Morgunblaðið - 12.07.1959, Síða 4
w
MORCVTSBLAÐIÐ
Sunnudagur 12. júlí 1959
I dag er 193 dagur ársins.
Sunnudagur 12. júlí.
Árdegisflæði kl. 10,37.
Síðdegisflæði kl. 22.57.
Slysavarðstofan er opin allan
s'ólarhringinn. — Læknavörður
L.R. (fyrir vitjanir), er á samá
stað frá kl. 18—8. Sími 15030.
Barnadeild Heilsuverndarstöðv
ar Reykjavíkur.
Vegna sumarleyfa næstu tvo
mánuði, verður mjög að tak-
marka læknisskoðanir á þeim
börnum, sem ekki eru boðuð af
hjúkrunarkonunum. Bólusetning
ar fara fram með venjulegum
hætti.
Athugið að barnadeildin er ekki
ætluð fyrir veik börn.
Næturvarzla er í Laugavegs-
apóteki vikuna 11.—17. júlí. Sími
24047.
Helgidagsvarzla 12. júlí er einnig
í Laugavegs apóteki.
Holtsapótek og Garðsapótek
eru opin alla virka daga frá kl.
9—7, laugardaga 9—4 og sunnud.
1—4.
Hafnarfjarffarapótek er opið
alla virka daga kl. 9—21. Laugar-
daga kl. 9—16 og 19—21. Helgi-
dag kl. 13—16 og kl '9—21.
Næturlæknir í Hafnarfirði vik
una 11.—18. júlí er Kristján Jó-
hannesson sími 50056.
Keflavíkur-apótek er opið alla
virka daga kl. 9—19, laugardaga
kl. 9—16. Helgidaga kl. 13—16.
Kópavogs-apótek, Álfhólsvegi 9
er opið daglega kl. 9—20, nema
laugardaga kl. 9—16 og helgidaga
kl. 13—16. — Sími 23100.
* AFMÆLI *
75 ára er í dag frú Elíse S.
Jónsson, Leifsgötu 28.
Sjötug er í dag frú Guðrún
Angantýsdóttir, Hrafnistu. Hún
dvélst í dag í Akurgerði 46.
Hjónaefni
Nýlega hafa opinberað trúlof-
un sína ungfrú Hildur Vilhjálms-
dóttir, Norðurstíg 5 og Leonard
Poluen Philadelpia.
g^Flugvélar
Flugfélag fslands:
Millilandaflug: Hrímfaxi er
væntanlegur til Reykjavíkur kl,
16,50 í dag frá Hamborg, Kaup-
mannahöfn og Osló. Fer til Osló-
ar, Kaupmannahafnar og Ham-
borgar kl. 8,30 í fyrramálið.
Innanlandsflug: f dag er áætl-
að að fljúga til Akuréyrar, Egils
staða, Kóþaskers, Siglufjarðar,
Vestmannaeyja og Þórshafnar.
Á morgun er áætlað að fljúga
til Akureyrar, Bíldudals. Fag-
urhólmsmýrar, Hornafjarðar, ísa
fjarðar, Patreksfjarðar og Vest-
mannaeyja.
Skipin
Eimskipafélag fslands h.f.:
Dettifoss fer frá Leningrad í
dag. — Fjallfoss er í Hull. —
Goðafoss er í Reykjavík. — Gull
foss fór frá Kaupmh. í gær. —
Lagarfoss er í New York. —
Reykjafoss fór frá Haurtsund í
gær. — Selfoss er í Kotka. —
Tröllafoss fer frá Keflavrk í dag.
— Tungufoss er í Reykjavík. —
Drangajökull fór frá Hamborg
9. júlí.
Skipadeild SÍS.
Hvassafell fór í fyrradag frá
Rotterdam áleiðis til Ventspils
og Riga. Arnarfell er í Reykja-
vík. Jökulfell er á Akranesi.
Dísarfell er í Stettin. Litlafell
fór í gær frá Reykjavík til Sauð-
árkróks, Hofsóss, Siglufjarðar,
Dalvíkur, Húsavíkur og Vopna-
fjarðar. Helgafell kemur til
Umba í dag. Hamrafell fór frá
Arúba 6. þ.m. til íslands.
