Morgunblaðið - 02.08.1959, Side 3
SunnuÆagur 2. águst 1959
MORCVNBLAÐ1Ð
3
Samkeppnin um Grœnlandsflugið
verður hörð, en við höfum góða að-
stöðu
—segir Birgir
Þórhallsson hjá
Flugfélaginu
— ÞVÍ er ekki að leyna, að
við erum ekkert sérlega
ánægðir með að hafa fengið
þarna nýjan keppinaut, sagði
Birgir Þórhallsson, yfirmað-
ur utanlandsflugs Flugfélags-
ins, er Mbl. innti hann í gær
eftir viðbrögðum Flugfélags-
ins gegn nýja danska flugfé-
laginu, sem stofnað hefur
verið til þess að ná Græn-
Iandsfluginu af Flugfélagi
íslands.
— En það er ekki þar með sagt
að við höfum missi af Grænlands
fluginu, sem nú er orðið si-,ar
þáttur í rekstri félagsins. Á und-
an förnum árum hafa flugmenn
okkar öðlazt mikla reynzhi í
Grænlandsflugi — og ég veit, að
okkar dönsku viðskiptamönnum
þykir gott að eiga hana í bak-
höndinni, sagði Birgir — og 'ielt
ófram:
— Þar að auki tel ég, að við
höfum mjög sterka aðstöðu til
samkeppni við hið nýja félag —
á verðgrundvelli. Samskiptin v:ð
okkar dönsku viðskiptamenn
hafa verið þannig, að ég hef enga
ástæðu til þess að ætla annað en
við sitjum fyrir um flugið, ef
við getum boðið hagstæðari samn
inga. SAS hefur t. d. haft áhuga
á einstökum samningum, en við
höfum jafnan boðið betur — og
því setið fyrir. Enda þótt nýr
danskur aðili komi til sögunnar
tel ég ekki að við séum þar *neð
útilokaðir.
★
— Hins vegar verður sam-
keppnin geysihörð. Þetta nýja
félag er ekki stofnað með aðild
BOAC, eins og blaðið sagði í dag,
heldur er hér um að ræða lítið
brezkt félag, sem heitir „Over-
seas“ og á þessar tvær umræddu
Argonaut-flugvélar.
Þetta félag hefur „lifað“ á
ferðamannaflutningum ,aðallega
til Miðjarðarhafsins. Það hefur
ekki haldið uppi áætlunarflugi,
heldur farið leiguferðir fyrir
ferðaskrifstofur og aðra slika að-
ila. Það er ekki fjársterkt að því
er ég bezt veit. Þess vegna mun
það gera allt, sem það getur til
þess, að ná hinum hagstæðu
Grænlandsflugum — og gera
lægri tilboð en SAS.
★
— Flestir okkar samningar um
Grænlandsflug renna út um ára-
mótin, en í ár förum við eitthvað
um hundrað ferðir til Grænlands
— og margar eru beint á milli
Kaupmannahafnar og staða á
Grænlandi. — Það er í rauninni
ekkert meginatriði að fara þessi
flug frá ísland og ég geri ekki
ráð fyrir að þó þetta danska fé-
lag næði samningunum að ein-
hverju leyti, að það þyrfti að
koma sér upp bækistöðvum á ís-
landi. En í einstöku tilfellum er
góð aðstaða á íslandi ómetanleg,
sérstaklega að vetrarlagi, þegar
allra veðra er von, sagði Birgir
að lokum.
Sr. Öskar J. Þorláksson:
Störf og ábyrgð
„Oss ber að vinna verk þess,
sem sendi mig, meðan dagur
er. Það kemur nótt, þegar eng-
inn getur unnið. (Jóh.9.4—5)‘*
Það er í eðli hvers manns að
vilja starfa, þetta sjáum við hjá
Telpan
fannst
í HÁDEGISÚTVARPINU í gær
var lýst eftir 4 ára telpu, sem
farið hafði út úr bilreið í mið-
bænum og týnzt. Skv. upplýsing-
um frá lögreglunni var telpan
komin í leitirnar strax nokkr-
um andartökum áður en tilkynn-
ingin var lesin.
Skákmótið i Sviþjóð
Bjartur dagur tyrir ísland
Fréttabréf frá Inga R. Jóh.
í SKÁK minni við S. From
tókst mér að skapa örlítið for-
skot í þumbaralegu af-
brigði af Kóngsindverskri
vörn og ukust yfirburðir stöð-
unnar, þar til yfir lauk. Ólaf-
ur fékk snemma betra tafl
gegn andstæðing sínum og
fórnaði biskup á r^ttu augna-
bliki til þess að gera út um
b^ráttuna. í skák sinni við
Jón Þorsteinsson varð Björn
sleginn skákblindu og lék af
sér manni, (ath. Það er reynt
að láta landana tefla saman
í fyrstu umferðinni) og gaf
án frekari baráttu. Jón
Hálfdánarson var tvímæla-
laust maður dagsins, bæði
vegna þess að hann er yngsti
þátttakandinn og einnig
tefldi hann skák sína í falleg-
um sóknarstíl sem vakti
verðskuldaða athygli allra.
