Morgunblaðið - 19.04.1959, Síða 24

Morgunblaðið - 19.04.1959, Síða 24
VEDRID Austan stinningskaldí. Allhvasst meff köfium. 88. tbl. — Sunnudagur 19. apríl 1959 Reykjavíkurbréf Sjá bls. 13 Greiðsluhallalaus fjárlög án nýrra skatfa og tolla Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins og Alþýðuflokksins i fjárveitinganefnd gera sameiginlegar tillögur um afgreiðslu fjárlaga t •• Onnur umrœða um trv. á morgun ÚTBÝTT var á Alþingi í gær nefndaráliti frá 1. minnihluta fjárveitinganefndar um frum- varp til fjárlaga fyrir árið 1959. Þessi 1. mhl. fjvn. er skipaður fulltrúum Sjálfstæðisfl. og Alþfl. í nefndinni. Jafnframt hafa verið lagðar fram breytingartillögur við frv., sem nefndin stendur öll að og ennfremur sérstakar breytingar- tillögur frá fulltrúum Sjálfstfl. og Alþfl. og aðrar frá fulltrúa Alþýðubandalagsins. í nefndaráliti 1. mhl. fjvn. er tekið fram, að nefndin standi öll að breytingartillögunum við gjaldabálk frv., en samkomulag hafi ekki náðst um ráðstafanirn ar þær til lækkunar á útgjöldum ríkissjóðs og ákvörðun tekjuáætl unar, sem felast í tillögum full- trúa Sjálfstæðisfl. og Alþfl. Tillögur þær um hækkun á gjaldaliðum fjárlagafrumvarps- ins, sem nefndin stendur öll að, nema samtals rúmum 30 millj. kr. Því til viðbótar leggur 1. mhl. til, að ríkissjóður leggi fram til útflutningssjóðs 154 millj kr. Yerður því útgjaldahækkun alls kr. 184 millj. Til þess að mæta þessari hækk un leggur 1. mhl. nefndarinnar til, að ýmis útgjöld ríkissjóðs á öðr- um liðum frv. verði lækkuð um 49,2 millj. kr. Ennfremur verði áætlaðar tekjur af núverandi tekjustofnum ríkissjóðs hækkað ar um 68, 6 millj. Er þá meðtal- in hækkun á verði tóbaks og á- fengis, er nemur 25 milljónum og fellt niður núverandi framlag útflutningssjóðs til ríkissjóðs að upphæð 20 milljónir. Þá er lagt til, að 25 milljónum af greiðsluafgangi ríkissjóðs 1958 verði varið til að mæta útgjöld- um ríkissjóðs á þessu ári og enn fremur greiði Sogsvirkjunin 30 milljónir vegna tolla og annarra opinberra gjalda í sambandi við hina nýju virjun Sogsins. Samkvæmt tillögum 1. mhl. fjárveitingarnefndar verður fjár- lagafrumvarpið með 9,5 millj. kr. greiðsluhalla við 2. umræðu. Er tekið fram í nefndaráliti að við 3. umræðu verði gerðar tillögur um jöfnun tekna og gjalda þannig að fjárlög verði afgreidd greiðslu hallalaus. Önnur umræða um fjárlaga- frumvarpið verður á morgun. Varðar- fundur á þriðjudag ÁKVEÐIÐ er að Landsmála- félagið Vörður haldi fund n.k. þriðjudag. Umræðuefni: Tíma mót í íslenzkum stjórnmál- um. Frummælandi verður Jóhann Hafstein, hankastjóri. Söfnunin nam um 4 millj. MORGUNBLAÐIÐ afhenti í gær- dag til slysasamskotanna allt það fé, er blaðið hefur safnað í þessu skyni, og er fjársöfn- Eru brunarústir Berg- þórshvols fundnar? STARFSMENN Þjóðminjasafns-1 í ársbyrjun 1959 voru kolaðir ins gerðu fornleifarannsókn á birkibútar úr þessu lagi sendir Bergþórshvoli 1951 og fundu þá til aldursgreiningarstofnunar mikið brunalag undan stóru Þjóðsafnsins í Kaupmannahöfn brunnu fjósi. Lagið var neðst allra mannvistarlaga á sínum stað og hlýtur þvi að vera mjög gamalt og getur vel verið frá Njálsbrennu, sem talið er að yrði árið 1011. Vísitalan