi staða
kom upp í skák er ég tefldi eitt
sinn í 1. flokks keppni í T. R. og
andstæðingurinn gafst upp. 4.b —
h5! og svartur hefur betur. Al-
gengastar eru nú tvær leiðir.
4. — g5!? (Lasker) 4. Rf6 og jafn-
vel 3. leiðin 4. — Bg4. Við skulum
lítillega athuga 4. — g5!?
abcdefgh
urslega og svarti kóngurinn er
í yfirvofandi hættu. 6. — Bxe5;
7. dxe5, Dxdlf; 8. Kxdl, Rc6;
9. Bf4, Be6; 10. e3, Rge7; 11. Bb5,
0-0-0; 12. Kcl, Bd5; 13. Hgl, a6;
14. Be2, Be6; 15. Bg5! með jöfnu
tafli samkv. R. Fine. Ég vil taka
það fram að Friðrik hefur senni-
lega valið 1. — d5. En þann leik
athugum við nánar þegar okkur
berst skák þeirra Larsens og
Friðriks.
Hvítt: Dr. S. Tartakower.
Svart: W. Winter.
From bragð.
Teflt í Nottingham 1936.
1. f4, e5; 2. fxe5, d6; 3. exd6, Bxd6
4. Rf3, g5; 5. d4, g4; 6. Rg5, De7;
(Betra er 6. — f5.) 7. Dd3!, f5;
8. h3, Rc6; 9. hxg4, Rb4; 10. Db3,
f4; 11. Bd2? Dr. A. Aljechin segir
í bók sinni um mótið: Leikur,
sem eyðileggur árangurinn af
kraftmikilli taflmennsku Tarta-
kowers í byrjuninni. Betra var
11. Hxh7, Hxh7; 12. Dxg8f, Dd7;
13. Rxh7, Rxc2f; 14. Kdl, Rxal!
15. e4! fxe3 e. h. 16. Bxe3 með
óstöðvandi sókn. 11. — Rxc2f;
12. Dxc2, Dxg5; 13. Rc3, Rf6; 14.
Re4, Rxe4; 15. Dxe4f, De7; 16.
Df3 Ef 16. Dxe7, Kxe7; 17. Bc3,
Bxg4; 18. d5, h5!; 19. Bxh8, Hxh8
með miklum möguleikum fyrir
svart.
16. — Be6; 17. Dxb7, o-o; 18. Df3,
Dg7; 19. Bc3, Bxg4; 20. Dd5f, Kh8;
21. 0-0-0, Hae8; 22. Hd3, Bf5;
23. Hf3, Be4? Betra er 23. —He7;
24. Dh5, Bxf3?; Slæmur afleikur.
Betra var 24. — c6 25. exf3, He3;
26. Bc4, Hfel; 27. Bb3, He8-e7;
28. Df5, c5?; Síðasti afleikurinn,
Jen eftir 28. —- He8; 29. Bc2 var
svartur í erfiðieikum. 29. Hxh7f,
Dxh7; 30. Dc8? gefið.
IRJóh.