Innrás í Evrópu
Mormónar ganga hús úr húsi í Þýzkalandi
HVÍTT: Jón Hálfdánarson.
SVART: I. Nielsen, Danmörk.
Sikileyjar-vörn
1. e4, c5, 2. Rf3, Rc6, 3. d4, cxd4,
4. Rxd4, g6, 5. Rc3, Bg7, 6. Be3,
Rf6, 7.Bc4, a6? 8. 0—0, d6, 9.
Khl? Bd7, 10. Bb3, b5, 11. a3,
Hc 8, 12. Rd5!?, Rxe4?
13. Rxb5!, Rc5 (Ef 13. .. axd5,
14. Bb6, Hc7, 15. Rxc7f) — (Ef
13.....0—0, 14. Bb6, De8, 15.
Rbc7 og vinnur skiptamun).
14. Bxc5, dxc5, 15. Rxe7!! Yfir
þessum leik geta stórmeistarar
verið stoltir! 15....axb5. Ef
15.....Dxe7, 16. Rd6xKf8, 17.
Hel með vinningsstöðu. 16. Rxc8,
Dxc8, 17. Helf, Be6. 18. Bxe6,
fxe6, 19. Dd6, Rd8. 20. He3, Bd4,
Betra var Hf8. 21. Hf3, Dc6, 22.
DbS! Ke7, 23. c3, Bg7, 24. Hdl,
Rb7, 25. Df4, Hf8, 26. Dh4f, Ke8,
27. Hfd3, Dc7, 28. Dxh7, Hxf2,
29. Dg8f, Hf8, 30. Dxe6f, Dc7,
31. Dxe7. — Gefið. — Það er
leitun á 12 ára sveini, sem teflir
betur. —
HVÍTT: Ingi R. Jóh.
SVART: S. From.
Kóngsindversk vörn.
1. c4, Rf6, 2. Rc3, g6, 3. e4, e5,
4. Rf3, d6, 5. d4, Rbd7, 6. Be2,
Bg7, 7. 0—0, 0—0, 8. Hel, c6,
9. Hbl, Rg4f 10. dxe5! (Ef 11. h3,
d4, 12. Rxd4, Rxf2! 13. Kxf2,
Dh4f með vinningsstöðu). —
10.....dxe5, 11. h3, Rh6, 12. b3,
De7, 13. b4, Hd8, 14. Da4, f6,
15. b5, Rb6, 16. Da5, Be6, 17. bxc6,
bxcl, 18. c5, Rd7 (Ef 18. . Rc4, 19.
Da6!, 0—0, Hb4). 19. Ba3, Rf8 20.
Da6!, De8, 21. Hfdl, R7, 22. Hxd8,
Rxd8, 22. Rd2!, Dd7, 24. Rc4f 5?
(Betra var 24. .. Dc7). 25.Rb6,
axb6, 26. Dxa8, Dd4, 27. exb6!
Dxc3, 28. Dxd8, Bxa2, 29. b7,
Bxbl, 30. b8D, Dxa3 31. Dxbl.
— Gefið. —
1. R. Jóh.
BONN, 1. ágúst. — Mormónar
hafa nú eflt mjög trúboð sitt í
Evrópu. Sérstaklega hafa þeir
ráðizt til atlögu í einu héraði
Þýzkalands, Neðra Saxlandi.
Þangað hefur nú streymt her-
skari af ungum stúdentum frá
höfuðborg Mormóna Saltvatns-
borg í Bandaríkjunum. Þeir fara
skipulega um héraðið og boða
mönnum mormónatrú. í bæjum
og borgum koma þeir jafnvel í
hvert einasta hús.
Samtök mormóna hafa óskað
eftir leyfi til þess að byggja al-
þjóðaháskóla í miðaldaborginni
Celle á Lúneborgarheiði. Stjórn
trúflokksins hefur þegar veitt 30
milljónir þýzkra marka til fram-
kvæmdanna, en borgarstjórnin
í Celle er í efa um, hvort hún
eigi að veita byggingarleyfi,
vegna vegna þess að skóli þessi
eigi fremur að vera trúboðsstöð
en eiginlegur háskóli.
Innrás mormóna í Neðra Sax-
land hefur verið svo öflug, að
fjöldi fólks hefur tekið trúna,
einkum þó ungar konur. Hafa
stjórnendur lúthersku kirkjunn-
ar hrokkið upp við þetta og hef-
ur Lilje biskup í Hannover gef-
ið út bækling þar sem hann varar
við mormónum.
í heftinu segir biskupinn að
mormónatrú sé sorglegur hræri-
grautur af kristindóm, heiðni,
gyðingdóm og múhameðstrú.
