Morgunblaðið - 03.09.1959, Blaðsíða 19
Fimmtudagur 3. sept. 1959
MORGVNBL4Ð1Ð
19
Öðruvísi umhorfs
L
Vatnsmýrinn.i en 1919
NÚ er öðru vísi umhorfs í Vatns-
mýrinni en var fyrir 40 ánum,
þegar Faber lenti þar fyrstur
manna flugvéi á ísiandi. En
Vatnsmýrin er enn tengd fluginu
og verður sennilega um mörg
ókomin ár, því að lengsta flug-
brautin á Reykjavíkurflugvelii
teyir sig allt frá Nauthólsvík
norður í Vatnsmýri.
★
TíSindamaður Mbl. brá sér út
í flugturn í gærkvöldi rétt í þann
mund er Katalínuflugbátur Flug-
félagsins sveif lágt yfir Tjörnina
og hlammaði sér á brautarend-
ann í Vatnsmýrinni. Gul ljós log-
uðu beggja vegna meðfram endi-
langri brautinni — og hjón og
hjónaefni nutu góða veðursins í
Hljómskálagarðinum.
En enginn leit upp þó flug-
véladynur heyrðist í lofti — því
síður að einhverjum hafi dottið
í hug að hlaupa út í Vatnsmýri
til þess að sjá flugvélina. 40 ár
er líka langt tímabil hjá fram-
gjarnri þjóð — og flugið í dag
er ekki hvað sízt táknrænt fyrir
þá þróun, sem orðið hefur í ís-
lenzku þjóðlífi á þessum fáu ár-
um.
í flugturninum gekk allt sinn
vana gang. Douglas DC-3 var á
leið frá Fagurhólsmýri, annar
frá Akureyri, Viscount kominn
langleiðina heim frá Kaupmanna-
höfn og Glasgow — og þrjár Loft
leiðavélar voru á lofti: Ein á
leið til Reykjavkur frá Osló, hin-
ar tvær á leið milli New York
og Goose Bay, en þaðan flugu
þær heimleiðis í nótt. Síldar-
leitarflugvél var nýlept fyrir aust
an — og utan við turninn stóð
flugvél Björns Pálssonar. í turnin
um er fylgzt með öllum hreyf-
ingum flugvéla, Viscount, sem
stuttu áður hafði flogið fram hjá
Færeyjum, kallaði í Flugturninn
og boðaði nokkurra mínútna
seinkun á komutímá til Reykja-
víkur.
En þeir í flugturninum fylgj-
ast ekki einungis með íslenzku
vélunum, því þar er miðstjórn
flugumferðar yfir norðanvert
Atlantshaf. Á hverjum sólar-
hring er þar fylgzt með tugum
— oft yfir 100 flugförum á þess-
ari leið. Tvær risaþotur urðu
fyrstar til þess að skipta við
Reykjavik eftir a#' nýja fjar-
skiptasambandið var tekið í notk
un um hádegisbilið. Báðar voru
á vesturleið, önnur Comet frá
BOAC — hin Boeing 707 frá
PAA, báðar u.þ.b. 200 mílur fyr-
ir austan land.
12 æfingaþotur voru nýlentar
í Keflavík á leið frá Syðri-
Straumfirði í Grænlandi. Sex
farþegavélar — frá PAA, SAS,
Bandaríkjaher og kanadíska
hernum áttu misjafnlega skammt
eftir til Keflavíkur og nokkrir
tugir flugvéla voru á leið frá
Evrópu til Ameríku án viðkomu
í Keflavík. Þetta var frekar lít-
il umferð, sögðu þeir í turninum,
nóttin yrði róleg — og einn fór
að hella upp á könnuna. Brautar
ljósin voru slökkt, það var kom
ið myrkur í Vatnsmýrinni, en í
flutningurinn berast á öldum
ljósvakans, með stuttu millibili,
tilkynningar og fyrirspumir frá
íslenzkum og erlendum loftför-
um hátt í hæðum.
— Yfirforingi
Framh. af bls. 2.
Einn af þingmönnum stjórnar*
andstöðunnar krafðizt umræðu
um þetta mál þegar í stað og
stakk upp á, að það yrði rætt á
lokuðum fundi. — Nehru kvaðst
reiðubúinn að ræða málið á þing-
fundi, en ekki þegar í stað — og
umræðan yrði að vera opinber.
— Forseti þingsins tók af skarið
og neitaði beiðni stjórnarand-
stöðunnar um tafarlausa um-
ræðu, taldi að slíkt væri ekki
heppilegt — og vísaði til afstöðu
forsætisráðherrans.
