Morgunblaðið - 24.05.1959, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 24.05.1959, Blaðsíða 2
2 MORCVmtí 4Ð1Ð Sunnudagur 24. maí 1959 Öryggi í höfninni stórum aukib Settir upp 7 sjálfvirkir simar Á BÆJARSTJÓRNARFUNDI sl. fimmtudag var tekið fyrir til umræðu fundargerð hafnarstjórn ar frá 5. maí í þeirri fundargerð er skýrt frá ýmsum öryggisráð- stöfunum, sem gerðar hafa verið ög eru í undirbúningi til aukins öryggis í höfninni. Einar Thoroddsen kvaddi sér hljóðs og kvað mál þetta hafa verið rætt á nokkrum fundum í hafnarstjórn. Minntist hann á tillögu Guðmundar J. Guðmunds sonar, sem ekki hefði falið í sér neinar ákveðnar aðgerðir, enda hefði verið búið að koma fyrir 11 stigum á Grandagarði, er til- lagan var felld. Þá rakti Einar þær öryggisráðstafanir, sem ákveðnar hefðu verið. Á fundin- um 5. maí hefði verið ákveðið að setja stiga á bátabryggjurnar. — Hefði verið ákveðið að secja gripkeðjur á þær bryggjur, en þar eð gripkeðjurnar hefðu ekki verið fáanlegar hefðu verið sett- ar kaðallínur á allar verbúða- bryggjurnar og tvær við Granda- garð. Keðjurnar hefðu þegar ver ið pantaðar og yrðu settar síðar. Þá skýrði Einar Thoroddsen svo frá, að settir hefðu verið 8 stigar á skáhleðslurnar á Granda garði, og væru þeir málaðir gul- ir, svo þeir sæjust greinilega. — Einnig væri áformað að koma lausum, léttum stigum hér og þar við höfnina. Væru þeir þegar smíðaðir, en eftir að velja þeim stað. Áformað væri að setja 4 fasta stiga á hverja bátabryggju og hefðu þeir þegar verið settir á eina. Þá kvað ræðumaður ákveðið að setja upp 7 sjálfvirka síma við höfnina Einnig hefði verið rætt um aukna löggæzlu við höfnina og væri þar raunar um að ræða eina mestu öryggisráð- stöfunina. Þá kvað hann hafnar- stjóra hafa samþykkt að lýsing við höfnina yrði stórlega bætt, Heímild veitt tO að reisa nýja áburðarverksmiðju Áburðarverksmiðjan hf. sendi blaðinu í gær eftir- farandi fréttatilkynningu: í DAG eru liðin 5 ár, frá því að Áburðarverksmiðjan var vígð. Verksmiðja 'þessi hefir framleitt aðeins eina tegund áburðar, þ. e. köfnunarefnisáburð. Framleiðsl- an hefir yfirleitt gengið vel, og hefir verksmiðjan, frá því að hún tók til starfa, séð landinu fyrir öllum köfnunarefnisáburði að undanskildu á þessu ári. Flutti verksmiðjan út nokkurt magn áburðar af framleiðslu þriggja fyrstu starfsáranna. Þegar lög um áburðarverk- smiðju voru samþykkt, gerðu þau ráð fyrir framleiðslu bæði köfn- unarefnis- og fósfóráburðar. Um alllangt skeið hefir Áburðar- verksmiðjan haft í undirbúningi áætlanir um nýja verksmiðju til framleiðslu fósfóráburðar, og hafa rannsóknir farið fram á því, hvaða framleiðsluaðferð hentaði bezt miðað við kringumstæður. Er þess vænzt, að stjórn Áburðar verksmiðjunnar taki lokaákvörð- un innan skamms um framleiðslu aðferð og hvenær framkvæmdir geti hafizt. Helzt hefir verið gert ráð fyr- ir, að framleiddur yrði blandað- ur, alhliða áburður er innihaldi allar þrjár megináburðartegund- ir þær, sem jurtirnar þarfnast, þ. e. köfnunarefni, fósfór og kalí. Mismunandi kringumstæður valda því, að sömu hlutföll milli þessara áburðarefna í einni HAFNARFJÖRÐUR HAFNARFIRÐI — Nú hefur verið opnuð kosningaskrif- stofa