Hann segir að mormónar hafi
lagt niður fjölkvæni, en haldi
áfram að útbreiða kenningar
spámanna sinna. Hvar sem þeir
starfa, hvort sem það er við vís-
indi eða viðskipti noti þeir tæki-
færið til að útbreiða kenningarn-
ar. Síðan segir biskupinn: — Við
erum á annarri skoðun en
kaþólskir menn, en getum þó rætt
við þá um trúarmálefni. Við
mormóna er hinsvegar ekki hægt
að ræða. Þeir þykjast leggja mik-
ið upp úr því sem í biblíunni
stendur, en ef þeim er bent á viss
orð biblíunnar, sem þeir brjóta,
þá vitna þeir á móti til eigin
spámanna og sinna undarlegu
vitrana.
Fridagur verzlunarmanna
Alltaf er „kókinn“ góffur „ ... og þessum herramanni finnst
áreiðanlega gott aff búffirnar skuli ekki vera lokaffar mikiff
oftar á ári.
börnunum, sem eru önnum kafin
alla daga við leiki, sem oftast
eru ekki annað en ímyndun hinna
daglegu starfa fullorðna fólksins.
Og þar sem starfslöngunin er
horfin, þar er lífið eðli sínu fjær.
Og þegar menn geta ekki starfað,
vegna vanheilsu eða fá ekki verk
að vinna, þá eru menn eins og
slitnir úr, tengslum við lífið.
Sumarið er hinn mikli starfs-
tími fólksins í þessu landi. Bæði
til sjávar og sveita er unnið af
kappi, því að sumarið er stutt, og
margvísleg tæki eru notuð, til
þess að létta fólki störfin og gera
þau árangursríkari. Og það er á-
nægjulegt að ferðast um landið
og sjá þær miklu framfarir, sem
orðið hafa hér hin síðari ár.
En hver er svo tilgangurinn
með störfum vor mannanna? Til
hvers áetlast Guð af oss í hinum
daglegu störfum lífsins?
Er ekki ástæða til þess að hugsa
um þetta, þegar vér reynum að
gera oss grein fyrir þessum veiga
mikla þætti mannlegs lífs?
Hin frumstæðasta hvöt manns-
ins til starfa er að afla sér lífs-
viðurværis og lífsþæginda. En
auk þess eru margar aðrar hvatir,
sem geta legið þar til grundvallar
svo sem löngun til að prýða um-
hverfi sitt, skapa listræn vérð-
mæti, verða öðrum til hjálpar og
gera félagslífið bjartara og betra.
Sum störf liggja aðallega á
sviði hins verklega, en önnur á
sviði hins andlega lífs, en oft
helzt þetta tvennt í hendur í full
komnu samræmi.
II.
Jesús Kristur leit svo á, að Guð
hefði sent hvern og einn til sinna
daglegu starfa og sjálfur mat
hann ekki störf mannanna eftir
því, hvort þau væru há eða lág í
heimsins augum, heldur eftir
þeirri trúmennsku, sem menn
legðu í störfin og hvort þau mið-
uðu að því að gera mannlífið
bjartara og betra.
Oft líta menn á störf sín, sem
tilgangslaust strit og erfiði, og
auðvitað má haga þeim þannig, að
þau séu lítið annað en strit og
þrældómur. Þeir, sem aldrei
unna sér hvíldar og ge'u sér
lítinn tíma til að auðga anda
sinn og hafa það eitt fyrir tak-
•mark í lífinu að safna tímanleg-
um verðmætum, þeir misskilja al
gjörlega hlutverk sitt í tilver-
unni.
„Því hvað mun það stoða mann
inn, þótt hann eignist allan heim
inn, en fyrirgjöri sál sinni.“
(Matt.16.26). Hinn tímanlegu
verðmæti verða alcrei neitt tak-
mark í tilverunni iieidur aðeins
tæki, sem nota ber til góðs í líf
inu. „Maðurinn lifir 'ökki á brauði
einu saman heldur á sérhverju
því orði, sem fram gengur af Guðs
munni. Þetta er gamall sannleik-
ur, sem vér megum aldrei gleyma
í vélaskrölti nútímans og kapp-
hlaupi vor mannanna um lífsþæg
indi. Vér verðum að gefa oss
tíma til hvíldar, trúariðkana og
helgistunda. Allir kannast við
hið gamla boðorð: „Halda skaltu
hvíldardaginn heilagan“. Hvað
skyldu margir á voru landi, sem
raunverulega halda hvíldsrdag-
inn heilagann? Allt of margir
nota hvíldardaginn til venjulegra
starfa eða líta á hann sem al-
mennan frídag, en gleyma að
hann á að vera helgidagur fyrst
og fremst.
Til 'þess að oss þyki vænt um
störfin, sem vér vinnum, þúrfum
vér að unna oss hvíldar, og til
þess að störfin hafi gildi fyrir oss
þurfum vér að minnast þeirrar
ábyrgðar, sem vér berum á lífi
voru fyrir Guði.
Vér vitum ekki, hve lengi vér
fáum að starfa hér í heimi. En
Guði séu þakkir fyrir hvern dag,
sem vér lifum, nvert starf, sem
vér vinnum og hverja stund, sem
helguð er samfélaginu við hann.
Ó. J. Þ.