Morgunblaðið - 19.07.1959, Page 8

Morgunblaðið - 19.07.1959, Page 8
8 MORCTTNnL AÐ1Ð Sunnudagur 19. júlí 1959 Tveir skrauthausar í Versölum. M oluóveinn, óem grei Á snærum Guðmundar aru 37 menn: matsveinar, uppþvotta- menn, þjónar og barmenn. Öll skipshöfnin telur 68 menn — og Gullfoss rúmar 218 farþega. — í sumar hefur allt verið fullt, segir hann — o@ mikið að gera. ☆ Skipshöfn og farþegar borða f hverri ferð hálft annað tonn af kjöti auk alls annars, en ekki vildi Guðmundur segja okkur hve oft yrði að endurnýja vín- og bjórbirgðir skipsins. Þó lét hann uppi, að danskur bjór þætti góður — og vínföng engu lakari, þegar selt væri tollfrjálst í hafi. Hins vegar hafði hann mikinn áhuga á því, að við segðum frá verzluninni um borð — þar, sem allt milli himins og jarðar væri selt við hóflegu verði. Við höfð- um minni áhuga á því -— og þeg- ar hann var farinn að tala um ljósmyndavélar og ilmvötn kvödd um við. — Við erum 6 eða 7 sótararnir í Reykjavík, þar af tveir í Vest- urbænum — og förum fjórar um- ferðir á ári. Þetta er næturvinna, óþrifavinna — og maður verður helzt að baða sig á hverjum morgni. Kn þetta venst eins og allt annað. Á vissan hátt væri það ágætt, ef þessir byggingar- meistarar gleymdu ekki allt of oft að setja sótlúgur á reykháf- ána í nýju húsunum. Það er mik- ið, að þeir gleyma ekki sjálfum reykháfunum. Annars mættu þeir svo sem gleyma þéim fyrir mér. Ég losnaði þá við að þrífa sótið úr lúgulausum reykháfum. — Vig megum ekki lengur fara upp á þak. Þeir segjast ekki taka neina ábyrgð á okkur, banna okk ur það hreint og beint — svo að nú verður að vera lúga efst og neðst á hverjum reykháf. Og, ef þeir gleyma ekki lúgunum, þá setja þeir þær á svo óheppilega staði, að nær ógerningur er að komast að. Það hefur t. d. ekki ósjaldan kömið fyrir, að ég hafi þurft að reka hjón úr rúminu um hánótt til þess að ná rúminu frá veggnum, því að sótlúgan er auð- vitað á bak við hjónarúmið. Það er í nýju húsunum, maður minn, þar sem áherzlan er lögð á þæg- indin. Ég held nú það. Þetta mætti okkur á landgöngubrunni i Gullfossi, en kassinn. var tómur. — Ef menn eru klassískir, þá eru það auðvitað Versalir fyrst og fremst. París er óskapleg lista- borg, eins og þið vitið. — En ef menn eru ekki klassískir, þá eru það aðallega krárnar. En ég er klassískur, mjög klassískur, eins og sést á myndipni. — En allir íslendingar, sem dveljast eitt hvað að ráði í París, safna skeggi. Það er að segja karlmenn. Einn sagði mér, að þeir yrðu að hafa alskegg til þess að komast inn í klíkurnar, eins og hann orðaði það. Þetta var lítill naggur, með stutt skegg, sem þó var næstum því jafnlangt honum. — Ég sá eitt undarlegt fyrir- brigði í París. Það var auðvitað íslendingur. Hann bar hárolíu í skeggið og greiddi það. Ekki á neinn venjulegan hátt. Ég held nú síður. Það var greitt beggja megin undir hökuna, aftur fyrir hnakka — og niður að aftan. Óskapleg sjón. En hann hefur sjálfsagt komizt í einhverja „klíkuna“. Það var nú meiri jóla- sveinninn, sagði Ingó. Ingó ætti þó að tála varlega. Hann leikur alltaf jólasveininn á jólaböllunum, sem starfsmenn Flugfélagsins halda fyrir börnin sín. Og þegar blessuð börnin sjá myndir af jólasveinum segja þau alltaf: Ingó, Ingó! JM cinnci S en íicij'f rcigrci «,/L, Lrir U INGÓLFUR GUÐMUNDSSON (Ingó), vélamaður hjá Flugfélagi íslands er frægur spaugari. Sag- an segir, að eitt sinn hafi hann verið á Borginni (auðvitað með konunni sinni), en við sama borð hafi setið ung stúlka með mikið ljóst hár (litað eða ólitað). Vildi