Morgunblaðið - 24.05.1959, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 24.05.1959, Blaðsíða 24
VEÐRID S-kaldi. Dálítil rigning-. ®r0unní»fel>il> 113. tbl. — Sunnudagur 24. maí 1959 Reykjavíkurbréf Sjá bls. 13 Island tekur ekki þátt í Atlantshafsráðstefnunni ÍSLENZKA undirbúningsnefndin að Atlantshafsráðstefnunni, sem haldin verður í Lundúnum í byrjun júní, hefur sent forseta ráðstefnunnar, hollenzka þing- manninum J. J. Fens, eftirfar- andi símskeyti: „fslenzka undirbúningsnefndin fyrir Atlantshafsráðstefnuna hef- ur einróma samþykkt, að fsland taki ekki þátt í ráðstefnunni. Nefndin telur ógerlegt fyrir ís- lendinga að taka þátt í slíkri ráð- stefnu, haldinni í London, meðan Bretland heldur áfram að nota Jón Pólmoson í kjöri fyrir Sjálf- stæðisflokkinn í Austur-Húnn- vutnssýslu Á FVNDI Sjálfstæðismanna í Austur-Húnavatnssýslu, er haldinn var á Blönduósi 20. maí, var einróma samþykkt að skora á Jón Pálmason, alþingismann og bónda á Akri, að vera í framboði fyrir Sjálfstæðisflokkinn í kosningunum, sem framundan eru. Hefur Jón Fálmason orðið við þeirri áskorun og er framboð hans því ákveðið. Ú Jdn Pálmason var fyrst kosinn á þing árið 1933 og hefur setið þar óslitið síðan sem þingmaður Austur-Húnvetninga. Á Alþingi hefur Jóni Pálmasyni verið sýnd- ur margvislegur trúnaður. Hefur hann lengi verið forseti samein- aðs þings, var um skeið land- búnaðarráðherra og hefur verið endurskoðandi landsreikninga um langt árabil. Þá á hann sæti í miðstjórn Sjálfstæðisflokksins, var um hríð ritstjóri ísafoldar og hefur gegnt ýmsum fleiri trúnað- arstörfum. í Á Alþingi hefur hugur Jóns Pálmasonar einkum beinzt að landbúnaðarmálum og fjármál- um. Hann er bóndi að ætt og uppruna og flestum glöggskyggn- ari á hvað gera þarf af þjóðfé- lagsins hálfu til að bændastéttin geti dafnað og haldið áfram að vera starfi sínu vaxin. * Sjálfstæðismenn í Austur- Húnavatnssýslu fylkja sér ein- hugá um Jón Pálmason sem jafn- an áður og eru ráðnir í að gera sigur hans sem glæsilegastan í væntanlegum kosningum. flotavald til að brjóta fiskveiði- landhelgi íslands, vernda ólög- legar fiskveiðar við strendur landsins og ráðast þannig á við- leitni íslenzku þjóðarinnar til að tryggja efnahagslega tilveru Benedikt Gröndal, formaður nefndarinnar, Pétur Benediktsson, Alexander Jóhannesson, Jóhann Hafstein, Björgvin Jónsson". Viðgerðin á Cullfossi tókst mjög vel GULLFOSS fór í gær í sína fyrstu sumaráætlunarför héðan til Leith og Kaupmannahafnar, eftir hina miklu klössun og lag- færingu í vélarúmi, sem fram fór nú í vor hjá Burmester & Wain í Kaupmannahöfn. Viðgerðin í vél- arrúminu var í því fólgin, að sett- ar voru nýjar undirstöður undir aðalvélina. Telja yfirmenn á Gull fossi allt benda til þess að við- gerðin hafi tekizt vel, og að hrist- ingur frá vélinni sé1 miklum mun minni en áður var. Með skipinu í þessari för þess var sérstakur eftirlitsmaður frá B. & W. skipa- smíðastöðinni. Gaitskell ánægður með Ghana LONDON 23. maí (Reuter). — Hugh Gaitskell foringi brezka Verkamannaflokksins kom heim í dag eftir vikudvöl í Ghana í boði Kwama NKrumah forsæt- isráðherra. Hann kvaðst ekki hafa orðið var við neins konar misrétti eða ójafnræði milli kyn- þátta. Gaitskell neitaði því að j stjórnarandstöðunni væri ekki ; leyft að beita sér í Ghana. Hins vegar væri hún illa skipulögð, og gagnkvæm tortryggni væri rík á báða bóga. S. H. þakkar íslendingum einliug þeirra Á AÐALFUNDI Sölumiðstöðvar Hraðfrystihúsanna, sem