Morgunblaðið - 03.09.1959, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 03.09.1959, Blaðsíða 3
Fimmtudagur 3. sept. 1959 MORCVHBJ AÐ1Ð 3 WÆWBWWWWWffiW mmm áiafíSií Nýbýlið Laugarás í Skjaldfannardal. Myndirnar tók vig. SKJALDFANNARDALUR ligg- ur upp frá Langadalsströnd norðanverðri. Eftir honum fellur Selá, stærsta afrennsli Dranga- jökuls og ein mesta á við ísa- fjarðardjúp. Dalnum lokar að mestu fremur lágur háls, sem Steindórsfell er nefnt. Fellur Selá lygn í mörgum bugðum framan við þennan háls. í daln- um eru aðeins tveir bæir í byggð, en til suðurs úr honum miðjum gengur Hraundalur og er í hon- um mikið og gott afréttarland. Annar bæjanna í Skjaldfannar- dal er Laugaland og dregur nafn sitt af heitum laugum, er spretta upp rétt við túnfótinn. Nyrzta gróðurhús Um þessar mundir er verið að byggja gróðurhús á Laugalandi cg er ekki ósennilegt að það sé nyrzta gróðurhús í heimi, sem hitað er upp með hverahita. Það er ungur maður, Jón Fann dal Þórðarson, sem er að byggja þarna gróðurhús. Jón er sonur Þórðar Halldórssonar bónda á Laugalandi, sem er kunnur dugn aðarmaður, viðurkenndur fjár- bóndi og oddviti í sinni sveit. Nýbýli Jóns nefnir hann Laugar- ás og hefir hann þegar brotið 10 hektara lands til ræktunar og er nokkuð af því fullræktað. Tíðindamaður blaðsins átti stutt viðtal við Jón og spurði hann um fyrirætlanir hans. Þeg- ar er lokið að reisa 240 fermetra gróðurhús og var verið að setja glerið í það er við litum þár inn. Rétt við húsvegginn eru laugarn- Rabbað við bændur i utanverðum Nauteyrarhreppi ar en i þeim hefir verið mælt 25 sekundulítra vantsrennsli og er það 50 stiga heitt. Þetta segir Jón að sé nægur hiti til ræktun- ar á tómötum, gúrkum og ýms- um blómategundum. í náinni framtíð hefir hann í hyggju að byggja annað gróðurhús, sökum þess að óhægt er að hafa aðeins eitt hús til umráða, þegar um fleiri teguridir jurta er að ræða, sem ræktaðar eru. Jón stundaði nám við Garðyrkjuskólann á Reykjum í Ölfusi fyrir nokkrum árum —, en fór síðan til Ameríku og vann þar við blómarækt um eins árs skeið. Hann hefir því haldgóða menntun og reynslu til þess að ráðast í gróðurhúsarekst- ur. 1 upphafi var það ekki ætlun Jóns að setja upp gróðurhús heima í föðurgarði. Hugmyndina að því fékk hann ekki fyrr en fyrir tveimur árum. GóSur markaSur I sambandi við ræktun í gróð- urhúsunum sjálfum hefir Jón hugsað sér að hafa allmikla græn metisrækt utan húss svo sem kál, gulrætur o. fl. en jarðvegurinn er heitur á allstóru svæði kringum laugarnar. Hins vegar fyyirhug- ar hann ekki að sinni að hafa kvikfjárrækt. Það er athyglisvert að þetta er milli Reykjafjarðar og ísafjarðar. Þau hafa nú ekki verið starfrækt um árabil. Auk gróðifrhússins er Jón einnig að byggja 100 ferm íbúðarhús, sem nú er að verða fokhelt. Hins vegar er gróður- hússbyggingin svo langt á veg komin að hann reiknar með að geta tekið hana í notkun upp úr áramótum í vetur. í gróðurhús, sem þetta, þarf mikið efni og mun húsið ekki kosta minna en Laugaland í Skjaldfannardal. eina gróðurhúsið á Vestfjörðum. Fyrir allmörgum árum voru byggð tvö lítil gróðurhús á skóla- setrinu á Reykjanesi, sem er Nýja gróðurhúsið í Laugarási, sem er nyrzta gróðurhús í heimi 100 þúsund krónur. Til gamans má geta þess að í það þarf 5 tonn af gleri og 400 m. af tveggja tommu rörum fyrir heita vatnið í kringum húsið má svo hafa vermireiti á hinum heita jarð vegi. Jón telur sig ekki þurfa að kvíða markaðsleysi fyrir þær framleiðsluvörur, er hann kem- ur til með að hafa á boðstóln- um. ísafjörður mun gera meira en nýta allar þær gróðurhúsa- vörur, sem