stúlkan draga athýgli nærstaddra að fallega ljósa hárinu. og hafði títt orð á því, að hún „réði bara ekkert við hárið“, hún „væri nefnilega nýbúin að þvo það“. Þegar stúlkan sagði í þriðja sínn: „Guð, ég ræð ekkert við hárið, það stendur allt út í loftið" — gat Ingó ekki lengur orða bundizt. Hann stökk á fætur og hrópaði: „Guð, ég ræð ekkert við fæturna á mér, þeir hlaupa bara eitthvað út í loftið. Ég er nefnilega nýbú- inn að fara í fótabað“. Við seljum þessa sögu ekki dýrari en við keyptum hana. Ingó getur vel hafa verið að skrökva því, að hann hafi verið nýbúinn að fara í fótabað. En hvernig sem því er varið, þá komumst við fyrir hreina tilvilj- un'yfir meðfylgjandi mynd, sem tekin var af Ingó í Versölum ekki alls fyrir löngu. Snorri Snorra- son, flugstjóri, tók myndina. Sól- faxi var í Parísar-ferð — og áhöfnin brá sér til Versala, því að enginn vill missa af þeim sögu- fræga stað. Snorri er alltaf með mynda- vélina — og hann leitaði lengi að einhverju, sem hægt væri að stilla Ingó upp við til myndatöku. Ingó skýrir myndina þannig: Þetta er einhver skrauthaus í Ver sölum, hrútshaus. Lítið á nefin, alveg eins. Ég fer að halda, að minn haus sé líka skrauthaus. Annars er það minn haus, þessi til vinstri. — Og hvað vilja menn helzt sjá í París? spyrjum við. Brytastarfið er nijög valdamik- ið, eins og gefur að skilja, því að Guðmundur getur skellt eldhús- hurðinni í lás, ef illa liggur á hon um — og sagt: Nú verða allir að svelta í dag. En það liggur alltaf vel á Guð- mundi og á Gullfossi hefur eng- inn þurft að svelta. Þar er alltaf á boðstólnum mikill og góður matur, matsveinarnir standa streittir við frá klukkan 6 á morgnana fram á rauða nótt. ☆ Við heimsóttum Guðmund, þeg ar Gullfoss lá síðast í höfn. — Á borðinu lágu matseðlar fyrir næstu viku. Og það voru heldur en ekki kræsingarnar: Svín, kálf- ar og kjúklingar — allt annað en saltfiskur og hafragrautur. óólíú gcir óoliugun huk i/iS lijonu • A rumi REYKJAVlK er sennilega sér- stæð höfuðborg miðað við flestar aðrar höfuðborgir. Sennilega hef- ur t. d. engin þeirra jafnfáa sót- ara og Reykjavík, en sótarar eru þó enn til þrátt fyrir Hitaveituna. Valdimar Þórðarson er elzti sótarinn í Reykjavík. Hann byrj- aði um tvítugt að sóta í Vestur- bænum og sótar enn 61 árs að aldri — í Vesturbænum. — Þegar ég sótti um sótara- starfið varð ég að.leggja fram meðmæli, þá var hálfgert at- vinnuleysi í Reykjavík. Og mað- urinn, sem gaf mér meðmælin, bar það, að ég væri engin „pen pía“, ég væri ekkert hræddur við að gera mig óhreinan, ég hefði verið til sjós og hefði lyktað af slori, sagði Valdimar, þegar við hittum hann á dögunum. Hann byrjaði að róa 16 ára frá Þorlákshöfn, en kom til Reykja- víkur tvítugur og gerðist sótari um stundarsakir. Svo var atvinn- an búin, hann fékk skipsrúm og átti að leggja úr höfn á aðfanga- dagskvöld 1919. En á síðustu stundu fékk hann boð um að hann gæti fengið starfið áfram - og Valdimar var heima það að- fangadagskvöld og fór aldrei á sjóinn meir. Guðmundur sker ekki matinn við nögl sér. ÞIÐ hafið sennilegá ekki heyrt getið um manninn, sem réðist á Gullfoss aðeins af því að kokteill- inn kostaði ekki nema 10 krónur um borð. En Guðmundur Þórðar- son, bryti, réðist ekki til Eim- skipafélagsins vegna þess. Hann langaði á sjóinn og þegar honum bauðst aðstoðarmatsveinsstaða á gamla Dettifossi árið 1933 tók hann því. Síðan hefur Guðmund- ur verið hjá Eimskip — og bryti á Gullfossi frá því að skipið hóf siglingar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.