Rímnavaka — óvenju'eg
bók með nútímarímum
Safnað hefur Sveinbjörn Beinteinsson
ÚT er komin á forlagi ísafoldar
ný bók, sem inniheldur rímur
ortar á þessari öld og nefnist bók
in Rímnavaka. Höfundar hennar
eru 31 að tölu, þeir yngstu um
tvítugt og hinir elztu á níræðis-
alri. Elzta ríman er ort 1907, en
sú nýjasta á s.l. ári. Meðal þeirra,
sem rímur eiga í bókinni, eru
nokkur þekkt skáld og má þar
nefna Jakob Smára, Jóhannes úr
Kötlum og Stein Steinarr. Svein-
björn Beinteinsson rithöfundur
hefur safnað í kver þetta og búið
það til prentunar. Hann skrifar
einnig formálsorð, sem nefnast
Ævintýrið, og er þar rakin í stór
um dráttum saga íslenzkrar ljóða
gerðar. Segir hann þar m.a.:
„Ljóðakunnátta almennings hef-
ur bezt varið íslenzkuna fyrir
ofurmagni erlendra áhrifa og inn
lendum ómenningarhneigðum,
Enn mætti góð vísa og snjöll
ríma koma í góðar þarfir. því
margur vandi steðjar nú að ís-
lenzkri tungu og allri okkar
menningu. Það sýnir sig að mörg
ágæt ríma hefur ort verið1 á
seinni árum. . . . “ Sveinbjörn
Beinteinsson er Borgfirðingur að
ætt og uppruna, sonur Beinteins
Einarssonar frá Litla-Botni og
Helgu Pétursdóttur konu hans
frá Draghálsi. Hann hefur lengi
haft sérstakan áhuga á rímum
og rímnaskáldskap og hefur
skrifað bók um rímnabragfræði.
Dæmi úr bókinni:
Rokkið prísa skelliskröll,
skandalísera bæinn;
það eru skvísleg húllum-höll,
húkkar fýsu gæinn.
Delar barnum dragast að.
Drykkir um varir streyma.
Svo verður farið strax af stað
í stællegt kar að geima.
Slógu fírar fljótt til sanns
fyrir spíra saman.
Kyssa gírugt fýsu fans
finnst þeim dýrlegt gaman.
(Ari Jósefsson, Halldór Blön-
dal, báðir nýlsoppnir af ,.stæl
gæja-aldrinum).
Úr Hlíðar-Jónsrímum eftir Stein
Steinarr:
Upp skal hefja ringa raust
rymja stefja langa flokkinn,
sorgir skefja Sóns við naust,
sinn við tefja Boðnarstrokkinn.
Hygg ég óðar hallt sé ker,
hismi og tróð þar margur firmi,
fljóðið góða, þó ég þér
þetta bjóði af fátækt minni.
Þó ég meini þetta og hitt
þér ég reyna vil að segja:
þú ert eina yndið mitt,
uns ég seinast fer að deyja.
KV IK MY N DI R *
Stjörnuhíó:
GULLNI KADILLAKKINN
KVIKMYND þessi, er gerð eftir
leikriti þeirra Kaufmans og Teich-
mans, en leikrit þetta sýndi Þjóð-
leikhúsið í fyrra með titlinum: „Sá
hlær bezt . . .“ og lék Emilia Jónas
dióttir aðalhlutverkið Láru Pat-
ridge, mjög skemmtilega. Það hlut-
verk leikur Judy Hollyday í mynd-
inni og er bráðsnjöll. — Efni mynd
arinnar þarf ekki að rekja hér,
því það er hið sama og í leikrit-
inu ,sem mun flestum í fersku
minni. Fróðlegt er að bera saman
leikinn í kvikmyndinni og á svið-
inu í Þjóðleikihúsinu. Vitanlega
gefur kvikmyndin meira svigrúm
til fjölbreytni leikatriða og útfoún-
aðar, en leikurinn er auk þess
miklu betri í myr.dinni, en í Þjóð-
leikhúsinu, einlkum leikur stjórn-
enda hlutafélagsins.
Myndin er bráðskemmtileg ekki
sízt fyrir afbragðsgóðan leik þeirra
Judy Hollyday og Poul Douglas,
sem leikur fyrrverandi forseta fé-
lagsins, Mc Keefer.
Auslurbæjarbíó:
H E L V E G U R
ÞESSI ameríska mynd, sem tekin
er í litum og CinemaScope, segir
frá flótta ífoúa þorpsins Cfoiku
Shan í Kina til Hong Kong undan
harðstjórn og ofbeldi kommúnista-
stjórnarmnai'. Hefur amerískur
ævintýramaður, Wilder skipstjóri,
sem er þaulkunnugur hafinu við
strendur Kína, tekið að sér stjórn
flóttans. Meðal flóttamannanna er
Cathy Grainger, dóttir amerísks
læknis, en kommúnistar hafa myrt
hann af því að honum hafði ekki
ABCDEFGH
Staðan eftir 1. f4, e5!?
