Morgunblaðið - 02.08.1959, Side 19
Sunnudagur 2. ágúst 1959
MORCUNBL4ÐIÐ
19
Hildur Sigurðardótlir
Fríverzlunarsvœðið
gleymir smáríkjunum
Minning |
UNGUR drengur átti ég því láni
að fagna að kynnast heimilinu í
Strandhöfn í Vopnafirði. í>ar
bjuggu þá Guðjón Jónsson og
Hildur Sigurðardóttir. Var Guð-
jóp seinni maður Hildar, en hún
var áður gift Jósef, bróður hans,
en hafði misst hann á bezta aldri
1903. Af börnum Jósefs og Hildar
komust þrjú til fullorðins ára,
Hilmar, Ingibjörg og Sigríður.
Móðir mín Margrét K. Jóns-
dóttir frá Hjarðarholti, og Hildur
Sigurðardóttir húsfreyja í Strand
höfn, voru miklar vinkonur allt
frá æskuárum, frá námsárunum
á Ytrieyjarskóla. Höfðu þær báð-
ar átt þess kost að njóta kennslu
frú Eiínar Briem, sem var for-
stöðukona skólans. Má víða um
ið rekja mnningarþræði frá þeim
ágæta skóla.
Hildur var auðfúsugestur á
heimili foxeldra minna þá hún
kom í kaupstaðarferð eða ann-
arra erinda til Vopnafjarðar
kauptúns. Faðir minn var þá
verzlunarstjóri þar. Þegar ég var
15 ára fékk ég svo að vetrarlagi
að fara til Strandhafnar, sem er
ysti bær £ Vopnafirði að norðan-
verðu. Guðjón og Hilmar, son-
ur Hildar, komu þá í kaupstaðar-
ferð með marga hesta og sleða, I
að sækja korn til fóðurbætis, því |
jarðlaust hafði verið lengi, snjór
svo mikill að hvergi sást á dökk-
— Aðalfundur
Framh. af bls. 2.
gengni á verkstæðum og brýnir
fyrir þeim góðar umgengnisvenj
ur.
Þá hefur Iðnskólinn fyrir for-
göngu F.L.R.H. og aðstoð oliu-
félaganna haldið tvö nám-
skeið í meðferð og viðgerðum
olíukyndingartækja og sóttu
þau 60 nemendur.
Á síðastliðnu ári flutti félagið
skrifstofu sína í húsakynni Meist
arsambands byggingamanna í
Þórshamri.
Aðal áhugamál félagsins má
gegja, að hafi um langan tíma
verið að fá samþykktar breyt-
ingar á löggildingarskilyrðum
rafvirkjameistara í Reykjavík.
Hefur verið unnið að máli þessu
árum saman, en ekki hefur það
fengið endanlega afgreiðslu enn
þá, en vætanlega mun þess
skammt að bíða.
Norska rafvirkjameistarasam-
bandið bauð F.L.R.R. að senda
fulltrúa á 25 ára afmælismót
sambandsins, semh aldið var í
Osló í júní s.l. og sótti Sigurodd-
ur Magnússon, rafvirkjameistari,
mótið af hálfu F.L.R.R.
Lagðir voru fram endurskoð-
aðir reikningar félagsins og
voru þeir samþykktir.
Kjósa átti einn mann í aðal-
stjórn félagsins og hlaut kosn-
ingu Vilberg Guðmundsson.
í varastjórn voru kjörnir Sig-
uroddur Magnússon og Ólafur
Jensen og á þar einnig sæti Finn
ur B. Kristjánsson.
Aðalstjórn félagsins skipa nú:
Árni Brynjólfsson, formaður,
Johan Rönning, gjaldkeri og Vil
berg Guðmundsson, ritari.
an díl. Við Hilmar urðum brátt
góðir kunningjar, Hilmar nokkr-
um árum eldri en ég og í mínum
augum var hann þá sem full-
þroska karlmaður, sem kunni að
standa yfir fé, og skjóta bæði
rjúpu og ref, og var hann mér þá
strax sem stóri elskulegur eldri
bróður og hefur svo verið ætíð
síðan.