óbreytt KAUPLAGSNEFND hefur reikn að vísitölu framfærslukostnaðar í Reykjavík 1. apríl 1959 og reynd ist hún vera 100 stig eða óbreytt frá grunntölu vísitölunnar 1. marz 1959. Samkvæmt ákvæðum 6. gr. laga nr. 1/1959, um niðurfærslu verðlags og launa, er kaup- greiðsluvísitala tímabilsins 1. maí til 31 ágúst 1959 100 stig eða óbreytt frá því, sem er í mánuð- unum marz og apríl 1959. Bílstjóraniir unnu LOKIÐ er hinni árlegu skák- keppni milli Samb. ísl. banka- manna og skákdeildar Bifreiða- stjórafél. Hreyfils. Fóru Hreyfils- menn með sigur af hólmi 15% : 14% vinning. í fyrra unnu banka menn, en þetta er í fjórða skiptið, sem þessir aðilar tefla. og rannsakaðir þar fyrir vinsam- legan atbeina forstöðumannsins dr. J. Troels-Smith. Mæling á geislavirku koli (kolefni 14) í sýnishorni þessara kolabúta hefur nú leitt til þeirr- ar niðurstöðu, að viðkomandi birkitré hafi vaxið innan ára- bilsins 840—1040. Nákvæmari aldursgreining fæst ekki með þessari aðferð enn sem komið er. En niðurstaða þessi kemur mjög vel heim við það sem ætla mátti um aldur brunalagsins af legu þess í jarðlögunum og hlýt- ur að auka líkurnar fyrir því, að fjósið hafi brunnið í Njáls- brennu. (Frétt frá Þjóðminjasafninu). Mathías Á. Mathiesen Páll V. Daníelsson Fundur annað kvöld hjá Landsmálafél. Fram HAFNARFIRÐI. — Landsmálafé- lagið Fram heldur fund í Sjálf- stæðishúsinu annað kvöld kl. 8,30. Frummælendur verða þeir Matt- hías Á. Mathiesen sparisjóðsstjóri, sem ræðir um stjórnmálaviðhorfið, og Páll V. Daníelsson bæjarfull- trúi, er talar um bæjarmál og seg- ir frá afgreiðslu síðustu fjárhags- Mikið netjatjón hjá Vestmannaeyjabátum VESTMANNAEYJUM, 18. apríl. aríæratjón þeirra er miikið. Þessir 1 vikuni, sem nú er að líða, hefir daglega komið hér á land jafn og góður fiskur. Hins vegar var sjó- sókn sem fyrr erfið mjög sökum storma á miðunum. Mjög mikið netjatjón ihefir orðið og lætur nærri, að nokkrir bátar verði að hætta veiðum vegna þess, hve veið- Sumarfagnaður stúdenta síðasta vetrardag STUDENTAFELAG Reykjavík- ur og Stúdentaráð Háskólans gangast fyrir sumarfagnaði í Lídó síðasta vetrardag. Hefst fagnaðurinn klukkan hálfníu um kvöldið, og verður margt til gleðskapar. Af skemmtiatriðum má nefna, að Sigurður Benedikts son mun halda uppboð á mjög verðmætum hlutum. Fyrst mun hann bjóða upp nokkrar flöskur af „svartadauða", fyrstu blöndu, og verða þær áritaðar og mynd- skreyttar af ýmsum þjóðkunnum mönnum, m. a. Tómasi Guðmunds syni, Sigurði Nordal og Jóni Pálmasyni. Má búast við að sleg izt verði um þessar óvenjulegu flöskur. Þá mun Sigúrður enn- fremur bjóða upp nokkrar áritað ar bækur eftir unga höfunda. Af öðrum skemmtiatriðum má nefna, að enska söngkonan Suss- an Sorell syngur nokkur lögð og Karlakór Háskólastúdenta mun væntanlega einnig koma fram. Síðan verður stiginn dans fram eftir nóttu. Aðgöngumiðar að sumarfagnað- inum verða seldir í herbergi Stúdentaráðs í Háskólanum og í Lídó frá kl. fimm og fram úr síðasta vetrardag. bátar áttu net sín suður á „Banka“ en þar hvessti mikið af austri á þriðjudaginn og var mikill sjór og straumur. Bátarnir reyndu á miðvikudagin að draga eithvað af netunum, en það gekk mjög erfið- lega í versnandi