í Sjálfstæðishúsinu, sem er opin dag hvern frá klukkan 1 til 10 að kvöldi. — Síminn er 50228. Þar liggur frammi kjörskráin, og jafnframt eru veittar allar upplýsingar varð andi kosningarnar. KÓPAVOGUR! Kosningaskrifstofa Sjálfstæðis- I flokksins i Kópavogi er að Mel- ^ gerði 1, sími 19708. ÁRNESSÝSLA f KOSNINGASKRIFSTOFA Sjálf stæðisflokksins í Árnessýsliu er við Tryggvatorg á Selfossi simi 119. Skrifstofan er onin daglega kl. 1—19 e.h. blöndu henta ekki alls staðar. Hefir því verið gert ráð fyrir, að framleiddar yrðu blöndur með mismunandi áburðarhlutföllum, t.d. 12 einingar köfnunarefni, 10 einingar fósfór og 14 einingar kalí, ennfremur 13-11-12, 17-9, 5-9 og jafnvel 14-12-9, svo fleiri dæmi séu tekin, og getur þó ver- ið um enn önnur blöndunarhlut- föll að ræða. Miðað hefir verið við að nota sem bezt þá mögu- leika sem núverandi verksmiðja hefir yfir að ráða, til framleiðslu fjölhæfari áburðar, til þess að stofnkostnaður nýrrar verk- smiðju mætti verða sem lægst- ur og fjölhæfni hins nýja, fyrir- hugaða áburðar sem mest. Verksmiðjuafköst þau, sem höfð eru í huga, eru 70.000 smá- lestir blandaðs áburðar á ári, en auka mætti þau afköst með litl- um tilkostnaði upp í 84.000 smá- lestir á ári. Hráefni frá núver- andi köfnunarefnisverksmiðju, þ. e. saltpéturssýra og amm- oníak, mundi þó ekki leyfa, án stækkunar, meira en 59.000 smá lesta afköst á ári. Miðað við hrá efna- og afurðageymslur fyrir um 50.000 smálesta ársafköst mundi stofnkostnaður verk- smiðjunnar og slíkra geymslna, samkvæmt lauslegum áætlun- um, nema sem næst 60 milljón- um króna. Nú á þessum tímamótum Áburðarverksmiðjunnar hefir hæstvirtur iðnaðarmálaráðherra tilkynnt með bréfi dags. 22. maí 1959, að ríkisstjórn fslands hafi heimilað fyrirtækinu að semja við erlent verkfræðifyrirtæki um tæknilegan undirbúning slíkrar verksmiðju og ennfremur að leit að yrði eftir erlendum lánum til greiðslu þess erlenda kostnaðar, sem byggingu slíkrar nýrrar verksmiðju væri samfara. Er þess því að vænta, að frekari skriður komist á fram- kvæmdir í þessu máli, sem bændastétt landsins hefir svo ríkan áhuga á, eins og margend- urteknar samþykktir Búnaðar- þings bera ljósast vott um. Gufunesi, 22. maí 1959. og yrðu þær umbætur væntan- lega koomnar á áður en nótt tæki að dimma aftur á þessu ári. Frú Gróa Pétursdóttir kvaddi sér hljóðs og kvaðst fyrir hönd Slysavarnafélagsins viija þakka þessar upplýsingar. Kvað hún Slysavárnafélaginu oft hafa bor- izt kvgrtanir vegna skorts á ör- yggi við höfnina -og væri ekki minnst ástæða til að fagna því að settír yrðu upp sjálfvirkir símar þar. Frú Gróa Pétursdóttir sagði, að er hús Slysavarnafélagsins yrði komið upp, yrði þar fólk á skrifstofunum allan daginn og væntanlega yrði þar einnig vakt allan sólarhringinn, enda væri brýn þörf á eftirliti við höfniria nótt sem dag. Myndi Slysávarna- félagið gera allt sem í þess valdi stæði til að tryggja öryggi á þess um slóðum. Skýrði frúin frá því að lokum, að Slysavarnafélag ís- lands hefði látið lögreglunni í té fyrir nokkru allan björgunar- tækjaútbúnað sem með þarf til að bjarga manni er fellur í sjó- inn, en þess hefði ekki verið getið opinberlega. MIAMI, 23. maí. — Á