í rúma viku dvaldi ég þá í
Strandhöfn, og var margt ný-
stárlegt að sjá fyrir kaupstaðar
drenginn. Meðal annars var ég
svo heppinn, að þessa viku rak
óvenju mikið af tímbri og var oft
mikið verk að bjarga þeim reka
tryggilega á þurrt. Ilnnanhúss
naut ég svo ástúðar og umhyggju
Hildar, sam var mér sem móðir.
Börn hennar mörg hafa svo oft
dvalið langdvölum á heimili for-
eldra minna. Hildur sendi þau til
móður minnar, sem kenndi þeim
að spila á orgel og dætrunum
hannyrðir og eftir að foreldrar
mínir fluttu til Reykjavíkur 1919
og börn Hildar og Guðjóns komu
til náms, dvöldu þau oft hjá okk-
ur, bæði Kristín nú ókvænt í
Strandhöfn og Sigurður nú bæj-
arfógeti á Ólafsfirði, þegar hann
var við nám í háskólanum. Mesta
ánægju var þó fyrir móður mína
þegar húsmóðirin sjálf hún Hild-
ur í Strandhöfn kom og dvaldi á
heimilinu. Á þessu má glögt sjá
að mikil og traust vinátta var á
milli heimilanna.
Svo líður tíminn, eftir fráfall
Guðjóns 1949, tekur við búi í
Strandhöfn Jósef sonur þeirra og
kona hans Margrét Grímsdóttir
og skömmu seinna Hjálmar
yngsti sonurinn og hans kona,
Rósa Ingvarsdóttir. Verður nú
mikil breyting í Strandhöfn,
stórt vandað hús er byggt fyrir
báðar fjölskyldurnar. Vex nú upp
ný kynslóð og njóta börnin ást-
— Kaupmanna-
hafnarbréf
Framh. af bls. 6
verzlunarviðskipti og samvinnu
í menningarmálum. En vilji
rússneski forsætisráðherrann tala
við okkur um utanríkismál okk-
ar og aðild okkar að Atlantshafs-
bandalaginu, þá munu dönsku
ráðherrarnir láta afdráttarlaust í
ljósi skoðun sína á sovétstjórn-
inni og stefnu hennar.
Þegar tilkynnt var frá Moskvu,
að rúmlega 60 manns, þ.á.m. ráð
herrar, sérfræðingar o. fl. yrðu
í för með Krúsjeff, þá svaraði
danska ríkisstjórnin að hún gæti
ekki skilið nauðsyn þessa fjöl-
menna föruneytis, þar sem eigin
legar pólitískar viðræður um sér
stök efni kæmu ekki til mála.
í Rigaræðu sinni í júní fór
Krúsjeff vinsamlegum orðum um
skandínavisku þjóðarinnar. En
þegar hann hélt ræðu í Szczecin
(Stettin) þ. 17. júlí, var komið
annað hljóð í strokkinn. Þetta
var daginn áður en aíboðsorðsend
ingin var afhent skandínavisku
sendiherrunum í Moskvu.
f Szczecinræðunni hótaði Krú-
sjeff skandínavisku löndunum
algerri tortímingu, ef þær eign-
uðust kjarnorkuvopn. Rússar
mundu þá, ef stríð skylli á, varpa
kjarnorkusprengjum á þessi
lönd.
Nú ber þess að gæta, að þau
kjarnorkuvopn, sem komið hefur
til mála að skandínavisku löndin
eignist, eru svo skammdræg, að
ekki er hægt að nota þau til þess
að senda kjarnorkusprengjur inn
á rússnesk landsvæði. Þau eru
eingöngu nothæf til varnar, en
þýðingarmikill, ef landvarnirnar
eiga að vera öflugar.
„Krúsjeff hefur stundum talað
um, að Norðurlönd ættu að vera
„vígi friðarins", en þessi fögru
orð geta ekki leynt áformum
hans“, skrifar „Sydsvenska Dag-
bladet". „Hann reynir að ógna
Norðurlöndum til að vanrækja
landvarnir sínar og byggja fram-
tíð sína á tálvonum".
Fáll Jónsson.
ríks og umhyggju ömmunar góðu.
Sjálfur stofna ég heimili og börn
mín vaxa upp og á barnmarga
heimilinu í Strandhöfn. Undir
handleiðslu Hildar hafa tvær
dætur mínar dvalið langdvölum,
og ég get aldrei fullþakkað það,
og þar hjá Hildi hefur lunderni
þeirra mótast ekki hvað síst.
