Morgunblaðið - 12.07.1959, Side 1
24 siðuv
46. árgangur
147. tbl. — Sunnudagur 12. júlí 1959
Prentsmiðja Morgun’jlaðsins
Almennlngur i héraðinu Kerala á Suður-Indlandi hefur risið upp gegn stjórn kommúnista eftir
rúmlega tveggja ára ranglætis- og ógnarstjórn þeirra. En kommúnistar svara að gömlum sið með
því að láta vopnaðar lögreglusveitir skjóta á mótmælagöngur. Mynd þessi var tekin í litla fiski-
mannabænum Pulluvilla í Kerala. Þar skaut Iögregla kommúnista á mannsöfnuð. Tveir menn
féllu. Hér safnast fjölskylda og nágrannar annars þeirra saman kringum blóðbletti á jörðinni, þar
sem hann lét lífið.
Utanríkisráðherrafundurinn hefst að
nýju í Genf á morgun
GENF, 11. júlí. — Utanríkisráð-
herrafundurinn í Genf hefst aft-
ur á mánudaginn. Fyrsti ráðherr-
ann kom til borgarinnar í dag.
Það var Gromyko, utanríkisráð-
herra Rússa. Blaðamönnum hafði
verið gert viðvart um að
Gromyko mundi ræða við þá á
flugvellinum, en það fór sem
fyrri daginn, að hann las einungis
upp skrifaða yfirlýsingu — og
þegar hann hafði lokið því hélt
hann á brott og neitaði að svara
spurningum blaðamanna.
í yfirlýsingu Gromykos kom
ekkert nýtt fram. Sagði þar, að
fyrri tillaga Rússa um lausn
Þýzkalandsmálsins væri ákjósan-
legasti samningsgrundvöllur, sem
boðizt hefði. Þar var gert ráð
fyrir því að skipuð yrði alþýzk
nefnd til þess að ræða vandamál
samfara sameiningu Þýzkalands,
sem lokið yrði innan 18 mánaða.
Þá sagði Gromyko, að hann
kæmi með einlægum samnings-
vilja til ráðstefnunnar, sem
vafalaust yrði árangursrík, ef
Vesturveldin sýndu annan eins
hug og Rússar.
Lothar Bolz, utanríkisráðherra
a-þýzku stjórnarinnar, kom
einnig til Genfar í dag. Hann
sagði við komuna, að A-Þjóð-
verjar krefðust þess, að Berlín
yrði gerð að frjálsu borgríki.
Utanríkisráðherrar Vesturveld
anna, sem sæti eiga á fundinum,
þeir Herter, Lloyd og Murville,
koma til Genfar á morgun — svo
og Pella, utanríkisráðherra Ítalíu
og von Brentano frá V-Þýzka-
landi. Ráðherrafundinum var
skotið á frest 20. júní s.l. eftir 40
daga árangurslausar viðræður.
Gaitskell ofsareiður —
segir Cousins stríð á hendur
Alvarlegasti klofningur í Verkamanna-
flokknum
LONDON, 11. júlí (Sky. frásögn
Dáily Express) Hugh Gaitskell
foringi brezka Verkamanna-
flokksins varð ofsareiður, er
hann frétti að Samband flutn-
ingaverkamanna hefði fellt
kjarnorkuáætlun stjórnar Verka
mannaflokksins. Hann hefur nú
lýst yfir stríði gegn Frank Cous-
ins foringja sambandsins og seg-
ir að ekki verði hvikað frá kjarn-
orkuáætluninni.
Gaitskell álítur,, að ef látið
verði undan Cousins í þessu máli
þá muni Verkamannaflokkurinn
bíða herfilegan ósigur í konsing-
unum í haust. Almenningur
myndi þá fá mynd af flokknum,
að hann sé stefnulaus, eins og
rekald. Mun Gaitskell hafa tekið
ákvörðun um að taka upp bar-
áttu gegn Cousins eftir að hafa
ráðfært sig við Aneurin Bevan
og aðra flokksforingja.
Staða Gaitskells hefur styrkzt
nokkuð við það, að tvö önnur
verkalýðssambönd hafa lýst yfir
stuðningi við stefnu flokksstjórn
arinnar í kjarnorkumálunum.
Það eru samband námuverka-
manna og járnbrautarstarfs-
manna.
Deilan milli Cousins og stjórn-
ar Verkamannaflokksins, er alvar
legasti klofningur, sem komið
hefur í Verkamannaflokknum
síðan 1931, þegar Ramsay Mac
Donald var rekinn úr flokknum.
Virðist engin von til að þessi
sprunga verði bætt fyrir kosn-
ingar.
RÓM, 10. júlí — Lögregla beitti
táragasi gegn mótmælagöngu
verkamanna í Genua samtímis
því sem ein milljón verkamanna
í stáliðnaðinum bjóst til verkfalls.
Allt logar nú í verkföllum á
ítalíu og verður þjóðarbúskapur-
inn fyrir daglegu milljónatjóni af
þessum völdum.