Rannsóknarlögreglan er að
reyna að hafa uppi á þessum
skemmtilega vatnabáti. Bát-
urinn sem er ameriskur úr
aluminíum, 14 feta langur,
mjög léttur og meðfærilegur,
hvarf af Draghálsvatni um
mánaðamótin • júlí—ágúst.
Hafði honum verið stolið um
nótt og hefiur ekki tekizt
ennþá að upplýsa hvar hann
muni nú vera niður kominn.
En þeir sem kynnu að geta
gefið upplýsingar um það,
eða hefðu séð hann einhvers-
staðar, eru beðnir að gera
aðvart hið fyrsta.
'VKRANESI. — Ekki hefur heyrzt
■um að nein hreyfing sé meðal
útgerðarmanna hér um að hefja
reknetjaveiðar eins og sakir
standa.
— Oddur.
Aldarafmæli
Ogurkirkju
NOKKURRA missagna gætti í
frásögn Mbl. í fyrradag af aldar-
minningu ögurkirkju. Gjafir
þær, er henni bárust voru þessar:
Frá börnum Sigrúnar Bald-
vinsdóttur og Einars Þorsteins-
sonar á Eyri, í minningu foreldra
þeirra, 5 þús. kr. Frá börnum
Guðríðar Hafliðadóttur og Ólafs
Þórðarsonar á Strandseljum,* í
minningu foreldra þeirra, 5 þús.
kr. Frá frk. Ragnhildur Jakobsd.
í Ögri 3 þús. kr., en hún var
lengi kirkjueigandi og staðar-
haldari í ögri og hefir áður gefið
kirkjunni góðar gjafir. Frá
Bjarna Sigurðssyni og frú Björgu
Björnsd. Vigur 1 þús. kr. Þá bér-
ust kirkjunni kveðjur og pen-
ingagjafir frá ýmsum gömlum
Ögursveitungum, sem þaðan hafa
flutzt. Kvenfélag sveitarinnar
gaf vandaðan gólfdregil og teppi
á gólf kirkjunnar, sem er til
hinnar mestu prýði. Þá gaf séra
Jón Auðuns dómpróf. málverk
af Ara Magnússyni og Kristínu
Guðbrandsdóttur í Ögri, ná-
kvæma eftirmynd hinnar miklu
frummyndar, sem fyrir löngu er
komin úr Ögurkirkju í þjóð-
minjasafnið. Kirkjan hafði áður
verið vandlega máluð og gladdist
safnaðarfólkið yfir hinum miklu
umbótum á hinni fallegu, gömlu
kirkju.
Kirkj uhátíðin fór fram við
fjölmenni og í fögru veðri.
Jafnframt var þess minnzt, að
þennan dag voru liðin 105 ár frá
fæðingu hins þjóðkunna skör-
ungs, séra Sigurðar Stefánssonar
í Vigur, sem þjónaði Ögurkirkju
alla sína prestskaparævi og allra
ögurpresta lengst.
Höhim nldrei beitt ylirgongi
segir ntnnríkisróðherra Kínn
Peking og Nýju-Delhi,
2. sept. (Reuter/NTB) —
CHEN Yi, utanríkisráðherra
Kína, lýsti því yfir í dag, að Kín-
verjar hefðu aldrei beitt nein-
um yfirgangi við önnur ríki og
bætti við, að þeir mundu ekki
heldur þola neinn ágang af hendi
annarra þjóða.
Utanríkisráðherrann lét þessi
orð falla í veizlu, sem haldin var
í sendiráði Norður-Vietnams í
fndverskt land -
skal vera kínverskl
PEKING-stjórnin hefir sent ind-
versku stjórninni nýtt kort af
Kína og yfirráðasvæðum þess.-
Er tekið fram, að þetta sé eina
landakortið, sem kínverska stjórn
in viðurkenni. Þetta hafði AFP-
fréittastofan eftir áreiðanlegum
heimildum í Nýju-Delhi í gær-
kvöldi.
Leiðrétting
1 MINNINGARGREIN, er birtist
í blaðinu í gær, um frú Svövu
Hermannsdóttur, Ytri-Varðgjá,
hafa slæðzt nokkrar prentvillur
og eru þessar bagalegastar:
Tryggvi á Ytri-Varðgjá, maður
Svövu sálugu, er sagður Jónsson,
en er Jóhannsson.
Börn þeirra hjóna eru réttilega
talin átta, en í upptalningu hafa
fallið niður nöfn þeirra Harðar,
bónda að Ytri-Varðgjá, Magnús-
ar, bifreiðarstjóra á Akureyri, og
Bjarna, verzlunarmanns í Reykja
vík. F. P.