alþjóða- flugvellinum í Miami á Flórida, tóku bandarískir tollverðir flutn- ingaflugvél, sem var hlaðin riffl- um, vélbyssum og 200.000 skot- hylkjum. Tíu karlmenn og ein kona voru í flugvélinni, og voru þau kyrrsett. Tollverðirnir sögðu að flugvélin hefði verið á leið- inni til Dóminíska Iýðveldisins. Framkvœmdir við sce- símakerfið hefjast NEW YORK. — Framkvæmdir neðansjávar við fyrsta sæsíma- kerfi sem mun tengja Ameríku beint við Evrópu, eru nú að hefj- ast, samkvæmt viðtali við amer- íska síma og símskeytafélagið. Símalagningaskipið- HMTS Monarch, sem er eign brezku póstþjónustunnar, starfar nú við að leggja langlínuriðla milli Penmarch í Frakklandi og Clar- enville , í Nýfundnalandi, vega- lengd, sem nemur 2-400 mílum. Hið tvöfalda kerfi mun hafa svo marga riðla að a. m. k. 36 samtöl geti farið fram samtímis milli Bandaríkjanna og Evrópu. Þetta mun aðallega koma að gagni fyrir Frakkland og Þýzka- land, en nokkrir riðlanna munu verða lagðir til Sviss, Ítalíu, Belg íu, Hollands og Spánar, og munu fullkomna hið þráðlausa sam- band, sem nú er í notkun á þess- um stöðum. Simkerfið, sem kostar í kring- um 40.000.000 dollara, mun verða sameiginleg eign símþjónust- anna, frönsku póst- og símamála- stjórnarinnar Langlínuriðlarnir fyrir þessar framkvæmdir eru framleiddir af fjórum félögum: Simplex Wire and Cable í Newington, N. H.; Submarine Cables Ltd. í Erith, Englandi; Cables de Lyon í Cal- ais, Frakklandi; og Felton and Guilleaume, Carlswerk, A. G. í Nordenham, Þýzkalandi. Á*tlað er að símakerfið verði tekið í almenningsþjónustu á komandi hausti. Kanadískur píanóleikari PÍANÓLEIKARINN Ross Pratt mun leika hér á sunnudaginn, 24. maí, með hljómsveit Ríkisútvarps ins. Á efnisskránni eru tvö verk, Militár- Sinfónía Haydn’s (sem leikin er í tilefni þess að 31 maí nk. eru liðin 150 ár frá dauða tónskáldsins) og píanókonsert í b-dúr no. K. 450 eftir Mozart. Tónleikarnir verða haldnir í há- tíðasal Háskólans og hefjast kl. 8.40. Stjórnandi er Hans Antol- itsch. Aðgangur er ókeypis. Ross Pratt er fæddur í Winni- peg í Kanada og hóf þar nám sitt. Síðar stundaði hann nám við Royal Academy of Music í London hjá Harold Craxton. Síð- asta ár sitt þar kom hann fyrst fram opinberlega og hlaut mjög góða dóma fyrir leik sinn. Ross Pratt hefur haldið tón- leika víða um lönd, m. a. í Kan- ada og Bandaríkjnum, í Mexíkó og Ástralíu. Hann hefur oft leik- ið í brezka útvarpið og nú í marz lék hann í sjónvarpið BBC. Einn- ig hefur hann leikið ineð Royal Philharmonic og Sinfóníuhljóm- sveit Lundúna undir stjórn Sir Malcolm Sargent. Efnt til námskeiða í íþróttum og leikjum MÁNUDAGINN 25. maí hefjast námskeið í íþróttum og leikjum fyrir börn víðsvegar um bæinn. Að námskeiðum þessum standa þrír aðilar, Iþróttabandalag Reykjavíkur, Leikvallanefnd Reykjavíkur og Æskulýðsráð Reykjavíkur. Námskeiðin verða fyrir börn á aldrinum 5—12 ára og verða 3 daga í viku á hverjum stað, ann- an hvern dag. Staðirnir eru: KR-svæði, Valssvæði, Víkings- svæði, mánud., miðvikud. og föstudaga. (byrjað 25. maí). Ármannssvæði, Háskólavöllur, Skipasundstún, þriðjud., fimmtu- daga og laugardaga. (byrjað 26. maí). Deginum er skipt þannig, að börn 