Sultartímar í Kína:
Yfirvofandi hungursneyð
naumur matarskammtur
PEKING, 11. júlí — Kínverjar í
bæjum og borgum hafa verið
hvattir af stjórnarvöldunum til
þess að rækta korn, ávexti og
önnur matvæli í húsagörðum og
utan borganna, ef nokkur kostur
sé. Einnig hefur fólk verið hvatt
eindregið til þess að reyna að
komast yfir alidýr og ala heima
hjá sér, ef kostur sé. Á undan-
förnum árum hafa stjórnarvöld-
in hins vegar gert allt til þess að
hindra einstaklingsframtak borg-
arbúa og bænda — og miðað hef-
Ráðherra Græn-
lands kemur hér
við
í DAG er K. Lindberg Grænlands
málaráðherr^ Dana væntanlegur
til Reykjavíkur. í fylgd með
honum er m.a. H.C. Christiansen
forstjóri Konunglegu Grænlands
verzlunarinnar. Þeir koma báðir
með Hrímfaxa, áætlunarflugvél
Flugfélags fslands frá Kaup-
mannahöfn og eru væntanlegir
hingað kl. 4.50 síðd.
Á mánudagsmorgun leggja
þeir af stað til Grænlands með
Sólfaxa. Lindberg ráðherra mun
dvelja í Grænlandi til 20. júlí, en
snýr þá aftur til Danmerkur með
viðkomu í Reykjavík.
Lögreglu og her beitt gegn andkomm-
unisfum í Ukrainu
VÍNARBORG, 11. júní. — Rúss-
neskar hersveitir hafa nú byrjað
stórfelldar æfingar í Ukrainu og
austurhluta Slovakiu segir í
áreiðonlegum fregnum að austan.
Heræfingar þessar fara fram til
þess að draga athyglina frá víð-
tækum lögregluaðgerðum gegn
andkommúniskri andspyrnuhreyf
ingu, sem orð hefur farið af þar.
Samkvæmt þessum heimildum
hófust æfingarnar, sem fótgöngu-
göngulið og fallhlífasveitir taka
þátt í, hinn 29. júní £ nánd við
bæina Lavoczne og Chustand —
og í austurhluta Slovakiu.
Andkommúnistar eru sagðir
hafa látið í vaxandi mæli til sín
taka þar um slóðir að undan-
förnu.
Vitað er, að undanfarið hefur
öllum útlendingum verið bannað
að ferðast lengra austur á bóg-
inn en að fljótinu Waag í Slo-
vakiu — og nær þetta bann
einnig til erlendra sendiráðs-
manna. Tékknesk stjórnarj/öld
hafa borið því við, að vegir og ár
hafi orðið ófagyar vegna flóða —
og því erfitt um ferðalög. Slíkar
tylliástæður eru ósköp venjulegar
af hálfu kommúnista, þegar koma
á í veg fyrir að útlendingar beri
óþægilegar fréttir út fyrir landa-
ur verið að því að koma sam-
yrkjubúskapnum á hvarvetna í
landinu.
En nú sverfur svo hart að Kín-
verjum, að kommúnistastjórnin
verður að grípa til þess óyndisúr-
ræðis að leyfa fólkinu að rækta
og eignast alidýr. Geysimikil flóð
í sumum héruðum landsins hafa
valdið stórtjóni á akurlendi — og
annars staðar hafa þurrkar einn-
ig skemmt uppskeruna. 1 mörg-
um héruðum hafa matvæli verið
skömmtuð mjög naumt — og
fólk hefur þurft að standa í löng-
um biðröðum til þess að fá dag-
legan skammt af brýnustu nauð-
synjum, svo sem grjónum og
kartöflum.
Fagnaðarlæti
Irak
BAGDAD, 11. júlí — Mikið var
um dýrðir í Bagdad í morgun.
Eins árs afmælis byltingarinnar
var minnzt með hersýningu og
fagnaðarlátum. Fylkingar her-
sveita búnar rússneskum vopn-
um fóru um aðalgötur borgarinn-
ar — og tugþúsundir manna
hylltu byltingarhetjuna Kassem.
Sunnudagur 12. júlí.
Efni blaðsins m.a.:
Bls. 3: Hin innri barátta, eftir séra
Óskar J. Þorláksson.
— 6: Finnar vilja fá óbeina aðild að
Litla-fríverzlunarsvæðinu.
— 8: Hitt og þetta.
— 9: Gyðingar fyrirgefa Þjóðverjum
seint.
— 11: Skapa þarf börnum aðstöðu tM
að leika sér heima við.
— 12: Ritstjórnargreinar: Einokun
eða samkeppni. — Hvað verður
um Hannibal?
— 13: Reykjavíkurbréf.
— 15: Fólk í fréttunum.
— 16: Alþjóðaráðstefna slysavarnaié-
laga.
— 17: Þeir setja öryggið ofar öllu.
— 22: Skólinn að Löngumýri heim-
sóttur.
— 23: íþróttir.