Morgunblaðið - 03.09.1959, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 03.09.1959, Blaðsíða 2
2 MORCVISBL AfílÐ Pimmtudagur 3. sept. 1959 Maður ók bíl fram at Faxagarði I GÆRDAG vildi það slys til hér í Reykjavík að roskinn maður ók í bíl sínum fram af bryggju í höfninni og drukknaði. Klukkan liðlega e;tt fékk lög- reglan tilkynningu um þennan atburð, er gerðist í Faxagarði, I Milljón óra houskúpn NAIROBI, Kenya, 2. sept. (Reuter) — Forstöðumaður Corydonsafnsins hér, Louis S. B. Leakey, mun á morg- un skýra fréttamönnum frá fornri hauskúpu af manni, sem kona hans fann í Xang- anyika í júlí s.I. Leakey, sem er einn af fremstu mannfræðingum heimsins, sagði í dag, að hauskúpa þessi væri mjög merkileg og bentu allar lík- ur til, að hún væri allt að því milljón ára gömul. Hann tók það fram, að hauskúpan væri ekki í safn- inu — henni hefði verið komið fyrir á „öruggum stað“. Kista konunnar flutt til Akraness AKRANESI, 2. sept. 1 gær kl. 2 6Íðd. er Akraborg kom hingað frá Reykjavík, var þar um borð kista Ástu heitinnar Þórarinsdóttur. Bræður líinnar látnu voru á bryggjunni og tóku á móti kist- unni og var hún flutt heim til annars þeirra, Birgis Þórarins- sonar. Þar verður kistan látin standa unz útförin fer fram, en eigi hefur verið ákveðið hvenær það verður — Oddur. — Eisenhower Framh. af bls. 1. þessu tilefni, m. a. frönskum og bandarískum fánum. Einnig voru þar stórar myndir af forsetanum Og hin venjulegu hyllingarspjöld með áletrunum „I like Ike“. Eisenhower kvaðst gleðjast yf- ir að vera kominn til Parísar og sérstaklega yfir því að hitta nú aftur sinn gamla félaga og sam- starfsmann, de Gaulle. Kvaðst hann hyggja gott til þess, að þeir fengju nú tækifæri til þess að einbeita kröftum sínum enn frek- ar að hinu eina, mikla marki — friði, og það væri sannfæring sín, að þeir myndu finna leiðir til þess að samvinna þeirra yrði enn árangursríkari en áður. ★ Þeir forsetarnir ræddust við í klukkustund fyrir hádegi, og sagði blaðafulltrúi Eisénhowers, að umræðurnar hefðu „byrjað vel“, en það var einkum stefna Frakka í Alsír og afstaða þeirra til Atlantshafsbandalagsins, sem þeir ræddu á þessum fyrsta fundi. Eftir hádegið ræddu þeir málin frekar, að viðstöddum ráð- gjöfum sínum. Þá var einnig fjallað um ástand heimsmálanna almennt og þá sér í lagi spennan milli aust- urs og vesturs. Einnig munu for- setarnir hafa rætt Berlínarvanda málið. Sagt er, að Eisenhower hafi lýst því yfir, að Bandaríkin vildu vinna að lausn Alsírvanda- málsins á grundvelli réttlætis og frjálslyndis. Á morgun mun Eisenhower ræða við Paul Henri Spaak, framkvæmdastjóra Atlantshafs- bandalagsins, svo og forseta Atlantshafsráðsins. sem er ein helzta togarabryggjan. Lögreglumenn voru þegar sendir á vettvang, og nauðsynlegar ráð- stafanir gerðar til þess að fá kafara til að fara á augabragði niður að bílnum. Enginn vissi þá um hvaða bíl var að ræða né heldur um það hvort einn eða fleiri hefðu verið í bílnum. Guðmundur Gíslason vörubíl- stjóri hjá togaraafgreiðslunni hafði setið í bíl sínum, á Faxa- garði og horft yfir höfnina. Allt í einu heyrði hann skell mikinn, leit fram fyrir bílinn og sá hvar amerískur sex manna fólksbíll stakkst fram af bryggjuhausn- um. Hann hafði ekki getað greint, hvort fleiri eða færri höfðu verið í bílnum. Eftir um það bil hálftíma var Andri Heiðberg kafari kominn á slysstað og fór hann niður að bílnum og kom að vörmu spori með einn mann sem í bílnum hafði verið. Tveir sjúkratodlar stóðu þá á bryggjunni til taks. Var