Ymislegt
Þjóðhátíðardagur Frakka: — 1
tilefni af þjóðhátíð Frakka byður
sendiherra Frakklands til mót-
töku þ. 14. júlí milli kl. 5—7 í
bústað sínum að Skálholtsstíg 6.
Honum væri mikil ánægja að
taka á móti öllum vinum Frakk-
lands, er vilju þiggja boð hans.
Frá Æskulýðsráði Reykjavík-
ur. Dansklúbbur æskufólks er
opinn í Skátaheimilinu kl. 4—6
í dag. Hljómsveit Árna Elfars
leikur fyrir dansinum, söngvari
Haukur Morthens. Aðgangseyrir
10 kr.
Kvenfélagið Hvítabandiff fer
í skemmtiferð n. k. þriðjudag.
Upplýsingar í síma 16360 og
11609.
Kvenfélag Hallgrímskirkju fer
í skemmtiferð þriðjudaginn 14.
júlí í Þjórsárdal. Nánari upplýs-
ingar í símum 15143, 14442 og
12297.
Fíladelfía: — Guðsþjónusta kl.
8,30. — Ásmundur Eiríksson.
Fíladelfía, Keflavík: — Guðs-
þjónusta kl. 4 e.h. — Haraldur
Guðjónsson.
fggAheit&samskot
Sólheimadrengurinn. B og A
225.
Lamaffi íþróttamaðurinn G. S.
50, E. 20; E. 20.
Lamaði drengurinn G. S. 100,
K. 50.
Söfn
Listasafn ríkisins er opið
þriðjudaga, fimmtudaga og laug
ardaga kl. 1—3, sunnudaga kl.
1—4 síðd.
Þjóffminjasafnið: — Opið sunnu
daga kl. 1—4, þriðjudaga, fimmtu
daga og laugardaga kl. 1—3.
Byggðasafn Reykjavíkur að
Skúlatúni 2 er opið kl. 2—5 alla
daga nema mánudaga.
Opið daglega frá 1:30—3:30.
Náttúrugripasafnið: — Opið á
sunnudögum kl. 13:30—15, og
þriðjudögum og fimmtudögum
kl. 14—15.
Lestrarfélag kvenna, Rvík.:
Bókasafn félagsins, Grundarstíg
10. er opið til útlána hvern
mánudag í sumar kl. 4—6 og 8—
9 e. h.
• Geagið •
Sölugengi:
1 Sterlingspund .. kr. 45,70
1 Bandaríkjadollar — 16,32
1 Kanadadollar — 16,82
100 Danskar kr — 236,30
100 Norskar kr — 228,50
100 Sænskar kr — 315,50
100 Finnsk mörk .... — 5,10
1000 Franskir frankar — 33,06
100 Belgískir frankar — 32,90
100 Svissneskir frank. — 376,00
100 Gyllini — 432,40
100 Tékkneskar kr. .. — 226,67
100 V.-þýzk mörk .. — 391,30
1000 Lírur — 26,02
100 Austurr. schill. .. — 62,78
HJNSfPl\-me$
ntt^ubkajjinu
Kínverjar
★
Tveir menn hittust á vínstofu.
— Hvers vegna hefur þú eig-
inlega hnýtt þessa hnúta á vasa-
klútinn þinn?
— Það er til þess að ég muni
að ég vilji ekki drekka meira.
— Já, en þú ert nýbúinn að
drekka heilt glas af konjáki...
— Já, það er rétt. Það sem
.ábjátar, er nefnilega það, að
ég man aldrei eftir klútnum hérna
á vínstofunni fyrr en ég er neydd
ur til að þurrka svitann af enn-
inu.
Hollywood-stjarna hafði verið
að heiman nokkurn tíma — og að
sjálfsögðu náði slúðursögublaða-
maður strax í hana og spurði:
— Eruð þér hamingjusamar í
hjónabandinu?
