Morgunblaðið - 24.05.1959, Page 1
24 slðui
46. árgangur
113. tbl. — Sunnudagur 24. maí 1959
Frentsmiðja Morg'inblaðsbUr
ilskkisrffiii
Sh'fmHton . stn/.il f;rn bhmihunt k,
kað heíir orðið ;tð $amkof;ttstagi arUU j'ingmanníí
i;aidsí5okksíns a%< Fr|áisíynd;; Orjkksnis að nvtnern sarn.tn
oisTO-fiokk, or vjor nefmiTO:
: +
mnnú
;x-í»:::í
V
Málffnum
Olahir íh«‘i" *.iijsínajsmaður
TOÍðsHóítrasinnítk starfar þriggja manna fram-5
i-.V'0-mti.fMð. >ór;;ímt jotHáfeson, Magnús GtíðTOuridssorf
.liifoii’ 'Uö’Jrr, Johomi t>. .íosrflm;. <k>h <
1 kémmkf, JúkÚkifmmhf Jn^Shpo
Sjálfstæðisflokkurinn
er 30 ára á morgun
Ávarp frá Olafi Thors
Á BJÖRTUM vordegi var
Sjálfstæðisflokkurinn stofn-
aður. Bjart hefur verið yfir
allri starfsemi hans, og bjart-
ar eru framtíðarhorfur hans.
Á morgun fyllir flokkurinn
þriðja áratuginn.
Það var þ. 25. maí 1929, sem
samkomulag náðist milli leið-
toga íhaldsflokksins og Frjáls
lynda flokksins um samruna
þessara flokka í einn og sama
flokk, sem hlaut heitið „Sjálf-
stæðisflokkur“. Voru þar til
æðstu forustu valdir hinir
mætustu menn, þeir Jón Þor-
láksson, Magnús Guðmunds-
son og Sigurður Eggerz. Var
Jón Þorláksson kosinn for-
maður flokksins, en hann var,
sem kunnugt er, um margt
mikilhæfastur íslenzkra
stjórnmálamanna sinnar sam-
tíðar.
Síðan hefur Sjálfstæðis-
flokkurinn ævinlega verið
fjölmennasti flokkur þjóðar-
innar, að öllu merkastur og
oftast voldugastur.
Stefnuskrá flokksins var
stutt en skýrt mörkuð
þannig:
1. Að vinna að því að undir-
búa það, að ísland taki að
fullu og öllu sín mál í sín-
ar eigin hendur og gæði
landsins til afnota fyrir
landsmenn eina, jafnskjótt
og 25 ára samningstíma-
bil sambandslaganna er á
enda.
2. Að vinna í innanlandsmál-
um að víðsýnni og þjóð-
legri umbótastefnu á
grundvelli einstaklings-
frelsis og atvinnufrelsis
með hagsmuni allra stétta
fyrir augum.
Játa ber, að Sjálfstæðis-
flokkurinn hefur oft orðið að
gera afvik frá stefnu sinni
varðandi einstaklingsfrelsið
og athafnafrelsið. En hann
hefur alltaf gert það í því
skyni að afstýra því sem
verra var og með því tekizt
að bjarga miklum verðmæt-
um. Að því er snertir hitt
aðalstefnumið flokksins, þ. e.
a. s. sjálft fullveldi og sjálf-
stæði íslendinga, hefur Sjálf-
stæðisflokkurinn hins vegar
aldrei hvikað frá settu marki
um svo mikið sem hársbreidd.
Með viljaþreki og óbifanlegri
festu, hafði hann alla forustu
í lokaþætti frelsisbaráttunn-
ar. Þegar flestir aðrir ýmist
hikuðu eða snerust til and-
stöðu og þar á meðal sumir
þeir, sem nú þykjast góðir af
málinu, herti hann róðurinn.
Það er söguleg og sannanleg
staðreynd, að ef Sjálfstæðis-
flokkurinn hefði nokkru sinni
hvikað frá stefnu sinni hefði
endurreisn lýðveldisins verið
frestað þar til eftir ófriðar-
lok. Er þá allsendis óvíst.
hvort það gæfuspor væri enn
eða yrði nokkru sinni stigið.
Er fullkomin nauðsyn, að
sú saga verði réttilega sögð,
en það hefur enn ekki verið
gert.
'k
Það er ekki ætlan mín, að
rekja sögu flokksins hér,
enda ekki auðið í fáum orð-
um. Aðeins minni ég á, að eft-
ir að lýðveldið var endurreist
fyrir atbeina flokksins, beitti
flokkurinn sér fyrir, að afla
því álits og trausts og vináttu
út á við. Það tókst með sam-
felldri og styrkri stjórn
flokksins í utanríkismálum
þjóðarinnar fyrsta áratug lýð-
veldisins. Jafnframt gerði
flokkurinn sér ljóst, hver höf-
Egyptur kyrrsetju danskt skip
PORT SAID, 23. maí. — Egypzk
stjórnarvöld hafa lagt hald á
farm danska kaupskipsins „Inger
Toft“, sem kom til Port Said í
gær og ætlaði að sigla frá Haífa
um Súez-skurðinn til Austur-'
landa. Skipið hafði meðferðis
ýmsar vörur frá ísrael til Aust-
urlanda, en skipstjórinn var hand
tekinn og sömuleiðis skipverjar
hans, og eru þeir allir í haldi með
an málið er í rannsókn.