hann getur ræktað og þangað eru greiðar samgöngur tvisvar í viku. Þótt það komi ferðalangnum einkennilega fyrir sjónir að reist skuli gróðurhús, sem framleiða mun suðræn aldin, undir rótum Drangajökuls er það að öllu athuguðu ekki svo fjarstætt. Eitt stærsta fjárbúið Heima á Laugalandi njótum við gestrisni og rausnar þeirra hjóna Þórðar og Helgu konu hans. Með Þórði býr elzti sonur hans Halldór og eiga þeir í fé- lagi eitthvert stærsta fjárbú á Vestfjörðum. En þeir eru ekki aðeins kunnir fyrir að eiga margt fé heldur sérstaklega afurðagott. Það mun ekki algengt að meðal- þungi dilka sé um 20 kg. eða jafn Framhald á bls. 6. STAKSTEIIUR Eins og skopparakringla Þegar Sjálfstæðismenn beittn sér fyrir því í nýsköpunarstjóm- inni að byggðar voru nýjar síldarverksmiðjur á Norðúrlandl og eldri verksmiðjur stækkaðar, ætluðu Framsóknarmenn vit- lausir að verða, og töldu það hinar fáránlegustu framkvæmd- ir. Þeir sögðu, að Sjálfstæðis- flokkurinn væri að „sóa“ gjald- eyrisinneign þjóðarinnar með þessum framkvæmdum. Enn- fremur fóru þeir hinum háðu- Iegustu orðum um endurnýjun togaraflotans, sem Sjálfstæðis- menn beittu sér einnig fyrir á þessum árum. En nú þessa dag- ana hælir „Tíminn“ Framsókn- arflokknum upp í hástert fyrir það, að byggðar hafi verið síld- arverksmiðjur á Austurlandi, og telur brýna þörf bera til þess að auka síldarverksmiðjuk^t- inn. a Framsóknarmenn voru heldur ekki fyrr komnir í ríkisstjórn ár- ið 1947 en þeir töldu sjálfsagt að halda áfram að semja um smíði nýrra togara. Þannig snúast Framsóknar- menn eins og skopparakringlur um sjálfa sig. Þegar þeir voru í stjórnarandstöðu í tíð nýsköp- unarstjórnarinnar húðskömm- uðu þeir Sjálfstæðisflokkinn fyr- ir byggingu nýrra togara og síldarverksmiðja. Nú hæla þeir sjálfum sér fyrir að hafa látið byggja síldarverksmiðjur og kaupa nýja togara. Hver getur tekið mark á slíkum hentistefnu- lýð? Dýrtíðardraugurinn og almenningur Alþýðublaðið gerir dýrtíðar- málin að umræðuefni í forystu- grein sinni í gær. Kemst blaðið m. a. að orði á þessa Ieið: „I þessum málum er aðelns ein stefna, sem nokkurt vit er í fyrir tslendinga. Hún er að standa fast við þá stöðvun, sem þegar hefur orðið, og hleypa dýrtíðarskrúöunni alls ekki af stað á nýjan leik. Það er tví- mælalaust hagstæðast öllu vinn- andi fólki við sjó og í sveit, að ný verðbólgualda skelli ekki á þjóðinni, að stöðvunarstefnunni verði fylgt áfram. Islendingar ættu að hafa lært af reynslu undanfarinna ára í dýrtíðarmálunum. Þeir ættu að þekkja afleiðingar þess, að dýr- tíðardraugnum er sleppt lausum. Er þjóðin ekki búin að fá nóg?“ „Afrek“ vinstri stjórnarinnar Jú, þjóðin er vissulega búin að fá nóg. Vinstri stjórnin sleppti verðbólgunni óbeizlaðri eins og óargadýri á almenning. Hún lýsti því yfir frammi fyrir al- þjóð, þegar hún tók við völdum, að hún ætti „varanleg úrræði" og „nýjar leiðir“ í pokaliorninu tri þess að leysa með efnahags- vandamálin. En hún gat, þegar til kastanna kom, ekki gert ann- að en leggja á nýja skatta. Hún lagði 1200 millj. kr. á almenn- ing á tveimur árum, og jós þessu stórkostlega fjármagni beint í dýrtíðarhítina. En árangurinn var ekki annar en sá, að halla- rekstur framleiðslunnar hélt áfram að aukast, og um síðustu áramót átti þing og stjórn ekki annars úrkostar en að gera ráð- stafanir til lækkunar kaupgjalds og verðlags til þess að allt kæm- ist ekki í þrot. Ef skattastefnu vinstri stjórnarinnar hefði ver- ið fylgt áfram, hefði enn þurft að leggja á þjóðina mörg hundr- uð milljónir króna í sköttum og tollum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.