veðri. Þeir kom- ust ekki á sjó næsta dag vegna óveðurs. Loks a föstudaginn tóikst þeim að komast út og vitja ..etanna. Var þá allt rekið saman og vafið í hnúta svo stóra, að óviðráðan- legt var. Þó gátu einstaka bátar krafsað eitthvað úr dræsunni. — Netjatjónið er misjafnlega mikið hjá bátunum, og sumir fengu nær öll sín net aftur. Þess skal getið, að bátarnir sem misstu net sín, eru dreifðir mjög yfir veiðisvæðin hér vestur og suður af Eyjum. Hins vegar urðu þeir bátar, sem áttu net vestur af Dröngunum ekki fyrir netjatjóni þess-a óveðursdaga. Mest hafði tjónið orðið hjá þeim bátum, er net áttu suður og vestur af Geirfuglaskeri. — Bj. Guðm. Neskaupstað, 18. apríl. — Gerp- ir ei á heimleið af Jónsmiðum með 300 lestir af ísfiski. — Er hann væntanlegur á mánudag. —Fréttaritari. áællunar. — Er allt Sjálfslæffisfólk velkomiff á fundinn og hvatl til aff fjölmenna. Fróðlegt erindi um Crænland SÍÐASTLIÐIÐ föstudagskcöld hélt Ferðafélag íslands kvöld- vöku í Sjálfstæðishúsinu. Þar fiutti ungur fslenzkur náttúru- fræðingur, Eyþór Einarsson, er- indi um Norðaustur-Grænland, en þar hafði hann dvalizt eitt grænlenzkt sumar eða 7 vikur með vísindaleiðangri Lauge Kochs. Flugu vísindamennirnir víðs vegar um þetta hrikalega landsvæði til að sinna rannsókn um sínum, og tók Eyþór margar litskuggamyndir, sem hann sýndi til skýringar. Voru myndirnar undurfallegar og var fengur í að fá að kynnast þessu sérkennilega landslagi. un blaðsins til slysasamskotanna þar með lokið. Guðlaugur Þorvaldsson, full- trúi, er starfar á vegum söfnun- arnefndar, tók við sparisjóðsbók frá Landsbankanum nr. 95570 með innstæðu að upphæð kr. 1.226.866.40, en að auki tók Guð- laugur við kr. 2750,00 í pening- um er safnazt höfðu síðustu daga. Hafa þannig safnazt hjá Mbl. alls kr. 1,229,616,40. Guðlaugur skýrði blaðinu svo frá að heildarsöfnunin myndi vera fast að 4 millj. kr. Mest hefði safnazt í biskupsskrifstof- una, tæpl. 1,5 millj. kr. Islenzka myndlist- arsýnmgm í Moskvu opnuð ÍSLENZKA myndlistarsýningin í Moskvu var opnuð með hátíð- legri athöfn föstudaginn 17. þ. m. — Ávörp fluttu Pakhomov, að- stoðarmenntamálaráðherra Sovét ríkjanna, Gerasimov, formaður Listamannasambands Sovétríkj- anna, Birgir Thorlacius, ráðu- neytisstjóri og Valtýr Pétursson, listmálari. Að kvöldi sama dags var hald- inn stofnfundur íslandsvinafé- lags í Moskvu. Tómas Guffmundsson Varðarfagnaður í Sjálf- stœðishúsinu í kvöld LANDSMÁLÁFÉLAGIÐ Vörður efnir í kvöld til Varðarfagnað- ar í Sjál'stæðishúsinu og hefst skemmtunin kl. 9, en húsið verð- ur opnað kl. 8,30. Þessi Varðarfagnaður verður með sama sniði og áður. Að þessu sinni mun Tómas Guðmundsson, skáld, flytja forspjall, góðkunnir leikarar sýna leikþátt og gaman- þáttur verður fluttur. Þá verður dans og leikir, sem Axel Helga- son stjórnar. Landsmálafáiagið Vörðui vill gefa féiagsmönnum sínum kost á góðum og ódýrum skemmtunum og í þeim tilgangi efnir það til Varðarfagnaðar. Mælist þetta vei fyrir og var mikil og aimenn ánægja með fyrsta Varðarfagn- aðinn, sem haldinn var. Ekki er því ólíklegt að félagsmenn noti tækifærið og fjölmenni á Varð- arfagnaðinn í kvöld.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.