Harðskeyttasta sóknartilraun
svarts 5. d4 Of hægfara er 5. g3,
g4; 6. Rh4, Re7!; 7. d4, Rg6; 8.
Rg2, Rc6 (Hótar Rxd4 og síðan
Bxg3f). 9. e3, h5; 10. Bd3, h4 sbr
skákina Schenk—Spielmann, Wi-
en 1911, og dr. Euwe álýtur svörtu
sóknina mjög sterka. 5. — g4;
6. Re5 Hér er mjög flókin leið.
6. Rg5!?, f5!; 7. e4, h6; 8. e5, Be7;
9. Rh3!, gxh3; 10. Dh5t, Kf8;
11. Bc4, De8; 12. Dxh3, Rc6; 13.
c3, Dg6; 14. 0-0. Hvítur hefur tvö
peð fyrir manninn og góða árásar
möguleika samkvæmt áliti V.
Pirc en L. Pachmann álítur stöð-
una í jafnvægi. Ég hallast að
áliti V Pirc með tilliti til þess
að svörtu mennirnír standa klúð-
skrifar úr
daglega lifinu
Frelsisljóð eftir pöntun.
SÍÐASTLIÐINN miðvikudag var
komið á framfæri í þesum
dálkum fyrirspurn um það, hvar
ljóðið hennar Halldóru B. Björns-
son um Tibet væri.
Nú hefu rHalldóra sjálf svarað
þessarai spurningu í bréfi til Vel-
vakanda. Kveður hún ljóð sitt um
Tíbet ekki til, ekki ennþá. Aftur
á móti kveðst hún vilja sýna þá
rausn að gefa Mbl. kost á að
eignast þetta ljóð, en aðeins með
því skilyrði að það kosti ferð
hennar til Tíbet og heim aftur,
ásamt nokkurra vikna dvöl í land
inu. Þá lofar hún allt af því
heilsíðu ljóði um Tíbet.
Þegar Velvakandi kom á fram-
færi þessari fyrirspurn, hafði
hann ekki hugmynd um að skáld-
konan tæki að sér að yrkja slík
frelsisljóð eftir pöntun. En gam-
an væri að vita hver hefur kost-
að hana í slíka ferð, til Kýpur.
Skyldi það vera blaðið, sem birti
ljóðið?
Hver er höfundurinn?
Þó að skríða sjái um sinn
svartar hríðir kífsins,
fyrir kvíða muni minn
má ei tíðum lífsins.
Veit ég hann sem hjartað sér
hjálplegan að vera,
varla anna ðætlar mér,
en ég kann að bera.
Vitið þið hver gerði þessar
vísur? Sá, sem hafði þær yiir
fyrir Velvakanda vissi það ekki,
en hefur löngun til að vita hver
þesi ágæti hagryðingur er.
Þátturinn verði
endurtekinn.
SÍÐASTI útvarpsþáttur „Vogun
vinnur — vogun tapar“, var
ennþá meira spennandi en fyrri
þættir, vegna þess að þá kepptu
þrír um lokaverðlaunin. Ég hefi
nrðið var við. að beim sem misst
hafa af þessum þætti af einhverj-
um orsökum, þykir það afleitt.
Og það lítur út fyrir að hér sé
um nokkuð stóran hóp að ræða.
Þennan dag var mikið um ferm-
ingarveizlur. Liðlega 350 börn
voru fermd í Rvík, Keflavík og
Hafnarfirði.
Velvakanda er kunnugt um,
að í einni fermingarveizlunni hér
í Reykjavik, þar sem voru um
60 manns, létu nær allir veizlu-
gestir í ljós, að þeim þætti leitt
að missa af þættinum. Hafi svo
margir gestir setið fermingar-
veizlur hjá öllum þessum ferm-
iingarbörnum sem varla er þó
hægt að gera ráð fyrir í alvöru,
þá hafa um 21000 manns forfall-
ast frá að hlusta á þáttinn a£
þeim orsökum.
