Morgunblaðið - 19.07.1959, Side 24

Morgunblaðið - 19.07.1959, Side 24
VEÐRIÐ S-A. kaldi, dálítil rigning 153. tbl. — Sunnudagur 19. júlí 1959 Reykjavíkurbréf er á blaðsíðu 13« Ottast að Axel Helgason hafi drukknað í Heiðar- vatni í Mýrdal ÓTTAST er að það hörmulega slys hafi orðið, að Axel Helgason, forstjóri, fyrrum rannsóknarlög- reglumaður, hafi drukknað í Heiðarvatni í Mýrdal. Axel kom að bæ við vatnið um kl. 5 á föstudag og bað um að fá lánaðan bát í tvær klukkustund- ir eða svo til þess að veiða í vatninu. Ekki þótti mönnum neitt grunsamlegt þótt hann kæmi ekki aftur á tilsettum tíma, þar sem slíkt kemur iðulega fyrir, ef menn lenda í veiði. En er líða tók á kvöldið, og Axel þá ekki enn kominn, var farið að svipast um eftir honum. Fannst bátur lians þá á hvolfi úti á vatninu, mannlaus, en færið hafði vafist utan um bátinn. Menn úr slysavarnardeildinni Vík fóru þegar í fyrrinótt að slæða í vatninu, en áhöld þeirra voru ófullkomin til slíks. Beðið var um aðstoð lögreglunnar í Reykjavík við leitina, og var farið austur í gær með fullkomn ari tæki til leitarinnar. í Heiðarvatni eru grynningar við land, eða út á marbakka þar sem vatnið snardýpkar. — Þar á mörkunum eru veiðar helzt stundaðar í vatninu. Ingi R. vann fyrstu skákina FYRSTA skákin af fjórum í ein- vígi þeirra Friðriks Ólafssonar og Inga R. Jóhannssonar var tefld í Fundiir Vestur- Skaf tfellskra kvei-na KLAUSTRI, 18. júlí. — Samband kvenfélaga í Vestur-Skaftafells- sýslu hélt 18. aðalfund sinn hér á Klaustri sl. sunnudag í því bjart asta og bliðasta veðri, sem komið hefur á þessu sumri. Formaður sambandsins, Guð- ríður Pálsdóttir Seglbúðum hóf fundinn með því að lesa hug- vekju en sungnir voru sálmar á undan og yfir. Seytján fulltrúar sóttu fundinn frá 8 kvenfélögum í sýslunni auk stjórnar sambands ins. Rannveig Þorsteinsdóttir mætti af hálfu Kvenfélagasam- bands íslands. Auk venjulegra aðalfundar- starfa fjallaði fundurinn um ýmis hagsmunamál kvenna á sam- bandssvæðinu eins og t. d. nám- skeið í saumum og matreiðsiu, hjálparstúlkur á heimilum, aukna ræktun grænmetis o. fl. Kristjana Jónsdóttir, gjaldkeri sambands- ins átti ao ganga úr stjórninni en var endurkjörin. Eftir fundinn fór fram kvik- myndasýning og að lokum sátu allir fulltrúar og nokkrir gestir kaffiboð kvenfélaganna á Síðu. G. Br. Listamannaskálanum á föstudags kvöldið. Friðrik fékk strax í byrj un betra tafl og jók forskotið, þangað til um 2/3 hlutar skák- arinnar höfðu verið tefldir, að hann gaf Inga möguleika á mót- sókn. Urðu þá allharðar sviptingar á skákborðinu í þeim fórnaði Friðrik hrók, sem hann ekki skyldi gert hafa, því að það leiddi til þess að hann skömmu síðar missti riddara líka og var úr því vonlaus, að hann gæti farið með sigur af borði. Gaf Friðrik skákina, þegar hún skyldi fara í bið. Skákin í heild er birt á bls 11, ásamt skýringum Inga. Þess má loks geta, að áhorfendur voru um 150 talsins. Önnur einvígisskák þeirra fé- laga verður tefld í kvöld og hefst taflið kl. 7. Myndin sýnir hið nýja siglfirzka skip, Braga SI-44, er hann kemur með fyrsta síldarfarminn til Siglufjarðar. — Aflanum var landað í Rauðku, síldarverksmiðju Siglufjarðarkaupstaðar. Vonandi verður þessi mynd táknræn fyrir framtíð skipsins. Sjá grein á blaðsíðu Z. Ljósm.: Jóhannes Þórðarson. Sjálfboðaliðar óskast til leitar í DAG verður enn gerð gagnger leit að Boga Guðmundssyni, Rauð arárstíg 42, sem hvarf að heim- an frá sér s.l. sunnudag. — Verð- ur þá leitað gaumgæfilega með fjörum allt frá Gufunesi og að Straumi sunnan Hafnarfjarðar, svo og