maðurinn þegar fluttur í slysavarðstofuna. Lífsmark var þá ekkert með honum. í slysa- varðstofunni voru gerðar lífgunar tilraunir, en þær voru árangus- lausar. Einn af krönum hafnarinnar lyfti bílnum upp. Var þak hans mikið dældað og báðar fram og afturrúðurnar höfðu brotnað. Grant, hershöfðingi, Emil Jónsson, forsætisráðherra, og Que- sada, flugmálastjóri Bandaríkjanna, við hið hátíðlega tækifæri í gær. — S. Þ. reiðubúnar oð miðla rriálúm ÐAG HAMMASKJÖLD, fratn- kvæmdastjöri Sameinuðu þjpð- anr^a,. k'dm í fyjrxákýöld 'til .Rio de Járneiro, •hpiuðborgar Brasíf-' íu.a Hann ræ'ddi við fréttáméhn þar í gæx.Qg.áágði, að.Sameinuðu þjóðirnar. væru reiðubÚJjar • ,að miðla málum í deilu Indverja og Kínverja. Hins vegar væru frá- sagnir af atburðunum á landa- mærunum enn harla óljósar og mótsagnakenndar. Hann var pð því spurður hvort hann teldi líklegt að Kína fengi upptöku í Sameinuðu þjóðirnar. Kvaðst hann hafa litla trú á því að nokkur breyting hefði orðið á afstöðunni til þeirrar umsókn- ar. Merkur áfangi Fullkomið r öryggismálum flugsins: ultraby I gjufjar- skiptakerfi tekið í no tkun í gær í GÆR var tekið í notkun nýtt og mjög fullkomið flug- fjarskiptakerfi, sem íslenzka flugmálastjórnin ásamt flug- málastjórn og flugher Banda- ríkjanna hafa komið upp í Lögreglan skoðar bílinn upp. Utanríkisráuiierrarnir gangist íyrir lausn landheigisdeilunnar Uqpásfunga aðalrifstjóra Berlingske Tidende í grein í gœr í GÆRMORGUN birtist kjallara- grein í Berlingske Tidende eftir aðalritstjórann, Terkel M. Ter- kelsen, sem er nýkominn frá ís- Iandi, þar sem hann hvetur nor- rænu utanríkisráðherrana til þess að íhuga, hvorí peir geti ekki haft forgöngu um að binda endi á, eða a. m. k. milda hina óheilla- vænlegu fiskveiðideilu, eins og tekið er til orða. f greininni er ekki tekin af- staða til þess, hvor aðila hafi réttinn sín megin, en látinn í Ijós uggur um alvarlegar stjórn- málalegar afleiðingar í utanríkis- málum, ef hér kynnu að gerast einhverjir atburðir í vetur, svo sem ef manntjón yrði. Þá segir, að báðir aðilar hafi markað gr<undvallarsjónarmið sín svo ótvírætt, að málamiðlun í deilunni þyrfti ekki að hafa áhrif á aðstöðu þeirra á væntanlegri ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna næsta vor. Orðrétt segir í Iok greinar Terkelsens: — Málamiðlun ætti að vera til góðs, ef hún getur bundið endi á ástand, sem er hvorttveggja í senn, hættulegt og lítt sæmandi. sameiningu. Er þetta ultra- stuttbylgjukerfi, sem hefur ómetanlega þýðingu fyrir allt flug yfir og umhverfis Island. Sérlega þýðingarmikið er það, að bylgjur þessar eru ekki háðar áhrifum sólbletta og annarra fyrirbæra, sem gera venjulegar stuttbylgjur ónothæfar. — Emil Jónsson, forsætisráðherra, afhenti kerf ið til notkunar. Þetta nýja kerfi er í megin- atriðum fóigið í því, að við rat- sjárstöðvar við Keflavík, á Straumnesi, Langanesi og Stokks nesi við Hornafjörð, er komið fyrir stórum ultrastuttbylgju- stöðvum til viðskipta við flug- vélar. Öllum þessum stöðvum er stjórnað frá flugstjórnarmiðstöð- inni á Reykjavíkurflugvelji, en til þess að tryggja sambandið milli ultrastöðvanna og Reykja- víkur hefur verið komið á beinu sambandi milli þeirra allra og flugvallarins með nýjustu tækni. M a rsvínatorfa AKUREYRI, 2. sept. — í gær- kvöldi á níunda tímanum urðu menn varir við marsvínatorfu sem óð inn eftir Pollinum og brugðu menn skjótt við og hleyptu bátum sínum á flot og hugðust reka torfuna á land. Sigldu þeir á eftir henni suður pollinn og ætluðu að reka hana