Þó það sé nú vafalaust ýkt
tala, yrðu vafalaust margir fegn-
ir ef útvarpið vildi endurtaka
þennan síðasta þátt.
Þegar ég er nú búinn að telja
saman fermingarbörnin og kom-
ast hve mörg þau eru, gerist
þessi spurning áleitin: Hve miklu
skyldi vera eytt í fermingarsiði,
veizlur og gjafir á ári hverju á
íslandi?
heppnast uppskurður á einum af
foringjum þeirra. Á flóttanum ger
ist margt sögulegt, barátta við
varðbát og tundurspillir kommún-
ista og ofsalegt stórviðri, en allt
þetta fær ekki hindrað það að
flóttamennirnir komast að lokum
til Homg Kong, — og Wilder skip-
stjóri uppsker launin fyrir örugga
leiðsögu, — og launin er auðvit-
að Catfoy Grainger.
Mynd þessi er fremur ómerki-
leg ctg langdregin á köflum. Jofon
Wayne, sem leiikur Wilder skip-
stjóra, er kailmannlegur og fer
dável með hlutverk sitt, en Lauren
Bacall, sem leikur Cabhy er ekki
aðlaðandi kona og leikur henn-ar
án tilþrifa. Fæ ég ekki skilið það
dálæti, sem margir, einkum í Ame-
ríku, hafa á þessari leilkkonu.
Gamla Bíó:
MISSKILIN ÆSKA
ÞAÐ er mikið rætt, nú á tímum,
um vandamál æskufólksins, og
er það ekki að ástæðuiausu.
Heimsstyrjöld og hin mikla
tækni og hraði, sem á öllu er,
hefur sett mark sitt á þá kyn-
slóð, sem nú er að alast upp.
Hún finnur hvergi hald né traust
í þessum heimi sífelldra styrj-
alda og illdeilna þjóða í milli
En vandamál unga fólksins eru
ekki aðeins útávið, gagnvart um-
heiminum, heldur einnig á heim-
ilunum, gagnvart foreldrunum,
sem oft gefa sér ekki tíma til að
sinna börnum sínum sem skyldi
og reyna að skilja þau og sýna
þeim þá blíðu, sem hverju barni
er nauðsynleg. Um þetta alvar-
lega nútímafyrirbæri fjallar
mynd sú, sem hér ræðir um. Ung
ur drengur slær mann í sjálfs-
vörn. Það er farið með hann á
lögreglustöðina og hann segir þar
allan sannleikann, en enginn trú-
ir honum, — ekki einu sinni faðir
j hans. Þegar þeir tala saman síðar
j feðgarnir, segir drengurinn við
föður sinn. „Ég er sonur þinn, en
þú þekkir mig samt ekki. Hvern-
ig ættir þú að vita hvort ég segi
satt eða ósatt.“ Og móðir drengs
ins segir við mann sinn: „Pening
ar það eina, sem þú hefur gefið
honum . . . en það er ekki nóg til
að vinna ást hans.“
Mynd þessi er mjög athyglis-
verð og vel leikin, einkum hlut
verk drengsins og foreldra hans,
er þau James Mac Arthur, Kim
! Hunter og James Daly leika. —
Myndin á fyrst og fremst erindi
til foreldra, og ættu sem flestir
þeirra að sjá hana. —Ego.
Austurríski skíða-
garpuriim hér
AUSTURRÍSKI skíðagarpurinn
Zimmerman er nú kominn til
Reykjavíkur utan af landi. Verð-
ur hann við æfingar ásamt reyk-
vískum skíðamöhnum í Skála-
felli núna um helgina ,en fer síð-
ar í vikunni upp í Jósefsdal og
tekur þátt í móti, sem verður þar
um næstu helgi.