Morgunblaðið - 13.08.1959, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 13.08.1959, Qupperneq 2
2 r MORCUNTiT AÐ1Ð Fimmtu'dagur 13. agúst 1959 '/> '■/' v ' ■ 'fiCtfpQX'f'-SW Pólski sendiherrann, A. Morski, og Gylfi I>. Gíslason, mennta- málaráðherra viö opnun sýningarinnar í gær. Listamenn í Póllandi að tjáningaraðferðu sagði sendiherra Pólverja við opnun pólsku graílisiarsýningarinnar Mikill ágreiningur ooila um álagningu stóreignaskattsins Fyrirspurn rædd á þingi í GÆR var opnuð í Bogasal Þjóð- minjasafnsins sýning á myndlist frá Póllandi. Eru þar sýndar 121 graflistarmynd eftir pólska nú- tímalistamenn, og hefur pólska menntamálaráðuneytið sent þessa kynningarsýningu hingað í skipt- um fyrir íslenzka málverkasýn- ingu, sem verið hefur í Moskvu, en verður nú bráðlega sýnd í Krakow í Póllandi og síðan í Varsjá. Gylfi Þ. Gíslason, menntamála- ráðherra opnaði sýninguna. Kvaðst hann vona að þessi gagn- kvæmu kynni yrðu báðum þjóð- unum til þrozka og bauð pólsku sýningargestina velkomna til ís- lands. Sendiherra Pólverja á íslandi, A. Morski, sem búsetu hefur í Oslö, er hér staddur, og flutti hann ávarp við opnun sýningar- innar í gær. Sagði hann m.a. að menningarlífið mundi harla tak- markað og litilfjörlegt, ef því væri ekki svo varið að við gæt- um öll eignast hlutdeild í hug- rænum og listrænum afrekum — Bauð Krúsjeff Framh. af bls. 1. stöðvar stöfuðu af nánu land- varnarstarfi við aðrai þjóðir. Eisenhower upplýsti það einnig að Krúsjeff myndi flytja ræðu við setningu Allsherjaraþings S. Þ. Eftir er að ákveða endanlega setningardag. Fréttamenn spurðu Eisenhovv- er, hvað hann sjálfan langaði mest til að sjá, þegar hann heimsækti Rússland. Hann svar:- aði: — Mig langar mest til að sjá og kynr.ast þjóðinni, rússneskum almenningi. Dagskrá Alþingis Efri deild Kosningar til Alþingis, frv. - 2. umr. (Ef leyft verður). , Neðri deild 1. Samkomudagur reglulegs Al- þingis 1959, frv. — 1. umr. 2. Áburðarverksmiðja, -frv. — 1. umr. 3. Almannatryggingar, frv. — 2. umr. annarra þjóða og frjóustu anda þeirra, og að meðan fólk gerði sér grein fyrir nauðsyn slíkra samskipta, sakir efnislegra og menningarlegra framfara, mundi reynast á^ðvelt að vinna bug á hindrunum þeim, sem fyrir verða. Því að þar sem upplýstur vilji væri fyrir hendi, þar væri einnig vegur fyrir. „Tachismi" fyrir stríð Fréttamaður blaðsins náði snöggvast tali af A. Morski, sendi herra. Kvað hann ekki hafa vit- að það fyrr en hann var hingað kominn, að svo heppilega vildi til að sýningin yrði opnuð með- an hann dveldist hér á landi og gleddi það sig mjög. Sagði hann, að hann teldi þessa sýningu gefa góða hugmynd um hvað væri að gerast í pólskri myndlist í dag. Þó þarna væru nýjar abstrakt myndir, þá væri það ekki þar með sagt að slíkt væri nýjung í pólskri myndlist. Meira að segja hefði verið farið að bera á hin- um svokallaða „tachisma" í pólskri málaralist þegar fyrir stríð. Aðspurður um það, hvort almenningur í Póllandi kynni að meta slíkar