Egypzk stjórnarvöld leyfa ekki
skipun frá fsrael að sigla um
Súez-skurðinn, og áður haf'a þau
bannað erlendum skipum að fara
um skurðinn, ef þau höfðu með-
ferðis vörur til ísraels. Danska
skipið var stöðvað í Port Said við
norðurinnsiglingu Súez-skurðar-
ins.
uðnauðsyn var að tryggja
fjárhagslega afkomu þjóðar-
innar. Það gerði hann með
myndun athafnamestu ríkis-
stjórnar, sem farið hefur með
völd á íslandi — Nýsköpun-
arstjórnarinnar. Á afrekum
hennar byggist velmegun
þjóðarinnar í dag að verulegu
leyti.
Sjálfstæðisflokkurinn hefur
haft forustu um eða léð fylgi
öllum helztu framfaramálum
þjóðarinnar á þessu mesta
framfaratímabili í sögu henn-
ar. Gildir þetta jafnt um and-
leg sem veraldleg efni og
hefði þó afkoma þjóðarinnar,
menning hennar og meðferð
ýmissa mikilvægra mála orð-
ið önnur og farsælli ef Sjálf-
stæðisflokkurinn hefði haft
fullt bolmagn til að fram-
kvæma hugsjónir sínar. Nefni
ég hér til alveg sérstaklega
landhelgismálið.
Það er hin mikla gæfa
Sjálfstæðisflokksins, að hann
á sér stórar draumsýnir, og er
jafnframt raunsær og ratvís
að settu marki. Það eru þess-
ir eiginleikar, sem öðru frem-
ur valda því, að hinar miklu
framfarir á öllum sviðum
þjóðlífsins eiga rætur í stefnu
og athöfnum Sjálfstæðis-
manna. Þetta er okkur út af
fyrir sig mikið ánægjuefni.
Hitt þó ekki síður, að fyrir
okkar atbeina eru lífsgæðin
ekki lengur séreign fámenns
hóps efnamanna, heldur sam-
eign þjóðar, sem skapað hefur
sér nýjan heim betri og jafn-
ari kjara allra stétta og allra
manna en dæmi eru til ann-
ars staðar.
Sjálfstæðisflokkurinn getur
því nú, er hann stendur á
þrítugu, horft glaður um öxl
og gunnreifur og sigurviss
fram á veginn. Hann hefur
launað hið mikla traust þjóð-
arinnar með því að koma
miklu góðu til leiðar. Hann
biður menn um aukið traust
og heitir þá þjóðinni að laun-
um enn stærri afrekum, enn
fleiri mönnum til framdrátt-
ar og farsældar.
Sjálfstæðismenn um land
allt!
Eftir rúman mánuð verður
kosið til Alþingis. Ykkur
Yfirlýsingin um stofnun Sjálfstæðisflokksins, sem birtist
í Morgunblaðinu 26. maí 1929.
á milli okkar og hinna svo
kölluðu vinstri afla, eftir að
þau á tveggja og hálfs árs
valdaferli hafa brugðizt öllum
orðum sínum og eiðum. En
án efa, er þessi augljósi sann-
leikur enn dulinn ýmsum.
Leggið því land undir fót.
Leggið lykkju á leið ykkar að
arineldi fyrri andstæðinga.
Segið þeim satt og rétt frá
því, sem okkur hefur auðn-
azt að afreka frá öndverðu og
berið það saman við vanefnd-
ir og vanmátt annarra. Ef
þið innið þá skyldu af hönd-
um dyggilega, mun Sjálf-
stæðisflokkurinn eflast til enn
aukinna áhrifa.
Það er stór og verðug af-
verður ekki örðugt að velja mælisgjöf til flokksins, en þó
stærst og mest ykkur sjálf-
um og gervallri hinni ís-
lenzku þjóð til handa.
ÓLAFUR THORS
Sunnudagur 24. maí
Efni blaðsins er m.a.:
BIs. 3: Sr. Óskar J. Þorláksson: Gleym
um ekki Guði.
— 6: Blik yfir Vestmannaeyjum,
grein eftir G. G. Hagalín. Skák.
— 8: Úr Grænlandsflugi með Sólfaxa
— 9: Kvennasíða: Samtal við frú
Elínu Jósefsdóttur, Hafnarfirði
— 10: Fólk í fréttunum.
— 12: Ritstjórnargreinin: Afmæli
Sjálfstæðisflokksins.
Utan úr heimi: Málaferlin
vegna sögunnar um „Læðuna",
— 13: Reykjavíkurbréf.
— 15: Úr einu í annað.
— 15 og 16: Lesbók barnanna.