Morgunblaðið - 12.07.1959, Page 8
8
MORCVNTtLAÐlÐ
Sunnudagur 12. júlí 1959
*
(j3íííinn frcí 1918 — OCj fctíýf-
inn
fíjúgcincli
VATNSKOT í Þingvallasveit hef-
ur löngum verið frægt fyrir
tæknimenningu. Símon bóndi og
synir hans eru þúsundþjalasmið-
ir og hafa oftsinnis vakið athygli
fyrir margs konar heimatilbún-
ar vélar og tæki. Margir minnast
t. d. þess, að þeir komu eitt sinn
til skíðalandsmóts, akandi í sleða
knúnum flugvélarhreyfli og loft-
skrúfu. Farartæki þeirra á Þing-
vallavatni hafa stundum verið
álíka frumleg.
Dóttursonur Símonar í Vatns-
koti heitir Símon Melsted. Hann
er vart orðinn tvítugur, en þó
byrjaður að föndra á sama hátt
og afinn.
Fréttamaður og Ijðsmyndari
Mbl., sem leið áttu til Þingvalla
ekki alls fyrir löngu, hittu Símon
yngri þar sem hann var að
bjástra við nýstárlegan bát, sem
búinn er til úr aluminíumkútum
þeim, er herflugvélar nota fyrir
aukabenzínbirgðir og festir eru
á vængendana. Símon keypti þá
hjá sölunefnd varnarliðseigna,
festi haglega saman og setti 10
hestafla bílhreyfil á fleytuna. —
Þetta er nú sannkallaður hrað-
bátur — og hefur mjög mikið
burðarþol. Símon er fljótur í för-
um um vatnið á bátnum, en seg-
ist þó þurfa að gera einhverjar
endurbætur á smíðinni.
Símon hafði komið á bíl niður
að vatninu, þar sem báturinn lá.
Þessi bíll var ekki af nýjustu
gerð, en gekk samt eins og
Myndin var tekin skömmu áður en snjórinn bráðnaði. Talið frá vinstri: Ónafngreindur skíðakenn-
ari, Tony Kastner, Jane Mansfield, herra Mansfield, Steinþór og ónafngreindur kennari.
★
Og þið megið geta nærri, að
áhugi okkar vaknaði — á Steina.
Áhugi okkar á Jane Mansfield
var fyrir.
Við köfuðum til botns í málinu
— og viti menn, þetta var allt
heilagur sannleikur. Steini, en
svo er skíðagarpurinn Steinþór
Jakobsson nefndur þar vestra,
fór í fyrrasumar til Bandaríkj-
anna — til gamals ísfirðings, Þór-
halls Ólafssonar, sem rekur
mikið þungavinnuvélafyrirtæki
vestra. Þar lærði Steinþór með-
ferð ýmissa véla — og auðvitað
hefði kunnátta hans verið nýtt í
þágu lands og þjóðar, éf skíða-
áhugi hans hefði ekki orðið yfir-
sterkari.
★
1 norðanverðu New York-fylki
er mikið um vetrargistihús. Þar
eru allar vetraríþróttir iðkaðar
svo lengi sem snjór endist — og
jafnvel lengur, því að mörg gisti-
hús hafa tæki til þess að búa til
snjó fyrir gesti sína jafnóðum og
hann þrýtur á vorin.
Með aðstoð góðra manna stofn-
aði Steinþór eigin skíðaskóla á
stað, sem heitir Lake Placid, í
New York. Réði hann til sín
fjölda kennara og ekki vantaði
nemendurna. En samkeppnin var
hörð — og þegar það vitnaðist, að
Steinþór hafði ekki bandarískt
skíðaskólastjórapróf, var fæti
brugðið fyrir hann og skólanum
slitið með stuttri en átakalausri
athöfn.
★
Orð hafði farið af leikni Stein-
þórs á skíðunum og heimsfrægur
skíðakennari, Tony Kastner,
bauð honum að gerast liðsmaður
sinn í Grossinger Country Club.
Hann kennir gestum í einu fín-
asta hóteli þar um slóðir list
skíðamannsins. Hótel þetta rúm-
ar 2,000 gesti og það er fjölsótt
af auðmönnum, þar á meðal
Hollywood-stjörnum.
Og þarna var það einmitt, að
Steinþóri var falið að taka Jane
Mansfield að sér. Sú var ekki
beisin á skíðunum. Hún vildi því
fyrst og fremst læra hvernig
hægt væri að detta beint á sitj-
andann án þess að missa yndis-
þokkann eitt andartak. En þegar
hún var búin að læra það fór
Símon Melsted og „fuglinn fljúgandi“ frá 1918.
klukka. Sannleikurinn er sá, að
þarna var á ferðinni einn elzti,
ef ekki elzti bíll á landinu, Ford
af 1918 árgerðinni. Og þessi Ford
hefur verið í nær stöðugri notkun
síðan 1918 — og aldrei gefið sig.