stefnur, svaraði sendiherrann, að listamennirnir tjáðu sig eins og þeim bezt hent- aði og væru þeir alveg frjálsir að því, en síðan dæmdi smekkur þeirra sem verkin skoðuðu, um það hvort þau væru metin og seldust. Sumir vildu eingöngu abstrakt myndir, en aðrir litu ekki við öðru en því sem sýndi ákveðin þekkt fyrirbrigði, sem það kannaðist við. Kvaðst hann hafa komið inn á heimili í Pól- MEÐAL nokkurra fyrirspurna á dagskrá Sameinaðs Alþingis í gær var fyrirspurn til fjármála- ráðherra um skatt á stóreignir frá próf. Ólafi Jóhannessyni. Eins og áður hefir verið skýrt frá hér í blaðinu, hljóðar fyrir- spúrnin á þessa leið: 1. Hvað líður innheimtu skatts á stóreignir samkvæmt lögum nr. 44 frá 3. júní 1957? 2. Er ríkisstjórninni kunnugt um, hvort stóreignaskattsgjald- endur samkvæmt nefndum lög- um, nr. 44/1957, hafa kært skatt- lagninguna til mannréttinda- nefndar Evrópu, og ef svo er, hverjar ráðstafanir hefur þá ríkisstjórnin gert af því tilefni? Ólafur Jóhannesson fylgdi fyr- irspurninni úr hlaði með stuttri ræðu og sagði m. a. að skattlagn- ing þessi væri sprottin af því, eru frjálsir m sínum landi, þar sem aðeins væru abstrakt málverk á veggjum og önnur, þar sem eingöngu væru myndir í hefðbundnum stíl. Sýningin verður opin næstu tvær vikur frá kl. 13—10. að sanngjarnt þsatti, að þeir, sem hagnast hefðu á verðbólg- unni, létu nokkuð af þeim gróða af hendi rakna, til þess m. a. að unnt væri að veita húsbyggjend- um nokkurn stuðning í formi lánveitinga. Þá vék hann að síðari lið fyrirspurnarinnar og sagði að slíkt málskot væri alvarlegt fyrir íslenzka ríkið og gæti m. a. orð- ið til þess að rýra álit þess og íslenzkra dómstóla í sambandi við landhelgismálið. Taldi hann, að þar sem Sjálfstæðisflokkurinn hefði verið mótfallinn álagningu skattsins, þegar þingið fjallaði um málið, mætti ætla að hann stæði að einhverju leyti að baki þessari meðferð málsins. Guðm. f. Guðmundsson, fjár- málaráðherra, gaf síðan skýrslu um, hvernig innheimta skatts- ins hef ði gengið. Sagði hann að í upphafi hefði álagningarupp- hæðin numið nær 135 milljónum króna, en SÍðan hefði margvísleg- ur ágreiningur og málarekstur fyrir hæstarétti- orðið til þess að lækka álagninguna niður í rúm- lega 113 milljónir króna. Enn hefðu ýmsir þættir málsins ekki verið leystir og mætti því gera ráð fyrir að lyktir yrðu þær, að álagður stóreignaskattur lækk- aði mikið. Hann skýrði þá frá því, að inn- heimta skattsins hefði hafist um síðustu áramót og í lok júlí mán- aðar hefðu • verið greiddar Nýtt lag7 ÚT er komið sérprentað lag eft- ir Sigfús Elíasson, er nefnist „Sól- arlagsvalsinn", n Sigfús mun nokkuð hafa fengizt við laga- smíði, og hafa áður verið gefin út 8 lög eftir hann. Ljóðið við fyrrgreint lag er einnig eftir Sigfús, og er það birt á baksíðu lagheftisins. — Þar segir, að „Sólarlagsvalsinn“ sé 27. lag höfundar. — Útgefandi er Félagið Alvara. Góð heilsa er betri en góðir tómatar Möguleikar að gera Hreragerði að heilsulindabœ FORSTJÓRI