Morgunblaðið - 19.07.1959, Síða 14

Morgunblaðið - 19.07.1959, Síða 14
14 MORCVIKBLAÐIÐ Sunnudagur 19. iúlí 1959 — Reykiavlkurbréf Framh. af bls. 13. raunar flestum öðrum. Hermann hefur alltaf verið með því að hafa her í landinu, þegar hann hefur þurft að taka ákvörðun um það, er hann var sjálfur í stjórn. Hann var með gerð varnarsátt- naálans við Bandaríkin 1942, enda var hann þá forsætisráð- herra. Hann var með hervarnar- samningnum 1951, enda var hann þá sjálfur í ríkisstjórn. Hann var með því að hafa her í landinu allan tímann 1956 til ársloka I 1958, enda var hann þá forsætis- ráðherra og taldi m.a.s. ekki eftir sér að fara suður til Parísar fyrir jól 1957 til að lýsa yfir tryggð sinni við Atlantshafsbandalagið. Hermann hefur hins vegar alltaf verið á móti því að hafa her, þegar hann hefur verið utan stjórnar. Hann var á móti því að gera Keflavíkursamninginn 1956, enda var hann þá í stjórnarand- stöðu. Hann var á móti því að ganga í Atlantshafsbandalagið 1949, enda var hann þá að undir- búa að fella þáverandi ríkis- stjórn, .sem. hann var ekki í. Hann stóð og fyrir ályktuninni 28. marz 1956, enda var hann þá, eins og 1949, að undirbúa fall þá verandi ríkisstjórnar, sem hann ekki var í. Nú er svo að sjá af Tímanum, að hann sé enn að snúast á móti hernum, enda er Hermann nú ekki í ríkisstjórn. Fögnuður Þjóðviljans Þjóðviljinn fagnar á fimmtu- daginn með fögrum orðum þeirri stefnubreytingu, sem nú sé að verða hjá Framsókn. Vafa- samt er, hjá hverjum af þessum mönnum óheilindin eru mest. Þeir höfðu allir í sameiningu lof- að að láta herinn fara og hgfðu í hendi sér um 2% árs bil að efna það loforð. Þá datt þeim það ekki í hug, heldur fengu fé að láni með því skilyrði, að liðið skyldi vera áfram. Nú ætlast þeir til þess að menn taki alvarlega skraf þeirra um andúð á varnar- liðinu. Þeir vona að fá atkvæði út á loforð um að láta það fara, eða loka það enn þá betur inni á Keflavíkurflugvelli en þeir segj- ast hafa gert. Kjósendur eru of oft búnir að reyna svik af þess- um mönnum umfram allt í þessu máli, til þess að einn ein- asti megi nú láta blekkja sig. K. S. I. 1. A. ISLANDSMOTIÐ MEISTARAFLOKKUR I dag kl. 4 leika á Abranesi KR — Akranes Dómari: Magnús V. Pétursson Línuverðir: Baldur Þórðarson og Björn Árnason Ferð verður með Akraborg kl. 1 frá Reykjavík og frá Akranesi kl. 7,45. MÓTANEFNDIN * B 1 b H * Utsala tltsala Á morgun hefst útsala á alls konar kvenfatnaði, Á boðstólum verða: Ulflarkápur Uil«rrúlpur Poplinkápur Pils Síðbuxur Sundbolir Prjónakjólar Prjónajakkar Einng peysur úr ull og baðmull í miklu úrvali Mildll ^ i í\ / i I S Aísláttur ! -U Laugavegi 116 J Þorleifur Jónsson frá Blönduósi — minning Á HVERJU augnabliki sem líðuri ur aðeihs raktir örfáir endurminn hverfur mikill fjöldi einstaklinga úr tölu hinna lifandi og fer aftur til síns uppruna. Þá er aðeins eftir minningin um ógleymanlega samveru um nokkurra ára bil. Metsa athygli vekja venjulega dauðsföll hinna betri manna, hinna háttsettu og voldugu í þjóð- fílaginu, verrndara fólksins; þá er sagt að þjóðarbrestir hafi orðið. Minni athygli vekur fráfall al- þýðumannsins hversu mætur sem hann kann að hafa verið. Aðeins hljóður og yfirlætislaus hópur nánustu vandamanna syrgja góð- ann vin og félaga. Þeir bera harm sinn í hljóði og mæla fátt. Engum kom á óvart þegar lát Þorleifs Jónssonár frá Blönduósi ■bar að höndum, þar sem hann hafði um langa hríð átt við mikla vanheilsu að búa, en vinir hans og kunningjar sem er fjölmenn- ur hópur, geta ekki gleymt liðn- um dögum og fornri sambúð og samvinnu við hann. Hér verða engin órtöl eða dag- setningar tilfærðar, frá hinum góðu og gömlu tímum, þegar heim urinn og lífið í heild, blasti við, í öllum sínum glæsilitum, held- inga þræðir sem spunnúst við nána kyhningu um margra ára skeið. Þorleifur heitinn var gleði- maður í raun og sannleika, en það sem meira var og fágætara, að hann hafði ætíð lag á því að gjöra alla aðra einnig glaða í kringum sig. Það birti ætíð yfir hugum manna í samneyti við hann og allir vildu vera félagar hans og vinir. Það mun vera fremur sjaidgæft að nokkur einstaklingur hafi ekki einhverntíma átt óvildar- menn, ef vandlega er rannsakað, en það má óhætt fullyrða að hann átti engann svo var hann vinsæll í hvívetna. Það sem einkendi hann mest, var einlægni og hreinskilni, sem var svo sjaldgæft yfirleitt og nú jaínvel nokkuð úr tizku. Fáir menn eru svo gæfusamir að sigla mótvindalaust hraðbyri gegnum heiminn, en vegna skap gerða sinna mun hann hafa sneitt hjá mörgum boðum og blind- skerjum, sem öðrum urðu að tjóni. Þorleifur var giftur ölmu Ól- afsdóttir, prýðilega greindri konu og skáldmæltri og munu þau oft hafa stytt sér stundir við sam- tal í ljóðum, því hann var sjálf- ur með snjöllustu hagyrðingum eins og kunnugt er. Margt er um skáld og hagyrð- inga í ætt Þorleifs heitins, þar á meðal skáldkonan Hjallalands Helga, eins og hún var ætíð nefnd, mun hann hafa fengið sinn skerf vel mældann af þeirri gáfu, eins og raun bar vitni. Fyrir hinni almennu mann- hylli er hann naut fram yfir marga aðra, var aðeins ein á- stæða, og hún var sú að hann vár góður drengur, í þess orðs fyllstu og beztu merkingu. Þessi fáu orð eru sögð eftir dúk og disk, en sannleikurinn er sígildur hvort sem hann er sagð- ur seint eða snemma. Jónbjörn Gíslason. PILTAP = EFÞlÐ EIGIÐ UNNUSTUNA ÞÁ Á ÉG HRIN&ANA / Leitið ekki langt Við klæðum alla yfir skammt fjölskylduna

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.