Símon bóndi notaði hann eitt
sinn til þess að aka lifandi sil-
ungi úr vatninu til Reykjavíkur,
en nú er þetta nær eingöngu inn-
anhéraðsbíll.
Símon Melsted segist stundum
bregða sér á bílnum um hraunið,
stundum beint af augum yfir
hvað sem er. Hann segir Fordinn
einkar góðan í ófærð að vetrinum
og fara margt, sem ekki þýddi að
bjóða nýjum bílum. „Ég færi á
honum til Reykjavíkur í kaf-
ófærð hvenær sem væri“, segir
Símon. „Það hef ég sannreynt. Ég
fór einu sinni á milli, þegar eng-
um var fært nema fuglinum fljúg
andi — og Fordinn hikstaði
hvergi“.
Hraðgengu benzíngcymarnir.
jecjurLarclrotL
nmcj
19 ÁRA gömul sýrlenzk stúlka,
sem kjörin var fegurðardrottn-
ing Arabíska sambandslýðveldis-
ins, neitar að taka þátt í Miss
Universe-keppninni í Kaliforníu.
Ástæðan: Samkvæmt Kóraninum
meiga konur ekki klæðast bað-
fötum fyrir augum karlmanna.
Sófirk
fieíil
(í óhíktm
tnqunnn, óem
df 7
Lenncli
jan* W,
ctnó-
ÞEGAR fréttamaður Mbl. var á
dögunum staddur vestur á Isa-
firði heyrði hann á tal nokkurra
ungra manna, sem ræddu mikið
um vin sinn „Steina Kobba“, sem
siglt hefði til Ameríku og Motið
mikinn frama. Fóru menn viður-
kenningarorðum um Steina og
töldu honum alla vegi færa. Hann
hefði farið til Bandaríkjanna til
þess að læra meðferð þungavinnu
véla, sögðu þeir, en áður en yfir
lauk var hann byrjaður að kenna
Jane, henni Jane Mansfield, í
eigin persónu — að standa á skíð-
um. ísfirzku piltarnir voru sann-
færðir um það, að Steiní væri
jafnvígur á allt.
hún að læra að standa á skíðun-
um.
Steinþór hefði auðvitað verið í
sjöunda himni yfir öllu þessu, ef
sá böggull hefði ekki fylgt
skammrifi, að eiginmaður Jane,
hinn margfrægi fegurðarkóngur
Bandaríkjanna, fylgdi konu sinni
alltaf fast eftir og þorði aldrei að
hafa augun af henni, því að hann
vissi, að Steinþór er Vestfirðing-
ur. — Steinþór tók því smá auka-
vinnu og kenndi Lindu Darnell
og fleiri stjörnum iþróttina.
Þegar Jane var að komast upp
á lagið með að beygja til hægri
var komið vor og fegurðarkóng-
urinn búinn að fá hælsæri á báða
fætur. Steinþór sneri sér því að
þungavinnuvélunum. Nú vinnur
hann við grjótnám í nágrenni
Detroit, en Jane er í Hollywood
og maðurinn hennar auðvitað
hjá henni.
★
Tony Kastner hefur beðið
Steinþór að vera aftur hjá sér í
vetur, því enn er von á Jane. En
ísfirðingurinn hefur líka fengið
boð frá Sun Valley, paradís
skíðamánna í Bandaríkjunum.
Stein Ericsen, Ólympíumeistar-
inn, sem á skíðaskóla vestra, hef-
ur líka beðið hann að koma til
sin. Loks hefur Steinþór fengið
boð frá skólum í Squaw Valley,
en einmitt þar eiga Vetrar-
Ólympíuleikarnir að fara fram.
★
Við fregnuðum vestra, að kenn-
arastarf Steinþórs hefði á engan
hátt skaðað feril hans sem áhuga-
manns í skíðaíþróttinni, svo að
hann getur eftir sem áður tekið
þátt í skíðamótum. Hann hefur
sagt kunningjum í bréfum, að
skíðaiðkunin vestra hafi verið
lærdómsrík — og hann telur sig
vera í framför. Þess vegna ætlar
hann að bíða og sjá hvað setur,
e. t. v. verður hann valinn til
þess að keppa fyrir ísland á
Ólympíuleikunum. Hann keppti
á síðustu leikum — og langar til
þess að vera með núna. — En þó
svo verði ekki, þá hefur Steinþór
nægileg verkefni. Þungavinnu-
vélarnar annars vegar — og svo
á Jane eftir að læra vinstri
beygju.