Elliheimilisins, Gísli Sigurbjörnsson, kvaddi íréttamenn á sinn fund í gær og skýrði frá niðurstöðum rannsókna ,er þýzkir vísindamenn hafa gert í Hveragerði tii að kanna hvort þar væru aðstæður til að koma á fót heilsulindabæ. Eru niðurstöður vísindamannanna á þá leið, að skilyrði til slíks séu mjög góð í Hveragerði og betri en rnenn höfðu áður gert sér vonir um. 1 bréfi, sem Gísli Sigurbjörns- son sendi í gær til heilbrigðis- málaráðherra, forsætisráðherra o. fl. spgir svo m. a.: Ég vona að skýrslur þessar verði til þess að auka áhuga manna á því mikilvæga verk- efni — að nota hverahita til lækninga — enda telja vís- indamennirnir, sem að þessu standa, að mikil og góð skil- yrði séu í Hveragerði til þess að þar sé unnt að koma upp fyrsta heilsulindabæ á íslandi. Undir skýrslur þessar rita sex nafnkenndir prófessorar þýzkir. Eru það próf. dr. George Herzog, próf. dr. F. Michels, próf. dr. Wulf-Emmo Enkel, sem er rektor háskól- ans í Giessen, próf. dr. V. R. Ott, próf. dr. R. Thauer og próf. dr. R. Kampe. Þeir vísindamenn, sem unnið hafa að rannsóknum þessum og skýrslugerðum, hafa tjáð sig reiðubúna til að veita aðstoð sína við að skipu- leggja hugsanlegt heilsuhæli og koma því upp. Komast þeir svo að orði eftir að þeir hafa sett fram tillögur sínar: — Við gerum þessar tillögur og gefum þessi ráð í þeirri von að með því hjálpum við, eftir beztu getu, landi og þjóð að stofna til fyrirmyndar heilsu- lindarbæjar. Gísli Sigurbjörnsson for- væri um stórkostlegt mál að ræða, þar sem það væri sann- að, að góðir möguleikar væru fyrir hendi að stofna heilsu- lindabæ í Hveragerði. Yrði hann væntanlega reistur fyrir alþjóðafé, því heilsan þekkti engin landamörk. Enda þótt margt góðra ávaxta væri nú ræktað í Hveragerði væri það lítið hjá því ef þar ætti eftir að rísa heilsulindabær á heimsmælikvarða. j Forarleð ja $ í Meistaravík s s s s s I , S (TVEIR Katalínubátar frá S S danska flughernum voru hér i | ) gær. Ætlunin var, að þeir færu \ ^ báðir til Meistaravíkur á S S Grænlandi, en vcgna mikillar ) ) úrkomu þar vestra hafði flug- ^ J brautin, sem er malarborin, s S blotnað svo mjög, að ólend- i S andi var talið. Flugmennirnir \ • dönsku sögðu, að sennilega s S mundu Katalínubátarnir S S sökkva „upp að hnjám“ í flug- ^ • brautinni nú, því að þeir í s S Meistaravík . væru vanir að S S draga mikið úr, þegar þeir • 5 ættu von á pósti. Úr því að ( ( þeir segðu nú, að allt væri j S lokað, þá hlyti flugbrautin \ S að vera ein foraleðja. i stjóri sagði að lokum, að hér opinberra 10.355.0i. 1.00 krónur og skulda- bréf gefin út til tryggingar á 32.861.637.10 krónum; samtals væru því greiddar eða samið um greiðslu á 43.216.728.10 kr. Það hefði tafið fyrir innheimtunm, hve lögin hefðu reynzt erfið í framkvæmd, en þau hefðu valdið sífelldum ágreiningi milli skatt- stjóra, ríkisskattanefndar og dómstóla. — Áherzla yrði hins vegar lögð á að hraða innheimt- unni. Um síðari liðinn gat hann þess, að tvö félög hefðu verið stofn- uð, til