Sjálfur hefi ég í seinni tíð nokkr-
um sinnum komið til Strandhafn-
ar og dvalið þar nokkra daga í
senn, og alltaf var jafn ánægju-
legt að dvelja þar og sjá að Hild-
ur var umvafin kærleika barna
sinna og tengdadætra og barna-
barnanna mörgu.
Ég minnist hér eins atviks, sem
sýnir að allt var gjört til að gleðja
gömlu húsmóðirina. Hildur hafði
þá lengi legið rúmföst, svo var
það einn dag að allir hestarnir
höfðu verið reknir heím, og þar
á meðal einn uppáhalds hryssa,
sem átti mjög fallegt folald.
Hjálmar gerir sér lítið fyrir, tek-
ur folaldið £ fangið og heldur á
því upp á loft og inn í herbergi
mömmu sinnar, þannig gat hún
líka fylgzt með málleysingjun-
um á heimilinu.
Hildur var stórbrotin_kona og
óx við hverja raun, enda bar
heimilið í Strandhöfn þess merki
að hjá búendunum fór saman
framsýni og fyrirhyggja, atorka
og stjórnsemi ásamt góðvild til
allra er þau áttu samskipti við.
í Strandhöfn var byggð ein fyrsta
vatnsrafstöð í Vopnafirði, árið
1926, og er enn í notkun, og ætíð
var Hildur boðin og búin til hjálp
ar, t. d. munu þau börn, sízt
færri en hennar eigin, sem ólust
uppp á Strandhofnarheimilinu
um lengri eða skemmri tíma, alit
frá bernzku til fullorðinsára.
Uppskar Hildur vissulega í laun,
eftir langt lífsstarf, ríkulega
elsku barna sinna og fósturbarna.
Hildur andaðist þann 28. júlí
s.l. á 85 aldursári og var jarðsett
s.l. mánudag 6. júlí.
Blessuð sé minningin um þig
Hildur og kæra kveðju flyt ég
hér með stóra heimilinu í Strand-
höfn.
Skrifað 10. júlí að Kirkjubæj-
arklaustri.
Jón Björnsson
málarameistari
Laugartungu
Ný vatnsæð fyrir
Vesturbæ í hausl
Á HAUSTI komanda hefjast fram
kvæmdir við lagningu nýrrar
vatr.sæðar fyrir Vesturbæinn og
Seltjarnarnesið, og verður nýja
æðin 24 þuml. víð eða helmingi
víðari en sú gamla.
Á fundi bæjarráðs á föstudag-
inn var samþykkt að kaupa efn-
ið í æðina frá Svíþjóð, en skv.
upplýsingum Þórodds Th. Sig-
urðssonar, vatnsveitustjóra, verð-
ur hin nýja vatnsæð rúmlega 1700
metrar og mun pípurnar kosta
um 1,3 millj. króna. Leiðslan
mun liggja frá Landspítalanum
vestur að Suðurgötu, þar sém
hún verði tengd við kerfið, sem
fyrir er.
Vatnsveitustjóri kvað efnið í
nýju æðina væntanlegt til lands-
ins í september og stæðu því von-
ir til að hægt yrði að byrja á
lagningu hennar í október mán-
uði.
— Vöntun á læknum
Framhald af bls. 1.
lapn sjúkrahússlækna í Dan-
mörku hækkuð verulega, en eng-
in hækkun varð á launum þeirra
í Grænlandi. Þá hafa mjög margir
danskir læknar flutzt til Svíþjóð-
ar þar sem læknar eru betur
launaðir.
¥
Danska stjórnin býður Græn-
landslæknum nú 22—39% launa-
hækkun og hugleiðir jafnframt
hvort ekki sé ráðlegt að leysa
þá undan kvöðinni um að dvelj-
ast a. m. k. tvö ár £ Grænlandi
í senn. Þá benda stjórnarvöldin
á hin mikilsverðu skattfríðindi í
Grænlandi — og ívilnunina hvað
viðkemur ferðakostnaði til og frá
landinu. i
DANSKA blaðið Börsen vekur
nýlega athygli á ummælum hins
hálfopinbera málgagns þýzku
stjórnarinnar „Deutsche Korre-
spondenz" varðandi hið nýja „Frí
verzlunarsvæði.“
Þar er bent á mikilvægan mun
GagnfræSaskóla-
byggingu á Akra-
nesi miðar vel
AKRANESI, 31. júlí. — Unnið
er af fullum krafti við byggingu
hins nýja gagnfræðaskóla hér á
Akranesi, og miðar byggingunni
vel áfram. Eiga fjórar kennslu-
stofur að vera tilbúnar til notk-
unar strax í haust.