í hrauninu upp af Hafnar- firði. — Þátttakendur í leitinni verða, auk ættingja og venzla- manna Boga, nokkrir skátar, fé- lagar úr Æskulýðsfylkingunni í Reykjavík og starfsfólk KRON. Leitarfólk mun safnast saman á Miklatorgi kl. hálftvö í dag, og verður þar skipt liði, en það er Jón Guðjónsson, rafvirkja- meistari í Kópavogi, sem stjórnar leitinni. Bað hann blaðið fyrir þau skilaboð í gær, að liðveizla sjálfboðaliða, er vildu gefa sig fram til leitarinnar, yrði með miklum þökkum þegin. Agœtt veður en engin síld MBL. átti tal við fréttaritara sinn á Siglufirði síðd. í gær og skýrði hann svo frá, að veður væri mjög gott nyrðra, en þrátt fyrir það hefði svo til engin síld feng ist í fyrrinótt eða siðan á vestur- svæðinu. Þar hefði aðeins 6—8 skip fengið lítil köst, 150—200 tunnur, og komið inn með þann afla. Síldarskipin væru úti, en ekkert hefði frétzt til síldar. — Svipaðar fregnir bárust frá Rauf arhöfn síðd. í gær; skipin voru úti og höfðu fengið svolítinn afla austan Langaness og inn undir Vopnafjörð. Tveir bátar höfðu 60 dýr unnin í Vestur- Skaftafellssýslu í vor K-KLAUSTRI, 18. júlí Und- anfarin ár hefur stundum talsvert borið á dýrbít hér um slóðir, og hafa sumir bændur orðið fyrir tilfinnanlegu tjóni af völdum hans. Nú má gera sér vonir um að þessi skaðvaldur verði ekki eins virkur í framtíðinni, því að ósleitilega hefur verið unnið að útrýmingu hans í vor. Má ætla að grenjaskyttur hafi banað allt að 60 dýrum, þar af um 40 yrðling- um. Þeir, sem ötulast hafa gengið fram í þessu eru tveir ungir menn í Landbroti — þeir Arnar Sigurðsson Ytra-Hrauni og Stein Tvœr íslenzkar sveitir taka þátt í Evrópumeist- aramótinu í bridge EINS og áður hefur verið sagt frá hér í þættinum, hefur Bridge- samband íslands ákveðið að senda tvær sveitir til þátttöku í Ólympíumótinu, sem haldið verð- ur á ítalíu í aprílmánuði nk. í sambandi við þessa ákvörðun efndi Bridgesambandið til úr- tökumóts fyrir væntanlega kepp- endur í kvennasveitinni. Úrtöku- mót þetta var sniðið eftir franskri fyrirmynd og tóku sex pör þátt i því. fyrsta sæti urðu þær Hugborg Hjartardóttir og Vigdís Guðjóns- dóttir, en í öðru sæti þær Mar- grét Jensdóttir og Laufey Þor- geirsdóttir. Hefur verið ákveðið að þessar konur ásamt tveimur öðrum, er valdar verði á næst- unni, skipi kvennasveitina í Ólympíumótinu. Um karlasveitina er það að segja, að Einari Þorfinnssyni hef- ur verið falið að velja með sér fimm spilara og mun hann ljúka Úrslit í keppninni urðu, að í því vali innan skamms. þór Jóhannsson Ytri-Dalbæ. Sá síðarnefndi er raunar skipverji á Hamrafelli, en hefur tekið :ér frí til að stunda þessa þessa íþrótt. Hann á rússneskan jeppa og hafa þeir félagar ferðazt í hon um vítt um heiðar, óbyggðir og afrétti, þar sem bílar hafa ekki farið áC r og gengið greiðlega, enda hefur færð verið góð, þar sem snjóa leysti snemma og klaki var lítill í jörð. Alls lágu þejr Arnar og Steindór við 8 greni. Unnu þeir allar grenlægjurnar, 4 refi og 24 yrðlinga. G. Br. Afli Akranesbáta AKRANESI, 18. júlí — Víkingur II. fs., landaði í dag 165 tunnum, Fylkir 138 og Guðbjörg Hf. 55; síldin var öll hraðfryst, nema 100 tunnur af afla Fylkis, sem fóru í bræðslu. Sídarskipi Sigrún, sem til skamms tíma var aflahæst báta héðan frá Akranesi, er nú búin að fá nærri 4000 mál og tunnur fyrir norðan. — Oddur. í KVÖLD er væntanlegur hingað með flugvél frá Þýzkalandi prófessor Carlo Schmid, vara- forseti Vestur-Þýzka sambands- þingsins. Prófessorinn, sem kemur hing- að á vegum Evrópuráðsins og Háskóla íslands, mun flytja fyr- irlestur