— Hamingjusöm, sagði hún
brosandi út undir eyru. Það er
ekki rétta orðið. Við höfum þrisv
ar sinnum hætt við að skilja.
-S
ipurnincý ctugómó
dc
Hvers mnnduð þér helzt óska, ef þér væruð einn
og yfirgefinn uppi á miðjum Vatnajökli?
Ólafur Sigurðsson, stud. theol:
— Ég óskaði mér auðvitað fyrst
Og fremst hangikjötslæris (en
hvað er það á móti meyjaryndi?)
Svo að næsta
óskin yrði að
sjálsögðu fögur
kona, ekki endi-
lega' Marilyn
Monroe eða Jane
Mansfield — en
þó eitthvað í þá
áttina. Og, ef
Björn Pálsson
fengist til þess
að kasta niður til mín koníaks-
kútum við og við — þá væri ég
alveg til í að vera þar um sinn.
Stefán Jónsson, fréttamaffur:
— Þess eru dæmi, að menn hafa
borgið sér úr svona mannraun-
um á berangri með því að lóga
SVINAHIRÐIRIIMN
Ævintýri eftir H. C. Andersen
„Hundrað kossa hjá keisara-
dótturinni, sagði hann, „eða hvort
heldur sínu“.
„Stand^ð þið fýrir, sagði hún.
Og allar hirðmeyjarnar röðuðu j
sér fyrir og síðan fór hann að
kyssa hana.
„Hvaða troðningur skyldi vera
niðri hjá svínahúsinu?“, sagði
keisarinn um leið og hann gekk
út á svalirnar. Hann nuddaði
augun og :etti upp gleraugun. —
„Það eru hirðmeyjarnar að leika
sér, ég held ég verði að fara
niður eftir til þeirra“. Og síðan
togaði hann inniskóna upp á hæl-
inn, því að þeir voru troðnir nið-
ur að aftan.
FERDINAND
Nýjar stjörnur
r ■
hesti, bjarndýri.^M^
eða úlfalda — 4
eftir því, hvert j
þessara dýra er:§
handbært í hlut-
aðeigandi þreng'hyv''' *
ingum, — taka 'J _ 4
út innyflin, en ■ A
skríða siálfur|g|g|gi
inn í dýrið og i
bíða þar mann-i
bjargar. Ég myndi hins vegar
kjósa mér þess að vera kominn
heim.
Sveinn Jónsson, landsliffsmað-
ur; __ Það færi mikið eftir því
hve lengi ég ætti að vera þarna.
En alla vega vildi ég fyrst og
g: fremst fá reglu-
| legan „sælu-
kofa“, og nóg af
| kvenfólki til
þess að halda
öllu hreinu og
hressu, bæði
mér og kofan-
um. Og svo auð-
vitað nóg að
borða, allt annað
en skötu og hafragraut — og síð-
ast en ekki sízt Góðar póstsam-
göngur við bæinn.
Ómar Ragnarsson, mennta-
skólanemi: — „Whirla Whip
mjólkurís með sítrónu og eggja-
bragði“ lengir sjálfsagt lífið
hvort sem er í j
þrjátíu stiga I
gaddi eða þr já-1
tíu stiga hita. —j
Og í fyrra til-
fellinu væri svo \
sem ekkert á |
móti því að hafa ,
hjá mér svo |
sem eins og eina
rauðhærða.
Ingólfur Guffmundsson, flug-
vélamaffur: — Ég vildi fyrst og
fremst hafa það dáltiið huggu-
legt. Ég held nefnilega, að menn
geti látið sér
líða vel hvar
sem er, ef þeir
fá allar óskir
sínar uppfylltar.
Með fyrstu ósk-
inni vildi ég
binda endi á
einveruna og
yrði óskin upp-
fyllt fengi ég
konuna mína til mín, hvort sem
henni likaði betur eða ver. Svo
auðvitað brugghús, ég gerði ekki
hærri húsnæðiskröfur. Og með
brugginu vildi ég mína uppáhalds
fæðu: Hrossakjöt. Það er nefni-
lega hreinasta konfekt miðað
við þessi gúmmínaut, sem þeir
selja hér.