Morgunblaðið - 24.05.1959, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 24.05.1959, Blaðsíða 23
Sunnudagur 24. maí 1959 MORGUNBLAÐIÐ -Úr Grænlandsflugi Framh. af bls. 8 Námufélagið hefur stöku sinn- um haft litla flugvél í Meistara- vík, ein fór þangað í vor og verð ur til hausts. Þetta er þýzk fjögurra sæta vél, ekki hrað- fleyg, en hún hefur sjö stunda flugþol og kemur vafalaust í góð ar þarfir á austurströndinni. — Flugmaðurinn, Asmussen, hefur áður flogið í Grænlandi. Það var fyrir tveimur árum. En hann gat sér þó meiri frægðar í dönsku blöðunum fyrir það, að á heim- leiðinni til Hafnar með Gullfossi um haustið, kynntist hann ungri verzlunarmey úr Reykjavík og kvæntist henni skömmu eftir ] komuna til Danmerkur. + KVIKMYNDIR* Tjarnarbíó: HEITAR ÁSTRróUR ÞESSI ameríska kvikmynd, sem tekin er í Vista Vision, er gerð eftir hinu fræga og áhrifaríka leikriti, „Desire under the Elms“, eftir ameríska nóbelsverðlauna- höfundinn Eugene O’Neill, en hann er, sem kunnugt er höfund- ur hins stórbrotna leikrits, „Húm ar hægt að kveldi“, sem Þjóð- leikhúsið hefur sýnt að undan- förnu. Myndin er, eins og leikritið, sterkur og áhrifamikill harmleik- ur um logandi ástríður og ástir í meinum. Ephrain Cabot, gamall bóndi í New England, býr með þremur sonum sínum, og er Eben þeirra yngstur, sonur seinni konu gamla mannsins, en hann hefur verið tvíkvæntur og konur hans dáið um aldur fram. Gamli maðurinn er harðlyndur og hefur sýnt son- um sínum allt annað en blíðu, enda hata þeir hann allir. — Nú kemur hann með þriðju konuna, Önnu, á heimilið, unga og glæsi- lega. Tveir sonanna fara í burtu, en Eben verður eftir. í fyrstu mætast þau Anna og Eben sem hatursmenn, en áður en langt um líður breytist hatrið í brennandi ást. Anna hefur lofað gamla manninum að fæða honum son, en það verður Eben, sem leggur soninn tiL Leiðir þetta og allt samband Ebens og Önnu til hörmulegra atburða, sem hér verða ekki raktir. Myndin er, sem áður segir, stórbrotin og áhrifamikil, enda vel gerð undir stjórn Delbort Mann’s og prýðilega leikin. Fara með aðalhlutverkin þau Sophia Loren, er leikur Önnu, Anthony Perkins, er leikur Eben og Burt Ives er fer með hlutverk Ephra- im’s. Er leikur þeirra allra góður, en þó beztur leikur Ives, sem er svipmikill og gerir gamla mann- inn að minnisstæðum persónu- leika. Ég mæli eindregið með þessari ágætu mynd. Ego. Flugvélar SAS hafa viðkomu í Syðri-Straumfirði á flugleið- inni Kaupmannahöfn —■ Los Angeles. Þessar flugvélar taka landi og SAS mun ekki taka að sér neitt Grænlandsflug nema með miklum ríkisstyrk. Flugfélag íslands annast því nær allt Grænlandsflug um þess- ar mundir nema hvað kanadískt flugfélag hefur tekið að sér nokkrar ferðir, sem Flugfélagið getur ekki annað. Danir í miklum vanda Danski sjóherinn keypti ekki alls fyrir löngu 8 Katalínubáta af bandaríska hernum til notk- unar í Grænlandi, en ýmsir gall ar hafa komið fram á þessum bátum — og hafa Danir enn ekki lokið við að fullbúa þá til Græn- landsferðar. Ætlun Dana er að hafa nokkra Katalínubáta nyrðra yfir sumarmánuðina til að annast brýnustu flutninga, en þeir eru ekki útbúnir til far- þegaflugs og koma því aldrei til með að fullnægja þörfinni. — Ein Katalína er nú komin til Syðri Straumfjarðar og önnur er vænt anleg til Meistaravíkur í næsta mánuði. Ekki svarafátt Danir eru nú með margt á prjónunum. Þeir eru jafnvel að