— Skemmtiferð
Framh. af bls. 18.
arsson og Jóhann Þorsteinsson,
sem þakkaði fyrir vistfólkið á
Sólvangi.
Um skemmtiatriði sáu Baldur
Hólmgeirsson og Sigríður Hann-
esdóttir. Guðm. Magnússon talaði
af hálfu bifreiðastjóranna, en
B. M. Sæberg stjórnaði kaffi-
samsætinu, sem var hið ánægju-
legasta og öllum til mikillar
gleði. — Frá Þingvöllum var ek-
ið aftur til Hafnarfjarðar og kom-
ið þangað klukkan rúmlega sjö
um kvöldið. Bar öllum saman
um að ferðin hefði tekizt með
ágætum, þrátt fyrir fremur óhag-
stætt veður. — G. E.
Peking í tilefni þess, að 14 ár
eru nú liðin frá því að lýst var
yfir stofnun lýðveldis þar í
landi. — Chen Yi nefndi ekki
Indland á nafn í þessu sambandi
en ummæli hans voru af flestum
túlkuð þannig, að hann væri að
vísa til átakanna á landamærum
Kína og Indlands að undanförnu,
og er því litið á þau sem fyrstu
opinberu yfirlýsinguna af hálfu
Kínverja um það mál.
Utanríkisráðherrann sagði enn
fremur: — Við erum ávallt fylgj-
andi þeirri stefnu, að leysa skuli
deilur með friðsamlegum samn-
ingum — og viljum friðsamlegt
samstarf og keppni milli landa
með mismunandi þjóðfélagskerfi.
Þetta er óbifanleg stefna okkar,
og henni verður ekki breytt með
neins konar sögusögnum og
slúðri.
Áður hafði ráðherrann stað-
hæft, að Bandaríkjamenn stæðu
að baki styrjöldinni í Laos og
ógnuðu öryggi Kína og Norður-
Vietnam.
I.O.O.F. 5 — 140938% —
Okkur vantar *
Meiraprófs-
bifreiðastjóra
Uppl. milli kl. 6 og 7.
Bifreiðastöð Steindórs — Sími 1-15-88.
Matsveina og
veitingaþjónsskólinn
verður settur föstudaginn 4. sept. kl. 4
síðdegis. .
Skólastjórinn.
Lokað
vegna jarðarfarar frá háðegi í dag.
liemikalía hf.
Dugguvog 21.
Öllum þeim, sem á ýmsan hátt stuðluðu að því að gera
okkur dvöl okkar hér á landi í sumar ógleymanlega
þökkum við af alhug. Jafnframt viljum við biðja þá
vini, sem okkur því miður vannst ekki tími til að hitta,
að virða á betri veg. Þeim jafnt sem hinum biðjum við
alls góðs.
Dóra og Vilhjálmur Bjarnar
Hjartans þakklæti til skyldra og vandalausra, félaga
og einstaklinga fyrir hlýhug og vinsemd mér sýnda
á 75 ára afmæli mínu 28. ágúst s.l. og gerðu mér daginn
ógleymanlegan.
Guðjón Magnússon,
ölduslóð 8, Hafnarfirði.
Minn hjartkæri eiginmaður
EYÞÓR GUÐJÓNSSON
bókbindari,
andaðist að heimili okkar Laugaveg 46b 2. september s.l.
Ástríður Björnsdóttir.
Konan mín,
GUÐRlÐUR GUÐBRANDSDÓTTIR
verður jarðsungin laugardaginn 5. september.
Húskveðja hefst að heimili hennar kl. 12,30. Bílferð
verður frá Bifreiðarstöð íslands kl. 10,30.
Gamalíel Jónsson og böm
Stað, Grindavík
Hjartans þakkir sendum við öllum þeim er sýndu
okkur samúð og vinarhug við fráfall og jarðarför kon-
unnar minnar og móður okkar
SVEINSlNU SVEINSDÓTTUR
Tryggvi Benónýsson,
Ásgerður Tryggvadóttir, Sveinn Tryggvason.
Móðir okkar og tengdamóðir
HELGA GUÐMUNDSDÓTTIR
verður jarðsett frá Dómkirkjunni föstudaginn 4. sept.
Athöfnin hefst kl. þ,30. Blóm afþökkuð.
Guðmundur Árnason, Árni Árnason,
Halla Aðalsteinsdóttir, Guðrún Pálsdóttir.
I