lauk í fyrrakvöld, var m.a. samþykkt ályktun varðandi útvíkkun fisk- veiðilandhelginnar. — Þakkaði fundurinn íslendingum einhug þeirra og samheldni þá er fisk- veiðitakmörkin voru víkkuð út í 12 mílur. Fundurinn harmaði hina óskiljanlegu framkomu Breta, sem hlýtur að hafa í för með sér versnandi sambúð milli íslands og Bretlands, sem verið hafa vinaþjóðir um langan aldur. Þá samþykkti fundurinn traust á skipshafnir varðskipanna og lof- aði alla frammistöðu þeirra í hinni hörðu og ójöfnu aðstöðu, ÓÐINN sem þeir eiga við að búa. ( Málfundafélagið Óðinn heldur Á lokafundinum í fyrrakvöld , félagsfund í Valhöll við Suður- fór fram kjör stjórnar og var hún götu smnnudaginn 24. maí kl. 2 endurkjörin, en hana skipa: Elías e.h. — Frummælandi á fund- j Þorsteinsson, Einar Sigurðsson, Inum verður Angantýr Guðjóns- j Sigurður Ágústsson, Ólafur Þórð- son. . .. . 1 arson og Jón Gíslason. 110 leikarar og söngvarar á sviði Þjóðleikhússins ÓPERETTAN „Betlistúdentinn“ verður trúlega stærsta sýningin, sem sett hefur verið á svið á Islandi til þessa. Um 110 leikarar og söngvarar koma fram í sýning unni og er vart efamál að þessi leikandi létta og fjöruga Vínar- óperetta verði vinsæl hjá leik- húsgestum. Leiktjöld og búning- ar eru mjög skrautleg og hefur ekkert verið til sparað að gera sýninguna eins glæsilega og hægt er. Aðalhlutverkin eru leikin og sungin af Guðmundi Jónssyni, Þuríði Pálsdóttur, Sigurveigu Hjaltested, Nönnu Egiísdóttur, Ævari Kvaran, Kristni Hallssyni og Guðmundi Guðjónssyni, en leikstjóri er prófessor Adolf Rott frá Vínarborg, en hann er einn þekktasti óperu- og óper- ettu leikstjóri á meginlandinu. Prófessor Rott hefur marg sinnis sett Betlistúdentinn á svið áður í Vínarborg, Stokkhólmi, Ósló og víðar og hefur þessi leikandi létta Vínaróperetta alls staðar orðið framúrskarandi vin 1 honum hefur verið falið. sæl undir stjórn hans. 1 Ólafur Thors, formaður Sjálf- Jón Kjnrtonsson í Sjálistæðisflokkinn kjöri fyrir í Vestur- Skaftnfellssýslu AÐALFUNDUR Sjálfstæðisfélags Vestur-Skaftafellssýslu var hald- inn í Vík í fyrrakvöld. — Fundurinn skoraði einróma á Jón Kjart- ansson, alþingismann, að vera i framboði fyrir Sjálfstæðisflokkinn í V-Skaftafellssýslu í kosningunum í sumar. Varð Jón við áskor- uninni og er framboð hans því ákveðið. Jón Kjartansson var fyrst kjör- inn á þing fyrir Vestur-Skafta- fellssýslu árið 1923 og sat þá á Alþingi til 192i7. Hann var í 20 ár ritstjóri Morgunblaðsins og um margra ára skeið ritstjóri ísafold- ar og Varðar. Hann hefur nú nokk uð á annan áratug verið sýslu- maður Vestur-Skaftafellssýslu og þingmaður sýslunnar síðan 1953. Hefur Jón Kjartansson, svo sem allir vita, leyst hvert það starf af höndum með ágætum, sem Vestnianneyjapósturinn látinn Iigpja dögum saman í Rvík VESTMANNAEYJUM 23. maí. Hér ríkir almenn undrun og reiði yfir því háttalagi hjá afgreiðslu Flugfélags íslands, að draga und- ir sig blaða- og póstsendingar hingað, en hirða ekkert um að f- Málverkasýning í Vestmannaeyjum VESTMANNAEYJUM, 23. maí,— Sveinn Björnsson listmálari, opnar í dag hér í Vestmannaeyj- um, í húsi KFUM, mikla mál- verkasýningu. Eru það 57 mynd- ir, sem hann sýnir, olíumyndir og parstellmyndir. Flestar myndirn- ar eru frá sjó, en einnig nokkrar héðan frá Vestmannaeyjum. Sýn- ingin verður opin alla næstu viku frá kl. 2—11 á kvoldin. — Tr. G. koma þeim á áfangastað. Þessu til frekari sönnunar og skýringar skal það nefnt, að eng- inn póstur hefur