inn á Leirar, en marsvínunum tókst að komast undan og sneru þau út aftur án þess að mönnum tækist að handsama neitt þeirra. Yíirforiiigi Indlandsliers dregur ausnarbsiðni til baka SAMKVÆMT fregnum frá Nýju- Dehli í gær, fékkst þá engin staðfesting á þeirri frétt, sem komst á kreik í fyrradag, að Krishna Menon, landvarnarráð- herra Indlands, hefði beðizt lausn ar. ★ Nehru forsætisráðherra sagði frá því á þingfundi í gær, að yfirforingi indverska hersins, Thimayya, hefði dregið til baka lausnarbeiðni síng, sem hann hafði lagt fram s.l. mánudag. Hershöfðinginn byggði lausnar- beiðnina á því, að hann taldi að pólitísk sjónarmið hefðu verið látin ráða, er nokkrir menn inn- an hersins voru hækkaðir í tign. — Þessu neitaði Nehru algerlega, kvaðst sjálfur hafa rannsakað málið og komizt að raun um, að þetta væri á misskilningi byggt. Hefði hann sannað yfirhershöfð- ingjanum það og fengið hann til þess að hætta við að biðjast lausnar. Forsætisráðherrann fór mikl- um viðurkenningarorðum utn hershöf ðing j ann í þessu sam- bandi, en taldi þó lausnarbeiðni hans eins og málum er nú hátt- að, fljótfærnislega. Einnig hældi Nehru Krisna Menon á hvert reipi við þetta tækifæri. Framh. á bls. 19 Slíku sambandi verður og komið á milli Reykjavikurflugvallar og helztu flugvalla landsins og á næsta ári er ákveðið að auka kerfið með samtengdum stöðv- um, sem reistar verða á Vaðla- heiði, Fjarðarheiði, Skálafelli við Esju og í Vestmannaeyjum. — Auk þess hefur verið komið upp ILS-blindlendingarkerfi á Keflavíkurflugvelli, en það er rekið af íslenzku flugmálastjórn- inni. Allur þessi tækniútbúnaður er fenginn að láni hjá flugmála- stjórn Bandaríkjanna til 15 ára samkvæmt samkomulagi, sem flugmálastjórinn, Agnar Kofoed Hansen, gerði vestra í haust. Nokkuð af þessum tækjum mun Póst- og símamálastjórnin fá til afnota til endurbóta á talsíma- þjónustunni innanlands, en flug- málastjómin fær í staðinn tal- rásir símans, sem tryggja sam- bönd milli flugvallanna. Uppsetninguna önnuðust Is- lendingar með tæknilegri aðstoð bandarísku flugmálastjórnarinn- ar og í því skyni kom hingað G. E. Goudie, yfirverkfræðingur radíódeildar hennar. En í tilefni ópnunarinnar kom hingað flug- málastjóri Bandaríkjanna, E. R. Quesada, fyrrum hershöfðingi, og yfirmaður fjarskiptamála banda- ríska flughersins, Grant hers- höfðingi. Queseda, Grant hershöfðingi, Agnar Kofoed-Hansen og Pritc- hard, yfirmaður varnarliðsins, opnuðu sambönd flugturnsins við ultrastöðvarnar fjórar, en síðan flutti forsætisráðherra ræðu og afhenti hið nýja fjarskiptakerfi til notkunar. Fór athöfnin fram í ráðherrabústaðnum við Tjarnar götu að viðstöddum mörgum gest um, en í bústaðnum hafði verið komið fyrir nauðsynlegum tækj- um og samböndum við flugturn- inn. Forsætisráðherra sagði í sinni ræðu, að hér væri um að ræða ómetanlega öryggisaukningu í fluginu við Island, en kvað það skemmtilega tilviljun, að atburð- inn bæri einmitt upp á 40 ára afmæli flugsins hér. Þakkaði hann öllum, sem lagt höfðu hönd á plóginn í sambandi við hið nýja Stórvirki og óskaði flugmál- um íslendinga farsældar. Queseda, flugmálastjóri Banda ríkjanna, sagði og við þetta tæki- færi, að Bandaríkjamönnum væri þetta stóra skref í flugsögu íslands mikið ánægjúefni. Hér væri um að ræða velferðar- og öryggismál, sem vafalaust yfði til heilla — og þá væri tilgangi Bandaríkjastjórnar með aðstoð- inni líka náð. — Að athöfninni lokinni bauð forsætisráðherra gestum til snæðings.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.