Morgunblaðið - 24.05.1959, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 24.05.1959, Blaðsíða 8
8 MORClJTSTtLAÐIÐ Sunnudagur 24. maí 1959 —— MM—BI 1 Úr Grœnlandsflugi með Sólfaxa (3.) *■ I Narsarssuak nota þeir ekki iföisku Þeffar Jóhannes kom úr báó blakti ekki húr á hölði Y F I R kaffibollanum hjá þeim dönsku í Narsarssuak fréttum við, að þar hefði dvalizt hálf undarlegur gest- ur, ítalskur kaupsýslumaður í verzlunarerindum. Honum hafði skotið skyndilega upp og auðvitað var hann hýstur sem aðrir gestir. En menn veltu því mikið fyrir sér hvað sá ítalski ætlaði að kaupa í Grænlandi. Ekki voru svör hans greið, því að hann skildi ekki heimamenn — og þeir ekki hann. Italinn talaði nefnilega hvorki dönsku né grænlenzku, ekki einu sinni ensku. Þó gat hann sagt „yes“. Allt annað var ítalska, en í Narsarssuak nota þeir aldrei ítölsku. Heimamenn reyndu því að gera sig skiljanlega með handapati — og ítalinn svaraði alltaf „yes“, eða „yes, yes“, þegar um meiriháttar mál var að ræða. Hvar lærði hann ensku? Sá ítalskí skoðaði mikið.mann- virkin í þessari yfirgefnu, banda- rísku herstöð, þá aðallega flug- skýlin. Hartn virtist ánægður með alla hluti, a. m. k. sagði hann aldrei annað en ,.Yes“. Danirnir höfðu veður af því að kaupsýslumaðurinm ætlaði heimleiðis með Sólfaxa og skömmu áður en flugvélin kom, var reynt að útskýra fyrir hon- um, að kveðjustundin væri nú brátt runnin upp. En þá gróf ítalinn upp nýtt orð, sem skaut öllu byggðarlaginu skelk í bringu. Hann sagði „No“. Menn fóru að velta því fyrir sér, hvar maðurinn hefði lært e..sku, en þá birtist Sólfaxi og ítalinn kink aði kolli: ,.Yes, yes“, sagði hann. Norðmenn keyptu allt — Á heimleiðinni varð það upp- víst, að Italinn ætlaði að kaupa flugskýli í Narsarssuak og flytja til Ítalíu. Þegar Bandaríkjamenn yfirgáfu herstöðina í Narsarssuak flýttu Danir sér að koma mann- virkjum í verð. Þeir seldu Norð mönnum megn þeirra milljóna- verðmæta, sem Bandaríkjamenn höfðu skilið eftir, m. a. tvö stór flugskýli, margs konar viðhalds- vélar fyrir flugvelli og flugvall armannvirki, stórar ljósavélar og margt fleira. Við þessa ágætu flugbraut, sem Bandaríkjamenn- irnir byggðu þarna, stendur líka flugturn með öllum nauð- synlegum útbúnaði, þar er líka stór þyrping timburhúsa, sem yfir þrjú þúsund hermenn og flugvallarstarfsmenn bjuggu í. Allt er áætlað að rífa og Norð- mennirnir fluttu þaðan nokkrar þúsundir smálesta af varningfi í fyrra, en afgangurinn verður fluttur í sumar. Loftleiðaflug- vél hafði viðkomu í Narsarssuak fyrir skemmstu og var með á fjórða tug Norðmanna, sem ann ast eiga niðurrif og flutninga. — og Danir hyggja aftur upp Narsarssuak hefur mikið bor- ið á góma eftir að Danir fóru al- varlega að hugsa um að hefja flugsamgöngur innan Grænlands, en það var ekki fyrr en eftir Hans Hedtoft-slysið í vetur. Þá skildist mönnum, að siglingahætt unum við Grænland yrði ekki rutt úr vegi með stórum og full- komnum skipum. Var aó heyra á mönnum í Narsarssuak, að stjórnarvöldin hefðu verið full- bráðlát, þegar þau seldu Norð- mönnum allan útbúnað á flug- vellfhum. Helzt var að heyra, að Danir yrðu að fara að byggja upp, þegar Norðmennirnir yrðu loksins búnir að rífa allt niður. Sannleikurinn er sá, að á vestur- strönd Grænlands eru aðeins þrír stórir flugvellir: Narsarssuak, Syðr-Straumfjörður og Thule. Katalína var upphafið Grænland er stórt, strandlengj an löng og byggðin dreifð. Það verður erfitt að byggja upp flug samgöngur þar í landi og reynsla íslenzku flugmannanna er Dön- um mikils virði. Upphaf