5—9 ára mæta kl. 9,30 og verða til 11,30, en eftir hádegi mæta börn 10—12 ára og verður þá æft og kennt kl. 3—5. Kennarar og leiðbeinendur verða íþróttakennarar, sem munu kappkosta að hafa riámskeiðin sem fjölbreyttust og verða kennd undirstöðuatriði í frjálsum íþrótt um, hlaup og stökk, og knatt- leikjum, knattspyrnu og hand- knattleik. Einnig verður'farið í hópleiki og komið á keppni í ýmsu formi. Námsskeiðsgjald verður kr. 15.00 fyrir allan tím- ann. Þetta er þriðja sumarið, sem þessir aðilar gangast fyrir slíkum námsskeiðum og hafa þau mælzt mjög vel fyrir. Þeim er ætlað að hafa ofan af fyrir börnum á Kosningaskrifstofa S jálfstœðisflokksins í Morgunblaðshúsinu, Aðalstræti 6 II. hæð, er opin alla virka daga frá kl. 10—6 e .h. Sjálfstæðisfólk, hafið samband við skrifstofuna og gefið henni upplýsingar um námsfólk, sem er erlendis og annað fólk, sem verður fjarverandi á kjördag innanlands og utan. Símar skrifstofunnar eru 12 7 5 7 og 13 5 6 0. tímanum frá skólalokum og fram til þess tíma er þau fara í sveit og fá börnin af götunni inn á leiksvæðin. Síðastliðið vor voru 760 börn skráð á þessum náms- skeiðum. íslandsmót í bridge hefst í dag ÍSLANDSMÓTIÐ í sveitakeppni í bridge hefst í Tjarnarcafé í dag kl. 2 síðdegis. Spilaðar verða sjö umferðir eftir Monradkerfi og taka tólf sveitir þátt í keppn- inni. Eru það þessar: Frá Bridge félagi Reykjavíkur: Sveit Halls Símonarsonar, sveit Sigurhjart- ar Péturssonar, sveit Stefáns J. Guðjohnsen og sveit Asbjörns Jónssonar. — Frá Bridgefélagi kvenna, Reykjavík: Sveit Vig- dísar Guðj ónsdóttur, sveit Egg- rúnar Arnórsdóttur. Frá Tafl- og bridgeklúbbnum, Reykjavík: Sveit Hjalta Elíassonar, sveit Svavars H. Jóhannssonar, sveit Sófusar A. Guðmundssonar. Frá Bridgefélagi Akureyrar: Sveit Mikaels Jónssonar. Frá Bridge- félagi Húsavíkur: Sveit Óla Kristinssonar. Þar sem nauðsynlegt er, vegna Monrad-kerfisins, að láta fjölda þátttakenda standa á jafnri tölu, var ákveðið að bjóða gestasveit til leiks. » íslandsmót í tvíkeppni hefst í Tjarnarcafé laugardagcnn 30. maí kl. 2 síðd. og lýkur sunnu- daginn 31. maí. í þeirri keppni taka þátt 56 pör. Úrslit Reykjavíkurmótsins: Fram og KR 1 úrslitum SÍÐASTI leikur Reykjavíkur- mótsins verður annað kvöld og leika þá KR og Fram til úrslita. Leikurinn hefst kl. 20.30. Staðan í mótinu er þannig: KR ........... 3 3 0 0 11:0 6 Valur ....... 4 3 0 1 8:4 6 Fram ......... 3 2 0 1 12:3 4 Þróttur ..... 4 0 1 3 3:10 1 Víkingur ..... 4 0 1 3 1:18 1 Eins og sést á stöðunni hefur KR mestar sigurlíkur, fer með Reykjavíkurmeistaratitilinn á sigri eða jafntefli, en sigri Fram, verða félögin KR, Fram og Valur jöfn að stigum og verða að leika 3 leiki til úrslita. Reykjavíkurmeistari 1958 varð KR. Valbjörn. Vormót ÍR í dag .. RSTA f r j álsíþróttamótið á þessu sumri, Vormót lR, verður á íþróttavellinum á Melunum í dag og hefst kl. 2 e. h. Meðal keppenda má nefna Hall grím Jónsson og Þorstein Löve í kringlukasti, Valbjörn Þorláks- son í stangarstökki, Þóri Þor- steinsson í 400 m hlaupi, Björg- vin Hólm í 110 metra grinda- hlaupi og Gylfa Gunnarsson í spjótkasti. Keppendur eru alls um 30 að tölu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.