borizt til póst- hússins hér undanfarna þrjá daga, Hingað kom þó síðast flugvél frá Reykjavík árdegis í dag og hafði póst- og símstöðvarstjórinn, Magnús Magnússon, vænzt þess fastlega að pósturinn myndi koma. En svo var ekki, og upp- lýsir hann, að Vestmannaeyja- póstur hafi verið tekinn af póst- húsinu í Reykjavík og fluttur í afgreiðslu Flugfélags íslands á flugvellinum, og það óskiljan- lega er að svo virðist sem ekki sé gerð nein tilraun til þess að pósturinn komi hingað. Vestmannaeyingum er undr- unarefni það virðingarleysi við þá sem þessi framkoma Flug- félagsins gefur til kynna, þar sem vitað er að Vestmannaeying- ar munu vera einhverjir beztu viðskiptavinir Flugfélagsins. — Tr. Guðm. SrSsending frá fjáröfl- onornefnd Sjálfsfæðis- flokksins VEGNA væntanlegra alþingis- kosninga, hefur Fjáröflunar- nefnd Sjálfstæðisflokksins nú gengizt fyrir fjársöfnun með- al Sjálfstæðismanna í bænum. Hafa söfnunarlistar þegar ver- ið sendir til trúnaðarmanna á ýmsum stöðum og er það vin- samleg ósk nefndarinnar að allir leggist á eitt með það að láta fé af hendi rakna í þessu skyni. — Sérhvert framlag, stórt eða smátt, er þakksam- lega þegið. Þér, sem fengið hafið söfn- unarlista nefndarinnar, flýtið söfnuninni sem allra mest og gerið skil eins fljótt og auðið er. Skrifstofa fjáröflunarnefnd- arinnar er í Morgunblaðshús- inu á 2. hæð, símar 24059 og 10179. stæðisfl., mætti á fundinum og flutti ítarlega ræðu um stjórn- málaviðhorfið. Rakti hann eink- um kjördæmamálið og feril vinstri stjórnarinnar. Var máli hans mjög vel tekið af fundar- mönnum. Auk hans tókti þessir til máls á fundinum: Jón Kjart- ansson, alþm., séra Jónas Gísla- son, Ragnar Jónsson, verzlunar- stjóri, Gísli Skaftason, bóndi, séra Gísli Brynjólfsson, prófast- ur og Siggeir Björnsson, hrepp- stjóri. Hina nýju stjórn skipa þessir menn: Ragnar Jónsson, Sigurður B. Gunnarsson og Ari Þorgilsson. Fundurinn var fjölsóttur og ríkti þar mikill einhugur. í öllum hinum ágætu ræðum innanhéraðsmanna, kom fram hlýja og vinátta í garð Jóns Kjartanssonar og traust á hon- um. Jafnframt var augljóst, að það er eitilharður ásetningur Vestur4Skaft|elilmga, að launa nú Jóni Kjartanssyni jafnt drengi lega forustu hans í kjördæmamál- inu sem margvísleg ágæt afrek hans í þágu átthaganna með því að gera sigur hans voldugri nú en nokkru sinni fyrr. Mikill togarafisk- ur í síðustu viku í SÍÐUSTU viku lönduðu 12 tog- arar hér í Reykjavík. Voru þeir allir með karfa af Nýfundnalands miðum að einum undanskildum, Ask, og lönduðu skipin um 3800 tonnum af ísvörðum fiski. Áframhaldandi veiði er á hin- um víðáttumiklu fiskimiðum við Nýfundnaland og hefur karfinn farið batnandi undanfarið. Hafa sumir togaranna verið með prýð- isgóðan karfa. Nú eru nokkrir af togurum Bæjarútgerðarinnar komnir á saltfiskveiðar og þá eru nokkrir á ísfiskveiðum hér á heimamiðum. Þessir togarar lönduðu í síðustu viku: Austfirðingur 317 tonn, Hvalfell 267, Þorsteinn Ingólfs- son 317, Egill Skallagrímsson 282, Karlsefni 293, Úranus 330, Þorkell máni 393, Ingólfur Arn- arson 310, Geir 308, Askur 304, Neptúnus, sem var við A-Græn- land og hér á heimamiðum síð- ustu daga veiðiferðarinnar, var með 357 tonn og Pétur Halldórs- son 365 tonn. f vikunni hafði Hallveig Fróða dóttir komið af Nýfundnalands- miðum en vegna þess hve mikil löndun var hér varð að senda skipið til Hafnarfjarðar, en hún mun hafa verið með 312 tonn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.