Byrj að er nú að „fínpússa“ inn-
an kennslustofurnar í vesturálmu
hússins, við Vallholt. Einangrun
er þar lokið, en einangrunarefnið
er plastplötur 2 þumlunga þykk-
ar, og vírnet strengt á. — Loftið
verður ekki múrhúðað, en í þess
stað klætt þar til gerðum trélist-
um.
Búið er að steypa neðri hæð
annarrar álmu hússins, og nú eft-
ir helgina verður byrjað að slá
upp mótum fyrir efri hæð sömu
álmu. — Yfirsmiður gagnfræða-
skólabyggingarinnar er Halldór
Bachmann, en múrarameistari er
Engilbert Guðjónsson. — Oddur
í skipulagi Evrópumarkaðsins og
Fríverzlunarsvæðisins. Hann cr
sá, að ríkin sex í EvrópUmarkaðn
um hyggjast veita fátækari Evr-
ópurkjum stórfelld uppbygging-
ingarlán. En ríkin sjö í Fríverzl-
unarsvæðinu ætla enga slíka
byrði að leggja á sig.
Þau sjö ríki sem nú hyggjast
stofna fríverzlunarsvæði undir
forustu Breta eru meðal hinna
auðugr.i Evrópuríkja. Nú hyggj-
ast þau enn efla atvinnulíf sítt
og verzlun með samtökunum, en
hafa algerlega gleymt því, að á
yztu mörkum álfunnar eru evr-
ópskar þjóðir, sem búa við krapp
ari kjör, en þær eru útverðir
evrópskrar menningar, vilja á-
fram halda sjálfstæði sínu en
hafa þörf fyrir aðstoð frá hinum
ríkari löndum.
.„Risakarfiim44
1 GÆR birtist í Mbl. fregn um
„risakarfa", sem Hásteinn I. frá
Stokkseyri veiddi en hún var á
misskilningi byggð að þvj leyti,
að karfinn mun ekki hafa verið
stærri en sumir þeir karfar, sem
íslenzku togararnir veiða á Ný-
fundnalandsmiðum. Aftur á móti
var um óvenjustóra skepnu að
ræða á þessum slóðum. —
Þessar upplýsingar eru byggð-
ar á samtali við Guðmund Ein-
arsson forstjóra hraðfrystihúss-
ins á Stokkseyri.
Öllum þeim, skyldum og óskyldum, sem minntust okkar
á sjötugsafmælum okkar 7. og 24. júlí s.l. með heimsókn
hingað í Vigur, með heillaskeytum og rausnarlegum
gjöfum, færum við okkar innilegustu þakkir.
Guð blessi ykkur í nútíð og framtíð.
Björg og Bjarni í Vigur.
Lokað
vegna sumarleyfa
4. ágúst til 21 ágúst.
Agúst Armann hf.
heildverzlun
Móðir mín,
GUÐBÚN SÍMONARDÖTTIB,
frá Núpum,
andaðist að héimili sínu, Baldursgötu 7 A laugardaginn
1. ágúst.
Fyrir hönd vandamanna.
Felix Jónsson
Móðir okkar, tengdamóðir og amma
SIGRlÐUB ÁSTA GRlMSDÓTTIR
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 4.
ágúst kl. 13,30.
Börnin.
Móðir mín, tengdamóðir og amma,
KRISTlN GUÐMUNDSDÓTTIR
frá Björgvin á Eyrarbakka,
sem andaðist 28. júlí, verður jarðsett frá Eyrarbakka-
kirkju miðvikudaginn 5. ágúst kl. 2.
Halldóra Víglundsdóttir, Jón Guðmundsson
og barnabörn
Jarðarför konunnar minnar,
SIGURJÓNU JÓNSDÓTTUR,
Bárugötu 35,
fer fram frá Fossvogskirkju kl. 3 e.h. þriðjudag. 4. ágúst.
Axel Jónasson