þess að mótmæla skatt- álagningunni. Hefði formaður annars þeirra tjáð sér, fyrir nokkru síðan, að hann væri á förum utan, í þeim tilgangi að kæra málið fyrir mannréttinda- nefndinni. Síðan hefði hann ekki haft neinar spurnir af málinu og vissi því ekki hvort úr hefði orðið. Ólafur Jóhannesson tók þá til máls aftur og þakkaði ráðherra fyrir mjög greinargóða skýrslu um álagningu stóreignaskattsihs og innheimtu hans. Hann kvaðst hins vegar hafa saknað þess að svör við síðari liðnum hefðu ekki verið ítarlegri með hliðsjón af því hve alvarlegt það atriði væri, en þar eð í stofnskrá dóm- . stólsins væri kveðið á um að gera skyldi deiluaðilum viðvart í málum, sem tekin væru fyrir, mætti ætla, að ákvörðun hefði að minnsta kosti ekki verið tekin um að dómstólinn fjallaði um málið. Að lokum fór Ó. J. mjög hörðum orðum um skattgreið- endur, að þeir skyldu fá sig til svo fráleitra aðgerða. Ólafur Thors*var næsti ræðu- maður. Hann kvaðst ekki sjá á- stæðu til að taka þátt í umræð- unum, a. ö. 1. en því, að fullt til- efni væri til að lýsa því yfir, að sú málsmeðferð, sem skattgreið- endur hefðu að sögn ákveðið, væri að sjálfsögðu algjörlega ó- viðkomandi Sjálfstæðisflokknum. Það væri í senn leiðinlegt og mjög vítavert af Ó. J. að-reyna fremur að koma sök á einn til- tekinn flokk en færa rök að því, að sú ráðstöfun, sem um væri rætt, væri eins fjarri réttu lagi og hann teldi. Þa væri það víst, að marga skattgreiðendur mætti finna í röðum Framsóknarflokks ins. Ó. J. vissi það sjálfur, að Sjálfstæðisflokkurinn bæri enga ábyrgð á meðferð málsins, því að í þeim flokki væri það svo, að menn réðu sjálfir gerðum sínum, og kvaðst Óiafur Thors vona, að svo væri a. m. k. að sumu leyti í Framsóknarfiokknum líka. Björn Ólafsson kvað innheimtu skattsins hafa gengið betur, en gera hefði mátt ráð fyrir, þegar haft væri í huga, að enn heíði ekki verið endanlega ákveðið, hve mikið einstakir gjaldendur ættu að greiða. Hann gagnrýndi einnig nokkur atriði í sambandi við setningu laganna. Eysteinn Jónsson stóð næstur upp og sagði að auðveldlega hefði mátt álíta að Sjálfstæðis- flokkurinn hefði átt hlut að á- frýjun málsins. Hann átaldi ÓTh. fyrir að hafa ekki fordæmit mál- skotið nægilega. Guðmundur í. Guðmundsson sagði að reglugerð dómstólsins væri þannig, að hann teldi ekki líklegt, að hægt væri að taka það upp þar. Mætti jafnvel ætla að skattgreiðendur hefðu ekki verið virtir svars. Ólafur Thors svaraði EJ nokkr um orðum og benti á, að það væri fráleitt, að stærsti flokkur þjóðarinnar stæði að málatilbún- aði, sem þætti svo fjarri lagi, að ekki væri einu sinni búist við að þeir, sem málið flyttu, yrðu virtir svars. Þá deildi hann hart á EJ fyrir það, hve illa stór- eignaskattslögin hefðu verið úr garði gerð, að þau skyldu hafa valdið öllum þeim glundroða, sem raunin hefði orðið. Eysteinn Jónsson kvað það ekki nýtt að lög væru erfið í framkvæmd. Fleiri kvölddu sér ekki hljóðs

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.