Morgunblaðið - 03.09.1959, Page 1
20 siður
Bjóða upp á nýja
vinstri stjórn
Samningar hafnir milli kommúnista
og Framsóknarmanna
„■ÚTSÝN“, aukaútgáfa „Þjóðvilj-
ans“, skýrir frá því sl. mánudag,
er það vaknaði að nýju eftir lang
an svefn, að miðstjórn og þing-
flokkur Alþýðubandalagsins hafi
fyrir nokkru ákveðið að „hefjast
handa í því skyni að beita sér
fyrir því að koma á vinstri sam-
vinnu í íandinu að haustkosning-
unum loknum og að sú samvinna
yrði undirbúin með ýmsum
hætti“.
Ennfremur skýrir blaðið frá
því, að miðstjórnin og þingflokk-
urinn hafi snúið sér til Fram-
sóknarflokksins og óskað samn-
inga um þetta áður en Alþingi
lauk um daginn. Sé þetta erindi
nú til umræðu innan Framsókn-
arflokksins og „muni svars að
vænta þessa dagana“.
Þá vita menn það. Ný vinstri
stjórn er það, sem kommúnistar
stefna að. Samningar eru þegar
hafnir um þetta milli þeirra og
Framsóknarmanna.
M/ð/o Rússar málum
með Kína og Indlandi?
í REUTERSFREGNUM í
gærkvöldi sagði, að Sovét-
stjórnin hafi beitt sér fyrir
því, að forsætisráðherra
Ytri-Mongólíu reyni að
miðla málum með Indverj-
um og Kínverjum vegna á-
takanna, sem orðið hafa á
landamærum ríkjanna. Var
sagt í fregninni, að ráðherr-
ann hafi þegar átt viðræður
við Sjú En Lai, forsætisráð-
herra Kína, í Peking, og
muni væntanlega fara til
Nýju-Delhi innan viku til
viðræðna við Nehru.
Þá sagði og í fréttinni, að
æðstu menn Kina og Ind-
iands hittist til þess að ræða
ágr einingsmálin.
Innrásin i Laos
VIENTIANE, Laos, 2. sept. Reut-
er-NTB. — Um 3.500 manna her
kommúnista hefir sótt ört suð-
ur á bóginn á Sam Neua-svæð-
inu og tekið mörg þorp, en ekki
hefir enn komið til verulogra
átaka við stjórnarherinn, sem
hefir aðalbækistöðvar sínar í
bænum Sam Neua. — Yfirfor-
ingi Laoshers sagði í dag, að á-
rásin hefði hafizt frá Norður-
Vietnam og hefði meirihluti her-
mannanna verið þaðan, en árás-
arsveitirnar voru studdar stór-
skotaliði.
★-------------★
Fimmtudagur 3. september.
Efni blaðsins m.a.:
Bls. 3: Gróðurhús við rætur Dranga-
jökuls.
8: Hann varð ekki hetja. (í fáum
orðum sagt).
— 10: Forystugreinarnar ,,Eins og
risavaxinn fugl“ og ,,þegar
Framsóknarframbjóðandinn
talaði af sér“.
Konungur í 55 ár (Utan úr
heimi).
— 11: Viðbrögð æskunnar björguðu
framtíð flugsins á íslandi.
— 18: Gaman væri að fljúga einni af
þessum gömlu aftur. (Viðtal
við Sigurð Jónsson).
*--------------------------*
Fyrir
árum
Eisenhower vel fagn
að í Frakklandi
Mbl. minnist I
dag 40 ára afmæl-
is flugsins og birt-
ir af því tilefni m.
a. samtal við Agn-
ar Kofoed Han-
sen, Frank Fredri-
ckson og Sigurð
Jónsson.
Enn fremur birt-
ir blaðið gamlar
merkilegar mynd-
ir, sem varpa ljósi
á sögu flugsins á
íslandi. Tvær þess
ara mynda birtast
hér á forsíðunni.
Efri myndin er
af fyrstu flugvél-
inni á íslandi, og
tók Magnús Olafs-
son hana í Vatns-
mýrinni 1919. Að
því er virðist, sit-
ur brezki flugmað
maðurinn Faber í
aftara sætinu, en
ekki er blaðinu
kunnugt um hverj
ir hinir mennirnir
eru á myndinni.
Myndin hér við
hliðina er tekin í
---- ----------——--------rKaldaðarnesi 1920
^ Hún er af frú
S Dóru Sigurðsson,
) sem flaug með
| Frank Fredrick-
v son en um það er
S nánar rætt í sam-
) tali á bls. 8.
LONDON og PARÍS, 2. sept.
— (Reuter-NTB) —
EISENHOWER forseti fór frá
London til Farísar í morgun.
Er þeir Macmillan forsætis-
ráðherra kvöddust á flugvell-
inum, sögðu þeir báðir nokk-
ur orð og lögðu enn áherzlu
á algera samstöðu Bretlands
og Bandaríkjanna.
★
Þegar flugvél Eisenhowers
lenti á Bourget-flugvellinum við
París nokkru fyrir hádegið 1
fögru veðri, hafði mikill mann-
fjöldi safnazt þar saman. — De
Gaulle forseti og Debré forsætis-
ráðherra, ásamt nokkrum öðrum
ráðherrum öðrum, tóku á móti
Eisenhower á flugvellinum, sem
var skreyttur sérstaklega af
Framh. á bls. 2.