ioftflutn inga til og frá Grænlandi má í raun rekja fyrstu ferða Katalínu flugbáta Flugfélags íslands þang að upp úr stríðslokum. Sprautað yfir sjúklinga Jóhannes Snorrason, flug- stjóri. segir okkur, að þá hafi aðallega verið flogið á vegum ýmissa vísindaleiðangra — og sjúkraflug. Katalína hafi lent á fjölmörgum stöðum upp með allri vesturströnd Grænlands þar sem engar flugvélar höfðu áð- ur lent. Honum eru sérstaklega minnisstæðar margar ferðir með berklasjúklinga frá Grænlandi til Hafnar. — Flugvélin var sprautuð inn an með sóttvarnarefnum, áður en sjúklingarnir voru fluttir um borð. Síðan va^sprautað nokkr- um sinnum yfir hópinn á leið- inni — og enn var dælt sóttvarn arefnum, þegar komið var til Reykjavíkur. „ Á öðrum hreyfli í ofsaveðri — Þetta var ekki það versta við Grænlandsflugið, segir Jó- hannes. í fyrstu þótti okkur þetta hvimleiðir flutningar, en vöndumst fljótt við. Grænlands- veðráttan hefur hins vegar oft verið erfiðari. Ég minnist þess sérstaklega einu sinni. Það var skömmu eftir stríslokin, ég var þá að koma frá Toronto í Kana- da með einn Katalínubátinn, sem Flugfélagið keypti. Þrír Kanada menn voru með mér, aðstoðar- flugmaður, vélamaður og sigl- ingafræðingur. Þetta var að haustlagi, allra veðra von, en við lögðum upp, þegar okkur fannst árennilegt. — Þegar við nálguðumst Græn land fór veðrið versnandi, mót- vindur óx, svo fór hann að ganga á með dimmum éljum. Ferðinni var heitið til Narsarssuak, en þar ætluðum við að bíða byrjar til Reykjavíkur. Við áttum eftir meira en klukkustundar flug þangað, þegar annar hreyfillinn stöðvaðist. Mótvindurinn jókst, élin voru orðin kolsvört — og ekki bötnuðu horfurnar, þegar olían fór að leka af hinum hreyflinum. Við vorum líka hræddir um hann — og ég var viðbúinn því að hlamma bátnum niður á úfinn sjóinn, ef öll sund lokuðust. Duttlungafullt veðurlag — En við seigluðumst þetta á öðrum, flugum lágt, því skyggni var skammt. Narsarssuak er í botni 60 mílna langs fjarðar, fjöllin eru há og brött, ótal hliðar firðir og skörð gátu villt sýn. Við róluðum þetta á milli fjalls- hlíðanna. En loks skriðum við inn á Narsarssuak í nokkurra metra hæð. Fimm mínútum síðar var allt lokað, skyggni örfáir metr- ar. , — Um kvöldið fórum við í bíó ÁÐUR var nýtízku benzínbíl- um ekið að flugvélum, sem komu tii Narsarssuak. Nú Notast þeir við tunnurnar og handdælur. Allt hefur verið selt, en þeim finnst gróðinn vafasamur. með Bandaríkjamönnunum. Þá var rokið svo ofsalegt, að við urðum hálfpartinn að fara á fjórum á milli skálanna. En, þeg- ar við komum út að sýningunni lokinni, blakti ekki hár á höfði og himinninn var stjörnubjart- ur. Þannig getur veðurlagið í Grænlandi verið, sagði Jóhannes. Flugvélin, sem námufélagið mun hafa í Meistaravík í sumar, er af Dornier-gerð— og hefur skíða útbúnað, Hafa víða farið En síðan Jóhannes komst í hann krappann við Narsarssuak hafa flugvélar Flugfélagsins kom ið víða við ' Grænlandi. Kata- lína annar flutningunum ekki lengur. Douglas, Skymaster og Viscount hafa farið margar ferð ir, allt frá Narsarssuak ti' Thule á vesturströndinni og fró Ang- magsalik til Station Nord á 81. breiddargráðu á austurströnd- inni. Flogið hefur verið á vegum danskra stjórnarvalda, námufé- lagsins, verktaka eða vísinda- leiðangra. Ferðirnar eru nú orðn ar 5—600. Heppinn flugmaður Danir hafa aldrei annazt flug í Grænlandi að ráði. Tveir Kata- línubátar danska sjóhersins hafa þó verið þar á sumrin og farið í póst- og sjúkraflug. Framh. á bls. 23.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.