ráðgera að kaupa þyrilvængju til innanlandsflugsins. Þær eru að vísu ágætar þar sem flugvell- ina skortir, en þyrilvængjur eru hægfleygar og þyrfti margar til, ef koma ættu að verulegu gagni á hinni dreifbýlu strandlengju Grænlands. Málið var rætt á heimleiðinni í Sólfaxa, en ekki útkljáð. Við tókum því upp léttara hjal og snerum okkur að þeim ítalska og spurðum á íslenzku, hvort honum hefði ekki líkað Græn- landsvistin vel. Það var auðséð, að ítalinn skildi íslenzkuna ekk ert betur en dönskuna og græn- lenzkuna. En hann var ekki í vandræðum með að koma orði fyrir sig — og ekki stóð á svar- inu: „Yes, yes“, svaraði hann auð- vitað og hallaði sér makindalega aftur í stólnum. h. j. h. Bátur til sölu Til sölu er 16 tn. bátur. Mjög hagstætt verð og góðir greiðsluskilmálar. Uppl. hjá Landssambandi ís- lenzkra útvegsmanna. ÞAKPAPPI Austur-þýzkur þakpappi fyrirliggjandi. A. Johannsson & Smith h.f. Brautarholti 4. — Sími 24244. Baðkör Seljum nokkur gölluð baðker með afslætti næstu dag. Sighvatur Einarsson & Co. Skipholti 15 — Símar 24133 og 24137. Pípulagningamenn Gísli Halldórsson, verkfræðingur, heldur fyrirlestur um hitalagnir á vegum Iðnaðarmálastofnunar ís- lands í Iðnskólahúsinu, mánudaginn 25. maí, n.k., kl. 9 síðdegis. Félag pípulagningameistara, Sveinafélag pípulagningarmanna. 34-3-33 Þungavinnuvélðr Jón N. Sigurðsson hœstaréttarlögmaður. Máltlutni.ngsskrifstofa Laugavegi 10. — Sími: 14934. Duglegan deildarstjóra Vantar nú þegar við matvöruverzlun. Umsóknir sendist afgr. Mbl. fyrir 28. þ.m. með upplýsingum um menntun og fyrri störf, merkt: „9164“ Trjáplöntur og runnar. Mikið úrval. — Blómstrandi stjúpmæður og Bellis. — Gróðrarstöðin við Miklatorg. Sími 19775. Vélbátur til sölu 72 rúmlestir, með 280 ha. M W M-vél. Upplýsingar gefur Axel Kristjánsson, Fiskveiðasjóði Islands. ^ Vandað einbýlishus óskast keypt. Útborgun út í hönd. Góð íbúð á hitaveitu - svæði getur gengið upp í kaupin, að einhverju leyti, ef óskað er. Tilboð sendist Morgunbl. fyrir mánudagskvöld merkt: „Gott hús — 9957“. Frá barnaskólum Börn fædd árið 1952 komi til innritunar í skóiana miðvikud. 27. maí n.k. kl. 3 til 5 síðdegis. Skólastjórar. Skrifstofur vorar og vöruafgreiðsur, verða lokaðar mánudaginn 25. þ.m. kl. 1—4 e.h. vegna jarðarfarar Hannes Þarsfeinsson h.f. Verzlun vor, skrifstofur og vöruafgreiðslur verða lokaðar mánudaginn 25. þ.m. kl. 1—1 e.h., vegna jarðarfarar Ludvig Storr & Co. Útför fósturföður míns GUÐMUNDAR JÓNSSONAR fiskimatsmanns frá Bolungarvík, fer fram frá Fossvogskirkju mánudaginn 25. míd kl. 14. Athöfninni í kirkjunni verður útvarpað. Unnur Sigurðardóttir, Hagamel 31. Útför móður okkar HELGU JÓNSDÓTTUR frá Hvammstanga, fer fram frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 26. mal kL 1,30 e.h. Börn, tengdabörn og barnaböm. Móðir mín GUÐFINNA GUÐNADÓTTIR THORLACIUS sem andaðist þann 20. maí s.I., verður jarðsungin frá Dómkirkjunni í Reykjavík mánudaginn 25. þ.m. kl. 13,30. Blóm vinsamlegast afbeðin. F.h. aðstandenda. Jóhanna Thorlacius. Innilegustu þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát og jarðarför eiginmanns míns, föður, tengdaföður og afa, SÖLVA JÓNSSONAR Sérstaklega viljum við færa þakkir læknum og starfs- fólki Landsspítalans fyrir góða hjúkrun í veikindum hans. Lilja Matthíasdóttir, börn, tengdabörn og barnabörn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.