í hátíðasal Háskólans n.k. þriðjudag kl. 5,30. boðað komu sína til Raufarhafn- ar með einhvern afla og nokkrir Vopnafjarðar og Seyðisfjarðar. Söltun á Siglufirði í fyrradag var saltað í 14.135 tunnur á Siglufirði og er það mesta söltun á einum degi það sem af er vertíð. Söltunin gekk mjög vel og var lokið um kvöldið, svo að skipin komust þá öll út aftur. — Alls hafa nú verið sait- aðar á Siglufirði 56.303 tunnur, og Síldarverksmiðjur ríkisins þar hafa brætt um 72 þús. mál og Rauðka um 14 þúsund mál. Raufarhöfn Samkvæmt fregnum frá Rauf- arhöfn í gærdag, höfðu um 30 skip komið þangað með síld und- angenginn sólarhring eða til- kynnt komu sína með samtals um 7000 tunnur. Flest skipanna voru með lítinn afla, en eftirtalin höfðu fengið 300 tunnur ða meira: Böðvar AK 1000, Rafn- kell 800, Helguvík, Valþór og Freyja 350 hvert og Þórunn /E, Fjalar, Gylfi II., Von KE og Guð- mundur á Sveinseyri með 300 tunnur. Minkíir iiimiiin í Landbroti KIRKJUBÆJARKLAUSTRI, 18. júlí — í gær varð vart við mink á bænum Þykkvabæ í Landbroti (suðurbænum) Var hann á hlaup um þar á túninu eltandi fugl. Drengir á bænum veittu honum eftirför og hröktu hann j læk framan við bæjartúnið og fengu unnið hann þar. í sambandi við fregn þssa má geta þess, að bændur á Steins- mýrarbæjunum í Meðallandi hafa séð ýmis merki þess í vor, að minkur hefðist við þar í ná- grenninu. Hafa þeir fundið dauð- ar endur og afrækt hreiður — en fuglalíf hefur verið mjög fjölskrúðugt í grennd við bæi þessa eins og annars staðar I Meðallandi. — G. Br. Stærsta fiskiskip Svía FYRIR NOKKRUM dögum var hleypt af stokkunum í Gauta- borg stærsta skipi sænska fiski- flotans til þessa. Er það stálskip og hlaut nafnið „Gerd av Hönö“. Skipið er 26 metra langt og sex og hálfan metra á breidd. Þetta er fyrsta skip af þessari gerð, sem byggt er í Svíþjóð og hefur skipið vakið mikla athygli á vesturströndinni. Skipasmíða- stöðin í Gautaborg hefur verið beðin um að smíða mörg fleiri slík skip og tvö eru þegar í smíð- um. „Þorsleinn Þorskabítur" telst Nýfundnninndi vegno bilunnr — Treglega gekk að íá setta tryggingu íyrir greiðslu björgunnarlauna EINS og Mbl. skýrði frá fyrir rúmri viku varð togarinn „Þor- steinn þorskabítur,, fyrir vélar- bilun á Nýfundnalandsmiðum þ. 5. þ.m. og varð að leita aðstoð- ar dráttárbáts, sem dró togarann inn til Botwood á Nýfundnalandi. Þar hefur „Þorsteinn þorskabít- ur“ svo legið síðan og mun við- gerð skipsins hafa tafizt vegna ágreinings um björgi narlaun, auk þess sem seinlega hefur geng ið að setja tryggingu fyrir vænt- anlegri greiðslu þeirra. En eigendur dráttarbátsins munu hafa krafizt tryggingar að upphæð 50 þús. kanadiskir dalir. Togarinn er tryggður Ljá Sam- vinnutryggingum og fóru þeir Guðmundur Ásmundsson lög- (Frá menntamálaráðuneytinu) fræðingur og Jón Rafn Guð- mundsson, deildarstjóri sjódeild ar, utan sl. föstudagskvöld, til þess að semja um björgunarlaun in. Ekki hefur frétzt nákvæm- lega af gangi málsins síðustu daga, en í skeyti, sem útgerð skipsins, hlutafélaginu „Þórólfi mostrarskeggi" hafði borist í fyrradag, var gert ráð fyrir að viðgerð lyki senn og skipið kæm- ist á veiðar aftur nú um helg- ina. Það var drif í olíud<~lu, sem brotnaði, en dæla þessi dælir olíu inn á aflvélar skipsins og varð hún því ógangfær við bilunina. „Þorsteinn þorskabítur" lagði upp í veiðiferð þessa um síð- ustu mánaðamót; skipstjcri á hon um er Guðvarður Vilmundarson. Fulltrúar Samvinnutrygginga eru væntanlegir heim á þriðjudags- kvöldið.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.